Morgunblaðið - 21.02.2018, Side 11

Morgunblaðið - 21.02.2018, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 2018 Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170 Kynning á miðvikudag, fimmtudag og föstudag Gréta Boða verður á staðnum og kynnir nýja farðan LE TEINT ULTRA ásamt vorlitunum í CHANEL Verið velkomin 20% afslátturaf CHANEL vörumkynningardagana Ljósmyndir Rutar og Silju Skipholti 31 | 105 Reykjavík | Sími 568 0150 | www.rut.is | Ljósmyndir Rutar og Silju MYND ER MINNING Fermingarmyndir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Tillaga fjármála- og efnahags- ráðherra að fjármálastefnu fyrir ár- in 2018-2022 sætir talsverðri gagn- rýni í umsögnum sem borist hafa fjárlaganefnd Alþingis á undan- förnum dögum og vikum. Í nokkr- um þeirra er m.a. varað við og sagt vafasamt að fjármálastefnan bygg- ist á afar bjartsýnislegri efnahags- spá og verulegum launahækkunum á sama tíma og verðbólga eigi að haldast innan viðmiðunarmarka. Viðskiptaráð bendir á að þessi launaþróun muni þýða að kaup- máttur íslenskra launa erlendis muni vaxa um 17% næstu fimm ár, eftir að hafa vaxið um 86% síðustu fimm ár eða samtals um 118% á einum áratug. ,,Þetta þýðir að ís- lenskur launamaður getur árið 2022 flutt inn rúmlega tvöfalt dýr- ari bíl fyrir sama hlutfall af laun- unum sínum og hann gat árið 2012. Þetta er þróun sem flest ríki geta einungis látið sig dreyma um þar sem kaupmáttarhækkun hleypur yfirleitt á 1-2% á ári. Hér á landi byggist stefna í opinberum fjár- málum á slíkri fordæmalausri hagspá og er það varasamt,“ segir í umsögn ráðsins. „Einfaldlega ábyrgðarleysi“ ASÍ telur upp ýmsa annmarka á stefnunni. og telur tvísýnt hvort þessi fjármálastefna muni styðja við efnahagslegan og félagslegan stöðugleika á komandi árum sökum þeirra annmarka sem á henni séu. Ríkisstjórnin ætli að draga úr að- haldi í opinberum fjármálum og getu til að standa undir útgjöldum til frambúðar. Hætt er við því, að mati ASÍ, að ef hægir á í efnahags- lífinu muni tekjur ríkissjóðs ekki duga til að fjármagna núverandi út- gjöld og við blasi niðurskurður eða aukin skattheimta þvert á hag- sveifluna. Samtök atvinnulífsins leggja fram ítarlega umsögn og gagnrýna m.a. að gert sé ráð fyrir litlum rekstrar- afgangi á komandi árum. Ljóst sé að uppsveiflan muni taka enda og telja SA ,,einfaldlega ábyrgðaleysi að búa ekki betur í haginn því það mun margborga sig þegar harðnar á dalnum,“ segir þar. Jákvætt er hins vegar að mati SA að stjórnvöld ætli sér áfram að greiða niður skuldir en samtökin vara við ef festa eigi Ísland í sessi sem háskattaríki. „Það er jafn óá- byrg stefna að stunda þensluhvetj- andi fjármálastefnu á uppgangs- tímum og að festa Ísland í sessi sem háskattaríki,“ segir í umsögn SA. Slík stefna komi niður á samkeppn- ishæfni landsins. „Skattar voru hækkaðir hér eftir 2008 og standa þær skattahækkanir flestar óhreyfðar. Í fjárlagafrumvarpi 2018 eru frekari skattahækkanir boðaðar en engar skattalækkanir. Skapa þarf rými svo hægt sé að draga úr álögum á almenning en slíkt er ómögulegt án þess að stjórnvöld haldi aftur að útgjöldum.“ BHM segir vekja athygli að ný ríkisstjórn skuli ekki lýsa því yfir með afdráttarlausum hætti að mark- mið hennar sé að koma á nýju og bættu vinnumarkaðslíkani. Ríkis- stjórnin verði að hafa skýrari sýn á framvindu umbóta á vinnumarkaði. Byggt á 40% hækkun launa Samtök fjármálafyrirtækja gera fjölmargar athugasemdir við stefn- una og gagnrýna m.a. að ekkert sé þar fjallað um áhrif fjármálastefn- unnar á hagkerfið og hvaða áhrif ætlast sé til að ríkisfjármálin hafi á efnahagsframvinduna. Þá sé gert ráð fyrir því að laun hækki í þjóð- hagsspánni um 40% á spátímanum. ,,Hagþróun í nágrannalöndum hefur undanfarin ár einkennst af mjög lít- illi verðbólgu og litlum launahækk- unum. Útlit er fyrir að svo verði áfram í meginatriðum á næstu árum miðað við alþjóðlegar spár. Fari fram með þessum hætti þyngjast kostnaðarskilyrði hér á landi veru- lega miðað við þau ríki sem við kepp- um við í útflutningi.