Morgunblaðið - 21.02.2018, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 2018
Suðurlandsbraut 6, Rvk. | Sími 419 9000 info@handafl.is | handafl.is
Við útvegum hæfa starfskrafta
í flestar greinar atvinnulífsins
Markmið okkar er að spara viðskiptavinum
tíma, fyrirhöfn og fjármuni.
VANTAR ÞIG STARFSFÓLK
Handafl er traust
og fagleg
starfsmannaveita
með margra ára
reynslu á markaði þar
sem við þjónustum
jafnt stór sem smá
fyrirtæki.
Fótboltinn verður tengingin í her-
ferð sem Íslandsstofa mun kynna á
næstu vikum, en knattspyrnan hef-
ur beint kastljós-
inu að Íslandi.
Tækifærið verð-
ur notað til að
vekja áhuga fólks
á öðrum þáttum í
íslensku sam-
félagi eins og út-
flutningi, gæðum
í matvæla-
framleiðslu, iðn-
aði, þjónustu og
fjárfestinga-
möguleikum, að ógleymdu því
hversu góður áfangastaður Ísland
er.
„Við hyggjumst draga fram góðar
sögur og hafa þær til taks þegar
kastljósið vex enn meira er nær
dregur úrslitum heimsmeistara-
keppninnar í knattspyrnu,“ segir
Sigríður Dögg Guðmundsdóttir,
verkefnisstjóri hjá Íslandsstofu.
Hún segir að Íslandsstofu hafi þeg-
ar borist talsvert af fyrirspurnum
frá stórum, erlendum miðlum sem
vilji koma til Íslands. Margir velti
fyrir sér hvernig það geti gerst að
þessi litla þjóð komist á þetta mót.
Að sögn Sigríðar Daggar verður
verkefnið Inspired by Iceland víkk-
að út og áherslan verði ekki ein-
göngu á ferðaþjónustu. Úrslit HM
séu einn stærsti íþróttaviðburður í
heimi og reynt verði að nýta kast-
ljósið sem keppninni fylgi íslenskum
útflutningi til hagsbóta. Hún segir
að í tengslum við úrslit Evr-
ópumótsins í Frakkklandi fyrir
tveimur árum hafi Íslandsstofa
fundið fyrir gríðarlegum áhuga og
menn hafi því viljað vera vel undir-
búnir núna.
Tæpur helmingur jarðarbúa
Á kynningarfundi Íslandsstofu
fyrir rúmum mánuði var fjallað um
þetta verkefni og kom þar fram að
áætla mætti að 3,5 milljarðar
manns, tæpur helmingur jarðarbúa,
myndi fylgjast með úrslitum HM,
að minnsta kosti að hluta.
Fram kom í frétt blaðsins af
fundinum að blásið yrði til markaðs-
herferðar undir nafninu #TeamI-
celand. Nýta ætti Inspired by Ice-
land í ár til þess að Ísland sýndi
sínar bestu hliðar í kringum HM.
Þar kom fram að meðan á EM stóð
hefði ferðatengd leit á Google aukist
um 73%. aij@mbl.is
Fótboltinn verð-
ur tengingin í ár
Íslandsstofa undirbýr markaðsherferð
Sigríður Dögg
Guðmundsdóttir
menn að breyta takti í verkefninu
Inspired by Iceland og í ár verði
þátttaka Íslands á HM notuð til að
vekja athygli á landinu og ímynd
þess. Sú staðreynd að Íslendingar
séu minnsta þjóðin í sögunni til að
komast í úrslitakeppni HM sé
spennandi og eftir henni hafi verið
tekið.
Kínversk skrifstofa í London
„Kína er sérstakt að því leyti að
þar í landi heita samfélagsmiðlar
annað og eru með öðru sniði, en á
Vesturlöndum,“ segir Ómar. „Við
höfum engan sérstakan aðgang þar
svo við gerðum samning við kín-
verska umboðsskrifstofu í London,
sem mun sjá um samfélagsmiðla
fyrir KSÍ í Kína.
Markmiðið með þessu er að fjölga
verulega fylgjendum á samfélags-
miðlum í Bandaríkjunum, Evrópu
og Kína og gera KSÍ betur í stakk
búið eftir heimsmeistaramótið til
þess að sækja samstarfsaðila í þess-
um löndum og þar með fjármagn.
Samfélagsmiðlar eru orðnir svo stór
hluti af því sem fyrirtæki vinna með
að þegar fyrirtæki hafa samband
við okkur og vilja ræða mögulegt
samstarf, hvort sem það er banda-
rískt, kínverskt eða evópskt, er
undantekningalaust spurt hvert
fylgið sé á samfélagsmiðlum og til
hversu margra þau geti náð með því
að vera í samstarfi við okkur.
