Morgunblaðið - 06.02.2018, Side 21

Morgunblaðið - 06.02.2018, Side 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 2018 ✝ GuðbjörgPálmadóttir fæddist 20. október 1933 á Akureyri. Hún lést á Elli- og hjúkrunarheimil- inu Grund 26. jan- úar 2018. Foreldrar henn- ar voru Pálmi Friðriksson, sjó- maður á Akureyri, f. 29.10. 1900, d. 16.2. 1970, og Guðrún Jóhann- esdóttir, húsfreyja, f. 21.9. 1904, d. 23.3. 1993. Guðbjörg var ein af fjórum systkinum, en f. 4.10. 1960. 2) Bragi Gunnars- son lögfræðingur, f. 1.1. 1964, kona hans er Ásta Kristjáns- dóttir lögfræðingur, f. 21.5. 1971. Börn Braga eru María El- ísabet, Gunnar Þorgeir, Hörður Tryggvi, Eva Sóldís og stjúp- sonur hans og sonur Ástu er Kristján Eldur Aronsson. 3) Anna Guðrún Gunnarsdóttir hjúkrunarfræðingur, maður hennar er Páll Briem Magnús- son lögregluvarðstjóri, f. 2.1. 1964. Barn Önnu Guðrúnar er Hans Gunnar Danielsen og stjúpdóttir hennar er Arnbjörg María Danielsen. Guðbjörg starfaði lengst af sem hjúkrunardeildarstjóri á göngudeild háls-, nef- og eyrna- deildar Borgarspítalans. Útför Guðbjargar fer fram frá Háteigskirkju í dag, 6. jan- úar 2018, klukkan 13. systkini hennar eru Jóhanna María, f. 28.8. 1927; Andrea, f. 10.12. 1930, d. 26.10. 1979; og Jó- hannes, f. 12.7. 1944. Guðbjörg giftist 18.12. 1928 Gunn- ari Magnúsi Guð- mundssyni, hæsta- réttarlögmanni og hæstaréttardómara, f. 12.2. 1928, d. 23.4. 1997. Þau eign- uðust þrjú börn. Þau eru 1) Hörður Gunnarsson trésmiður, Þegar ég hugsa um ömmu mína, Guðbjörgu Pálmadóttur, hugsa ég fyrst um hendurnar hennar því það voru fallegustu hendur sem ég hef þekkt. Hún hafði langa, granna fingur og fín- legar neglur, ævinlega snyrtileg- ar en sjaldan lakkaðar. Á baug- fingri hafði hún gylltan trúlofunarhring, með dökkbláum steini sem í áranna rás hafði slíp- ast til. Hendur sem inntu öll verk óaðfinnanlega af hendi, aldrei flausturslega, smávægilegustu verk voru leyst af stakri vand- virkni. Hendur sem voru fullkom- lega blíðar, traustar og gefandi. Næst hugsa ég um hláturinn hennar, hjartanlegan og auðvak- inn, hann hélst alltaf ungur. Tólf ára var amma rúmliggjandi eftir botnlangaskurð. Skólafélagar hennar færðu henni bók sem hét Órabelgur. Hún hló svo mikið við lesturinn að hún tók andköf af sársauka því hlátrasköllin rifu í saumana á maganum. Það er lýs- andi fyrir ömmu. Glaðsinna með ljúfa skaphöfn en hafði til að bera festu, æðruleysi og skarpa hugs- un. Æskudraumur ömmu var að hjúkra holdsveikum á eyju í Ind- landshafi þegar hún yxi úr grasi. Á sjúkrabeðinum varð hún enn staðráðnari í að verða hjúkrunar- kona. Amma var bókelsk og hélt allt- af að mér bókum. Lítil átti ég bágt með svefn en aldrei hjá ömmu. Hún las fyrir mig og við töluðum fram á rauðanótt, uns ég færðist í ró. Seinasta bókin sem hún lánaði mér var Veröld sem var eftir Stefan Zweig, við vorum báðar hugfangnar. Mér finnst ég sjá hana fyrir mér sem ungling, sitjandi í lystigarðinum á Akur- eyri í glaðasólskini. Niðursokkna í ferðasögur Markó Póló. Með kaffibrúna fótleggi, hátt og bjart enni, stór, blá augu undir dökkum augabrúnum og nef sem hún kall- aði „þúfunef“ en amma hennar Anna