Morgunblaðið - 06.02.2018, Side 20

Morgunblaðið - 06.02.2018, Side 20
20 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 2018 Að beita aðra per- sónu kynferðislegu of- beldi eða nauðgun hef- ur verið refsiverður glæpur á Íslandi leng- ur en elstu menn muna. Af #metoo- umræðunni mætti ætla að mönnum hafi ekki verið þetta ljóst. Ég get ekki neitað því að mér hefur fundist öll þessi umræða einkennast af tauga- spennu, þótt tilgangurinn sé auðvit- að sá að vekja athygli á kynferð- islegu ofbeldi, og það er svo sannarlega tímabært. En metoo- aðferðin er hreint sjónarspil hvað sem alþingismenn, ráðherrar og aðrir segja þar um. Við getum nefnt ýmis kynferðisbrot sem varða við lög svo sem: brot yfirmanns eða til- sjónarmanns, brot karlmanns gegn lesbíu, heimilisofbeldi af ýmsu tagi og síðast en ekki síst kynferðislegt ofbeldi gegn börnum, ekki síst vegna þess að slík brot eru algeng- ust innan fjölskyldunnar. Ef við skoðum #metoo-lýsingarnar, aðrar en þær sem varða við lög, og ég legg áherslu á það, þá er ljóst að þær beinast nánast einungis að „flörti,“ sem hingað til hefur ekki þótt sak- næmt. Kynlíf barna og unglinga Það hefur lengi verið vitað, og kannanir staðfesta, að börn, allt frá því þau verða kynþroska, eru farin að „geraða“, svo notað sé algengt barnamál. Það vakti þónokkra at- hygli, og mér er það minnisstætt, þegar sagt var frá því í dagblöðum fyrir nokkrum árum að ungar stelp- ur væru iðulega látnar taka pilluna, þegar mæður þeirra fengu vitneskju um „að þær væru farnar að vera með strákum“. (Pillan var fyrst tekin í notkun á Íslandi 1966). „Það var fyrir átta árum.“ Og nú ber það til tíð- inda að einhverjir ónafngreindir karl- menn eru farnir að biðjast afsökunar á því að hafa ekki gætt sín í ástarleik æskuáranna fyrir 20-30 árum þegar þeir voru byrjaðir „að vera með stelpum“ og enn á barnsaldri. Það væri kannski fróðlegt að heyra lýsingu þessara para á því sem skeði, en ég efast um að þau telji metoo-aðferðina æski- lega þótt hún sé hátt rómuð þegar aðrir eiga í hlut. Hin eiginlega kvennabylting Ef við lítum á þróun þessara mála í sögulegu samhengi þá hófust, nokkru fyrir síðustu aldamót, af- drifaríkar þjóðfélagsbreytingar á högum kvenna, barátta fyrir kyn- bundnu jafnræði. Við getum með réttu nefnt það kvennabyltingu. Nú er svo komið að í sveitum landsins er „húsmóðirin“ á bak og burt og nefnist nú „bóndi“. Og í bæjum og þorpum er orðið „húsmóðir“ á hraðri leið út úr málinu og í staðinn bera giftar konur hin ýmsu starfs- heiti: kennari, læknir, forstjóri, al- þingismaður, ráðherra og prestur. Það sama gildir um karlmenn. Maður hefur það jafnvel á tilfinning- unni að þessi orð, húsmóðir og hús- bóndi, séu orðin hálfgerð skammar- yrði. Á sviði menntunar hafa orðið stórkostlegar breytingar á högum kvenna, sem nú útskrifast með há- skólapróf á hverju ári til jafns við karla og vel það. Stofnun Öldunga- deildarinnar við Menntaskólann við Hamrahlíð að frumkvæði Guðmund- ar Arnlaugssonar árið 1972 var tímamótaskref í átt að aukinni menntun kvenna. Eins og kunnugt er er það skoðun kvennahreyfingarinnar (ég tala hér almennt um samtök kvenna) að kyn- bundið jafnrétti „komi ekki af sjálfu sér,“ eins og komist er að orði og því sé nauðsynlegt að framfylgja svo- nefndu kvótakerfi