Morgunblaðið - 21.02.2018, Qupperneq 13
Mistök Versti leikritahöfundurinn, versti leikstjórinn og verstu leikend-
urnir voru fengnir til að setja upp söngleik sem ætlað var að mistakast.
öryggi og metnaður.
Að sögn Mána hafa aldrei jafn-
margir komið að söngleik hjá skól-
anum.
„Fyrir utan sviðslistahópinn
sem telur 40 manns koma 100
manns í undirnefndum að söng-
leiknum auk 20 stjórnenda.
„Við verðum að viðurkenna það
þrátt fyrir að við höfum sjálf tekið
þátt í nemendasýningum á ýmsan
hátt er Framleiðandinn mögnuð
sýning og sú besta hingað til,“ sögðu
fyrrverandi nemendur frá skólanum
sem mættu á sýninguna á mánudag-
inn.
Grunnskólanemendur sem
sóttu sýninguna voru ánægðir með
hana og töldu sýninguna fyrir alla
aldurshópa. Þeim fannst sumt í
söngleiknum gamaldags en góður
húmor í verkinu og mæltu með því.
Listrænir stjórnendur söng-
leiksins eru Vala Kristín Eiríks-
dóttir leikstjóri, Margrét Eir
Hönnudóttir söngstjóri og Unnur
Elísabet Gunnarsdóttir dansstjóri.
Næsta sýning
á Framleiðend-
unum verður
sunnudaginn
25. febrúar
kl. 14.00.
Enn er
hægt að fá
miða á midi.is.
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 2018
Með nýju Opn heyrnartækjunum verður auðveldara að taka þátt í samræðum í fjölmenni og
hljóðupplifun verður eðlilegri en nokkurn tímann fyrr. Opn heyrnartækin skanna hljóðumhverfið
100 sinnum á sekúndu til að aðgreina talmál frá hávaða og koma jafnvægi á hljóð í kringum þig.
Þannig getur þú staðsett, fylgt eftir og einbeitt þér að þeim hljóðum sem þú vilt heyra.
Prófaðu nýju Opn heyrnartækin í 7 daga
Heyrnartækni | Glæsibæ | Álfheimum 74 | 104 Reykjavík | Landsbyggðaþjónusta | Sími 568 6880
Hefðbundin heyrnartæki Nýju Opn heyrnartækin
Tímapantanir í síma 568 6880
www.heyrnartaekni.is
„Það er æðilegt að leikstýra
nemendum í Versló. Það hefur
alltaf verið mikill metnaður í
Verslunarskólanum fyrir árlega
söngleiknum. Ég var sjálf í Versló
og því er þetta nálægt hjartanu
og ég er ótrúlega stolt,“segir
Vala Kristín Eiríksdóttir, sem leik-
stýrir verkinu, en Framleiðend-
urnir eru frumraun hennar sem
leikstjóri.
Vala Kristín lék sjálf með með
Versló og fékk þar staðfestingu á
að draumurinn um að gerast leik-
kona væri réttur. Hún er leikkona
í dag. Vala Kristín segir nem-
endur Versló ótrúlega metn-
aðarfulla, vinnusama, hugrakka
og opna. Það hafi því leikið í
höndunum á henni að vinna með
krökkunum.
„Þau kenndu mér að leikstýra,
það má segja það,“ segir Vala
Kristín og bætir við að leiklist-
arstarf Verslunarskólans hafi
mikið aðdráttarafl og nem-
endamótssýningin hafi verið
ein af ástæðum þess að hún
sótti um að komast í skólann.
Vala segir það hafa mikla
þýðingu fyrir nemendur að
taka þátt í leiksýningum.
„Að taka þátt í svona starf-
semi með hóp þar sem all-
ir hlekkir eru mikilvægir,
skiptir miklu máli. Það
þarf að ríkja traust og
virðing milli þeirra sem
taka þátt í verkefninu og
það hefur mikið að segja
á þessum árum í upp-
vextinum, að ég tali
ekki um fyrir þá sem
vilja verða leikarar.“
Metnaðarfull
og dugleg
FYRSTA LEIKSTJÓRNIN
Vala Kristín
Eiríksdóttir
Litagleði Mikið er lagt upp úr búningum, glamúr og litskrúðugum per-
sónum. Fremstur á myndinni er Vilberg í hlutverki Roger Debris.
Hark Max Bialystock, í hópi eldri kvenna. Max telur að eina leiðin
til þess að fjármagna söngleiki á Broadway sé að gleðja þær.