svaraði um hæl: Þakkaðu Guði fyrir útlitið þitt, það gæti verið svo miklu verra. Rétt eins og raunin er með mig sjálfa, þótti ömmu minni undurvænt um sína ömmu, Önnu Guðmundsdóttur. Frá tíu ára aldri svaf amma í herbergi inn af lítilli stofu sem amma hennar hafði til umráða. Anna, formóðir mín, var hlý en raunamædd kona sem ræktaði rauðar og hvítar pelargóníur í glugganum. Hún brosti en hló aldrei enda hafði hún misst þrjá syni og eiginmann á sex árum. Hún kenndi ömmu að lesa, þuldi fyrir hana bænir og færði henni þykkt og dísætt fjallagrasate þegar hún kom inn af skíðum. Fimmtán ára spurði ég ömmu hvort hún saknaði enn ömmu sinnar. Hún sagðist alltaf sakna hennar. Mér þóttu það þungbær örlög þá en nú veit ég að sökn- uðurinn lýsti gæfu ömmu minnar. Minningar mínar og tilfinning- arnar sem ég mun alltaf bera til ömmu eru fjársjóður sem hvorki mölur né ryð fær grandað. Ljósið sem hún var í mínu lífi og annarra er enn kvikt. Það er óháð tíma og rúmi. Ástin og umhyggjan sem hún sýndi mér var ekki forgengi- leg, hún á samastað í Guði og ei- lífðinni. Ég á blóm sem amma gaf mér. Sankti Pálía með stökkum, djúp- grænum og loðnum blöðum og bleikum blómum. Afi hafði blómið á skrifstofunni sinni en eftir að hann skildi við hélt amma lífi í því með afleggjurum í rúm 20 ár. Blómið er táknrænt, hún sinnti öllu af einstæðri alúð svo allt dafnaði í kringum hana. Hún hafði auga fyrir því sem var fal- legt. Hún lifði fögru lífi. Alla tíð verður hún mér innblástur til góðra og fallegra verka. Henni fylgdu góðar vættir til æviloka, ástríkir foreldrar hennar, elskuð amma og systir hennar, Addý. Amma heldur nú áfram að vera góða vætturin mín, eins og hún hefur alltaf verið. Guð blessi hana. María Elísabet Bragadóttir. Með örfáum orðum langar mig að þakka Guðbjörgu Pálma- dóttur, fyrrverandi tengdamóður minni, fyrir alla þá umhyggju sem hún sýndi börnunum mínum; fyrir skjólið sem hún var þeim og fyrir að vera þeim frábær fyrir- mynd til orðs og æðis. Guðbjörg Pálmadóttir og Gunnar Magnús Guðmundsson voru einstaklega glæsileg hjón. Gunnar féll frá þegar barnabörn- in voru lítil og hann rétt að byrja að njóta þess að vera samvistum við þau. Það er sorglegt til þess að hugsa að þau hafi ekki fengið meiri tíma með honum. Amma þeirra Guðbjörg náði hins vegar að fylgja þeim inn í fullorðinsárin. Þau sjá nú á eftir henni með hafsjó af yndislegum minningum um konu sem í þeirra huga, með orðum Gunnars Þorgeirs sonar míns, var nánast í dýrlingatölu. Guðbjörg var vitur kona, hóg- vær, umtalsfróm, glaðlynd og það streymdi frá henni góðvild. Hún var fríð sýnum, hávaxin, grönn og bein í baki með hlýlegt bros, fág- aða framkomu og – það verður að segjast eins er – óaðfinnanlega til fara. Um Guðbjörgu sagði Gunn- ar Magnús eitt sinn að allt sem hún tæki sér fyrir hendur gerði hún vel. Hörður Tryggvi, yngri sonur minn, stóð lengi í þeirri trú að amma hans hefði samið kross- gáturnar sem þau leystu í ótal sumarbústaðaferðum saman. Hún var víðlesin og börnin komu aldrei að tómum kofanum hjá henni. Hún var mikil hannyrða- kona og prjónaði á þau fallegar flíkur allt frá því að þau voru ungabörn. Hún var