þegar skipað er í embætti og raðað á lista til próf- kjörs. Þessi kenning stangast raun- ar á við lýðræðislegt jafnræði en hefur eigi að síður náð að festa rætur. Mér virðist þó ljóst, eftir ítarlega skoðun, að konur kjósa yf- irleitt þann frambjóðanda sem þær treysta best, hvort sem það er karl eða kona og eru tilbúnar að hafna þingmanni sem þær telja að hafi ekki staðið sig, hvort sem um er að ræða karl eða konu. Kynlíf Íslendinga Að lokum ætla ég að víkja örlítið að máli, sem enginn vill tala um og varðar kynlíf Íslendinga. Sam- kvæmt upplýsingum Hagstofu Ís- lands hafa hjónaskilnaðir og sam- búðarslit verið um það bil 35 þúsund á tímabilinu frá árinu 2000 til 2017. Þarna er því um að ræða u.þ.b. 70 þúsund einstaklinga. Algengasti að- dragandi skilnaðar er framhjáhald, sem þó er aðeins brot af þeim tugum þúsunda einstaklinga sem halda framhjá maka sínum. Framhjáhald er ein tegund heimilisofbeldis, sú tegund sem enginn vill tala um. Það væri áreiðanlega spennandi að hlusta á lýsingar á framhjáhaldi, fyrir opnum tjöldum. En hver vill beita sér fyrir því? Auðvitað enginn. Dálítið um #metoo og kvennabaráttuna og örlítið um kynlíf Íslendinga Eftir Braga Jósepsson »Metoo-aðferðin er hreint sjónarspil. Bragi Jósepsson Höfundur er prófessor emeritus og rithöfundur. kormakurb@gmail.com Alls voru sam- þykktar lóðaúthlutanir fyrir 1.711 íbúðir í Reykjavík á síðasta ári. Mikill meirihluti út- hlutaðra lóða var fyrir byggingarfélög sem starfa án hagnaðar- sjónarmiða. Til að setja þessar lóðaúthlutanir í eitthvert samhengi er gott að hafa í huga að í árslok 2016 voru einmitt 1.711 íbúðir á Seltjarnarnesi. Lóðaúthlutun síð- asta árs í Reykjavík var þannig á pari við heilt bæjarfélag á höfuðborgar- svæðinu. Kraftmikil húsnæðisuppbygging stendur nú yfir í Reykjavík sem allir taka eftir. Húsnæðisáætlun borgar- innar gerir á næstunni ráð fyrir upp- byggingu á hagkvæmu húsnæði á vegum húsnæðisfélaga á sambæri- legum mælikvarða og við höfum ekki séð áður fyrir utan metár þegar Breiðholtið var í uppbyggingu. Þannig eru 3.700 staðfest áform um íbúðir fyrir stúdenta, eldri borgara, fjölskyldur með lægri og millitekjur auk annarra íbúða. Ábyrg byggingafélög Eftir litla sem enga uppbyggingu íbúðarhúsnæðis á höfuðborgarsvæð- inu á árunum eftir hrun og með stór- auknum áhuga erlendra ferðamanna á Íslandi undanfarin ár skapaðist þröng staða á húsnæðismarkaði. Að auki hefur landsmönnum fjölgað jafnt og þétt og alltaf búa færri og færri undir sama þaki. Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hafa mætt þess- um veruleika með ólíkum hætti. Megináhersla Reykjavíkur hefur verið og er á samstarf við bygginga- félög sem reisa íbúðir án hagnaðar- sjónarmiða. Auk þess sem nýtt land er ekki brotið undir þessa uppbygg- ingu. Hrunárið 2008 fóru 348 íbúðir í byggingu í Reykjavík samanborið við 667 árið undan. Árið 2010 var algjört frost á byggingamarkaði en þá fóru ekki nema tíu íbúðir í byggingu. Mikil vöntun er eftir húsnæði á höfuð- borgarsvæðinu og því er ánægjulegt að bæði 2015 og 2016 fóru yfir 900 íbúðir í byggingu í Reykjavík og gera áætlanir ráð fyrir umtalsverðri aukn- ingu á næstu árum. Í dag eru um 52 þúsund íbúðir í Reykavík. Félagsleg uppbygging Húsnæðisáætlun Reykjavíkur ger- ir ráð fyrir