Morgunblaðið - 06.03.2018, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 06.03.2018, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 2018 Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Í kjölfar eldgossins á Heimaey var 910 börnum frá Vest- mannaeyjum boðið til Noregs í tvær vikur sumarið 1973. Í sumar eru liðin 45 ár frá því að börnin fóru til Noregs og býður Íslendingafélagið í Noregi öllu þessu fólki að hittast á ný í Íslendingahúsinu við Norefjell hinn 9. júní í sumar. Í lok mars 1973 var tilkynnt að Islandsk samband, Ís- lendingafélagið og Rauði kross Noregs myndu bjóða börnum úr Vestmannaeyjum til Noregs. Flugfélag Ís- lands og Loftleiðir sáu um að flytja börnin milli landanna og lenti fyrsti hópurinn á Fornebu-flugvelli 12. júní. Í umfjöllun Morgunblaðsins var sagt að börnin hefðu hvorki verið há í loftinu né veraldarvön, en þrátt fyrir það kát, kurteis og full eftirvæntingar. Ferð barnanna vakti talsverða athygli í Noregi, en á flugvellinum hafði hópur fólks og lúðrasveit tekið á móti börnunum. „Þetta var mikil upplifun fyrir þá sem gátu farið svona úr gosinu og því ástandi og í friðsamlegt and- rúmsloft í sveitinni, og líka merkilegt þar sem þetta var fyrsta utanlandsferð margra,“ segir Einar Traustason, formaður Íslendingafélagsins. Þessi fyrsti hópur gisti í Íslendingahúsinu. Þeim var skipt niður í hópa við komuna og báru Íslendingar bú- settir í Noregi ábyrgð á hópunum. „Við erum meðal ann- ars að reyna að hafa samband við þetta fólk. Hingað til er búið að staðfesta þátttöku tveggja,“ segir Einar. Ljósmynd birt í Morgunblaðinu 13. júní 1973. Eyjabörn Börn frá Vestmannaeyjum sem fengu boðs- ferð til Noregs á Fornebu-flugvelli í Ósló 12. júní 1973. Boðið á ný til Noregs  45 ár síðan 910 börn frá Eyjum héldu til Noregs Ferðafélag Íslands Mörkinni 6 | 108 Reykjavík | S: 568 2533 | www.fi.is Aðalfundur Ferðafélags Íslands verður haldinn fimmtudaginn 15. mars kl. 20 í sal félagsins Mörkinni 6. Hefðbundin aðalfundarstörf Stjórnin. Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Bára Gísladóttir var 17 ára þegar hún sá hann í fyrsta sinn og heillaðist gjörsamlega upp úr skónum. Þetta gerðist þegar hún var í skiptinámi hinum megin á hnettinum og sá sem heillaði unga skiptinemann var kontrabassi. Síðan þá hefur hennar aðalstarf verið að leika á þetta hljóð- færi og semja fyrir það tónlist. Bára, sem nú er 28 ára, fékk í gær dönsku Léonie Sonning-verðlaunin, ein virtustu menningarverðlaun Dan- merkur. Verðlaunin eru veitt í nokkr- um flokkum, verðlaun Báru voru í flokknum hæfileikar eða „talent“ sem eru veitt upprennandi tónlistarfólki og fékk hún þau fyrir tónsmíðar sín- ar. Hún segir þetta hafa komið sér talsvert á óvart. „Það er ekki sótt um verðlaunin, heldur er fylgst með verkum tónlistarfólks. Ég fékk til- kynningu um að ég hefði fengið verð- launin. Núna þarf ég að láta mér detta í hug eitthvað gáfulegt til að nota þau í,“ segir Bára, en verðlauna- upphæðin er 60.000 danskar krónur. Bára starfar að hinum ýmsu verk- efnum bæði einsömul og í samstarfi við annað tónlistarfólk og er m.a. í hljómsveitunum Elju og Skark. „Ég hef t.d. verið að vinna mikið að kammermúsík og er með nokkur sólóverkefni í gangi. Verkefnin hafa hrannast upp. „Ég er núna bókuð út árið 2019,“ segir hún. Fótboltinn tók yfir um tíma Bára hóf tónlistarnám fimm ára gömul, þá bjó hún í Noregi og lærði á fiðlu. Síðan flutti hún til Íslands og hélt fiðlunáminu áfram við tónlistar- skólana í Garðabæ og Hafnarfirði, samhliða því æfði hún og spilaði fót- bolta með FH og var farin að spila með meistaraflokki félagsins aðeins 14 ára gömul. „Fótboltinn var farinn að taka allan minn tíma og ég tók mér frí frá tónlistinni,“ segir Bára. „Þegar ég var 17 ára fór ég sem skiptinemi til Nýja-Sjálands. Það stóð kontrabassi í skólastofunni og það vantaði einhvern til að leika á hann í hljómsveitinni í skólanum sem ég var í. Ég hugsaði með mér að ég hefði svo sem engu að tapa, ég væri komin hálfa leið yfir hnöttinn til að prófa eitthvað nýtt. Ég hef ekki séð eftir því, þetta var algerlega ást við fyrstu sýn.“ Mikil hvatning að fá verðlaunin Bára nam tónsmíðar í Listaháskól- anum og lauk þaðan bakka lárgráðu. Hún var í meistaranámi í tónsmíðum í Mílanó og lauk því námi síðan frá Konunglegu tónlistarakademíuna í Kaupmannahöfn þar sem hún stund- ar núna svokallað sólóistanám. En hvað er það sem heillar við kontrabassann? „Tíðnin í hljóðfær- inu, hún er svo falleg. Svo býður kontrabassi upp á breitt tónsvið.