Morgunblaðið - 09.02.2018, Page 39
Gellurnar eru hreinsaðar og síðan eru
rjómaosturinn og sítrónudýfan löguð.
Orly-deigið er gert seinast. Best er að
velta gellunum uppúr hveiti áður en
þeim er dýft í deigið, til að það festist
betur á.
Rjómaostur með hvítlauk og sérrí
500 g mjúkur rjómaostur
10 stk. hvítlauksgeirar
1 dl sérrí
Hvítlaukur settur í pott og brúnaður
í olíu.
Sérrí hellt út á og soðið niður.
Þegar sérríið hefur soðið niður um
helming er blandan sett í blandara þar
til slétt.
Þá er rjómaostur settur í skál og
hvítlaukspaste hellt út í. Unnið þar til
verður ein heild. Kryddað með salti.
Sítrónu-hunangssafi
Safi úr 2 sítrónum, kryddað með hun-
angi, cayenne og paprikum
Orly
8 kg hveiti
360 g lyftiduft
1l olía
180 g salt
10l vatn
eggjahvítur – eftir á
Öllu blandað saman nema eggja-
hvítum sem er bætt við í restina.
Steikt í ca. 180-190°C heitri olíu.
Djúpsteiktar gellur með sérrí-
rjómaosti og sítrónudýfu
FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2018 MORGUNBLAÐIÐ 39
hefur upp á að bjóða, vilja eyða
hér heilu kvöldi og gera vel við
sig. Fólk í fyrrnefnda hópnum
pantar sér einn góðan rétt og
kannski vínglas og er oft farið inn
og út af veitingastaðnum á
klukkustund, á meðan seinni hóp-
urinn prufar t.d. níu rétta seðilinn
og fær sér alls kyns drykki með.“
Þótt þeir panti svipaða rétti get-
ur verið verulegur munur á hvern-
ig erlendu og innlendu gestirnir
hegða sér og segir Ylfa að ferða-
mönnunum sé oft mjög í mun að
þakka fyrir matinn. „Ameríkaninn
stendur upp úr fyrir að vilja hrósa
því sem vel er gert,“ segir hún.
„Meðal þess sem við fáum oft að
heyra frá erlendu gestunum er að
fiskurinn sé sá besti sem þeir hafa
smakkað og lambakjötið okkar
betra en nokkurs staðar annars
staðar.“
Morgunblaðið/Eggert
Kröfur „Maður finnur það
fljótt hve mikilvægt það er
að sú manneskja sem sér
um að útvega fiskinn sé
tilbúin að leggja nógu
mikið á sig,“ segir Ylfa.
Eftirspurn Í annasömum mánuði fóru um 1,5 tonn af fiski í gegnum eldhúsið.
Upplifun Á veröndinni
má, þegar veður leyfir,
snæða fiskinn með
útsýni yfir höfnina.
Steinbítur
Fyrir 4-6 manns
1,5 kg steinbítur
100 g salt
100 g sykur
50 g smjör
1 msk. olía
Aðferð:
Salti og sykri blandað saman.
Steinbítur skorinn í ca. 100 g
bita.
Salti og sykri stráð yfir og
leyft að standa í 60 mín. Síðan
skolað.
Panna hituð – olía sett á
pönnu og svo salti stráð yfir
pönnuna. Fiskurinn settur á þeg-
ar pannan er heit. Steikt í smá-
stund án þess að fikta í fiskinum
og síðan er smjörið sett út á.
Pannan hrist og bitarnir ættu að
losna auðveldlega frá.
Pistasíuhjúpur
50 g smjör
50 g pistasíur
50 g brauðraspur
1 tsk. salt
Aðferð:
Allt sett í blandara og blandað
þar til það verður þykkni.
Sett ofan á fiskinn og stungið
örstutt inn í ofninn
Humarkampavínssósa
2 stk. laukur
3 geirar hvítlaukur
1 flaska kampavín
750 ml rjómi
450 ml humarsoð
Aðferð:
Laukur og hvítlaukur eru steikt-
ir í potti og kampavíni hellt yfir.
Humarsoði hellt yfir og soðið
niður.
Rjóma hellt út á og soðið meira
niður þangað til sósan er orðin
hæfilega þykk.
Blómkálsmauk
1 blómkálshaus
200 ml rjómi
200 g smjör
2 tsk. salt
safi úr ½ sítrónu
Aðferð:
Blómkál skorið í bita og steikt í
potti vel og vandlega.
Þegar blómkálið hefur fengið á
sig ljósbrúnan lit má hella rjóman-
um út á.
Leyfa rjómanum að karmellast
aðeins.
Þá er blómkálið maukað í blen-
der með smjörinu. Smáklípa í
hverja blöndu. Síðan er salti og sí-
trónusafa blandað út í.
Steinbítur með pistasíum
og blómkálsmauki
Nánar um verð og
tækniupplýsingar
í sima 551 3000 eða
hermann@ledlysing.is
Hlíðasmára 11 (neðanverðu) | 201 Kópavogur | Sími 551-3000 | hermann@ledlysing.is
IP67
Rétti tíminn fyrir
Rightlux um borð?
Hágæða LED kastarar frá aðeins kr. 89.900 + vsk
Dæmi kastari: RL1A 180W 60° RL1A 270W 60° RL2A 400W 60° RL2P 400W 20° XRL2P 1000W 20°
Aflnotkun 180W 270W 400W 400W 1000W
Ljósmagn 21600 lm 32400 lm 44000 lm 48000 lm 105000 lm