mikilli fjölgun félagslegra íbúða, sértækra búsetuúrræða auk annarra leiguíbúða og búseturéttar- íbúða á næstu árum. Slík uppbygging stuðlar að heilbrigðari húsnæðis- markaði sem kallað hefur verið eftir um árabil. Til að mæta bráða- vanda hefur Reykja- víkurborg keypt tugi íbúða í vetur. Þar fær fólk húsnæði úthlutað tímabundið áður en varanleg lausn finnst, meðal annars hjá Félagsbústöðum, sem bætt hafa í eignasafn sitt síðustu ár með sér- stakri áherslu á 1-2ja herbergja íbúðir og íbúðum fyrir barnafólk. Þá var samþykkt í haust að Félagsbústaðir byggðu fjögur fjölbýlishús með 8-10 einstaklingsíbúðum hvert og eitt. Samfélagsábyrgð skortir Um 2.000 félagslegar íbúðir eru í Reykjavík og 16 íbúðir á hverja þús- und íbúa. Hlutfallið er tvær íbúðir á hverja þúsund íbúa í Garðabæ og á Seltjarnarnesi. Félagslegar íbúðir í Reykjavík eru því hlutfallslega átta sinnum fleiri miðað við þessi tvö bæjarfélög sem gangast ekki við sam- félagslegri ábyrgð sinni. Á nýjum uppbyggingarsvæðum í Reykjavík eins og í Vogabyggð er stefnt að því að 20-25% íbúða verði leigu- eða búseturéttaríbúðir, þar af 5% í eigu Félagsbústaða. Það er sannarlega vöntun á hús- næði á höfuðborgarsvæðinu. Reykja- víkurborg hefur brugðist við stöðunni sem kom eftir hrun með metnaðar- fullum hætti á meðan önnur bæjar- félög á höfuðborgarsvæðinu hreyfa sig hægt og huga ekki að fjölgun leiguhúsnæðis og uppbyggingu fé- lagslegs húsnæðis í sama mæli og Reykjavík. Húsnæðisuppbyggingin í Reykjavík er þannig allt í senn kraft- mikil, róttæk og félagsleg. Kraftmikil hús- næðisuppbygging í Reykjavík Eftir Magnús Má Guðmundsson Magnús Már Guðmundsson » 2.000 félagslegar íbúðir eru í Reykja- vík og 16 íbúðir á hverja þúsund íbúa. Hlutfallið er tvær íbúðir á hverja þúsund íbúa í Garðabæ og á Seltjarnarnesi. Höfundur er formaður borgar- stjórnarflokks Samfylkingarinnar. magnus.mar.gudmundsson- @reykjavik.is Fyrir tæpum 16 ár- um stóðu Norðmenn í þeim sporum að velja um tvennt: Annað- hvort gera fjölda svo- nefndra þakrennu- virkjana á ósnortnum víðernum norska há- lendisins eins og búið var að teikna upp, eða að hætta við slíkt og hafa þar þjóðgarða og friðuð svæði. Kjell Magne Bonde- vik, þáverandi forsætisráðherra, lýsti því þá yfir, að tími slíkra virkj- ana væri liðinn í Noregi og hafa þau orð staðið til þessa dags. Eng- um í Noregi datt í hug að halda því fram, sem þá var haldið fram á Ís- landi, að „virkjanir og þjóðgarðar færu vel saman“ og engin merki er að sjá þar í landi að menn hyggist hverfa frá þessari ákvörðun. Þegar Kárahnjúkavirkjun var í bígerð setti Landsvirkjun texta á stórt skilti þar sem ekið var frá Möðru- dal inn á hálendið, en í þessum texta sagði að Kárahnjúkavirkjun gæti verið forsenda fyrir því að þjóðgarður yrði stofnaður á hálend- inu! Hvergi þar sem ég hef farið er- lendis hef ég séð annað eins. Því var haldið fram hér heima að það tíðkaðist víða um heim að „virkja til þess að friða“ eða að „virkja fyrst og friða svo“. Nefnd voru tvö dæmi um slíkt og til þess að komast að hinu sanna var ekki um annað að ræða fyrir mig en að kynna mér svæðin tvö í kynnisferðum um þjóðgarða, friðuð svæði og virkjana- svæði í sjö löndum í Evrópu og Ameríku. Annað dæmið, sem nefnt var, heitir Hetch Hetchy og er norðan við