Morgunblaðið - 09.02.2018, Qupperneq 8
8 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2018
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
V
erkefni sem skoðar stofn-
erfðamengjafræði þorsk-
fiska með mikla frjósemi
hlaut á dögunum öndveg-
isstyrk úr Rann-
sóknasjóði Vísinda- og tækniráðs.
Styrkurinn nemur 50 milljónum
króna á ári í þrjú ár en rannsókn-
inni er stýrt af Einari Árnasyni,
prófessor í þróunar- og stofn-
erfðafræði við Háskóla Íslands.
Hann segir markmiðið með
verkefninu að leita svara við
nokkrum meginspurningum um
hvernig lífverur með mikla frjó-
semi æxlast. Þorskurinn getur
eignast mikinn fjölda afkvæma
enda eru á bilinu 4-7 milljónir
eggja í eggjasekk þorskhrygnu, en
aðeins agnarlítið brot eggjanna
verður að fullvöxnum fiskum.
„Við höfum þá tilgátu að þorsk-
urinn æxlist með því sem kallað er
„happdrættis-æxlun“, þar sem til-
tölulega fáir einstaklingar eiga
meirihluta þeirra afkvæma sem
komast á legg. Dreifingin er eins
og í lottói þar sem sárárafáir vinna
stóra vinninginn og bónusvinn-
ingana en meirihlutinn situr uppi
tómhentur,“ útskýrir Einar. „Hin
kenningin er sú að æxlunin sé til-
viljanakennd og venjuleg dreifing
(svk. Poisson-dreifing) á af-
kvæmum frá einni kynslóð til ann-
arrar. Það er hinsvegar ekki hægt
að meta afkvæmafjölda hverrar
hrygnu beint. En æxlunin skilur
eftir sig fótspor í erfðamengi líf-
veranna. Greining á slíkum spor-
um í erfðamenginu mun koma með
svarið.“
„Ein af forsendum líkana sem
stuðst er við er að stofninn sé
stöðugur í stærð kynslóð eftir kyn-
slóð. Við munum lyfta þessum for-
sendum og smíða líkön um venju-
bundna æxlun með stofnvexti og
bera saman við líkön um happ-
drættisæxlun með stofnvexti,“ seg-
ir Einar.
Alltaf nýir vinningshafar
Að sögn Einars er ekki aðeins
áhugavert vísindalegt viðfangsefni
að skilja æxlun þorsksins betur,
heldur geti bætt þekking á þessu
sviði hjálpað til að bæta verndun
og nýtingu auðlindarinnar. „Hug-
myndin um happdrættisæxlun
kemur upphaflega frá bandaríska
fræðimanninum George Williams
sem var mikill Íslandsvinur, starf-
aði hjá Hafró um skeið og skrifaði
bók sem heitir á ensku Sex and
Evolution, eða Þróun kynæxlunar.
Eitt af því sem er áhugavert við
tilgátuna er að sú arfgerð þorsks
sem kann að hafa vinninginn eitt
árið mun ekki endilega verða ofan
á næsta árið. Hann kenndi arf-
gerðina við grísku goðsögnina um
Sísifus: stofninn mun í sífellu búa
til nýja vinningsgerð, rétt eins og
Sísifus sem velti upp á hæð steini
sem valt ætíð niður aftur.“
Það má hrekja eða staðfesta
þessa kenningu með erfðameng-
isgreiningu og munu Einar og
samstarfsfélagar hans raðgreina
erfðamengið úr um það bil 2.000
þorskum. Sýnishornin sem notuð
verða í rannsókninni voru tekin úr
netaröllum Hafrannsóknastofn-
unar á þriggja ára tímabili, annars
vegar á hrygningarslóðum að vori,
og svo aftur í haustralli. „Sýnin
eru úr fiskum sem búið er að ald-
ursgreina og mæla á allan hátt og
því ágætar árgagnaupplýsingar í
gagnasafninu eins og það er í dag.“
Alþjóðlegt samstarf
Stór hópur fólks frá fjölda rann-
sókna- og fræðastofnana leggja
verkefninu lið. Auk Einars er
teymið skipað Katrínu Halldórs-
dóttur sérfræðingi á sameinda-
stofu á meinafræðideild á Land-
spítala, Bjarka Jónssyni Eldon og
Wolfgang Stephan hjá Nátt-
úruminjasafninu í Berlín og Alison
Etheridge sem starfar hjá töl-
fræðideild Oxford-háskóla í Bret-
landi. Kaliforníuháskóli í Berkeley
og New York Genome Center eru
samstarfsaðilar, sem og Harvard-
háskóli, Warwick-háskóli,
Tækniháskólinn í Berlín og Ecole
Polythecnique í París.
Auk þess að skoða hvernig æxl-
un þorsksins er háttað verður
erfðamengi ólíkra þorskstofna
rannsakað til að greina betur
dreifingu, landnám og blöndun
stofnanna. Verða m.a. skoðuð sýni
úr þorskum í Kyrrahafi, Barents-
hafi, Atlantshafi og stofnum sem
lifa undir íshellunni á norð-
urheimskautinu.
Einar ítrekar að bætt þekking á
æxlun þorskfirska geti verið mjög
verðmæt, sér í lagi ef nýta má
þekkinguna til að efla stofnana enn
frekar. „Þorskur og skyldar teg-
undir eru mikilvægar veiðitegundir
jafnt í Atlantshafi og Kyrrahafi og
veiða t.d. Bandaríkjamenn í kring-
um 1,5 milljónir tonna árlega af al-
askaufsa sem er systurtegund atl-
antshafsþorsksins. Við skiljum
samt enn ekki nógu vel hvað gerir
þessum tegundum mögulegt að
vera svona frjóar og fylla hafið.
Við væntum þess að geta varpað
ljósi á það með þessum rann-
sóknum.“
Leita svara við mikilvægum
spurningum um æxlun þorsks
Hópur alþjóðlegra vís-
indamanna mun, undir
íslenskri leiðsögn, rað-
greina erfðamengi
2.000 þorska. Verkefnið
hlaut stóran styrk.
Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson
Fengur Mikilvægt er að skilja æxlun þorsksins sem best enda verðmæt tegund. Mynd úr safni af línuveiðum.
Morgunblaðið/RAX
Ráðgáta Hugsanlegt er að þorskurinn æxlist þannig að tiltölulega fáir einstaklingar eigi meirihluta afkvæmanna. Einar Árnason á rannsóknarstofu sinni.
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum