Morgunblaðið - 06.02.2018, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 06.02.2018, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 2018 Sogavegi við Réttarholtsveg og Miklubraut Opið kl. 9-18 virka daga | Sími 568 0990 | gardsapotek.is | appotek.is Lágt lyfjaverð - góð þjónusta Einkarekið apótek Nú einnig netapótek: Appotek.is Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Landbúnaðarsýningin „Íslenskur landbúnaður“ verður í Laugardals- höll 12.-14. október í haust. „Um 50 ár eru frá sýningunni 1968 og því er við hæfi að blása nú til veglegrar sýning- ar,“ segir Ólafur M. Jóhannesson, framkvæmdastjóri sýningarinnar, sem unnin er í samvinnu við Bænda- samtök Íslands. Ólafur segir að ástæða sé til þess að vekja athygli á öllu því góða sem sé að gerast í íslenskum landbúnaði. „Ég hef lengi unnið að undirbúningi sýn- ingarinnar og verkefnið er eitt það áhugaverðasta sem ég hef fengist við,“ segir Ólafur, sem hefur staðið að ýmsum sýningum í 23 ár. „Það er mikill sóknarhugur í bænd- um víða um land,“ heldur hann áfram. „Menn sækja fram á nýjum sviðum, til dæmis á sviði umhverfisvænnar ferðaþjónustu, og margir huga að því að setja upp hraðhleðslustöðvar við bændagistinguna.“ Fjölþætt starfsemi Störf bænda eru af margvíslegum toga og segir Ólafur það aldrei of metið. „Ég held að íslenskur landbún- aður sé miklu stærri en fólk geri sér almennt grein fyrir,“ segir hann og bendir á að fyrir utan að vinna við hefðbundinn búskap stundi margir bændur mikilvæg störf eins og til dæmis skógrækt, fiskeldi, laxveiði, heimilisiðnað, fullvinnslu búvara, framleiðslu á endurnýjanlegri orku og ferðaþjónustu. „Hreint land er eitt mesta dýrmæti sem við eigum og sýn- ingunni er ætlað að endurspegla hvað íslenskur landbúnaður er fjölþættur,“ segir Ólafur. Hann bætir við að auk þess verði boðið upp á nokkra fyrir- lestra þar sem fjallað verði um efni eins og til dæmis matarferðaþjón- ustu, fæðuöryggi, möguleika í ferða- þjónustu í sveitum og skógarbændur. Landbúnaðar- sýning í haust  Sækja fram á mörgum sviðum Laugardalshöll Ólafur sá um Sjávarútvegssýninguna þar 2016. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis, fjallaði um aðferðir við hæfnismat á umsækjendum um opin berar stöður í skýrslu sinni fyrir árið 2016 sem birt var í ágúst 2017. Til- efnið var þróun sem umboðs- maður taldi sig hafa séð þar sem notast væri öðru fremur við stiga- gjöf á kostnað efnislegs mats á umsækjendum. Nýlegt dæmi um slíka stigagjöf er þegar hæfnis- nefnd vegna skip- anar dómara við Landsrétt gaf doktorsprófi í lögfræði og viðbótar- gráðum 10 stig en embættisprófi 1 stig í stigagjöfinni. Skilja má á skýrslu umboðsmanns að aðferða- fræðin við slíka stigagjöf geti borið tilganginn ofurliði. Þ.e. að veiga- miklir þættir, á borð við starfs- reynslu, séu fundnir léttvægari en tilefni er til. Af því virðist mega álykta að erfitt geti verið fyrir þá sem ekki veljast í starfið að leita skýringa í matsgerðinni. Sjónarmiðum gefið vægi Umboðsmaður rifjaði upp að skv. óskráðri meginreglu stjórnsýslu- réttar bæri almennt að ráða hæfasta umsækjanda í opinbert starf. „Af því leiðir að mat á umsækj- endum þarf að fara fram á grund- velli faglegra verðleika þeirra í ljósi þeirra málefnalegu sjónarmiða sem eiga við hverju sinni samkvæmt lög- um og eðli starfsins … Í málum þar sem ráða á opinbera starfsmenn eða skipa embættismenn virðist hin síð- ari ár oft hafa verið farin sú leið af hálfu stjórnvalda eða þeirra ráðn- ingarfyrirtækja sem þau leita til að tilgreina þau sjónarmið sem mat á umsækjendum er grundvallað á og þeim gefið ákveðið vægi. Umsækj- anda eru síðan gefin stig fyrir hvert sjónarmið og heildarstigagjöf hans reiknuð út. Sá umsækjandi sem hlýt- ur flest stig telst jafnan vera hæfasti umsækjandinn að mati veitingar- valdshafans. Tilgreining sjónarmiða og ákvörðun um innbyrðis vægi þeirra áður en umsækjendur eru metnir á þeim grundvelli er almennt í góðu samræmi við það verkefni veitingarvaldshafa að meta umsækjendur á grundvelli faglegra verðleika.“ Inntak starfsreynslu ekki metið Umboðsmaður hefði hins vegar á síðari árum „orðið þess var að fram- angreindri aðferð sé beitt með of formlegum eða fortakslausum hætti en minna fari fyrir efnislegu mati á þekkingu og getu umsækjenda“. Til dæmis sé „einungis litið til þess hversu löng starfsreynsla þeirra er í árum talið, hversu mörgum nám- skeiðum þeir hafa lokið eða hversu margar fræðigreinar þeir hafa birt en þess sjást ekki merki að lagt hafi verið mat á t.d. inntak starfsreynsl- unnar, þ.