Morgunblaðið - 21.02.2018, Síða 33

Morgunblaðið - 21.02.2018, Síða 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 2018 Bandaríska þrasssveitin Slayer mun koma fram á Secret Solstice tónlistarhátíðinni sem fram fer 21.- 24. júní í Laugardal. Hljómsveitin hefur verið lengi að, var stofnuð í Kaliforníu árið 1981 af gítarleikurunum Kerry King and Jeff Hanneman og telst ein áhrifamesta þrass- og málm- sveit rokkssögunnar, hefur haft mikil áhrif á dauðarokkið, svo dæmi sé tekið og margar eru sveit- irnar sem sótt hafa í sarp hennar. Hljómsveitin telst einn af fjórum máttarstólpum þrassins en hinir þrír eru Metallica, Megadeth og Anthrax. Nú skipa hljómsveitina fyrrnefndur King, söngvarinn og bassaleikarinn Tom Araya, tromm- arinn Paul Bostaph og gítarleikar- inn Gary Holt. Tónleikarnir hér á landi eru liður í tónleikaferðalagi Slayer sem er það síðasta sem sveitin leggst í og má því búast við rækilegri þrass- skellingu í Laugardalnum. Slayer kemur fram á Secret Solstice AFP Vígalegur Tom Araya á tónleikum með Slayer í Las Vegas í fyrra. Kvikmyndin um Svarta par-dusinn, Black Panther, erenn ein ofurhetjumyndinúr smiðju Marvel, byggð á persónum og teikningum þeirra Stan Lee og Jack Kirby. Að vanda birtist Lee í örsmáu og spaugilegu hlutverki, líkt og hann hefur gert í hverri einustu Marvel-mynd. En Black Panther er ekki eins og hver önnur ofurhetjumynd þó margt eigi hún sameiginlegt með þeim fjöl- mörgu sem á undan hafa komið og ástæðurnar eru nokkrar. Í fyrsta lagi er þetta fyrsta ofur- hetjumyndin sem skartar nær ein- göngu þeldökkum leikurum og það fyrst núna árið 2018, ótrúlegt en satt. Ofurhetjuheimurinn er hvítur karla- heimur og maður getur rétt ímyndað sér gleði þeldökkra bíógesta sem loksins fá að sjá þeldökka hetju í ofurhetjumynd af dýrustu gerð sem er að auki hin prýðilegasta skemmt- un. Í öðru lagi er Black Panther búin að slá met hvað varðar aðsókn yfir frumsýningarhelgi þegar kemur að kvikmynd eftir þeldökkan leikstjóra og það rækilega því aðsóknin fór langt fram úr björtustu vonum spá- manna. Og í þriðja lagi stenst hún svo Bechdel-prófið (eða svo sýndist rýni) en það segir til um birtingar- mynd kvenna í kvikmyndum en til að standast það þarf kvikmynd að upp- fylla þrjú skilyrði: að í henni séu að minnsta kosti tvær nafngreindar konur, að þær tali saman og þá um eitthvað annað en karlmenn. Kven- persónur eru vel mótaðar og sterkar í myndinni og jafnmikilvægar fram- vindu sögunnar og karlpersónurnar og er það sannarlega jákvætt en því miður sjaldgæft fyrir þessa gerð kvikmynda. Einhvers staðar las ég að það þætti sérstaklega mikil áhætta í Hollywood að gera svo dýra kvik- mynd byggða að stóru leyti á menn- ingarheimi þeldökkra og að framleið- endur hefðu tekið mikla áhættu þegar þeir ákváðu að gera Black Panther. Sem er stórskrítið þegar litið er til þess að Marvel-myndir eru hvað líklegastar af öllum Hollywood- myndum til að mala gull og það sýnir ekki mikla trú á bíógestum að halda að þeir forðist kvikmyndir með þel- dökkum leikurum í aðalhlutverkum. Sem leiðir hugann að álíka for- dómum í garð kvenkyns leikstjóra eða vantrú á þeim og um leið að ann- arri ofurhetjumynd, Wonder Wom- an, sem sló í fyrra aðsóknarmet þeg- ar kemur að kvikmynd eftir kvenleikstjóra og var auk þess af mörgum gagnrýnendum talin ein besta kvikmynd ársins. Töframálmur og töfraseyði Black Panther segir af prinsinum T’Challa sem krýndur er konungur snemma í myndinni eftir andlát föður síns. T’Challa ríkir yfir Wakanda, vellauðugu og háþróuðu landi í Afríku (og er ekki til í alvörunni) sem falið er umheiminum með leyndar- hjúp og virðist því á yfirborðinu vanþróað og fátækt. Djúpt í jörðu eru miklar námur með harðasta málmi heims, víbraníum, sem býr auk þess yfir töframætti sem gert hefur Wakanda að útópísku hátækni- samfélagi. T’Challa er ekki aðeins konungur heldur einnig Svarti pard- usinn, ofurmáttugur riddari réttlæt- isins sem sækir mátt sinn í seyði töfrablóms. T’Challa býr yfir lipurð kattarins og ofurmannlegum styrk, íklæddur glæsilegum og víbraníum-þræddum pardusgalla. Þegar T’Challa fréttir af því að helsti óvinur ríkisins, vopnasalinn Ulysses Klaue, hafi