Morgunblaðið - 09.02.2018, Side 24

Morgunblaðið - 09.02.2018, Side 24
Segja má að það hafi verið hamfar- ir fyrir réttum fimmtíu árum, þeg- ar fjöldi sjómanna fórst í Ísafjarð- ardjúpi í byrjun febrúar árið 1968. Var af þessu tilefni haldin athöfn á mánudag, um borð í varðskipinu Óðni, til minningar um þá sem týndu lífi þennan örlagaríka sólar- hring og jafnframt til að minnast þess björgunarafreks sem áhöfnin á Óðni vann. Sex manna áhöfn Heiðrúnar II frá Bolungarvík var á meðal þeirra sem fórust, auk 19 manna áhafnar breska togarans Ross Cleveland, en einn skipverja togarans, Harry Eddom, bjargaðist við illan leik. Sama dag strandaði breski tog- arinn Notts County á Snæ- fjallaströnd, en áhöfn Óðins vann hetjudáð þegar hún bjargaði skip- verjum hans. Einn þeirra var þegar látinn er Óðinn komst á slysstað. Minningarathöfnin fór fram í þyrluskýli Óðins og fór sr. Sveinn Valgeirsson dómkirkjuprestur með minningarorð um þá sem fórust. Michael Nevin, sendiherra Breta á Íslandi, ávarpaði í kjölfarið þann fjölda sem þarna kom saman og heiðraði um leið Sigurð Þ. Árnason, sem var skipherra Óðins í þessari ferð. Fyrir tilstilli áhafnar hans var 18 mannslífum bjargað þennan dag. Í kjölfarið var boðið upp á kaffi- veitingar í messa skipsins en þar fjallaði Gylfi Geirsson, formaður öldungaráðs Landhelgisgæslunnar og fyrrverandi starfsmaður hennar, um björgunarafrekið sem áhöfn Óðins vann. Nánar er fjallað um hamfarirnar á næstu síðum blaðs- ins. Sögufrægur Óðinn liggur við festar við Sjóminja- safnið í Reykjavík Ávarp Michael Nevin, sendiherra Bret- lands á Íslandi, ávarpaði viðstadda. Minntust hamfaranna fyrir hálfri öld Hildarleikur í Djúpinu 24 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2018 Þrautseigja og þor í 115 ár G U N N A R JÚ L A R T

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.