“ Seðlabankinn heldur því fram í sinni umsögn að þrátt fyrir að gert sé ráð fyrir afgangi á ríkissjóði á tímabilinu feli fjármálastefnan í sér nokkra slökun á aðhaldsstigi opin- berra fjármála frá fyrri fjármála- stefnu. „Á tímabilinu 2017-2020 verður aðhald í ríkisfjármálum því samtals 2% af landsframleiðslu minna en gert var ráð fyrir miðað við fjármálastefnu fyrri ríkisstjórnar.“ Slaknar á aðhaldi og afgangurinn of lítill  Margar athugasemdir við fjármálastefnuna í umsögnum Morgunblaðið/Hari Í þingsal Fjármálastefna til næstu fimm ára er til umfjöllunar á Alþingi. Erna Ýr Öldudóttir ernayr@mbl.is Embætti landlæknis hefur staðfest að hafa til meðferðar kvörtun manns í Ólafsvík, sem segir að læknir á Heilbrigðisstofnun Vest- urlands í Ólafsvík hafi synjað eig- inkonu hans um læknisþjónustu þegar hún slasaðist 21. janúar sl. Konan lést níu dögum síðar. Í svari landlæknisembættisins við fyrirspurn Morgunblaðsins segir að embættið geti ekki tjáð sig um mál einstakra sjúklinga eða heilbrigðisstarfsmanna. Um kvartanir sé fjallað í lögum um landlækni og lýðheilsu. Um það hvort læknar geti neitað sjúkling- um um þjónustu segi í lögum um heilbrigðisstarfsmenn að heilbrigð- isstarfsmanni sé heimilt að skorast undan störfum sem stangast á við trúar- eða siðferðileg viðhorf hans, enda sé tryggt að sjúklingur fái nauðsynlega heilbrigðisþjónustu. Í leiðbeiningum landlæknis frá 2017, „Góðir starfshættir lækna“, segi m.a. að læknir megi ekki neita sjúklingi um eða fresta meðferð, þó læknir telji gerðir sjúklings eða lífsstíl hafa stuðlað að veikindum hans, og að ekki megi neita sjúk- lingi um meðferð á þeirri forsendu að ástand sjúklingsins stofni lækn- inum sjálfum í hættu. Komist land- læknir að því að um vanrækslu, mistök eða brot á starfsskyldum heilbrigðisstarfsmanns hafi verið að ræða fari um slík mál sam- kvæmt lögum um landlækni og lýð- heilsu. Skv. upplýsingum frá Lækna- félagi Íslands er einnig hægt að leggja kvartanir fyrir siðanefnd fé- lagsins sem geti veitt áminningu. Landlæknir mót- tekur kvörtun  Íbúi í Ólafsvík segir lækni hafa synjað konu hans um þjónustu Morgunblaðið/Kristinn Embætti landlæknis Hefur kvört- un vegna málsins til meðferðar. Hús íslenskra fræða er eitt af þeim verkefnum sem bíða úrlausnar í fjármálaáætlun til næstu fimm ára sem nú er í vinnslu á Alþingi. Enn stendur grunnurinn sem var tekinn fyrir Hús íslenskra fræða við Suðurgötu óhreyfður, tæpum fimm árum frá því fyrsta skóflustunga var tekin. Fyrir ári gaf þáverandi forstjóri Framkvæmdasýslu ríkisins það út að 400 milljónir yrðu settar í Hús íslenskra fræða á árinu 2017 og framkvæmdir áttu að hefjast um haustið. Ekkert gerðist það ár. Þrjú ár í framkvæmd Samkvæmt upplýsingum frá Guð- rúnu Ingvarsdóttur, forstjóra Framkvæmdasýslu ríkisins, var ákveðið í fyrra að fara í endur- skoðun á kostnaðaráætlun hússins. Í kjölfarið fór fram endurskoðun á nokkrum þáttum í efnisvali og hönnun með það að markmiði að auka hagkvæmni framkvæmdarinn- ar. Að sögn Guðrúnar eru ráðgjafar að ljúka uppfærslu útboðsgagna á þeim grunni um þessar mundir. Þegar niðurstaða fjármálaáætlunar liggur fyrir er stefnt að útboði. Gert er ráð fyrir að framkvæmdatími verði um þrjú ár. ingveldur@mbl.is Morgunblaðið/RAX Húsgrunnur Hús Íslenskra fræða bíður þess að rísa við Suðurgötu. Hús íslenskra fræða bíður enn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.