Morgunblaðið - 09.02.2018, Qupperneq 45
FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2018 MORGUNBLAÐIÐ 45
Tennurnar á heflinum voru hvassar,
úr grjóthörðu stáli, og þær suðu þeir
utan á skutinn. „Það var eiginlega
hægt að raka sig á þessu,“ hefur einn
úr áhöfninni sagt mér.“
Með þetta að vopni olli Baldur gíf-
urlegum skemmdum á freigátunum.
Boxari með bundnar hendur
„Það er ljóst að menn hugðust nýta
sér þetta ef tækifæri gæfist. Á hinn
bóginn gekk Baldur ekki nema 15 til
17 sjómílur þegar best lét og því má
hugsa það þannig að það hafi verið
freigáturnar sem komu sér í hættu-
lega stöðu með því að vera of nálægt
Baldri. En í viðureignum sínum sneri
áhöfnin skipinu þannig að þessi horn
lentu í freigátunum, sem voru sjálfar
ekki sérstaklega sterkbyggðar.
Fyrst og fremst voru þær ætlaðar
sem kafbátaleitarskip, en sterk-
byggðar voru þær ekki,“ segir Flosi.
„Freigátan Diomede lenti til dæm-
is illa í Baldri, en hann risti með
skutnum um fimm til sex metra
langa rifu á síðu skipsins. Enda sýna
skjöl að skipherrann á Diomede, Ro-
bert McQueen – harður nagli sem
seinna fékk mikið lof fyrir fram-
göngu sína í Falklandseyjastríðinu,
kallaði Baldur The Tin Opener, eða
dósaopnarann.“
Eftir að Baldur hafði valdið stór-
skemmdum á tveimur freigátum
fékk breski flotinn skýr skilaboð:
„Avoid damage to frigates“, eða
„forðist skemmdir á freigátum“, seg-
ir Flosi. „Þeir máttu ekki gera neitt
annað, eða eins og Guðmundur
Kjærnested lýsti því, þetta var eins
og að senda boxara í hringinn með
aðra hönd eða jafnvel báðar bundnar
fyrir aftan bak. Þetta var því mjög
erfið aðstaða fyrir bresku skipherr-
ana, og þeir voru ekki hrifnir af þess-
um átökum. Margir hverjir höfðu
farið í foringjaskóla í þeirri trú að
þeir myndu sigla um heimsins höf og
vernda hag Breska heimsveldisins. Í
staðinn voru þeir sendir norður í Atl-
antshaf að fylgjast með einhverjum
togurum, og máttu í þokkabót ekkert
gera.“
Fer að koma tími á nýja bók
Hann segir að gera megi þorska-
stríðunum réttilega hærra undir
höfði. Margt áhugavert felist í þeim
sem einstakt geti talist í sögu Ís-
lands, og jafnvel þótt víðar væri leit-
að.
„Við riftum til að mynda stjórn-
málasambandi við Bretland, í febr-
úar 1976. Það er í eina skiptið sem
NATO-ríki hefur gert það við annað
ríki innan bandalagsins,“ segir Flosi
og bætir við að alltaf sé áhugi fyrir
sögum frá þorskastríðunum.
„Ég hélt fyrirlestur um þetta efni í
nóvember fyrir Félag skipa- og báta-
áhugamanna. Þar voru mjög margir
fyrrverandi liðsmenn Landhelg-
isgæslunnar, sem meira að segja
fannst ég vera að koma fram með
nýjar upplýsingar. En svo heyrir
maður alltaf eitthvað nýtt frá þeim
líka. Það er von mín, og ég hef verið
hvattur til þess af kennurum mínum,
að skrifa bók um þetta. Það fer að
koma tími á nýtt rit um þennan tíma,
sem tekur fyrir efnið frá a til ö,“ segir
hann. Nú sé komin ágætis fjarlægð á
þessa atburði.
„Það hentar oft best þegar það er
komin ákveðin fjarlægð og maður
getur horft yfir þetta í heild. Ég hef
verið að taka viðtöl við marga af þeim
mönnum sem stóðu fremst í víglín-
unni þessi ár og þeir fara því miður
bráðum að falla frá. Það er sömuleið-
is mikilvægt að ná frásögnum þeirra
og því er þetta kannski hárréttur
tímapunktur.“
Nálægð Varðskipið Þór
siglir hjá breskri freigátu.
• Inn á skjávegginn má tengja upplýsingar frá öðrum kerfum skipsins eins og myndavélakerfi,
vélgæslukerfi, brunaviðvörunarkerfi o.fl.
• Skjáveggurinn gerir hefðbundna skjái sem tengjast siglinga- og fiskleitartækjum óþarfa.
• Notendur, skipstjóri og stýrimenn geta búið til sínar eigin skjámynda samsetningar og vistað
í kerfið, t.d. Siglingu, Flottroll, Botntroll, Nótaveiði o.s.frv. Þessar samsetningar er svo hægt að
kalla fram eftir þörfum. Fyrirfram vistaðar skjámynda samsetningar geta verið eins margar og
hentar hverjum og einum.
• Valið er á milli vistaðra skjámynda samsetninga með snertiskjá eða lyklaborði á mjög
einfaldan hátt.
• Skjáveggur tekur minna pláss í skipsbrúnni en hefðbundin uppsetning á skjáum við allan
þann fjölda af tækjum sem hann tengist. Með því að klæðskerasníða skjámyndirnar þá
hámarkast nýtingin á skjásvæðinu. Þannig er hægt að setja saman skjámyndir sem eingöngu
innihalda þær upplýsingar sem verið er að vinna með hverju sinni. Sjónsvið notandans verður
mun þrengra og þægilegra þar sem minna skjásvæði er fyrir framan hann og með meiri
upplýsingum.
• Skjáveggjalausnin byggir á því að öll merki frá öllum tækjum eru yfirfærð á tölvutækt form
(ip-straum). Þar með er í raun engin takmörk fyrir því hvað settar eru upp margar vinnu-
stöðvar eða eftirlitsskjáir. Hægt er að vera með vinnustöðvar í vélarúmi, við spilstjórnun o.fl.
Með góðu netsambandi til sjós býður þessi lausn upp á möguleika á að vera með tengingu
inn á eftirlitskerfi í landi og þegar skipin eru í höfn.
Skjáveggur
Vélstjóri – VélaVörður
Óskum eftir yfirvélstjóra með lágmark VS.III réttindi og
vélaverði með lágmark VV réttindi á Kristrúnu RE 177.
Skipið er gert út á Grálúðunet og aflinn
er frystur um borð.
Áhugasamir sendi umsóknir á ragnar@fiskkaup.is og helgi@fiskkaup.is