Morgunblaðið - 06.02.2018, Síða 18

Morgunblaðið - 06.02.2018, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 2018 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Borgarstjórihefur kosiðað nálgast mikilvæg málefni borgarinnar með útúrsnúningum og fjarstæðukenndu tali. Í umræðum um skort á byggingarfram- kvæmdum hafnar hann því að skortur sé á lóðum en heldur því fram að byggingarfram- kvæmdir séu ónógar vegna skorts á byggingarkrönum. Þetta er svo yfirgengilegt að það er varla svaravert, en þó var fengið álit nokkurra sem til þekkja og hafna þessari krana- skortskenningu afdráttarlaust. Annað dæmi um mikilvægt mál þar sem borgarstjóri beitir fyrir sig málflutningi af þessu tagi eru samgöngur í borginni. Á borgarstjórnarfundi um miðjan síðasta mánuði flutti Kjartan Magnússon, borgar- fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, tillögu um að „óska eftir endur- skoðun á samgöngusamningi ríkisins og Reykjavíkurborgar með það að markmiði að á samningstímabilinu verði ráð- ist í stórframkvæmdir í sam- göngumálum í Reykjavík“. Viðbrögð Dags B. Eggerts- sonar borgarstjóra við tillög- unni voru að flytja ræðu um að slíkur samningur væri ekki til og tillagan því á misskilningi byggð. Svo fylgdu langar hár- toganir um orðalag sem hefðu varla sómt sér á málfundaræf- ingu í grunnskólum borgar- innar. Dagur hélt því fram að samningurinn væri ekki við Reykjavík heldur við sveitar- félögin á höfuðborgarsvæðinu og að hann snerist um að efla almenningssamgöngur en ekki að stöðva stórframkvæmdir, enda hefði hvort eð er verið ólíklegt að í þær framkvæmdir yrði ráðist næsta áratuginn eftir að samningurinn var gerður, sem var árið 2012. Vitaskuld stóð ekki steinn yfir steini í þessum dapurlega útúrsnúningi borgarstjóra og eins og Kjartan benti á þá var samningurinn við Reykjavík þó að fleiri væru aðilar að honum og það sem meira væri, Reykjavíkurborg hefði dregið vagninn í þessu máli og aðrir aðeins fylgt með. Hluti af þessum samningi, sem borgarstjóri neitar að sé til og kallaði „einhvern meint- an samning“, var að stöðva stórframkvæmdir. Þær stór- framkvæmdir voru tilteknar sérstaklega í tengslum við samninginn og í Morgunblað- inu í gær var sá listi birtur, svo að ekki fer á milli mála að hann er til, rétt eins og samningur- inn. Menn geta leikið sér með hártoganir en staðreyndin er sú að Reykjavíkur- borg fékk ríkið fyr- ir nokkrum árum til þess að flytja fé frá stórfram- kvæmdum og í strætó, enda borgin á móti stórframkvæmd- um í samgöngumálum, fyrir ut- an borgarlínu, sem nú er upp- haf og endir alls í þeim efnum hjá borginni. Og ítrekað hefur komið fram að borgaryfirvöld hafa beinlínis hafnað þeim stóru framkvæmdum sem ríkið hefur viljað fara í innan borgarmarkanna, þrátt fyrir samninginn. Dæmi um þetta eru gatnamót Bústaðavegar og Breiðholtsbrautar, þar sem ríkið vill laga stíflu en borgin stendur gegn því. Borgarstjóri heldur væntan- lega uppi þessum fjarstæðu- kennda málflutningi vegna þess að hann áttar sig á að samningur hans við ríkið hefur engu skilað í auknum almenn- ingssamgöngum en hefur kost- að borgarbúa miklar umferðar- tafir sem ekki sér fyrir endann á að óbreyttu. Sennilega er sama ástæða fyrir því að hann er nú farinn að tala um að setja Miklubraut í stokk til að létta á umferðar- stíflunni, leið sem meirihlutinn ákvað fyrir nokkrum árum að semja sérstaklega frá sér. Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins fyrir kom- andi borgarstjórnarkosningar, gagnrýnir þann kostnað sem nýlega hefur verið lagt í vegna endurbóta á Miklubraut í ljósi umræðu nú um að setja hana í stokk: „Það er ekki trúverðugt að rúmum 100 dögum fyrir kosningar sé borgar- stjórnarmeirihlutinn að dusta rykið af gamalli hugmynd um Miklubraut í stokk, hugmynd sem sjálfstæðismenn studdu en meirihlutinn tók af dagskrá ár- ið 2012. Mér finnst ekki trú- verðugt að þegar verið er að ljúka framkvæmd upp á hálfan milljarð við grjótgarða sitt- hvorumegin við Miklubrautina fjárfesti borgin í kynningar- myndbandi um Miklubraut í stokk, einmitt þá tillögu sem borgarstjórnarmeirihlutinn af- skrifaði,“ segir Eyþór. Auðvitað er þetta ekki trú- verðugt, ekki frekar en að halda því fram að samgöngu- samningur við ríkið sé ekki til eða að kranaskortur valdi íbúðaskorti í Reykjavík. Borgarbúar hljóta að mega vona að borgarstjórnarmeiri- hlutinn taki sig á og ræði málin fyrir kosningar út frá stað- reyndum og án útúrsnúninga. Borgarstjóri á ekki að láta eins og hann sé á málfundaræf- ingu þegar hann ræðir alvörumál} Fjarstæðukenndur málflutningur H inn 25. janúar sl. fór fram sér- stök umræða í þingsal um nýtt þjóðarsjúkrahús. Umræðan var að mestu málefnaleg nema ef frá eru taldar tilraunir ráð- herra og þingmanna Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs (VG) til að þagga niður um- ræðuna. Gekk svo langt að heilbrigðisráherra taldi hættulegt að skoða málið betur. Aðrir þingmenn VG gáfu það til kynna að innan Landspítalans væri almennur vilji til að halda áfram með mistökin við Hringbraut. Nýverið rituðu nokkrir einstaklingar; fjórir læknar, hjúkrunarfræðingur, skipulagsfræð- ingur og viðskiptafræðingur grein á visi.is með fyrirsögninni „Hættuleg hugmynd“ þar sem raktir eru kostir þess að reisa nýtt sjúkrahús á nýjum stað. Greinin er rituð af fólki sem bæði er sérfræðingar á sínu sviði og með víðtæka þekkingu á málinu. Í grein þeirra segir m.a. „Ef spítalinn verður á Hring- braut þarf tímafrekar og kostnaðarsamar úrbætur á sam- göngumannvirkjum. Setja þarf Miklubraut í stokk frá Kringlunni að Hringbraut, Öskjuhlíðargöng, veg yfir Skerjafjörð og borgarlínu. Allt þetta kostar yfir hundrað milljarða króna úr ríkissjóði, sem ekki er aflögufær vegna annarra brýnna verkefna. Því mun þetta taka áratugi. Sumt af þessu þarf vissulega að koma þó að spítalinn flytj- ist á betri stað, en það er ekki eins mikið lífsspursmál og má gerast á lengri tíma. Samkvæmt þessu er það eigin- lega hættulegri hugmynd að vilja byggja spítalann við Hringbraut í stað þess að byggja á betri stað ef gengið er út frá því að vilji sé fyrir hendi til að byggja nýtt sjúkrahús og um það þarf ekki að efast.“ Það virðist hins vegar litlu skipta þótt sér- fræðingar sem þessir færi rök fyrir því að það séu mikil mistök að halda áfram með Hring- brautarverkefnið því ráðherra og elítan í kring- um hana hafa ákveðið að mistök skuli gerð sama hvað það kostar. Það sem er þó alvarlegast er að ráðherra og fylgismenn hennar á alþingi fara í umræðuna á þeim forsendum að það sé hættu- legt að ræða mistökin í stað þess að færa rök fyrir því að betra sé að halda áfram með Hring- brautarverkefnið. Svo virðist sem ráðherrann og elítan í kerfinu sé búin að fjárfesta svo mikið í mistökunum að hvað sem sagt verður, hver sem mótrökin eru, áfram skal haldið. Við hvað er þetta fólk hrætt? Eru þau hrædd við að ef skipulagsmálin eru skoðuð betur þá sé ljóst að það sé betra að færa sjúkrahúsið? Eru þau hrædd við að kostn- aður við nýjan spítala sé lægri en að gera við þann gamla? Má vera að raunkostnaður við endurbætur við Hringbraut sé vanáætlaður? Getur verið að í þau viti það í raun og veru að það að byggja nýtt sjúkrahús miðsvæðis á höfuð- borgarsvæðinu sé betra? Ef þetta er reyndin þá er ljóst að umræðan er hættuleg fyrir þetta fólk og þöggunin eðlileg í því ljósi. Gunnar Bragi Sveinsson Pistill Er umræðan hættuleg? Höfundur er alþingismaður Miðflokksins fyrir Suðvesturkjördæmi. gunnarbragi@althingi.is STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Vinnsla raforku gekk vel áárinu 2017 hjá Lands-virkjun (LV) og fór raf-orkuvinnslan í fyrsta sinn yfir 14 TWst (terawattstundir). Sleg- in voru vinnslumet á árinu í Fljóts- dalsstöð, Sigöldustöð, Búðarháls- stöð, Sultartangastöð