hjúkrunar- fræðingur að mennt og margir minnast hennar í starfi svo fram- úrskarandi sem hún var. Bróðir minn rifjar upp hve vel hún tók honum sem ungum læknanema en hún hafði þannig viðmót að fólki leið vel í návist hennar. Engum þó betur en barnabörn- unum en þeim er í fersku minni hve notalegt var að gista hjá ömmu, ekki síst ef þau voru veik og hún stjanaði við þau. Í hugann koma upp minningar frá liðnum samverustundum: Kvöldverðarveislur Guðbjargar og Gunnars Magnúsar á Sjafnar- götu 3; heimsóknir Guðbjargar til fjölskyldunnar þegar við bjuggum í Svíþjóð og síðustu árin þegar hún kom við, oftast með Herði syni sínum, til að fara með krakkana upp í sumarbústað. Hún var fjölskyldukona fram í fingurgóma og virtist njóta þess mest og best að vera innan um fólkið sitt. Þegar sá sjúkdómur ágerðist sem leiðir til hrörnunar heilans og minnisleysis birtist Guðbjörg engu að síður með geislandi brosið sitt og heilsaði glaðlega eins og ekkert amaði að. Nú síðast á aðfangadag þegar þau Hörður litu við með rauða túlíp- ana sem var fastur liður. Hún breiddi út faðminn þegar hún sá uppkomin barnabörnin sín. „Þetta er fólkið mitt,“ sagði hún fagnandi. Þau standa nú á þeirri klöpp sem hún átti stóran þátt í að styrkja og þannig mun hún alltaf vera hluti af tilvist þeirra og áhrifavaldur um ókomna tíð. Guð blessi minningu mikil- hæfrar konu. Herdís Þorgeirsdóttir. Á degi lífs hve dýrmæt gjöf var dama eins og þú. Við ferðuðumst um fjöll og höf. Ég fagna vil því nú Að eiga með þér yndisstund var okkar gæfa hér. Hve gott að eiga gleðifund með gulli eins og þér. En lífið er ei laust við þraut og leikur senn á enda. Hægt þú okkur hvarfst á braut. Þinn hugur vildi’ei lenda. Nú liðið er að lokastund, ljúfust mín vinkona. Opin leið á englafund því endirinn er svona. (SGS) Sigríður Theodóra Guðmundsdóttir. „Vinur þinn er þér allt. Hann er akur sálarinnar, þar sem samúð þinni er sáð og gleði þín uppskorin. Hann er brauð þitt og arineldur, þú kemur til hans svangur í leit að friði.“ (Kahlil Gibran) Okkar elskulega vinkona, Guð- björg Pálma, hefur kvatt okkur, komin til sumarlandsins þar sem hún er laus úr viðjum illvígs sjúk- dóms. Við vorum átta vinkonur sem byrjuðum saman í saumaklúbb. Guðbjörg er önnur í vinkonu- hópnum sem kveður. Kristín okk- ar Sveinbjörnsdóttir lést árið 2006. Blessuð sé minning hennar. Allar áttum við það sameigin- legt að vera gagnfræðingar frá Gagnfræðaskóla Akureyrar. Allar höfðu alist upp í návígi við Guðbjörgu, frá barnsaldri, nema ein sem er rammvestfirsk, mætti bara í Gagnfræðaskólann. Síðan bættust við tvær vinkonur um leið og mætt var til höfuð- borgarinnar. Það hefur oft verið glatt á hjalla hjá okkur og við átt margar ánægjustundir saman. Eitt sinn fórum við til Akureyrar, allt með tilstilli Guðbjargar, fórum á tón- leika og gengum um götur Akur- eyrar og rifjuðum upp gömlu góðu Akureyrarárin. Einnig fór- um við til Ítalíu í alveg ógleym- anlega ferð. Eins og allir vita sem hafa þekkt Guðbjörgu þá fór þar glæsileg kona sem stráði elsku alls staðar. Elsku Guðbjörg okkar, við vin- konurnar kveðjum þig með sár- um söknuði og þökkum þér fyrir allar fallegu minningarnar. Hvíl í friði, elsku vinkona. Kæru börn, Hörður, Bragi og Anna Guðrún, tengdabörn og barnabörn, við vottum ykkur okkar dýpstu samúð, megi allar góðar vættir styðja ykkur og styrkja á þessum erfiðu tímum. