Morgunblaðið - 21.02.2018, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 21.02.2018, Blaðsíða 1
M I Ð V I K U D A G U R 2 1. F E B R Ú A R 2 0 1 8 Stofnað 1913  44. tölublað  106. árgangur  SÖNGLEIKURINN FRAMLEIÐEND- URNIR Á SVIÐ ÓLAFÍA OG VALDÍS KEPPA Í ÁSTRALÍU ÞJÓÐLAGATÓNLIST SEM ER OPIN FYRIR SPUNA ÍÞRÓTTIR INGI BJARNI 30VERSLUNARSKÓLINN 12-13 Ágúst Ingi Jónsson Höskuldur Daði Magnússon Knattspyrnusamband Íslands hyggst á næstunni fara í víking á samfélagsmiðlunum Facebook, Twitter og Instagram. „Við hyggj- umst sækja umtalsvert fleiri fylgj- endur á stóra markaði, ekki bara í Evrópu heldur meðal annars einnig í Bandaríkjunum og í Kína,“ segir Ómar Smárason, markaðsstjóri KSÍ. Vegna þessa verkefnis í Kína hef- ur sambandið ráðið kínverska skrif- stofu í London. Ómar segir að markmiðið sé að gera Knatt- spyrnusambandið betur í stakk búið eftir úrslit heimsmeistaramótsins í Rússlandi í sumar til þess að sækja samstarfsaðila í þessum löndum og þar með fjármagn. „Samfélagsmiðlar eru orðnir svo stór hluti af því sem fyrirtæki vinna með að þegar fyrirtæki hafa sam- band við okkur og vilja ræða mögu- legt samstarf, hvort sem það er bandarískt, kínverskt eða evrópskt, er undantekningarlaust spurt hvert fylgið sé á samfélagsmiðlum og til hversu margra þau geti náð með því að vera í samstarfi við okkur,“ segir Ómar. Hann segir að lykilatriði í sókn á samfélagsmiðlum sé að geta boðið áhugavert og innihaldsríkt efni, sem veki athygli á landi og þjóð og ís- lenskri knattspyrnu. Erlendis sé hreinlega hrópað á meira efni og fyrirspurnir berist frá öllum heims- hornum. FIFA byrjað að rukka Stuðningsmenn íslenska landsliðs- ins óskuðu eftir tæplega 53 þúsund miðum á leiki liðsins á HM í Rúss- landi. Ljóst er að færri munu kom- ast á leikina en vilja. Til að mynda er aðeins reiknað með að Íslend- ingar fái 3.200 miða á leikinn gegn Argentínu í Moskvu. Tilkynnt var að FIFA hygðist byrja að skuldfæra kort vegna miða- kaupa í gær. Öll miðakaup á þessu miðasölustigi verða kláruð fyrir 12. mars næstkomandi. Fótboltinn sækir fleiri fylgjendur  Sókn Knattspyrnusambandsins á samfélagsmiðlum  Fyrirspurnir berast frá öllum heimshornum Morgunblaðið/Golli Ísland á HM KSÍ hyggst sækja sér nýja fylgjendur á samfélagsmiðlum víða um heim. Landsliðsstrákarnir verða á stóra sviðinu í Rússlandi í sumar. MKSÍ í víking... »14 Svo mikið snjóaði í Tasiilaq í Austur-Grænlandi í gær að heimamenn þurftu að moka sig út úr húsum. Tasiil- aq, áður Ammassalik, er stærsta þéttbýlið í Austur- Grænlandi og búa þar rúmlega 2.000 manns. Næsti flugvöllur er í Kulusuk, en þangað er flogið reglulega frá Íslandi. Milli Tasiilaq og Kulusuk er um tíu mínútna flug með þyrlu. Flugvöllurinn í Kulusuk er mikilvægur varaflugvöllur fyrir marga flugvelli í Grænlandi. Mikið hefur snjóað í Austur-Grænlandi undanfarna daga Morgunblaðið/RAX Táningarnir brostu í snjónum í Tasiilaq „Það verður að teljast afar ólíklegt að það komi faraldur, en þó gætu komi upp einhver tilfelli,“ segir Þórólfur Guðnason sótt- varnalæknir um mikla fjölgun mislingasmits- tilfella í Evrópu á síðasta ári. Í skýrslu Alþjóða- heilbrigð- ismálastofnunar- innar (WHO) kemur fram að fjöldi mislinga- smitaðra í Evrópu hafi ríflega fjórfaldast í fyrra frá árinu 2016. Fjöldi smitaðra árið 2016 var 5.273 en fjölgaði í 21.215 árið 2017. Þórólfur segir að í flestum tilvika hafi verið um óbólusetta einstaklinga að ræða sem undirstriki mikilvægi bólusetningar. „Hér á landi eru um 90-95% einstaklinga bólusettir og þátttakan því viðunandi. Það gerir það að verkum að líkur á faraldri hér eru afar litlar. Í löndum, þar sem smitið er hvað algengast, er ekki eins mikið um bólusetningar og því tals- vert meira um smit,“ segir Þórólfur og bætir við að mislingar séu bráð- smitandi sjúkdómur sem í sumum til- vikum getur reynst lífshættulegur. „Þetta er einn mest smitandi sjúk- dómur sem vitað er um. Flestir sem smitast af honum sleppa ágætlega en svo eru aðrir sem hafa hlotið alvar- legar afleiðingar eða dáið. Líkur á dauða eftir mislingasmit eru á bilinu 0,1% til 1%,“ segir Þórólfur, en skv. skýrslu WHO létust 35 manns í Evr- ópu á síðasta ári af völdum mislinga. aronthordur@mbl.is Ekki hætta á faraldri  Mislingasmit hefur fjórfaldast í Evrópu Þórólfur Guðnason Sporðamælingar Jöklarannsókna- félags Íslands sýna að íslensku jökl- arnir halda áfram að hopa. Tuttugu jöklar af þeim 25 sem voru mældir í haust hafa hopað. Þar á meðal eru flestir þeir sporðar stóru jöklanna þriggja sem mældir voru. Tvær mælingar sýna að jöklar eru að ganga fram, þær eru hluti mælinga í Skeiðarárjökli og Heinabergsjökli og einn jökull, Grímslandsjökull, stendur í stað. Ekki náðist mæling á tveimur stöðum vegna snjóa og fljótandi ísjaka á lóni. »4 Sporðar tuttugu jökla hopa en tveir ganga fram Morgunblaðið/RAX Kvíárjökull Brotnað hefur úr skriðjökl- inum sem gengur fram úr Öræfajökli. Borgarstjórn Reykjavíkur sam- þykkti breytt deiliskipulag lóðar- innar Borgartún 24 í gær. Mun þar hefjast uppbygging 65 íbúða sunn- an við Höfða gegn mótmælum íbúa á svæðinu. Arnar Þór Stefánsson, lögmaður hjá LEX, kom mótmæl- um fyrir hönd húsfélags Mánatúns 7 til 17 á framfæri í bréfi til skipu- lagsfulltrúa þar sem hann sagði að fyrirhugaðar skipulagsbreytingar á svæðinu væru í andstöðu við lög og brytu gegn lögvörðum hags- munum íbúa Mánatúns. Hafa íbúar meðal annars lýst yfir áhyggjum með þann bílastæðaskort sem nú þegar er á svæðinu og er sagt að íbúar í Borgartúni 24 muni leggja í þau bílastæði sem nú eru á lóð Mánatúns og segja íbúar að ekkert sýnilegt mat hafi verið lagt á þenn- an þátt málsins. »10 Grænt ljós á háhýsi gegn mótmælum íbúa

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.