Morgunblaðið - 21.02.2018, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 21.02.2018, Qupperneq 29
DÆGRADVÖL 29 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 2018 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Það er auðvelt að finna til ástleysis í dag. Reyndu að fá tíma í einrúmi til að velta vöngum yfir breytingum á starfi eða búsetu sem framundan kunna að vera. 20. apríl - 20. maí  Naut Gættu þess að þú standir ekki í vegi fyrir metnaðarfullum tilburðum samstarfs- manns þíns. Hömlur, byrðar og skyldustörf hvíla þungt á honum um þessar mundir. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Hlutur sem þú hélst að þú hefðir gengið frá fyrir fullt og fast kemur aftur í bak- ið á þér með óvæntum hætti. Góður und- irbúningur tryggir farsæla framkvæmd. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þér býðst að freista gæfunnar og taka áhættu sem ætti ekki að koma að sök ef þú bara leggur ekki allt þitt undir. Undirbúðu þig vel og þá mun allt ganga upp. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Nú reynir verulega á forystuhæfileika þína. Fólk leyfir þér að ráða ferðinni, því þú virðist vita hvað þú ert að gera. Byrjaðu bara og þá kemur restin af sjálfu sér. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Í dag er gott að ræða við maka og nána vini um framtíðaráform. Hlutirnir eru í góðu lagi, þótt þeir séu ekki alfullkomnir. Gamall vinur gæti orðið á vegi þínum. 23. sept. - 22. okt.  Vog Nú eru viðsjárverðir tímar í fjármálum svo þú þarft að bregðast hart við til að tapa ekki. Burt með glundroðann, í hvaða mynd, sem hann kann að birtast. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú ert fullur af orku og veist ekki alveg hvernig þú átt að þér að vera. Færni þín í samskiptum er nú í hámarki og þú átt auð- velt með að sannfæra aðra. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Einhverjum liggur verulega á í dag og er fullur óþolinmæði í garð þeirra sem ekki ná að fylgja eftir. Spenna hefur verið að byggjast upp innra með þér og þú þarft að fá útrás fyrir hana. 22. des. - 19. janúar Steingeit Það er sérkennileg staða, þegar ókunnugir vilja taka meira mark á þér en þínir nánustu. Eitthvað tengt fjölskyldunni kemur þægilega á óvart. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Gættu þess að vinnufélagar þínir hafi ekki neitt upp á þig að klaga. Misstu ekki móðinn, brátt styttir upp og þá ert þú í góð- um málum. 19. feb. - 20. mars Fiskar Hlustaðu því vel á líkama þinn og leggðu þig fram um að rækta líkama og sál. Mundu hin fleygu orð: Langferð byrjar með litlu skrefi. Ármann Þorgrímsson vísaði tilorða biskups í Leirnum á mánudag þar sem hann segir að við verðum að fara varlega í að banna með lögum siðvenjur ann- arra trúarbragða og er þá sér- staklega að tala um gyðingdóm og íslam: Fornum hefðum fylgja vil og fagna ef til þess kæmi, en ýmislegt ég ekki skil, umskurð tek sem dæmi. En fleira þarna finna má, frjálst er íslams sonum, við það sjálfsagt Agnes á, að eiga hóp af konum. Friðrik Steingrímsson svaraði úr Mývatnssveit: Margir sinni löngun leyna, lítil hrösun marga hendir, segjast bara eiga eina eru þó við fleiri kenndir. Jón Arnljótsson sagði: Ég held að þetta gæti verið gaman og gengið án þess valda neinum raun- um, ef þeim kæmi ágætlega saman og ynnu líka fyrir góðum launum. Ingólfur Ómar rifjar upp gömul sannindi: Mannsævin er