Morgunblaðið - 21.02.2018, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 21.02.2018, Qupperneq 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 2018 Haldið verður upp á alþjóðadag móðurmálsins í dag, miðvikudag, í Veröld – húsi Vigdísar. Einkunnar- orð alþjóðadags móðurmálsins í ár snúast um að viðhalda fjölbreytni tungumála og ýta undir fjöltyngi, sem eru einnig meginmarkmið Vig- dísarstofnunar – alþjóðlegrar mið- stöðvar tungumála og menningar. Í tilefni dagsins verður haldið málþingið „Orðabækur: Fjölbreytni tungumála, fjöltyngi og þýðingar“ þar sem rætt verður um mikilvægi orðabóka fyrir tungumálafjöl- breytni og til að byggja brýr á milli menningarheima. Jón Atli Benediktsson, rektor Há- skóla Íslands, og fulltrúar margra mikilvægra stofnana á þessum svið- um, á Íslandi og í Evrópu, verða á staðnum og taka þátt í málþinginu. Með málþinginu er einnig haldið upp á komu einstaks safns orða- bóka og tímarita til landsins, en lík- lega er um eitt stærsta safn orða- bóka í heiminum að ræða. Safnið verður varðveitt í Veröld. Að mál- þinginu loknu verður haldin mót- taka og gestum gefst kostur á því að skoða orðabókasafnið. Málþingið hefst kl. 14.30 og lýkur 17.30. Jón Atli opnar þingið og aðr- ir sem taka til máls eru Sebastian Drude frá Vigdísarstofnun; Christi- an Galinski frá InfoTerm í Vínar- borg; Robert Lew frá samtökum evrópskra orðabókastofnana; Ágústa Þorbergsdóttir og Ásta Svavarsdóttir frá Stofnun Árna Magnússonar; Arnt Lykke Jakob- sen frá European Society for Translation Studies; Renata Em- ilsson Peskova frá „Móðurmál“; Sofiya Dimitrova Zahova frá Vig- dísarstofnun og Björgvin Andersen frá þýðingamiðstöð utanríkisráðu- neytisins. Málþing um orðabækur og tungumál Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson Rektor Jón Atli Benediktsson er einn þeirra sem taka til máls í dag. Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is „Fyrir mér er þetta sérstakur við- burður því að þetta verður í fyrsta sinn sem ég spila sólótónleika á Ís- landi,“ segir Ingi Bjarni Skúlason djasspíanóleikari sem flytur eigin tónsmíðar á Háskólatónleikum í dag. Fara þeir fram á Litla torgi og hefj- ast kl. 12.30. Aðgangur er ókeypis. Verkin sem Ingi Bjarni mun spila eru af ýmsum toga en öll undir áhrif- um af norrænum þjóðlögum og djassi. Ingi Bjarni nam við Tónlistarskóla FÍH, til 2011, og hélt eftir útskrift í bachelor-nám í Den Haag í Hollandi. Nú er hann búsettur í Gautaborg og hefur verið í norrænu meistaranámi sem tónlistarmaður og tónskáld. „Það fer fram í Gautaborg, Kaup- mannahöfn og Osló, ein önn í hverri borg. Þetta er mjög áhugavert og sérstakt nám sem ég hef notið,“ seg- ir hann. „Þetta er fyrir tónlistar- menn sem leika mikið sína eigin tón- list – einmitt það sem ég geri.“ Hann bætir við að í náminu hafi hann mikið stúderað tónsmíðar og æft stíft en líka spilað á djass- klúbbum, eins og hann gerði í gær- kvöldi á Kex hostel með Frændfólk- inu. „Áherslur í náminu í þessum borgum hafa verið ólíkar, sem og kennararnir og fólkið í skólunum – þá eru borgirnar mjög ólíkar.“ En hvernig lýsir Ingi Bjarni tónsmíðunum sem hljóma á Háskóla- tónleikunum? „Þetta er mín eigin þjóðlagatónlist sem er opin fyrir spuna og svolitlar tilraunir á köflum; með mínimal- ískum en þó skilvirkum laglínum ásamt hljómum sem endurspegla hluti og fólk í lífi mínu …“ Hann þagnar, bætir svo við: „Ef ég lýsti tónlistinni of mikið finnst mér það vera eins og að mála myndina of ít- arlega fyrir hlustandann. Ég mun leika tónlist og hlustandinn getur ákveðið hvað honum finnst það vera,“ segir hann. „Það er engin ástæða til að setja þetta í flokka en ef fólk vill kalla þetta djass þá er það í lagi; það er þá þeirra upplifun á tónlistinni.“ Sumarið 2015 gaf Ingi Bjarni út sinn fyrsta geisladisk, Skarkala, og fékk hann ágæta dóma í erlendum djasstímaritum. Seinna á þessu ári kemur svo út nýr tríódiskur með tónlist Inga Bjarna, sem fengið hef- ur nafnið Fundur. Ingi Bjarni hefur nokkrum sinn- um komið fram á Jazzhátíð Reykja- víkur og hefur líka spilað á alþjóð- legum hátíðum eins og í Kaup- mannahöfn, Vilníus, Lillehammer og Duketown í Hollandi. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Píanóleikarinn „Ef fólk vill kalla þetta djass þá er það í lagi; það er þá þeirra upplifun á tónlistinni,“ segir Ingi Bjarni um verkin sem hann flytur. „Eigin þjóðlagatónlist sem er opin fyrir spuna“  Ingi Bjarni Skúlason kemur fram á Háskólatónleikum Streymisþjón- ustan Storytel, sem er áskrift- arþjónusta fyrir hljóðbækur í Evrópu, var opn- uð hér á landi og á íslensku í gær. Storytel er með yfir hálfa milljón áskrifenda í níu löndum og er Ís- land tíunda landið þar sem þjón- ustan er í boði á þjóðtungunni. Vef- síðan er storytel.is og er áhuga- sömum boðið að njóta þjónustunnar frítt í tvær vikur. Í tilkynningu segir að Storytel megi lýsa sem „Spotify“ eða „Net- flix“ hljóðbókanna nema hvað þjón- ustan er á íslensku og viðskipta- vinir geta hlustað ótakmarkað á fjölbreytt úrval hljóðbóka í miklu magni gegnum smáforrit á far- símanum sínum … Þetta er fyrsta þjónusta sinnar tegundar sem er opnuð á Íslandi þar sem áhersla er lögð á nýja jafnt sem eldri titla á ís- lensku og ensku.“ Þá segir að markmið Storytel sé að auka veg hljóðbóka hér og vera leiðandi í þeirri þróun. Markaðs- rannsóknir sýni að Íslendingar vilja hlusta á íslenskar hljóðbækur og Storytel muni leggja áherslu á ís- lenskar bókmenntir. Í byrjun býður Storytel hér upp á bækur á íslensku og ensku. Í til- kynningunni segir að í upphafi verði nokkur hundruð íslenskir titl- ar og yfir 30.000 á ensku í boði. Auk þeirra bjóðist gott safn rafbóka en aðeins sé greitt eitt áskriftargjald fyrir rafbækur og hljóðbækur. „Úr- val íslenskra hljóðbóka verður auk- ið verulega á næstu árum og mun útgáfuarmur Storytel framleiða um eina bók á dag auk þess sem þjón- ustan stendur öðrum útgefendum, innlendum sem erlendum, sem vilja koma efni sínu á framfæri til boða.“ Stefán Hjörleifsson er fram- kvæmdastjóri Storytel á Íslandi. Haft er eftir honum að opnun Storytel á Íslendi marki ákveðin vatnaskil fyrir íslenska hljóð- bókaunnendur, sem hingað til hafi setið eftir í miklum vexti hljóð- bókageirans víðast erlendis. Storytel er sænskt fyrirtæki en annar stofnandi þess er íslenskur, Jón Hauksson. „Fyrir mig sem Ís- lending eru það nokkur tímamót að geta farið heim og kynnt Storytel. Það er góð tilfinning að geta gefið eitthvað tilbaka, eitthvað sem ég er viss um að verði hjartfólgið Íslend- ingum,“ segir Jón. Hljóðbókaveitan Storytel opnuð Stefán Hjörleifsson fyrir öll tölvurými og skrifstofur Rafstjórn tekur út og þjónustar kæli- og loftræstikerfi Kæling Stangarhyl 1A • 110 Reykjavík • Sími 587 8890 • rafstjorn.is Verð frá kr. 181.890 m/vsk /////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.