Morgunblaðið - 21.02.2018, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 21.02.2018, Qupperneq 36
MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 52. DAGUR ÁRSINS 2018 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR. 1. Þessum vegum verður lokað 2. „Fólk noti hyggjuvitið“… 3. Vara við „veðurhvelli“ 4. Óskar eftir aðstoð … »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Norræn kvikmyndahátíð hefst á morgun í Norræna húsinu og stendur yfir til 27. febrúar. Markmið hátíðar- innar er að kynna breitt úrval vand- aðra kvik- og heimildarmynda frá Norðurlöndunum og verða 15 myndir sýndar. Opnunarmyndin er The Square sem hlaut Gullpálmann í Cannes í fyrra sem besta kvikmyndin. Frekari upplýsingar um dagskrána má finna á nordichouse.is. Frítt í bíó á Norrænni kvikmyndahátíð  Sellóleikarinn Þórdís Gerður Jóns- dóttir og hljómsveit hennar halda tón- leika í kvöld kl. 21 í Björtuloftum í Hörpu og eru þeir hluti af tónleikaröð Jazzklúbbsins Múlans. Flutt verða verk sem Þórdís samdi á árunum 2013-2015 með það að markmiði að finna sellóinu hlutverk sem leiðandi hljóðfæri í djassi og spunatónlist og nálgast djass og spuna líkt og um klassíska kammertónlist væri að ræða. „Það er gert með því að æfa út frá þeirri hugmynd að ekkert hljóðfæri sé á nokkrum tímapunkti mikilvægara en annað, sama hvað á það er spilað og hvort á það er spilað, og að sama skapi að laglínur, spuni, undirspil og þagnir hafi jafnmikið vægi,“ segir um þá nálgun í tilkynningu. Með henni sé reynt að ná því fram að spuni hljómi eins og skrifuð tónlist og að skrifuð tónlist hljómi eins og spuni. Auk Þórdísar leika á tón- leikunum Andri Ólafsson á kontrabassa, Guðmundur Pét- ursson á gítar, Matthías Hem- stock á slagverk og Steingrímur Karl Teague á píanó. Nálgast djass og spuna eins og klassík Á fimmtudag Sunnan og suðvestan 13-18 m/s og él, en heldur hægara og léttskýjað norðaustantil. Frost yfirleitt 0 til 5 stig. Á föstudag Gengur í suðaustanstorm eða -rok með úrkomu. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Dregur hratt úr vindi og úrkomu upp úr há- degi, en áfram stormur austanlands fram á kvöld og mikil rigning suðaustantil. Hiti víða 2 til 7 stig. VEÐUR Stjarnan, sem leikið hefur til úrslita um Íslandsmeist- aratitil kvenna í handbolta síðustu fimm ár í röð, verð- ur ekki með í úrslitakeppni Olís-deildarinnar í ár. Þetta varð ljóst í gærkvöld þó að enn séu þrjár umferðir eftir af deildinni, en Stjarnan tapaði naumlega fyrir topp- liði Vals í gær. ÍBV fer í úr- slitakeppnina en liðið hefur verið á góðu flugi og vann Selfoss í gær. »2 Óspennandi tíma- mót Stjörnunnar „Logi er mikil fyrirmynd og maður sem ungir menn sem eru að stíga sín fyrstu skref með landsliðinu eiga að horfa upp til. Frábær ferill hjá honum og það verður virkilega gaman að spila með honum um næstu helgi. Ég er vinur hans og stoltur af því að hafa spilað með honum,“ segir Jón Arnór Stef- ánsson um Loga Gunnarsson sem kveður körfubolta- landsliðið um kom- andi helgi. »4 Fyrirmynd sem ungir menn eiga að horfa til Ef marka má úrslit leikja rússneska liðsins SKIF Krasnodar í Áskorenda- bikar karla í handknattleik til þessa er auðvelt að draga þá ályktun að Eyjamenn eigi góða möguleika á að slá liðið úr keppni. ÍBV