Morgunblaðið - 21.02.2018, Síða 15

Morgunblaðið - 21.02.2018, Síða 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 2018 Loftpressur - stórar sem smáar Vöðva eða liðverkir? Voltaren Gel er bæði verkjastillandi og bólgueyðandi Voltaren 11,6 mg/g hlaup. Inniheldur díklófenaktvíetýlamín. Staðbundnir bólgukvillar. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is. 15% afsláttu r af 100g og 150 g Voltare n Gel www.apotekarinn.is - lægra verð Voltaren Gel - njótum þess að hreyfa okkur Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is „Skeljungur rak í 60 ár, eða allt frá árinu 1927, innflutningsbirgðastöð fyrir olíur á umræddri lóð. Starfsem- in uppfyllti frá upphafi og á hverjum tíma lög og reglur hvað rekstur og mengunarvarnir snertir. Ekki er vitneskja um nein slys eða óhöpp á starfstíma birgðastöðvarinnar, sem valdið hafi mengun innan eða utan stöðvar.“ Þetta kemur fram í fréttatilkynn- ingu sem Skeljungur sendi frá sér í tilefni af frétt í Morgunblaðinu í gær um jarðvegsmengun á fyrrverandi lóð Skeljungs í Skerjafirði. Fram kemur í tilkynningunni að þegar lóðin var seld Reykjavíkur- borg, árið 1998, gekk Skeljungur frá lóðinni í samræmi við kaupsamning. Við söluna hafi svæðið verið skil- greint sem útivistarsvæði í samræmi við gildandi aðalskipulag og lóðin því seld sem slík. Ljóst sé nú að fyrirhugað er að reisa íbúðabyggð á svæðinu fyrir allt að 1.400 íbúðir, auk 20.000 fermetra atvinnu- og þjónustuhúsnæðis. Verðgildið verulega aukið Gangi þau áform eftir þá feli sú breyting á nýtingu lóðarinnar í sér verulega aukið verðgildi lóðarinnar auk hugsanlega strangari krafna til ástands hennar. „Kalli breyting á nýtingu lóðarinn- ar á hreinsun á lóðinni er Skeljungur boðinn og búinn til að veita Reykja- víkurborg aðgang að sérfræðingum sínum við mat á hvaða aðgerðir sé rétt að ráðast í ef þörf krefur, líkt og í öðrum málum er snúa að olíumeng- un,“ segir í tilkynningunni. Í skýrslu frá árinu 1998 um for- rannsókn á jarðvegsmengun á Skelj- ungslóðinni er vitnað í kaupsamning Reykjavíkurborgar og Skeljungs. Samkvæmt 5. grein kaupsamnings- ins skal embætti borgarverkfræð- ings standa að rannsókn á ástandi lóðarinnar. Þar segir: „Leiði rannsókn borgarverkfræðings í ljós að nauð- synlegt sé að fjarlægja jarðveg vegna mengunar eða gera ráð- stafanir hennar vegna mun Skelj- ungur hf. gera það á sinn kostnað, enda sé mengun meiri en eðlilegt getur talist miðað við þá starfsemi sem verið hefur á lóðunum undan- farna áratugi.“ Segja enga vitneskju um mengunaróhöpp Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Reykjavíkurflugvöllur Myndin er frá miðri síðustu öld. Olíubirgðastöð Skeljungs í Skerjafirði má sjá fyrir miðri mynd, vinstra megin.  Skeljungur reiðubúinn að veita borginni aðgang að sér- fræðingum sínum verði ráðist í hreinsun lóðar í Skerjafirði „Þetta er smá tilraunastarfsemi hjá okkur. Við prófuðum þessar merkingar á tveimur bílum og ætlum að sjá hvernig mönnum líst á þetta,“ segir Kári Gunn- laugsson yfirtollvörður. Embætti tollstjóra fékk tvo nýja Skoda Octavia-bíla um ára- mótin og fengu þeir öðruvísi merkingar en tíðkast hafa til þessa. „Þessar merkingar eru meira í stíl við það sem tíðkast í Bret- landi og á Norðurlöndum. Við höfum verið með svarta hliðar- rönd á bílunum til þessa en nú er- um við með stærri fleti og litirnir eru gulur og svartur. Þetta er að- allega gert til að bílarnir verði auðþekkjanlegir,“ segir Kári. Hann segir að tollstjóraembættið eigi um 15-20 Skoda Octavia-bíla og þeir séu flestir merktir emb- ættinu, fyrir utan hundabílana eins og hann kallar þá. „Nú munum við leggjast aðeins yfir þetta og sjá hvernig mönnum líst á. Ef ánægja er með þessar merkingar höldum við áfram næst þegar við endurnýjum bíl- ana. Við reynum að hafa bílana okkar ekki eldri en 5-6 ára, þeir þurfa að vera í góðu lagi.“ Fleiri embætti hyggja á breyt- ingar á bílaflota sínum á næst- unni. Embætti ríkislögreglustjóra er að undirbúa kaup á átta Volvo V90 Cross Country-bílum. Verða þeir merktir með öðrum hætti en tíðkast hefur með lögreglubíla hér á landi. Merkingarnar verða bláar og gular, stærri fletir en við eigum að venjast og nokkuð í líkingu við merkingar á lög- reglubílum í nágrannalöndunum. Unnið er að hönnun þessara merkinga. Búast má við að bílar þessir verði teknir í notkun í næsta mánuði. hdm@mbl.is Bílar tollstjóra í nýjum búningi Ljósmynd/Tollstjóri Breyting Útlit bílanna er mjög frábrugðið fyrri útfærslum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.