Yosemite-þjóð- garðinn í Kaliforníu. Fyrir meira en öld var gerð stífla í þessum dal til að miðla ferskvatni handa norðurhluta Kaliforníu. Deil- um um nytjar Yosemitedalsins fyrir sunnan Hetch Hetchy lauk með því að hann var friðaður og gerður að þjóðgarði. Varla var nokkurn mann að sjá við Hetch Hetchy þegar ég og kona mín fórum þarna um – allt ferðafólkið var í hinum dalnum, sem malar gull í ferðamannatekjum og viðskiptavild fyrir þetta stolt Kaliforníubúa. Hitt dæmið, sem nefnt var, var Miklavatn (Grand Lake) syðst í Klettafjallaþjóðgarð- inum um 120 kílómetra fyrir norðan Denver. Í ljós kom, að nýting þessa vatns felst í því að yfirborði vatns- ins er haldið jöfnu og stöðugu og umhverfi þess verndað, en hins veg- ar liggja jarðgöng inn í það, sem vatni er veitt í gegn yfir í miðl- unarlón með yfirborðssveiflu og er utan þjóðgarðsins. Bæði þessi nefndu dæmi voru um aðgerðir löngu áður en nútímalegar skil- greiningar og viðhorf í þessum mál- um komu til sögunnar. Nú hefur fullyrðingin um að virkjanir og þjóðgarðar fari vel saman verið endurnýjuð hér á landi. Á opnu málþingi í Árnesi í fyrrasumar hélt stjórnandi mats á umhverfisáhrifum Hvalárvirkjunar því fram að það væri alsiða víða um lönd að virkja í þjóðgörðum og að þjóðgarðar og virkjanir færu vel saman. Þegar hann var beðinn um að nefna dæmi um þetta kom ekk- ert svar. Og nú hefur oddviti Ár- neshrepps hnykkt á þessu og bætt því við að ótækt sé að taka tilboði Sigurðar Gísla Pálmasonar um að kosta athugun á þeim möguleikum fyrir sveitarfélagið, sem í boði eru varðandi þetta mál, því að það verði að virkja áður en hugað er að þjóð- garði. Um það gildir erlent mál- tæki: „Það er ekki hægt að eiga kökuna og éta hana líka“. Lág- marksáhrifasvæði Hvalárvirkjunar er 180 ferkílómetrar og innan þess eru flest náttúruverðmætin á þessu svæði, ósnortnar tjarnir og vötn, ár og fossar, sem stórar stíflur og tilbúin miðlunarlón munu ýmist afmá, raska eða breyta. Landslags- heildin er þó mun stærri, eins og Styrmir Gunnarsson lýsti vel í Morgunblaðsgrein. Öll víðernin þarna, norður um Drangajökul og Hornstrandir eru efni í hálendis- þjóðgarð Vestfjarða, sem getur gef- ið af sér mörg störf og miklar tekjur til frambúðar eins og orðið hefur raunin um aðra þjóðgarða hér á landi. Í því liggur gildi svæðisins og tækifærið sem það skapar. Hins vegar liggur fyrir að virkjunin skapar ekkert starf til frambúðar. Þarna gildir lögmálið um þann mikla mun á virkjunum og friðun, að friðun kemur ekki í veg fyrir að virkjað verði síðar, en virkjun kem- ur hins vegar í veg fyrir að friðað verði síðar vegna hins mikla kostn- aðar sem fylgir því að rífa niður og fjarlægja svona mikil mannvirki. Erfitt er að sjá af hverju vönduð at- hugun og greining á þessu máli í ljósi raka og staðreynda geti verið óæskileg. Um er að ræða ákvörðun sem snertir komandi kynslóðir en ekki aðeins þá sem nú lifa. Er hægt að eiga kökuna og éta hana samtímis? Eftir Ragnarsson »Hálendisþjóðgarður Vestfjarða norður um Drangajökul og Hornstrandir gæti skapað mörg störf til frambúðar, en virkjun gæfi ekkert starf til frambúðar. Ómar Ragnarsson Höfundur er fréttamaður og áhuga- maður um kjör og jafnrétti borinna og óborinna kynslóða. Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.