Morgunblaðið - 09.02.2018, Side 14

Morgunblaðið - 09.02.2018, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2018 Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is M ikill uppgangur hefur verið hjá Arnarlaxi og starfa nú um 120 manns hjá fyrirtæk- inu. Á síðasta ári slátraði Arnarlax 10.000 tonnum af eldislaxi og segir Víkingur Gunn- arsson framkvæmdastjóri að und- anfarin tvö ár hafi gengið vel að byggja upp lífmassa í sjó og efla alla starfsemi í kringum eldið. Í dag er Arnarlax með starfsemi í fjórum sveitarfélögum: Vest- urbyggð, Tálknafjarðarhreppi, Bol- ungarvík og í Þorlákshöfn. Seiða- eldisstöðvar fyrirtækisins eru í Þorlákshöfn og Tálknafirði, og sjó- kvíaeldið í Patreksfirði, Tálknafirði og Arnarfirði. Sjálft sláturhúsið, og flestir starfsmenn Arnarlax, er síð- an á Bíldudal. Heyra má á Víkingi að hann er sérstaklega stoltur af því hve margir vilja vinna hjá fyrirtækinu og hve vel hefur gengið að ráða gott fólk til starfa. „Starfsmenn okkar eru að stærstum hluta Ís- lendingar og mikið af þeim ungt fólk sem er að eignast börn og stækka samfélagið,“ segir Víkingur en meðalaldur starfsmanna Arn- arlax er rúmlega 37 ár. „Bæði kon- ur og karlar sækja í að vinna hjá okkur og þau sjá að góð tækifæri eru fólgin í því að vinna við fiskeldi og sækja sér menntun á þessu sviði en margir starfsmenn okkar stefna einmitt á það. Það hefur lengi verið sagt að Íslendingar vilji helst ekki vinna í fiski en fólk vill greinilega vinna í laxinum og þeir sem koma til starfa hjá okkur virð- ast ekki hætta svo glatt. Hjálpar eflaust til að þessi bransi hefur tæknivæðst og sjá róbótar og vélar um erfiðustu störfin, en greinin hefur verið í mikilli framför og tækniþróun verð hröð.“ Eins og fyrr er getið tók Arnar- lax upp 10.000 tonn af laxi árið 2017 og er stefnt að því að slátra 12.000 tonnum á þessu ári. Á næstu árum ætti eldið að halda áfram að vaxa og gera áætlanir ráð fyrir að Arnarlax og Arctic Sea Farm, sem hafa framleiðsluheim- ildir á sunnanverðum Vestfjörðum, framleiði árlega 50.000 tonn af laxi þegar búið verður að fullnýta tæki- færin á svæðinu. Er það í samræmi við áhættumat Hafrannsóknastofn- unar sem segir óhætt að framleiða allt að 71.000 tonn af eldislaxi á landinu öllu, þar af allt að 50.000 tonn á sunnanverðum Vestfjörðum. Vaxandi markaður Laxinn er vinsæl vara um allan heim og neytendahópurinn stækk- ar ár frá ári. „Við sjáum vísbend- ingar um að eftirspurnin muni haldast sterk og nýir markaðir á borð við Kína opnist enn betur. Ís- lenskur eldislax er tiltölulega nýleg vara en kaupendum þykir hann spennandi og við sjáum góð tæki- færi í að byggja upp íslenskt vöru- merki í laxi enda gæðavara sem fengin er úr hreinum, köldum og ferskum íslenskum sjó,“ útskýrir Víkingur. „Við erum ekki að fara að sigra heiminn og bola öðrum út af markaðnum – þetta er ekki þannig framleiðsla – en ættum að geta boðið upp á vöru sem ber af í gæðum.“ Meðal þess sem íslenskt laxeldi hefur umfram eldið í öðrum lönd- um er að hlutfallslega er fram- leiðslan smá í sniðum og sjórinn kaldur svo að t.d. laxalús er ekki sama vandamálið hér við land og í norskum laxeldisstöðvum. Víkingur bendir þó á að greinin þurfi að vera undir það búin að aðstæður geti breyst. „Við sjáum að sjórinn hefur hlýnað og náttúran hegðar sér með sama hætti hér og hún gerir annars staðar. Ef laxalúsin fer að láta á sér kræla höfum við samt fleiri úrræði en að nota aflús- unarefni, og við erum t.d. að nota tegundir eins og grásleppu til að halda lúsinni í skefjum. Grásleppan lifir á lúsum, marflóm og öðrum litlum dýrum í sjónum og hjálpar okkur að hafa hemil á lúsinni.“ Slæmir vegir setja strik í reikninginn Meðal þess sem torveldar rekst- urinn er að samgöngum á Vest- fjörðum er ábótavant og hætta á að slæmt ástand vega valdi því að fiskur berist ekki á réttum tíma á alþjóðaflugvöllinn eða útflutnings- hafnirnar á SV-horninu. Víkingur segir undarlegt hvað samgöngumál Vestfjarða hafa fengið að velkjast lengi um í kerfinu og ljóst að miklu skipti fyrir atvinnulífið á svæðinu að vegir verði lagaðir. „Þetta svæði er farið að skapa miklar tekjur fyr- ir þjóðarbúið og hvimleitt fyrir út- flutningsfyrirtækin sem hér starfa að vera alltaf með það hangandi yf- ir sér að vörur komist hugsanlega ekki í tíma um borð í skip eða flug- vélar á leið út í heim. Í raun er samkeppnisstaða okkar ekki boð- leg í dag vegna þess hvernig sam- göngurnar eru.“ Vandinn snýr ekki bara að flutn- ingaleiðunum frá Vestfjörðum til suðvesturhornsins, heldur líka að samgöngum innan Vestfjarða. „Við störfum á svæði sem samanstendur af þremur litlum þorpum og halda menn því fram að á góðum dögum sé þetta eitt atvinnusvæði. Á vet- urna kemur þó í ljós að það er ekki svo einfalt að ferðast á milli bæj- anna og liggur leiðin eftir fjall- vegum sem ná upp í 500 metra hæð. Það er ekki langt á milli í kílómetrum talið en getur stundum verið mikil áskorun fyrir starfs- menn okkar að komast til og frá vinnu,“ segir Víkingur og bætti við að daginn sem viðtalið var tekið væri útlit fyrir að allstór hópur starfsmanna í sláturhúsinu myndi þurfa að gista á Bíldudal því ekki væri fært til nágrannabæjanna. „Annað eins hefur nú verið gert og heilu jarðgöngin verið grafin til að hlúa betur að stóriðju. Hér er- um við aftur á móti að skapa störf og verðmæti með umhverfisvænni matvælaframleiðslu og höfum byggt upp reksturinn án þess að ríkið hafi þurft að leggja til krónu.“ Með verri samkeppnisstöðu vegna erfiðra samgangna Arnarlax heldur áfram að vaxa hratt en stund- um getur gengið erfið- lega að flytja vöruna suður. Markaðurinn fyrir lax stækkar með hverju árinu og góð tækifæri í að þróa íslenskt vöru- merki í laxi. Sókn Framleiðslan mun aukast um 20% á árinu og halda áfram að vaxa. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Stórhuga Víkingur Gunnarsson við eitt af skipum Arnarlax á Bíldudal. Verðmæti Starfsmaður Arnarlax gaumgæfir laxinn. Mynd úr safni. Ískaldur Ofurkæling er notuð í sláturhúsi Arnarlax til að minnka ísnotkun.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.