stolið víbraníumi og ætli sér að selja hæstbjóðanda reynir hann að klófesta hann með að- stoð hershöfðingja síns, hinnar vopn- fimu Okoye og fyrrverandi unnustu sinnar og núverandi njósnara, Nakiu. Klaue rennur þeim úr greipum þegar illmennið Killmonger kemur til sög- unnar, fyrrum sérsveitarmaður úr Bandaríkjaher sem myrt hefur hundruð manna til þess eins að æfa sig fyrir mikilvægasta morðið af öll- um, á sjálfum konungi Wakanda. Killmonger birtist óvænt í Wakanda og þykist eiga harma að hefna. Hann skorar konunginn á hólm og hyggst hrinda af stað heimsuppreisn allra þeirra sem eru af afrískum uppruna með því að útvega þeim háþróuð vopn frá Wakanda. Með þeirri heimsstyrjöld skal hefnt fyrir þræla- hald og kúgun hinna hvítu á þeldökk- um í aldanna rás (og þarna má sjá tengingu við Svörtu pardusana, herskáa hreyfingu sem barðist fyrir réttindum blökkumanna í Bandaríkj- unum fyrir um hálfri öld). Já, sagan er stórfurðuleg enda er þetta ofur- hetjumynd og varla hægt að gera kröfu um raunsæi. Veisla fyrir augu og eyru Black Panther er mikil sjónræn veisla og þá bæði þegar kemur að búningahönnun, þar sem leitað er fyrirmynda í klæðum afrískra ætt- bálka, og tölvuteikningum sem eru fyrirferðarmiklar, eins og gefur að skilja. Bardaga- og hasarsenurnar eru listilega útfærðar og þá sér- staklega þegar tveir takast á og án nokkurra tölvubrellna. Konurnar gefa körlunum ekkert eftir og fá að sýna bardagafimi sína, sumar vopn- aðar spjótum en aðrar ekki. Minnist rýnir þessi ekki að hafa séð jafn óárennilegan flokk kvenna og líf- varðasveit konungsins. Fer þar fremst í flokki leikkonan Darai Gur- ira í hlutverki hershöfðingjans Okoye og Óskarsverðlaunaleikkonan Lupita Nyong’o gefur henni lítið eftir í hlutverki Nakiu. Letitia Wright er líka skemmtilega baldin í hlutverki prinsessunnar Shur, systur T’Challa, sem er ekki bara hörð í horn að taka heldur einnig snillingur þegar kemur að hönnun háþróaðra tóla og tækja. Leikarar standa sig allir vel og gam- an að sjá Andy Serkis loksins í hold- inu til tilbreytingar en ekki sem tölvuteiknaðan djöful eða simpansa. Sá kann sig nú vel í hlutverki ill- mennis og hefur útlitið með sér. Tónlistin er svo sérkapítuli en hún er bæði óvenjuleg, flott og grípandi miðað við þennan flokk kvikmynda og heiðurinn af henni á einn vinsæl- asti rappari heims, Kendrick Lamar. Þess má geta að platan með tónlist- inni úr Black Panther situr nú í efsta sæti bandaríska plötulistans og hana má nálgast á Spotify. Og þá er komið að göllum mynd- arinnar sem eru nokkrir. Sá fyrsti að gripið sé til þeirrar klisju að syndir feðranna séu ástæða þess að menn verði illmenni eða taki rangar ákvarðanir. Öllu má klína á pabbana að venju. Þá skortir líka tilfinnanlega spaug inn á milli dramatískra atriða og hasarsena, til að létta aðeins á frá- sögninni og undir lokin kemur heldur löng og langdregin bardagasena þar sem vígbúnir nashyrningar (!) koma meðal annars við sögu og gefa manni vænan kjánahroll. Að öllu samanlögðu er Black Panther þó fínasta afþreying og skemmtilega furðulegur bræðingur sem aðdáendur Marvel hljóta að taka fagnandi. Óárennilegar Lífvarðasveit konungsins í Wakanda með yfirmann sinn Okoye (Darai Gurira) í broddi fylkingar. Svartar hetjur Smárabíó, Sambíóin og Laugarásbíó Black Panther bbbbn Leikstjóri: Ryan Coogler. Handritshöf- undar: Ryan Coogler og Joe Robert Cole. Aðalleikarar: Chadwick Boseman, Lupita Nyong’o, Michael B Jordan, Letitia Wright, Danai Gurira, Daniel Kal- uuya, Martin Freeman og Andy Serkis. Bandaríkin, 2018. 134 mín. HELGI SNÆR SIGURÐSSON KVIKMYNDIR ICQC 2018-20 Miðasala og nánari upplýsingar 5% NÝ VIÐMIÐ Í BÍÓUPPLIFUN Á ÍSLANDI LAUGARÁSBÍÓ KYNNIR DOLBY ATMOS LUXURY · LASER Sýnd kl. 10.30Sýnd kl. 10.15 Sýnd kl. 5.30Sýnd kl. 5.30 Sýnd kl. 5.15, 7.50, 10.10 Sýnd kl. 8Sýnd kl. 8 - FORSÝNING SÉRBLAÐ Fermingarblað Morgunblaðsins kemur út föstudaginn 16. mars Fermingarblaðið er eitt af vinsælustu sérblöðum Morgunblaðsins. Fjallað verður um allt sem tengist fermingunni. NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is PÖNTUN AUGLÝSINGA: Til mánudagsins 12. mars.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.