dróst í gær gegn Krasnodar í átta liða úrslitum keppninnar og gæti með sigri farið á sömu slóðir og Valsmenn gerðu síð- asta vor. »4 ÍBV á ágæta möguleika gegn Krasnodar ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Þrír nemar á fjórða og síðasta ári í raftækniskóla í Hollandi eru í fjórðu og síðustu vinnuvikunni hjá rafverk- takafyrirtækinu Rafholti í Kópavogi í samvinnu við Raftækniskólann og fara héðan reynslunni ríkari um helgina. „Þetta hefur verið frábært í alla staði,“ segir Matteüs Abdalla, einn Hollendinganna. Þetta er í fyrsta sinn sem svona tenging á sér stað í íslenskum iðnaði í samvinnu við Raftækniskólann, en nemar í skólanum fá svipuð tækifæri í Hollandi í kjölfarið. Raftækniskólinn hefur verið í samstarfi við þýskan skóla í 11 ár, en það hófst með þriggja landa sam- vinnu Íslands, Þýskalands og Finn- lands. Til að byrja með voru íslensku nemendurnir í skóla og á vinnumark- aði ytra í þrjár vikur en undanfarin ár hafa þeir verið eina viku í vinnu og aðra í skóla. Auk þess hefur verið samvinna við skóla í Álaborg í Dan- mörku síðan í fyrra og meðal annars hafa skólar í Madríd, Noregi og á Kanaríeyjum óskað eftir samstarfi. Vel heppnað samstarf Valdemar Gísli Valdemarsson, skólastjóri Raftækniskólans, segir að talsmenn skólans hafi kynnst Bert van Lenthe, sem sér um erlend samskipti hjá skólanum ROC van Twente í Hengelo í Hollandi, fyrir um tveimur árum, og í kjölfarið hafi verið ákveðið að fara í svokallað Erasmus+ samstarf. Hann hafi farið með fimm nemendur til að taka þátt í alþjóðlegri drónakeppni á vegum ROC í maí í fyrra og síðan hafi fyrr- nefndir þrír nemendur hollenska skólans komið hingað. Fimm til sex nemendur fari svo til ROC og verði í tvær vikur í vor. „Þetta samstarf kemur öllum hlutaðeigendum til góða,“ segir Valdemar og leggur áherslu á að Hollendingarnir séu sérstaklega samvinnuþýðir og nái vel saman við Íslendingana. „Svona samvinna við Raftækni- skólann hefur ekki verið áður í ís- lenskum iðnaði, svo ég viti,“ segir Helgi Rafnsson, framkvæmdastjóri Rafholts. Strákarnir hafi tekið þátt í verkefnum sem fyrirtækið hafi unnið að undanfarnar vikur, meðal annars í Bláa lóninu og hjá Icelandair. „Þetta hefur gengið mjög vel,“ áréttar Helgi. Matteüs Abdalla, Casper Toes og Robbin Peezenkamp eru yfir sig ánægðir með að hafa valið að fara til Íslands en þeim stóð einnig til boða að fara til Spánar eða Portúgals. „Ís- land er öðruvísi og sérstakt,“ út- skýrir Matteüs Abdalla. Strákarnir hrósa vinnufélögunum og segja að samstarfið hafi gengið vel. „Við tölum saman á ensku og það er ekkert mál,“ segir Matteüs. Þeir hafa haft tækifæri til þess að sjá sig um, hafa farið „gullna hring- inn“ og í fjallgöngu. Þeir segjast vera vanir snjó og kulda og veðrið hafi ekki komið þeim á óvart. „Við vorum viðbúnir og tókum með okk- ur hlý föt,“ segir Matteüs. „Mig hefur lengi langað til þess að sjá norðurljós og fékk óskina upp- fyllta.“ Norðurljós og rafiðnaður  Raftækniskólinn og Rafholt ryðja nýja braut með Hollendingum Morgunblaðið/Hari Í Hafnarfirði Frá vinstri: Matteüs Abdalla, Helgi Rafnsson, Casper Toes og Robbin Peezenkamp. Hjá Icelandair Hollensku rafvirkjanemarnir vinna við flughermi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.