og Steingríms- stöð. Sumar af þessum stöðvum hafa starfað í áratugi, t.d. Steingrímsstöð við Sog, sem tekin var í notkun árið 1959. „Helsta skýringin á þessu er aukið álag (aukin sala) og þar með aukin nýting vinnslukerfisins. Auk þess hefur vatns- búskapurinn á sama tíma verið hagstæður,“ segir Einar Mathiesen, framkvæmda- stjóri orkusviðs Landsvirkjunar. Sumar stöðvar Landsvirkjunar hafa aflgetu sem er meiri en venju- legt rennsli býður upp á og Stein- grímsstöð er ein af þeim, segir Einar. Vinnsla einstakra vatnsafls- stöðva ræðst fyrst og fremst af breytilegu rennsli á milli ára, upp- settu afli og takmarkast af mögu- legum stöðvunum vegna viðhalds. Á árinu 2017 voru sem fyrr seg- ir slegin vinnslumet í fimm afl- stöðvum, þ.e. Fljótsdalsstöð, Sig- öldustöð, Sultartangastöð, Búðar- hálsstöð og Steingrímsstöð. Hæsti vinnslutoppur í kerfi Landsvirkjunar var 15. desember en meðaltoppur þann dag var 1.831 MW (megavatt) en til samanburðar var uppsett afl í aflstöðvum LV að frádregnum tak- mörkunum og reiðuafli 1.881 MW. Álagsmesti dagurinn var 16. desem- ber en þá var orkuvinnslan 41,15 GWst (gígavattstundir). En meðal orkuvinnsla LV á sólarhring var 38,3 GWst á síðasta ári. „Nýtni í vinnslu- kerfi Landsvirkjunar var einstak- lega góð á síðasta ári og iðulega framúrskarandi eða yfir meðallagi á alþjóðlegan mælikvarða,“ segir Einar. Landsvirkjun starfrækir fjórtán vatnsaflsstöðvar, þrjár jarðvarma- stöðvar og tvær vindmyllur á fimm starfssvæðum víðs vegar um landið. Hlutur vatnsafls er um 96% í vinnslu LV og hlutur jarðvarma er 4%. Hér á landi eru 99% allrar raforku unnin með endurnýjanlegum orkugjöfum. Raforkuvinnsla landsmanna nam um 18.700 GWst á síðasta ári og var hlut- ur LV 75%. Rekstur aflstöðva Landsvirkj- unar gekk vel á árinu 2017. Raforku- afhending fyrirtækisinsinn á flutn- ingskerfi Landsnets nam 13.898 GWst árið 2017 að frádregnum töp- um og eigin notkun, sem er 4,6% aukning frá árinu 2016. Þar af nam vinnsla Fljótsdalsstöðvar, stærstu aflstöðvar LV 27%, eða 5.065 GWst. „Við rekstur aflstöðva er lögð áhersla á heildræna sýn þar sem ráð- deild, áreiðanleiki og sambýli starf- seminnar við umhverfi og samfélag eru höfð að leiðarljósi. Landsvirkjun hefur sett sér það markmið að allar vélar í aflstöðvum fyrirtækisins skuli vera tiltækar 99% af árinu að með- töldum skipulögðum viðhaldstíma- bilum. Þetta markmið náðist á árinu. Vélar voru tiltækar 99,8% tímans á árinu, sama og var árið áður,“ segir Einar. Sem dæmi má nefna að Ljósa- fossstöð við Sog varð 80 ára gömul í fyrra og slær hvergi slöku við. Nýt- ingarhlutfallið á árinu var um 97,5%, sem þýðir að vélar stöðvarinnar voru í gangi 357 daga. Stöðin var úti vegna skoðana og viðhalds sjö daga og vegna truflana aðeins einn dag. Vinnslumet slegin hjá Landsvirkjun Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Fljótsdalsstöð Hún er stærsta aflstöð Landsvirkjunar og var tekin í notkun árið 2007. Vinnslan var 5.065 GWst í fyrra, sem er nýtt met. Einar Mathiesen Ein TWst (teravattstund) jafn- gildir 1.000.000.000 kWst (kílóvattstund). Einar tekur dæmi: Stór hella á eldavél er 1 kW (1.000 W). Ef hellan er notuð á fullum styrk í eina klukkustund eyðir hún 1 kWst (einni kílóvattstund). 14.000.000.000 slíkar hellur í eina klukkustund gefa þá 14.000.000.000 kWst = 14 TWst (teravattstund). Í einu ári eru 8.760 klukku- stundir. Ef vinnsla ársins 2017 hjá Landsvirkjun var 14.000.000.000 kWst og því dreift jafnt yfir allt árið (eins og að álagið á kerfinu hafi ver- ið stöðugt allt árið) þá hefði dugað samtals uppsett afl í stöðvum LV jafnt 14.000.000.000 kWst deilt með 8.760 st = 1.598.174 kW eða um 1.600 MW. Afl allra stöðva Landsvirkjunar stöðv- anna er hins vegar um 1.900 MW (megavatt). Afl stöðva 1.900 MW LANDSVIRKJUN

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.