Morgunblaðið - 09.02.2018, Síða 6

Morgunblaðið - 09.02.2018, Síða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2018 Hjörtur J. Guðmundsson hjortur@mbl.is M eðal þess sem fríversl- unarsamningur Evr- ópusambandsins við Kanada, sem tók gildi í lok september á síð- asta ári, tekur til eru viðskipti með sjávarafurðir. Við gildistöku hans féllu niður tollar Evrópusambands- ins af um 96% allra tollskrárnúm- era Evrópusambandsins á kan- adískar sjávarafurðir og á næstu 3 til sjö árum verður það sem eftir stendur einnig afnumið. Þannig er stefnt að því að út- flutningur á kanadískum sjávaraf- urðum til Evrópusambandsins verði 100% tollfrjáls þegar upp verður staðið, samkvæmt því sem fram kemur á vefsíðu ríkisstjórnar Kanada þar sem fjallað er um tækifæri kanadískra útflutnings- fyrirtækja þegar kemur að útflutn- ingi sjávarafurða til sambandsins. Nútíma fríverslunar- samningur af annarri kynslóð Fríverslunarsamningurinn, sem nefndur hefur verið CETA (Comprehensive Economic and Trade Agreement), mun enn frem- ur á heildina litið afnema tolla á 98% tollskrárnúmera í milliríkja- viðskiptum á milli Evrópusam- bandsins og Kanada. Undirbún- ingur fyrir samninginn hófst fyrir um áratug en viðræðurnar lágu niðri á köflum meðal annars vegna gagnrýni sambandsins á selaveiðar kanadískra frumbyggja. Í kjölfar gildistökunnar hefur samningurinn verið í samþykktarferli hjá öllum ríkjum Evrópusambandsins. Fríverslunarsamningur Evrópu- sambandsins og Kanada er af svo- kallaðri annarri kynslóð og nær þannig ekki aðeins til vöru- viðskipta líkt og reglan var hér áð- ur heldur einnig þjónustuviðskipta, opinberra útboða, höfundarrétt- armála, öryggisstaðla, vörumerk- inga og annarra atriða sem máli skipta í milliríkjaviðskiptum í dag. Slíkir víðtækir fríversl- unarsamningar eru allajafna sú leið sem ríki heimsins fara í dag þegar kemur að því að tryggja hagsmuni sína með samningum um milliríkjaviðskipti. Þar á meðal öfl- ugustu efnahagsveldi heimsins eins og Kína og Bandaríkin. Þá hafa bæði Fríverslunarsamtök Evrópu (EFTA, sem Ísland á aðild að, og Evrópusambandið lagt áherslu á slíka samninga í seinni tíð. Bæði ferskar og fullunnar Tollar á kanadískar sjávarafurðir inn á innri markað Evrópusam- bandsins voru fram að gildistöku fríverslunarsamningsins allt að 25% og eru enn á bilinu 7,5%-25% á þeim afurðum sem eftir standa og tollar verða teknir af á næstu ár- um. Þar verða hins vegar í boði tollkvótar þar til tollar hafa að fullu verið afnumdir á þær afurðir. Það sem er einna athyglisverðast frá íslenskum sjónarhóli er að samningurinn nær bæði til sjáv- arafurða sem eru fullunnar og þeirra sem eru það ekki. EES tryggir ekki fullt tollfrelsi Viðskipti Íslands við Evrópusam- bandið byggjast sem þekkt er eink- um á samningnum um Evrópska efnahagssvæðið (EES), en eins og til að mynda kemur fram í nýlegri skýrslu utanríkisráðuneytisins um útgöngu Bretlands úr Evrópusam- bandinu „tryggir EES-samning- urinn ekki fullt tollfrelsi í við- skiptum með sjávarafurðir.“ Tíundað er einnig í skýrslunni að tollar við innflutning sjávarafurða til ríkja Evrópusambandsins séu misháir eftir því um hvers kyns af- urð sé að ræða: „Tollar eru al- mennt séð hærri á mikið unnar sjávarafurðir en þær sem minna eru unnar.“ Einnig segir að þær sjávarafurðir sem meðal annars bera tolla inn á innri markað sam- bandsins séu til dæmis afurðir úr laxi, makrílafurðir (fyrir utan fryst makrílflök), flestar síldarafurðir og ýmsar afurðir af þorski, ýsu, lúðu og ufsa. Rækja, þorskur og makríll Meðal þeirra sjávarafurða sem urðu tollfrjálsar við gildistöku frí- verslunarsamnings Evrópusam- bandsins og Kanada er rækja. Bæði frosin og fullunnin (elduð og pilluð rækja í neytendapakkn- ingum). Tollar voru áður 12% á frosinni rækju og 20% á fullunn- inni rækju frá Kanada á markað sambandsins. Stærstur hluti þeirr- ar rækju sem unnin er hér á landi er flutt inn frá Kanada líkt og fram kemur í skýrslu utanríkisráðu- neytisins en mikil breyting gæti orðið þar á með mögulegum frí- verslunarsamningi Kanada og Bretlands sem komið hefur til tals á milli fulltrúa ríkjanna tveggja. Einnig falla tollar strax niður við gildistöku fríverslunarsamn- ings Evrópusambandsins og Kan- ada á frosinni og ferskri hörpu- skel, þurrkuðum og söltuðum þorski, frosinni síld, frosnum mak- ríl og bæði ferskum og fullunnum laxi svo dæmi séu tekin. Eftir sjö ár verða til að mynda frosin þorsk- flök einnig algerlega tollfrjáls inn á markað Evrópusambandsins sem og bæði reykt og fersk silungsflök. Hafa landað betri samningi Þannig er ljóst að þegar kemur að beinum tollum hefur stjórnvöldum í Kanada tekist að semja um betri aðgang að innri markaði Evrópu- sambandsins fyrir kanadískar sjávarafurðir en Íslendingar og Norðmenn njóta í gegnum EES- samninginn, en aðgangurinn að markaði sambandsins fyrir sjáv- arfang hefur lengi verið talinn einn helsti kosturinn við aðild Íslands að samningnum. Þannig er frí- verslunarsamningur Evrópusam- bandsins og Kanada líklegur til þess að leiða til aukinnar sam- keppni við kanadísk útflutnings- fyrirtæki. Jafnvel þó að íslenskum stjórnvöldum tækist að tryggja sambærileg kjör fyrir íslensk fyr- irtæki. Sem fyrr segir er fríversl- unarsamningurinn á milli Kanada og Evrópusambandsins í staðfest- ingarferli hjá ríkjum sambandsins en ekki er reiknað með öðru en að öll ríkin muni samþykkja hann. Ljóst er að jafnvel þó að svo fari liggur fyrir að Evrópusambandið er reiðubúið að fallast á fullt toll- frelsi fyrir innfluttar sjávarafurðir. Að minnsta kosti þegar kemur að víðtækum, tvíhliða fríversl- unarsamningum. Fullt tollfrelsi með sjávarafurðir Fríverslunarsamningur Kanada við Evrópusam- bandið tryggir kan- adískum sjávarafurðum mun betra aðgengi en Íslendingar njóta í gegn- um EES-samninginn. Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson Á rækjuveiðum Meðal þeirra sjávarafurða sem urðu tollfrjálsar við gildistöku fríverslunarsamnings ESB og Kanada er rækja. „Við tókum þetta mál upp við Evr- ópusambandið á fundi í nóvember og erum að fara að hitta þá aftur núna í byrjun þessa árs. Það á bara eftir að festa fundartím- ann. Það er auð- vitað orðið svo- lítið sérstakt þegar Kanada hefur betri að- gang fyrir sjáv- arafurðir en EFTA/EES- ríkin.Við erum að sækja á þá með þetta,“ segir Guð- laugur Þór Þórðarson utanrík- isráðherra í samtali við 200 mílur, spurður út í þá staðreynd að frí- verslunarsamningur Kanada og Evr- ópusambandsins felur í sér mun betri aðgang fyrir kanadískar sjáv- arafurðir að innri markaði sam- bandsins en Ísland hefur í gegnum EES-samninginn. Spurður hvers vegna ekki hafi verið þrýst á um betri kjör fyrir ís- lenskar sjávarafurðir inn á markað Evrópusamandsins, meðal annars í ljósi skýrslu utanríkisráðuneytisins frá því í nóvember um útgöngu Bretlands úr sambandinu, þar sem rætt er um möguleikann á að ná betri kjörum fyrir íslenskar sjávar- afurðir en felast í EES-samningnum í gegnum fríverslunarsamning við Breta, segir Guðlaugur Þór að ljóst sé að ekki hafi verið samið um betri kjör til þessa í gegnum EES-samn- inginn, sem væntanlega sé vegna þess að Evrópusambandið hafi ekki verið til