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir og bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. (Þórunn Sigurðardóttir) Anna, Arna, Arnfríður, Erla, Guðrún, Jóna, Marsibil og Unnur. Þegar ég lít til baka á ég auð- velt með að hugsa með hlýju til Guðbjargar og hennar nærveru í lífi mínu í uppvextinum á Tún- götunni, þar sem hún birtist svo oft í gamla daga. Hún var svo fal- leg, brosandi og góð og kom til að heilsa upp á fjölskylduna og ég naut góðs af og systkini mín. Hún var gift bróður mömmu minnar og því hæg heimantök að kynn- ast mér, mömmu minni og öllum systkinahópnum. Ég verð henni ævinlega þakk- lát fyrir allt sem hún gaf okkur og ætla því með þessu litla ljóði mínu að senda henni og börnum hennar þakklæti fyrir það sem hún gaf okkur frá því sem hún átti í hjarta sínu. Ég votta öllum ættingjum og aðstandendum Guðbjargar Pálmadóttur innilega samúð mína. Í hel trega eilífðra tára í tilvist eftirlifenda orða. Fugl heljar í fánýti sára er flaug á væng í doða rósar í engladal fráfalls, Herrann kær heilsar þér. Fall í fang heljar í kæru ofin ástúð í nánd þinna. Félagi farinn í dal hinna, fallinn ástvinur í Paradís rós lifir í engladal Guðs, Jesús vill fá vernda þig. Lát fær fólk þitt að finna falleg englasál fylgi þér. Fórst frá í rósblik þinna í ferðalag eilífðar þar er rósaljós í engladal hels. Herrann kær heilsar þér. Kveðja kærust hjá gröf kyrrsett er rósin í sorg. Flýgur fugl um æðri höf í ferð ástvinar um torg rósin í engladal úr gröf, Jesús vill fá vernda þig Eilíft flug fugls um höf, ferðlag ástvins á skýi. Í anda tára er ekki töf hjá helfara heimur nýi. Rósblik í engladal hels. Herrann kær heilsar þér Lát er endastöð eilífðar í ósk látsþjóns í hjarta, að fugli farnist líka þar fáir boð Almættis bjarta og klið þinna í Paradís, Jesús vill fá vernda þig. (J.R.K.) Jóna Rúna Kvaran. Guðbjörg Pálmadóttir HINSTA KVEÐJA Guðbjörg Pálmadóttir átti mikilvægan þátt í að móta starfsemi göngudeild- ar háls-, nef- og eyrnadeild- ar Borgarspítalans. Hún hóf störf þar 1. september 1975 sem fyrsti hjúkrunar- fræðingur og síðar deildar- stjóri deildarinnar. Fagmennska, metnaður og góðvild einkenndu henn- ar störf. Það var því lær- dómsríkt og ánægjulegt að vinna með henni um fimm ára skeið, þar til hún sneri sér að öðrum verkefnum. Margra góðra stunda er að minnast frá þeim tíma. Blessuð sé minning hennar. Bára Þ. Þorgrímsdóttir. Göfgi, tign og fegurð fylgdi þér, flest það besta, sem að konu ber. Er heldur þú í eilífðina inn, ættingjar þig kveðja í hinsta sinn. Ólafur F. Magnússon. „Sé ég samhljóð- an í sögu þinni skörungsskapar og skyldurækni, skaps og stillingar, styrks og blíðu, vilja og varúðar, vits og dáðar.