Þessa stöðu viljum við styrkja og
markmiðið er að eftir HM verðum
við komnir með umtalsvert fleiri
fylgjendur og verðum þar af leið-
andi í mun betri stöðu til að ná hag-
stæðum samningum við erlenda
samstarfsaðila. Þetta mun auðvitað
líka nýtast þeim innlendum sam-
starfsaðilum sem starfa á erlendum
vettvangi.“
Tilboð „hægri/vinstri“
Ómar segir að KSÍ hafi verið leg-
ið á hálsi fyrir að nýta ekki þau
tækifæri sem bjóðast til að sækja á
erlenda markaði og auka tekju-
streymið. Nú sé unnið að því og
áhersla verði lögð á að vanda til
verka við val á samstarfsaðilum.
Ekki verði stokkið á hverja krónu
sem bjóðist, en tilboð berist „hægri/
vinstri“.
Knattspyrnusambandið hafi ekki
verið í stakk búið til að fara í verk-
efni sem þetta þegar Ísland komst í
lokakeppni Evrópumótsins í Frakk-
landi fyrir tveimur árum. Nú séu
menn hins vegar reynslunni ríkari
og markaðsstarfið hafi verið eflt á
skrifstofu KSÍ.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Stórar stundir Í sumar leikur íslenska landsliðið á stóra sviðinu á HM í Rúss-
landi. Myndin er frá sigurleiknum gegn Kósóvó á Laugardalsvelli í haust.
KSÍ í víking á samfélagsmiðlum
Fyrirtæki um allan heim vilja tengja sig íslenska knattspyrnuundrinu Ætla að sækja fleiri fylgj-
endur í Evrópu, Bandaríkjunum og Kína Skapar betri stöðu til að ná hagstæðum samningum
SVIÐSLJÓS
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Nánast á hverjum degi fær Knatt-
spyrnusambandið erindi erlendis
frá þar sem óskað er eftir upplýs-
ingum um landslið karla í knatt-
spyrnu. Fjöldi fyrirtækja vill tengja
sig íslenska knattspyrnuundrinu,
landsliðunum og vörumerkinu KSÍ.
Þarna leika sam-
félagsmiðlar
stórt hlutverk og
hefur KSÍ nú
hafið markvisst
starf til að efla
stöðuna á þessum
miðlum erlendis.
„Fyrir utan al-
mennan áhuga
fjölmiðla á Ís-
landi, þá er um
allan heim mikill
áhugi á þeim fágæta árangri sem
þessi litla þjóð hefur náð á fótbolta-
vellinum,“ segir Ómar Smárason,
markaðsstjóri KSÍ. „Við ætlum að
sækja fram í öðrum löndum og ætl-
um í víking á samfélagsmiðlum. Við
hyggjumst sækja umtalsvert fleiri
fylgjendur á stórum mörkuðum,
ekki bara í Evrópu heldur meðal
annars einnig í Bandaríkjunum og í
Kína.“
Um 100 þúsund
fylgjendur á Twitter
Nú er staðan þannig að stærsti
hópur fylgjenda íslenskrar knatt-
spyrnu á samfélagsmiðlum er er-
lendis og er þá átt við Facebook,
Twitter og Instagram. Sem dæmi
má nefna að á Twitter eru Íslend-
ingar um 1/5 af um 100 þúsund
fylgjendum KSÍ. Ómar segir það
ágætis árangur miðað við t.d. lönd
eins og Noreg, Eistland og Dan-
mörku og fleiri. Þetta séu býsna
margir fylgjendur án þess þó að
höfðatala landsmanna sé höfð til
hliðsjónar.
Ómar segir að KSÍ sé í samstarfi
við Íslandsstofu. Þar á bæ séu
Ómar
Smárason
Ómar segir að lykilatriði í sókn
á samfélagsmiðlum sé að geta
boðið áhugavert og innihalds-
ríkt efni, sem veki athygli á
landi og þjóð og íslenskri knatt-
spyrnu. Erlendis sé hreinlega
hrópað á meira efni og fyrir-
spurnir berist frá öllum heims-
hornum.
„Þróunin á samfélagsmiðlum
er þannig að mesta eftirspurnin
virðist vera eftir hreyfimyndum
annars vegar og hins vegar efni
sem veitir meiri innsýn í starf
landsliðanna en næst með hefð-
bundinni umfjöllun fjölmiðla.
Þetta eru leiðirnar sem við er-
um að fara og KSÍ mun gera
mun meira af því að safna og
vinna þannig efni en áður hefur
verið gert.
Gæðin aukin markvisst
Við erum einnig að taka mjög
markviss skref í því að auka
gæðin á því efni sem við birtum
og umgjörð þess efnis, m.a.
með því að marka skriflega
stefnu í því hvernig við vinnum
á hverjum miðli fyrir sig. Dæmi
um það má nefna að það er ekki
hægt að nálgast vefsíðu KSÍ
með sama hætti og t.d. Twitter
eða Facebook.
Við birtum ekki sama efni á öll-
um miðlunum okkar og „tölum“
ekki með sama tóni á öllum
miðlunum. Þarna þarf að vanda
til verks og vinna eftir skil-
greindu skipulagi til að ná sam-
fellu og stöðugleika,“ segir Óm-
ar Smárason.
Hrópað á
meira efni
erlendis
ÁHUGAVERT OG
INNIHALDSRÍKT