Morgunblaðið - 06.03.2018, Side 1

Morgunblaðið - 06.03.2018, Side 1
Þ R I Ð J U D A G U R 6. M A R S 2 0 1 8 Stofnað 1913  55. tölublað  106. árgangur  TÆKNI TIL ÞESS AÐ NÁ GÓÐRI SJÁLFU GUJA SAND- HOLT Í HAFN- ARBORG KOKKUR ÁRSINS VINNUR Á DEPLUM Í FLJÓTUM TÓNLEIKAR 30 GARÐAR KÁRI GARÐARSSON 10RANNSÓKN 12 Morgunblaðið/Sigurður Bogi Skemmtiferðaskip Fram á Eskifirði.  Til Akureyrar koma 124 skemmtiferðaskip í sumar og hef- ur þeim fjölgað mjög á undan- förnum árum. Til Grímseyjar eru væntanleg 38 skemmtiferðaskip og Hrísey er í fyrsta skipti að finna í áætlun skemmtiferðaskipa með tvær heimsóknir bókaðar. Veðurlag á Siglufirði réði því að skemmtiferðaskipinu Fram var beint til Hríseyjar sumarið 2016. Svo vel þótti heimsóknin þangað takast að útgerðin hefur nú bókað tvær ferðir til Hríseyjar í sumar og fjórar sumarið 2019. » 11 Hrísey í áætlun skemmtiferðaskipa Íbúðirnar verða stærri » Sigurður Hannesson, fram- kvæmdastjóri Samtaka iðaðar- ins, segir þéttingu byggðar hafa í för með sér stærri íbúðir. » Byggðir séu margir fermetrar en fáar íbúðir. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Vegna lítil framboðs á ódýrari íbúð- um kann eftirspurn eftir íbúðum á höfuðborgarsvæðinu á næstu árum að vera verulega ofmetin. Þá skortir betri gögn til að meta eftirspurnina. Þetta er mat Ara Skúlasonar, sér- fræðings hjá Landsbankanum, sem telur hátt hlutfall nýrra íbúða vera of dýrt fyrir fyrstu kaupendur. Það sé ekki verið að byggja íbúðir fyrir þá. Gefst upp á leitinni „Fólk sem væri hugsanlega í íbúðaleit er því ekki að leita. Maður hafði á tilfinningunni síðasta vor að allir væru að elta síðustu íbúðina sem kæmi á markað. Svo er eins og fólk hafi fengið nóg. Það ætli ekki að láta fara svona með sig heldur bíða og sjá,“ segir Ari um verðþróunina. Ólafur Heiðar Helgason, hagfræð- ingur hjá Íbúðalánasjóði, segir að- spurður ekki sjálfgefið að framboð ódýrra íbúða muni aukast í takt við eftirspurn á næstu árum. Fyrir vikið sé hætt við að vissir hópar muni áfram ekki hafa ráð á að kaupa íbúð. Það muni aftur draga úr eftirspurn. Eftirspurnin mjög ofmetin  Sérfræðingur telur skort á ódýrum íbúðum verðleggja tekjulága af markaði  Íbúðalánasjóður segir mikinn skort en ekki útlit fyrir fjölgun ódýrra íbúða MErfitt að mæta … 2 Ljósmynd/Antje Taiga Jandrig Tónlist Bára fékk Léonie Sonning-verðlaunin. Á unglingsárunum fór mestallur tími Báru Gísla- dóttur, kontrabassaleikara og tónskálds, í að spila fótbolta, enda var hún farin að spila með meist- araflokki FH aðeins fjórtán ára gömul. Hún hafði nánast lagt fiðluna, sem hún hafði lært á frá fimm ára aldri, á hilluna, en þegar hún prófaði að spila á kontrabassa vaknaði tónlistaráhuginn að nýju. Síðan þá hefur hennar aðalstarf verið að leika á kontrabassa og semja tónlist og í gær var tilkynnt að hún væri einn handhafa dönsku Léonie Sonn- ing-verðlaunanna, sem eru ein virtustu menning- ar- og tónlistarverðlaun Danmerkur. Verðlaun- unum sem Bára fékk er úthlutað í flokki sem er undir heitinu „hæfileikar“, þau eru veitt ungu tón- listarfólki og hún er fyrsti Íslendingurinn sem fær þessi verðlaun. Bára stundar nú framhaldsnám við Konunglegu tónlistarakademíuna í Kaupmannahöfn, þaðan sem hún hefur lokið meistaraprófi. Hún starfar einnig að ýmsum verkefnum og er uppbókuð út næsta ár. Hún segir verðlaunin vera mikinn heið- ur. „Ég er að springa úr þakklæti og þetta er mik- il hvatning fyrir mig til að halda áfram því sem ég er að gera.“ »6 Fékk ein virtustu menn- ingarverðlaun Danmerkur  Bára féll fyrir kontrabassanum við fyrstu sýn Reykjavíkurskákmótinu sem hefst í dag var þjóf- startað í gær með Fischer-slembiskákfjöltefli. Undrabarnið Nihal Sarin tefldi við 11 andstæð- inga, hann vann 9 skákir og gerði tvö jafntefli. 250 keppendur eru skráðir til leiks í skákmótinu og er teflt til minningar um Bobby Fischer. »15 Morgunblaðið/Hanna Þjófstartað með slembiskák  Lítið gáma- þorp verður reist í Skeifunni í sum- ar en innan þess verður seldur götumatur, pop up-búðir verða opnar, leikir á HM verða sýndir á stórum skjá og tónlistarmenn troða upp. Þetta verkefni kallast BOX og verður op- ið frá 1. júní til 29. júlí, á fimmtu- dögum til sunnudaga. Skipuleggj- andi er Róbert Aron Magnússon sem segir að þessi menning hafi verið að sækja í sig veðrið á Íslandi og nú verði farið alla leið. Gáma- þorpið verður þar sem nú er bíla- stæði við hlið verslunar Rúmfata- lagersins. »6 Matarmarkaður í Skeifunni í sumar Róbert Aron Magnússon  Brot á réttindum starfsmanna starfsmannaleiga eru algeng og vís- bendingar um að erlent launafólk vinni lengri vinnudaga en íslenskt launafólk, fái að meðaltali lægri laun, greiði meira fyrir leigu og þurfi frekar að þola réttindabrot. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu hagdeildar ASÍ. Vitað er um tilraunir atvinnurek- enda til brota á starfsmönnum sem jafnframt eru leigjendur þeirra þeg- ar ótímabundnu ráðningarsambandi hefur verið slitið með uppsögn ann- ars aðilans. Einnig finnast dæmi þess að atvinnurekendur áskilji sér rétt til að draga ýmis vangoldin gjöld frá launum. »4 Erlendir launþegar sæti frekar brotum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.