“ Skiptir miklu máli að fá verðlaun sem þessi? „Já, verulega. Þetta er gríðarlegur heiður, ég er að springa úr þakklæti og þetta er mikil hvatn- ing fyrir mig til að halda áfram því sem ég er að gera.“ Hún fékk ást á kontra- bassanum við fyrstu sýn  Bára fékk virtu Sonning-verðlaunin í Danmörku í gær Ljósmynd/Iona Sjöfn Tónlistarkona Bára Gísladóttir, kontrabassaleikari og tónskáld, er eini Ís- lendingurinn sem hefur fengið dönsku Léonie Sonning-tónlistarverðlaunin. Léonie Sonning-tónlistarverðlaunin hafa verið veitt árlega í Danmörku frá árinu 1959, þau eru ætluð erlendum tónlistarmönnum og þykja meðal virtustu verðlauna í Evrópu. Meðal þeirra sem hafa fengið þau í gegnum tíðina eru Anna Sophie-Mutter, Igor Stravinsky, Benjamin Britten, Miles Davis og Leonard Bernstein. Verðlaunin eru kennd við Léonie Sonning, eiginkonu danska auðmannsins og ritstjórans Carl Johan Sonning. Hann stofnaði Sonning-verðlaunin sem veitt eru þeim sem skara fram úr á sviði evrópskrar menningar. Meðal þeirra sem þau hafa hlotið er Halldór Laxness sem fékk verðlaunin árið 1969. Hæfileikaverðlaunin, sem Bára fékk, eru undirflokkur verðlaunanna og eru til þess ætluð að hvetja ungt tónlistarfólk í námi og starfi. Þau hafa verið veitt frá árinu 2012 og alls fengu tíu ungir tónlistarmenn þau í ár. Í fótspor frægðarmenna LÉONIE SONNING-TÓNLISTARVERÐLAUNIN Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Ég kynntist þessum heimi vel þeg- ar ég var með Búlluna úti í London. Ég hef verið með það í maganum síðan að gera eitthvað svona hér og nú er komið að því,“ segir Róbert Aron Magnússon athafnamaður sem er að skipuleggja götumatarmark- að sem settur verður upp í Skeifunni í Reykjavík í sum- ar. Reist verður lítið gámaþorp á bílastæðinu við hlið Rúmfata- lagersins og þar verður að finna fjölbreytt úrval af götumat, „pop up“-búðir og bar auk þess sem leikir á HM í Rússlandi verða sýndir á stórum skjá. Þá munu þekktir tónlistarmenn og plötusnúðar troða upp. Yfirskrift þessa verkefnis er BOX og verður það starfrækt í tvo mán- uði í sumar, frá 1. júní til 29. júlí. „Þetta verður gámaþorp. Einhverjir munu selja mat úr gámum og aðrir úr matarvögnum. Þessi street-food- menning hefur verið að berast hing- að til lands og við viljum taka þetta alla leið,“ segir Róbert. Opið verður fimmtudag til sunnu- dags, bæði í hádeginu og svo seinni- partinn og fram til 21:30 á kvöldin. Á sunnudögum verður svo lagt upp með að hafa fjölskyldustemningu. Róbert segir að miklar kröfur verði gerðar til matarins sem í boði verður. „Já, menn verða að bjóða upp á eitthvað alveg einstakt. Þarna geta menn prófað nýjungar. Þetta eru ekki mörg pláss sem við höfum þannig að þetta verður að vera spennandi,“ segir hann en á næstu dögum verður auglýst eftir áhuga- sömu veitingafólki til að vera með. Götumatarmarkaðir sem þessi hafa notið mikilla vinsælda erlendis síðustu ár og búast má við að BOX verði vel tekið hér, bæði af Íslend- ingum og erlendum ferðamönnum. Síðustu ár hefur framboð á götumat aukist hratt á Íslandi og þær tilraun- ir sem gerðar hafa verið með mark- aði sem þennan, til að mynda Krás í Fógetagarðinum, hafa gefið góð fyr- irheit. Þegar við bætist stemningin í kringum HM í knattspyrnu er vart tilefni til annars en bjartsýni. Segir Róbert að ókeypis verði inn á svæðið og stefnt að því að maturinn verði á hóflegu verði. Það skemmtilegasta við markaði sem þennan er enda að geta smakkað nokkra rétti. Róbert segir að meðal fyrirmynda sem horft er til sé Street Feast í London. Hugmyndafræðin minnir líka á frábæra staði á borð við Pop í London og Papirøen í Kaupmanna- höfn. Gámarnir ramma þetta matar- þorp inn en inni í því verða borð til að fólk geti notið veitinganna. Hægt verður að draga tjald yfir hluta svæðisins og hitarar verða á staðn- um, ef íslenska sumarverðrið veldur vonbrigðum. Verkefni þetta er unnið í sam- starfi og samvinnu við Reykjavík- urborg. Ef vel tekst til sér Róbert fyrir sér að BOX sé komið til að vera. „Já, ef vel gengur þá höfum við fengið vilyrði fyrir því. Þá skoðum við að færa þetta í varanlegt hús- næði.“ Götumatur Gámaþorp rís í Skeifunni í sumar þar sem seldur verður götu- matur. Stemningin verður vonandi í líkingu við Papirøen í Kaupmannahöfn. Götumatur seldur í gámum  Spennandi nýjung í Skeifunni í sumar Róbert Aron Magnússon

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.