tals um slíkt hingað til. „Þegar Bretarnir fara út er ljóst að það opnast nýir möguleikar varðandi breska markaðinn. Það breytir því ekki að við munum halda áfram að sækja á Evrópusamandið hvað þetta varðar. Það er augljóst að við höfum ekki fengið það í gegn til þessa,“ segir Guðlaugur Þór. Spurður hvað verði ef Evrópu- sambandið situr við sinn keip og neitar að veita Íslendingum betri aðgang að innri markaðnum með sjávarafurðir sínar með hliðstæðum hætti og sambandið hefur samið um við Kanada segir hann: „Það liggur fyrir að Evrópusam- bandið hefur opnað á betri kjör Kanada inn á innri markað sinn og í stað þess að líta á það sem ógn verðum við bara að líta á það sem tækifæri. Þetta er þá tækifæri fyrir okkur til að fá sambærileg kjör. Við munum í það minnsta láta á það reyna. En þetta er ástæða þess að ég hef lagt mikla áherslu á fríversl- unarsamninga. Við erum auðvitað í alþjóðlegri samkeppni, við erum út- flutningsþjóð og þurfum að gæta hagsmuna okkar alls staðar. Við tókum málið upp við Evrópusam- bandið í nóvember og munum fylgja þessu eftir, en það þarf auðvitað tvo til að semja.“ Málið tekið upp við ESB Guðlaugur Þór Þórðarson Skúli Halldórsson sh@mbl.is Sjötíu ný fiskiskip hafa á síðustu fimm árum bæst við fiskveiðiflota Ís- lendinga, átta skuttogarar, 37 vél- skip og 25 opnir bátar. Alls voru 53 þessara skipa smíðuð á Íslandi og eru þau öll úr trefjaplasti og undir 30 brúttótonnum. Togararnir voru allir með tölu smíðaðir í Tyrklandi, ásamt fjórum af þeim sjö vélskipum sem voru yfir 1.000 brúttótonnum, samkvæmt upplýsingum frá Hag- stofu Íslands. Þegar rýnt er í tölur stofnunar- innar má sjá að flest fiskiskip voru með skráða heimahöfn á Vest- fjörðum í árslok 2017, alls 394 skip, en það eru 24% fiskiskipaflotans. Næstflest, eða alls 290 skip, höfðu heimahöfn skráða á Vesturlandi eða 17,9%. Fæst skip, 74 talsins, voru með skráða heimahöfn á Suðurlandi eða 4,6% af heildarfjölda fiskiskipa. Flestir opnir bátar voru á Vest- fjörðum, samtals 231, og á Vestur- landi en þar voru 163. Vélskip voru einnig flest á Vestfjörðum, 160 tals- ins, en fæst á höfuðborgarsvæðinu þar sem 42 voru skráð. Opnum bátum fækkaði um 15 Sex nýir togarar voru smíðaðir árið 2017, þar af fjögur systurskip. Heildarstærð togaraflotans var 61.841 brúttótonn í árslok 2017 og hafði aukist um 9.425 tonn frá árs- byrjun. Opnir fiskibátar voru alls 842 og samanlögð stærð þeirra 4.154 brúttótonn. Opnum fiskibátum fækkaði um 15 milli ára og saman- lögð stærð þeirra minnkaði um 112 brúttótonn. Flest fiskiskip með heimahöfn fyrir vestan Fjöldi fiskiskipa eftir landshlutum 2017 Fiskiskipaflotinn í árslok 2017 200 150 100 50 0 Opnir fiskibátar Vélskip* Togarar Höfuð- borgar- svæðið Vestur- land Vestfirðir Norð- urland vestra Norð- urland eystra Austur- land Suður- land Suðurnes Vestfirðir Flest fiskiskip með skráða heimahöfn í árslok 2017. 394 skip eða 24%fiskiskipaflotans. Norðurland eystra Flestir togarar eða 11 með skráða heimahöfní árslok 2017. Suðurland Fæst skip með skráða heimahöfn. 74 fiskiskip eða 4,6%fiskiskipaflotans. 1.621 fiskiskip var á skráhjá Samgöngustofu. 44 togarar var heildarstærðtogaraflotans. 842 opnir fiskibátar.Samanlögð stærð þeirra var 4.154 brúttótonn. 735 vélskip*. Samanlögðstærð þeirra var um 92.460 brúttótonn.Fjöldi Samanlögð stærð togaraflotans var 61.841 brúttótonn í árslok 2017 *Vélskip eru öll yfirbyggð skip önnur en skuttogar- ar, en í þeim flokki eru nokkur skip sem eru stærri en stærstu skuttogararnir. Heimild: Hagstofan

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.