Morgunblaðið - 09.02.2018, Qupperneq 4
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
S
tærsta sandhverfa sem
veiðst hefur við Ís-
land, svo vitað sé, kom
á land á dögunum.
Það var áhöfnin á
Hornafjarðarbátnum Sigurði
Ólafssyni SF 44 sem veiddi fisk-
inn á föstudag í síðustu viku.
Fiskurinn fékkst út af Ingólfs-
höfða í troll. Fisksölufyrirtækið
North Atlantic á Ísafirði keypti
sandhverfuna á fiskmarkaði á
Höfn á sunnudaginn var. Hún
vigtaði 12 kíló og var 82 senti-
metra löng.
„Við fengum það staðfest hjá
Hafrannsóknastofnun að þetta
væri stærsta sandhverfa sem
veiðst hefði við Ísland,“ sagði
Víðir Ísfeld Ingþórsson, fram-
kvæmdastjóri North Atlantic.
Sandhverfan var send vestur á
Ísafjörð þar sem hún var vigtuð,
mæld og ljósmynduð.
„Við vildum sjá sandhverfuna.
Þetta er nokkuð sem maður sér
mögulega einu sinni á ævinni.
Það er sjaldgæft að sjá sand-
hverfu hér á landi, en 12 kílóa
og 82 sentimetra langa sand-
hverfu? Það er ólíklegt að mað-
ur sjái svoleiðis fisk aftur á æv-
inni,“ sagði Víðir.
North Atlantic er heildverslun
með fisk og selur veitingahúsum
á höfuðborgarsvæðinu ferskt
sjávarfang. „Við höfum gott
auga fyrir gæðum og erum
naskir á að verða okkur úti um
það sem þykir sérstakt og fá-
gætt. Það lá beinast við að við
eignuðumst þennan fisk. Þetta
er okkar sérsvið,“ sagði Víðir.
Hann sagði að Leifur Kolbeins-
son, matreiðslumeistari í Mar-
shallhúsinu og Kolabrautinni í
Hörpu, hefði fengið sandhverf-
una. Hún var afhent honum á
miðvikudaginn var í Reykjavík.
„Þeir sem vilja smakka þenn-
an fágæta og fræga fisk ættu að
vera vakandi fyrir því þegar
stór og góð sandhverfa veiðist
næst,“ sagði Víðir. Hann sagði
að margir fiskisælkerar teldu
sandhverfu vera besta fisk í
heimi, „Rolls Royce fiskanna“,
eins og Víðir orðaði það. Áferðin
á holdinu er sérstök, ekki ósvip-
uð og blanda af góðum þorsk-
hnakka og skötusel. Sand-
hverfan er feitur flatfiskur og sú
sem hér um ræðir var í mjög
góðum holdum. Víðir sagði ekki
óalgengt að kíló af sandhverfu-
flökum seldist á í kringum fjög-
ur þúsund krónur í nágranna-
löndunum. Hann vildi ekki gefa
upp hvað stóra sandhverfan
kostaði.
Stórar sandhverfur fágætar
Rifja má upp að trollbáturinn
Frár VE fékk 11 kílóa og 78
sentimetra langa sandhverfu út
af Ingólfshöfða í september
2013. Hún komst í blöðin. Þá
var haft eftir Hafrannsókna-
stofnun að eitt dæmi væri um
lengri sandhverfu. Sú veiddist
einnig á Frá VE við Ingólfs-
höfða í september 1974. Hún
var 79 sentimetra löng og 11
kíló. Af þessu má ætla að stórar
sandhverfur haldi sig út af Ing-
ólfshöfða, en þær eru sjaldgæfar
eins og dæmin sanna.
Ljósmynd/North Atlantic
Sandhverfan Sigurður Ólafsson SF veiddi nýlega stærstu sandhverfu sem fengist hefur við Ísland. Hún veiddist við Ingólfshöfða.
Stærsta sand-
hverfa sem veiðst
hefur við Ísland
Áhöfnin á Sigurði Ólafssyni SF frá Hornafirði
veiddi nýlega sandhverfu við Ingólfshöfða
sem var 12 kíló og 82 sentímetra löng
Morgunblaðið/Árni Sæberg
September 2013 Geir Vilhjálmsson fisksali
í Fiskbúðinni Hafberg með þriðju stærstu
sandhverfu sem hér hefur verið veidd, vigt-
uð og mæld. Hún var 11 kílóa þung, 78
sentimetra löng og 58 sentimetra breið.
4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2018
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Farið er að sjá fyrir endann á smíði
ísfisktogaranna Breka VE og Páls
Pálssonar ÍS í Kína að sögn Sigur-
geirs Brynjars
Kristgeirssonar,
framkvæmda-
stjóra Vinnslu-
stöðvarinnar í
Vestmannaeyjum
sem á Breka VE.
Skipin voru tekin
í þurrkví nýlega
og botnhreinsuð
fyrir afhendingu
og heimsiglingu.
Sigurgeir sagði
að skipin yrðu í samfloti á leiðinni
heim. Líklega myndu þau sigla vest-
ur frá Kína og fara í gegnum Súez-
skurðinn og Miðjarðarhafið á leið
sinni til Íslands. Áður var hugmynd-
in að skipin sigldu austur yfir Kyrra-
haf og í gegnum Panamaskurð inn í
Atlantshaf áleiðis heim. Austurleiðin
er um viku lengri sigling en vestur-
leiðin sem líklega verður farin.
Eftir heimkomuna verður milli-
dekkið á Breka VE búið aðgerðar-
búnaði áður en hann fer á veiðar.
Sigurgeir reiknaði með að uppsetn-
ing búnaðarins gæti tekið 4-6 vikur.
Skipin hafa farið í reynslusigling-
ar og veiðarfæraprófanir. Þá komu
upp ýmsir smáhnökrar, eins og
vænta mátti. Sigurgeir sagði það
ekkert til að hafa áhyggjur af. Þau
atriði voru sum löguð í Kína og öðr-
um verður kippt í liðinn hér heima.
Áramót í Kína nálgast
Vinnslustöðin keypti gamla Pál Páls-
son ÍS og gaf honum nafnið Sindri
VE. Sigurgeir sagði að Sindri yrði í
rekstri þar til nýr Breki VE yrði
kominn í fulla virkni.
Bæjarins besta ræddi við Einar
Val Kristjánsson, framkvæmda-
stjóra Hraðfrystihússins Gunnvarar
hf., sem á Pál Pálsson ÍS. Þar kom
fram að 16. febrúar verða áramót í
Kína. Ár hanans kveður og ár hunds-
ins gengur í garð. Einar Valur sagði
að efnahagslífið í Kína færi í hæga-
gang í kringum áramótin og taldi
hann að það gæti haft einhver áhrif á
afhendingu skipanna.
Samið var um smíði skipanna í
byrjun júní 2014 og þá gert ráð fyrir
að þau yrðu afhent 2016. Skipin voru
sjósett 19. apríl 2017. Verkfræðistof-
an Skipasýn hannaði skipin sem eru
um 50 metra löng og 16 metra breið.
Sér fyrir endann á smíði togaranna
Breka VE og Páls Pálssonar ÍS
Breki VE Búið er að prófa Breka VE og Pál Pálsson ÍS og gera veiðarfæraprófanir.
Það styttist í að skipin leggi af stað í siglinguna heim til Íslands.
Teknir í þurrkví og
botnhreinsaðir fyrir
afhendinguna
Sigurgeir Brynjar
Kristgeirsson