á m. hversu vel viðkomandi hefur staðið sig í starfi og þá með til- liti til þess hvernig ætla megi að sú starfsreynsla muni nýtast í því starfi sem verið er að ráða í“. Þá nefnir umboðsmaður önnur til- vik þar sem sjónarmiðunum hefur verið „stillt upp í matsmælikvarða þar sem þau hafa verið greind í flokka, s.s. ólíka flokka starfs- reynslu, þar sem hver flokkur getur einungis gefið tiltekinn fjölda stiga“. Afleiðingin geti oft orðið sú að um- sækjandi „sem hefur unnið á flestum stöðum, og sækir því stig úr flestum flokkum, fær fleiri stig en umsækj- andi sem hefur tileinkað sér ákveðna starfsreynslu, án þess að lagt sé efnislegt mat á hvort hin langa starfsreynsla þess síðarnefnda sé engu að síður betri undirbúningur til að gegna hinu auglýsta starfi en hin fjölbreytta starfsreynsla þess fyrr- nefnda,“ skrifar umboðsmaður. Hann telur ekki ómálefnalegt að líta til fjölbreyttrar starfsreynslu. Hins vegar virðist þessar aðferðir „oft leiða ósjálfrátt til þess að á skortir að efnislegur samanburður fari fram á verðleikum umsækjenda og þar með hæfni þeirra“. Vafi um stigafjöldann „Afleiðingarnar eru að raunveru- legur vafi skapast um hvort hæfasti umsækjandinn til að gegna starfinu hafi hlotið flest stigin og útilokist þar með frá því að koma til greina þegar ráðið er í starfið. Í þessu sam- bandi legg ég áherslu á að þær mats- aðferðir sem stjórnvöld styðjast við séu til þess fallnar að leggja raun- verulegt, efnislegt mat á umsækj- endur með það fyrir augum að hæf- asti umsækjandinn til að gegna því starfi sem um ræðir hverju sinni verði ráðinn. Almennt tel ég að miðað við eðli þeirrar matskenndu ákvörðunar sem ráðning í opinbert starf er og þau sjónarmið sem til greina kemur að byggja á við slíka ákvörðun þurfi að gæta varfærni þegar sú leið er farin við mat á um- sækjendum að láta niðurstöðuna ráðast af tölulegu mati með þeim hætti sem lýst hefur verið hér að framan,“ skrifaði umboðsmaður. Tryggvi vildi ekki tjá sig frekar um þessi sjónarmið. Stigagjöfin varhugaverð aðferð  Umboðsmaður Alþingis telur stigagjöf við ráðningar hjá ríkinu geta borið tilganginn ofurliði  Með þeirri aðferð geti veigamiklir þættir í reynslu verið léttvægir fundnir í mati á umsækjendum Tryggvi Gunnarsson Morgunblaðið/Ómar Alþingi Deilt er um ráðningar. Dómnefnd um umsækjendur um 15 dómarastöður við Landsrétt skilaði niðurstöðu til ráðherra 19. maí í fyrra. Fram kemur í inngangi að innanríkisráðuneytið hefði með bréfi dags. 2. mars 2017 farið þess á leit við dómnefnd „að hún léti í té umsögn um hæfni umsækjenda um 15 embætti dómara við Landsrétt sem auglýst voru laus til umsóknar 10. febrúar 2017 í Lögbirtingablaði“. Virðist nefndin því hafa haft um tvo og hálfan mánuð til verksins. Vikið er að svonefndum matsþáttum í niður- stöðum nefndarinnar. „Dómnefnd hefur í mati sínu á hæfni umsækjenda að því er varðar röðun innan einstakra þátta beitt eins mikilli nákvæmni og kostur er, en matsgrundvöllurinn er bæði fjölþættur og margbrotinn. Á hinn bóginn speglar endanlegur útreikningur í samanlögðum þáttum matsniðurstöður af mikilli nákvæmni,“ segir þar meðal annars. Tilgreindir eru 12 matsþættir (sjá graf hér fyrir ofan) sem lágu til grundvallar við hæfnismatið. Umsækjendur voru alls 33 og með því að 12 matsþættir voru fyrir hvern hafa verið gerðir samtals 396 matsþættir. „Eins og fram kemur í 3. kafla gáfu andmæli umsækjenda í sumum til- vikum tilefni til breytinga hvað varðar mat á nokkrum umsækjendum innan einstakra matsþátta. Á hinn bóginn breytti endurskoðað mat ekki þeim ályktarorðum sem komu fram í drögum nefndarinnar sem um- sækjendum voru áður send,“ segir þar orðrétt. Nefndarmenn fjalla um þá rannsóknarvinnu sem er að baki einstökum matsþáttum. Við mat á því hvort umsækjandi geti til dæmis farið að fyrirmælum laga um samningu dóma og ritað þá á góðu máli fór nefndin yfir ýmis fylgigögn. „Þar má telja dóma, stefnur, greinargerðir, úrskurði og fræðirit,“ segir þar m.a. um þennan matsþátt. Bendir þetta til að nefndin hafi farið yfir töluvert magn gagna. Nefndin hafi beitt mikilli nákvæmni við matsgerðina DÓMURUM RAÐAÐ Í HÆFNISRÖÐ Hæfnismat á dómurum í Landsrétt Matsþáttur Vægi í % Dómstörf 20 Lögmannsstörf 20 Stjórnsýsla 20 Fræðistörf 10 Nám og framhaldsmenntun 5 Kennsla 5 Stjórnun 5 Reynsla af öðrum störfum sem nýtast dómaraefni 5 Matsþáttur Vægi í % Almenn starfshæfni og þekking 5 Reynsla af réttarfari 5 Hæfni til að semja dóma 2,5 Hæfni til að stjórna þinghöldum 2,5 Samtala matsþátta* 105 *Samtala matsþátta er 105%. Heimild: Umsögn dómnefndar um umsækjendur um embætti 15 dómara við Landsrétt. Skipun dómara

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.