Morgunblaðið - 09.02.2018, Page 38

Morgunblaðið - 09.02.2018, Page 38
38 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2018 Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is O ft er handagangur í öskjunni á veit- ingastaðnum Kopar við gömlu höfnina og mikið magn af fiski sem renn- ur ofan í gesti. Ylfa Helgadóttir, yfirkokkur og einn eigenda Kop- ars, segir að annasamasta mán- uðinn í sögu þessa litla og nota- lega veitingastaðar hafi hún þurft að panta tæplega eitt og hálft tonn af fiski. Fisksalinn þarf greinilega að hafa sig allan við enda kaupandinn kröfuharður: „Við fáum fiskinn af- hentan sex daga vikunnar og get- um hringt í útkallsþjónustu sjö- unda daginn ef vitlaust er að gera og þörf á meira hráefni,“ segir Ylfa og bætir við að það skipti hana miklu máli að geta átt í góðu sambandi við fisksalann. „Maður finnur það fljótt hve mikilvægt það er að sú manneskja sem sér um að útvega fiskinn sé tilbúin að leggja nógu mikið á sig. Við keyptum okkar fisk hjá sama fyr- irtækinu fyrstu tvö árin, en þegar sölumaðurinn sem hafði sinnt okk- ur þar hætti störfum áttum við í stökustu vandræðum og ákváðum að leita annað með viðskiptin. Sem betur fer fundum við fljótlega annað fyrirtæki sem hefur sinnt okkur mjög vel alla tíð síðan.“ Staður sem fólk hlakkar til að heimsækja Kopar verður fimm ára í maí og stofnaði Ylfa reksturinn með Ástu Guðrúnu Óskarsdóttur sem er framkvæmdastjóri staðarins. Ylfa segir sögu Kopars gott dæmi um að þegar einar dyr lokast þá opn- ast gluggi, en hún hafði nýlega hætt störfum á öðrum vinnustað þegar henni bauðst tækifæri á að opna veitingastað eftir eigin höfði. Ylfu og Ástu langaði að bjóða upp á stað þar sem væri upplifun fyrir gesti að snæða: „Við vildum skapa sérstaka stemningu, með tónlist, kokkteilum og góðu andrúmslofti; stað sem fólk myndi hlakka til að heimsækja og þá ekki bara vegna þess hve réttirnir á matseðlinum væru ljúffengir,“ útskýrir Ylfa en á Kopar má m.a. finna veglegan bar þar sem kokkteilbarþjónn leikur listir sínar. Veitingastaðurinn er í einum af gömlu beituskúrunum við Reykja- víkurhöfn, steinsnar frá sjónum og með fallega verönd þar sem njóta má útsýnisins yfir hafnarsvæðið. Ylfa segir að þegar staðsetningin lá fyrir hafi verið ljóst að Kopar þyrfti að leggja sérstaka áherslu á að bjóða upp á vandaða sjáv- arrétti. „Við erum mjög heppin að hafa náð því markmiði okkar að gera stað sem bæði hefur heillað heimamenn og laðar líka að er- lenda ferðamenn,“ segir Ylfa og bendir á að skiptingin á milli inn- lendra og erlendra gesta breytist eftir árstímum. „Á góðum kvöld- um um mitt sumar getur hlutfall Íslendinga orðið nokkuð lágt en á vetrarmánuðunum og t.d. helg- arnar í lok nóvember og byrjun desember snúast hlutföllin nærri því við.“ Ferðamennirnir duglegir að hrósa Ylfa segir ekki mikinn mun á því hvað erlendu og innlendu gestirnir panta og frekar að tala megi um mun á þeim sem eru á hraðferð og hinum sem hafa nægan tíma. „Sumir eru á leiðinni eitthvað ann- að og langar einfaldlega að fá eitt- hvað gott að borða og halda síðan af stað, t.d. á tónleika eða í leik- hús. Svo eru hinir sem eru komnir til að upplifa allt sem staðurinn Fisksalinn þarf að hafa sig allan við Erlendu gestunum hjá Kopar er oft mjög í mun að þakka fyrir matinn, enda hafa þeir sjaldan smakkað jafn góðan fisk. Veitingastaðurinn gerir ríkar kröfur til fisksalans og fær afhentan ferskan fisk sex daga vikunnar Metnaður Einn af réttunum á matseðlinum. Fiskur er í fyrirrúmi. Það mæðir mikið á fisksala Kopars enda þarf að tryggja veitingastaðn- um stöðugt framboð af ferskum fiski í hæsta gæðaflokki og stundum að Ylfa biður um fisktegundir eins og skötusel sem vandasamt getur verið að skaffa á sumum árstímum. Hún segist hæstánægð með þjónustuna en tekur þó eftir því að undanfarin ár hefur tegundaframboðið farið minnkandi. „Frá því ég byrjaði í þessum bransa fyrir tíu árum hefur tegundunum farið fækkandi. Margar fágætari tegundir sem nóg var af áð- ur virðast hvergi til í dag og fram- boðið einhæfara að því leyti.“ Fisksalinn þarf líka að tryggja stöðugleika í verði enda þarf Ylfa að miða matseðla sína og rekstur við ákveðnar forsendur í hráefnis- kaupum. Ylfa segir fisksalann taka á sig sveiflurnar svo hún þurfi þess ekki. „Eina undantekningin á þessu var þegar fiskverð hækkaði mikið í verkfallinu og var orðið svo slæmt að fisksalinn var farinn að borga með fiskinum, sem vitaskuld gengur ekki. Við hækkuðum því verðið tímabund- ið en fórum svo aftur í hefðbundin viðskipti um leið og verkfallinu lauk og eðlilegt ástand skapaðist aftur á markaðnum.“ Verönd Frá því staðurinn opnaði virðist fiskmarkaðurinn orðinn einsleitari. Úrval fisktegunda hefur minnkað Fiskvinnsluvélar og fleira til sölu hjá Frostfiski Síldarflökunarvél með tilheyrandi Makrílflokkari með tiheyrandi Hráefnisflokkari | Slægingarstöð Bolfiskhausarar | Vogir og pallavogir Flökunarvélar fyrir milli og stóran fisk | Roðdráttarvél 500 kg Giro-lausfrystir með 3X-stál innmötun og afurðarflokkara 1000 kg lausfrystir með innmötun | Lyftarar – dísel og rafmagn | O.fl. Upplýsingar veita: Hólatorg – Friðrik G. Halldórsson – 893-5494 Steinar Hauksson, vélstjóri – 840-0075 Þorgrímur Leifsson, framkvæmdastjóri, 840-0071 Steingrímur Leifsson, framkvæmdastjóri, 840-0072

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.