“ Þetta erindi Matthíasar Joch- umssonar datt mér í hug er ég heyrði andlát Þórs Elíssonar, fv. skipstjóra. Þó að ég viti að mér pennafærari menn muni skrifa um þennan mikla dáðadreng þá langar mig samt af veikum mætti að minnast hans. Þór Elísson ✝ Þór Elíssonfæddist 2. des- ember 1929. Hann lést 17. janúar 2018. Útför Þórs fór fram 29. janúar 2018. Ég kynntist hon- um 1977 er ég varð þeirrar heppni og ánægju aðnjótandi að vera skráður í fyrstu áhöfn hans er hann tók við skip- stjórn á m/s Stuðla- fossi sem Eimskipa- félagið hafði þá keypt af Jöklu, hf. Það var á árum „víns og rósa“ hjá mér og eins og gefur að skilja eru þá oft skil á vinnu stopul. Þór lét mann vita og það á mjög hreinni og velskiljanlegri ís- lensku mislíkaði honum vinnu- brögðin undir þeim kringum- stæðum. Svo var málið útrætt og ekki minnst á það sérstaka mál meir. Þór sýndi oft mikla snilld í stjórn á skipi sínu við erfiðar að- stæður sem oft skapast við hafn- ir á Íslandi. Þegar þetta var hafði ég vitað af honum lengi og séð honum bregða fyrir á heimili móður hans, Jónu Marteinsdótt- ur á Langholtsveginum, en föðursystir mín, Halldóra Jóns- dóttir, og maður hennar, Árni Guðmundsson, stýrimaður og skipstjóri, leigðu hjá henni þar. En þeir Árni og Þór, ásamt ein- um öðlingnum til, Sigurjóni Stef- ánssyni seinna skipstjóri á b/v Ingólfi Arnarsyni, munu hafa verið samskipa fyrst á b/v Bel- gaum og síðar á b/v Fylki. En eftir að hafa lokið Fiski- mannaprófi 1952 frá Stýri- mannaskólanum í Reykjavík snéri Þór sér að farmennsku og lauk farmannaprófi frá sama skóla 1954. Hófst þá farsæll fer- ill hans sem yfirmaður á skipum Eimskipafélags Íslands. Þar átti hann flekklausan feril enda hæfileikarnir miklir. Lund hans var létt og glöð, viðmót hans þægilegt og framkoma öll sér- staklega látlaus og prúðmann- leg. Hann bauð af sér mjög svo góðan þokka hvar sem hann kom eða fór. Hann var drengur góð- ur, ötull og ósérhlífinn starfs- maður að hverju sem hann gekk. Þór var því mjög ágætur sonur þeirra sem byggðu þetta land. Þórs heitins verður sárt sakn- að af öllum þeim er nokkur kynni höfðu af honum. Sár harmur er nú kveðinn að eftirlifandi ástvinum þegar hann er burt kallaður og kvaddur. Minn kæri vinur, megi Guðs náð og friður vera með þér á þeirri vegferð sem þú er nú á. Og nú ertu kominn til ástvina þinna, sem biðu þín á því heimili sem bíður okkar allra. Megi minningin um mjög svo góðan dreng lifa í minningu okkar eftirlifandi. Far þú í friði, minn góði vinur. Ólafur Ragnarsson. Ástkæra eiginkona mín, móðir, dóttir og systir, ARNDÍS HALLA JÓHANNESDÓTTIR, lést á Landspítalanum við Hringbraut föstudaginn 2. febrúar. Útför hennar fer fram fram frá Akraneskirkju miðvikudaginn 14. febrúar klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkað, en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Stuðningsfélagið Kraft; ,,Lífið er núna". Eyjólfur Rúnar Stefánsson Marín Rós Eyjólfsdóttir Rakel Rún Eyjólfsdóttir Guðbjörg Gísladóttir Jóhannes Finnur Halldórsson Halldór Bjarkar Jóhannesson Ástrós Una Jóhannesdóttir og aðrir aðstandendur Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, sonur og bróðir, ZAIWANG ZHENG, lést 23. janúar. Útförin fer fram frá Fossvogskapellu fimmtudaginn 8. febrúar klukkan 11. Eva Qing Ye Yuanye Jón Zheng Rushi Rós Zheng Tianmin Zheng Youchun Tang Zai Qin Zheng

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.