misjafnleg, margir um villu hnjóta. Aðrir ganga auðnuveg ólán síður hljóta. Jón Gissurarson segir frá því á Boðnarmiði að fyrir nokkrum dög- um hafi hann verið að moka snjó af dyrapallinum við íbúðarhúsið á Víðimýrarseli. Kom þá eftirfarandi vísa upp í huga hans: Lífið gjarna lán mér bjó, lukkustandi nærður. Mokar af palli miklum snjó maður silfurhærður. Hafsteinn Reykjalín Jóhann- esson veltir vöngum yfir náttúru Íslands: Ísland er landið sem ekki mér bregst, þótt eldfjöllin stundum hér gjósi. Alltaf nýtt veðurfar á okkur leggst, þó enginn það beinlínis kjósi. Það getur verið vandasamt að rata og greina rétt frá röngu. Benedikt Jóhannsson yrkir: Í villum leitum vega hér þótt viðmið dofni bæði og hverfi. Lygasaga er sögð var mér var sannleikur í dulargervi. Og lygin oft í leynum er þótt lúmsk hún oss um heiminn teymi, silkimjúk hún sýnist þér sem sannleiksboðinn helgi eini. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af umskurði og fjölkvæni „NÆST MUNTU KANNSKI HUGSA ÞIG TVISVAR UM ÁÐUR EN ÞÚ SAMÞYKKIR FRÍ 30 DAGA PRUFURÉTTARHÖLD.“ „VIÐ ÁTTUM Í SMÁERFIÐLEIKUM VIÐ AÐ NÁ ÞESSUM BLETTI ÚR.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... þegar þú átt athygli hans óskipta. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann TYGG TYGG TYGG TYGG TYGG TYGG TYGG TYGG TYGG TYGG TYGG TYGG ER ÞETTA ÞAÐ SEM ÉG HELD AÐ ÞAÐ SÉ? ERTU AÐ ÆFA ÞIG AÐ TYGGJA?!! ÞAÐ VERÐUR OPNAÐ NÝTT HLAÐBORÐ NIÐRÍ BÆ Í DAG! ÉG ER SVO SAMMÁLA ÞÉR, BRÓÐIR! ÉG VIL HELST KONUR MEÐ LANGAN, GRANNAN HÁLS! Kunningi Víkverja á iðulega erinditil Vestmannaeyja og telur það ákveðinn galla á þessum ferðum þótt ekki sé stórvægilegur hversu mikil óvissa getur ríkt um að hann komist til baka á tilsettum tíma. x x x Um helgina fór kunninginn einusinni sem oftar til Eyja. Á sunnudag tók hann Herjólf til baka og var siglingin tíðindalaus. Í Þor- lákshöfn hugðist hann taka strætó til Reykjavíkur og dreif sig á stoppi- stöðina. Á meðan hann beið óku far- þegar frá borði og ferjan tæmdist. Að hálftíma liðnum fór kunninginn og nokkrir farþegar aðrir sem biðu með honum að ókyrrast því að eng- inn kom vagninn. x x x Kom þá í ljós að ferðum strætóhafði verið aflýst vegna ófærð- ar. Þetta kom sér vitaskuld illa fyrir þá farþega, sem ekki voru á bíl. Einn þeirra brá meira að segja á það ráð að fara aftur um borð og taka ferj- una til baka. Sá farþegi átti ekki í nein hús að venda. x x x Það var ef til vill ekki ljóst þegarferjan sigldi af stað að ferðum strætó til Þorlákshafnar hefði verið aflýst, en var örugglega vitað meðan á siglingunni stóð. Víkverji furðar sig á því farþegum skuli ekki til- kynnt um slíkt því það getur verið óþægilegt fyrir farþega að vera strandaglópar. x x x Hefði kunningi Víkverja vitað afþessu hefði hann hæglega getað fengið far í bæinn með einhverjum um borð. Þegar hann hafði orð á þessu við starfsmenn ferjunnar var því svarað til að hér væri um sitt hvort fyrirtækið að ræða og því bæri engin skylda til að láta farþega vita. x x x Kunningi Víkverja sagðist viljakoma samgöngum við Eyjar í lag og kraftarnir yrðu betur nýttir í að bæta þjónustuna en tuð og þras um aukaatriði eins og hvað ferjan eigi að heita: „Hún má heita Gilitrutt fyrir mér.“ vikverji@mbl.is Víkverji Játið að Drottinn er Guð, hann hefur skapað oss og hans erum vér, lýður hans og gæsluhjörð. (Sálm: 100.3)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.