Morgunblaðið - 06.03.2018, Page 8

Morgunblaðið - 06.03.2018, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 2018 Þórhildur Sunna Ævarsdóttir,fyrrverandi ígildi formanns Pírata og núverandi þingflokks- formaður sama flokks, telur „ágætar líkur“ á samstöðu stjórn- arandstöðunnar um að leggja fram van- traust á dóms- málaráðherra.    Þetta kom fram ígær og þá kom líka fram að Þórhildur Sunna telur hafið yfir vafa að Mannréttinda- dómstóll Evrópu dæmi dómara við Landsrétt vanhæfa.    Ekkert bendir að vísu til aðnokkur muni telja dómarana vanhæfa, það eina sem dæmt hefur verið um hæfi þeirra er að Lands- réttur hefur talið þá dómara, sem hann hefur fjallað um, hæfa.    Þórhildur Sunna hefur látiðtöluvert til sín taka að und- anförnu í umræðum um lagaleg málefni og hélt því til dæmis fram í liðinni viku að „rökstuddur grun- ur“ væri uppi um að tiltekinn þingmaður hefði dregið sér fé. Síð- ar kom fram í umræðum að hún hefði alls ekki átt við að rök- studdur grunur væri um þennan verknað, enda var fráleitt að halda því fram. Hún hefði átt við eitt- hvað allt annað en það sem hún sagði.    Nú kann auðvitað að vera aðþingmaðurinn eigi alls ekki við að hún telji að dómarar verði dæmdir vanhæfir eða að líkur séu á að fram komi vantraust á dóms- málaráðherra.    Um það veit enginn fyrr enfenginn hefur verið túlkur til að útskýra málflutninginn. Það eina sem fyrir liggur er að þess háttar gaspur á – réttilega – stór- an þátt í að rýra traust almenn- ings á Alþingi. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir Innantómt gaspur STAKSTEINAR Próf. Ólafur H.Wallevik 60 ára 40 ára ferill Í tengslum við sýninguna Verk og vit í Laugardalshöll fimmtudaginn 8. mars 2018, kl 14.00 Dagskrá Dr. Þorsteinn Ingi Sigfússon Opnun Dr. Ólafur H.Wallevik Ferillinn: Tekur timbrið við af steinsteypunni? Dr. Ríkharður Kristjánsson, EFLA Rakaskemmdir og„hystería“ Dr. Gísli Guðmundsson, Mannvit Klórleiðni steinsteypu Dr. Jón ElvarWallevik, Rb við NMÍ Flotfræði Jón Sigurjónsson, fyrrum yfirverkfræðingur Rb Vatnsskaðar og votrými WassimMansour, verkfræðingur RMAD Outstanding Concrete Technology Sunna Ó.Wallevik, verkfræðingur NMÍ og Gerosion Umhverfisvænt sementslaust steinlím Dr. Björn Marteinsson, Háskóli Íslands Rakaþétting og sveppamyndun Dr. Þórhildur Kristjánsdóttir, Vistbyggðarráð Vistvæni bygginga Umhverfisverðlaun Rb við Nýsköpunarmiðstöð Íslands Verk og vit opnar kl. 17.00 með léttum veitingum Fundarstjóri er próf. Þorsteinn Ingi Sigfússon, forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands Veður víða um heim 5.3., kl. 18.00 Reykjavík -3 léttskýjað Bolungarvík -4 snjókoma Akureyri -3 alskýjað Nuuk -5 léttskýjað Þórshöfn 3 skýjað Ósló -4 skýjað Kaupmannahöfn 0 þoka Stokkhólmur -2 snjókoma Helsinki -7 snjókoma Lúxemborg 10 léttskýjað Brussel 11 léttskýjað Dublin 3 þoka Glasgow 4 þoka London 7 rigning París 12 léttskýjað Amsterdam 9 léttskýjað Hamborg 9 léttskýjað Berlín 8 heiðskírt Vín 0 skýjað Moskva -7 heiðskírt Algarve 16 léttskýjað Madríd 7 skýjað Barcelona 14 skýjað Mallorca 15 léttskýjað Róm 9 rigning Aþena 17 léttskýjað Winnipeg -1 snjóél Montreal 0 skúrir New York 4 léttskýjað Chicago 1 alskýjað Orlando 18 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 6. mars Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 8:18 19:01 ÍSAFJÖRÐUR 8:26 19:02 SIGLUFJÖRÐUR 8:10 18:45 DJÚPIVOGUR 7:48 18:30 Herjólfur lagðist tvisvar að bryggju í Landeyjahöfn í gærkvöldi. Eru þetta fyrstu ferðir skipsins til hafn- arinnar frá því um miðjan desem- ber. Skipið hefur aldrei hafið sigl- ingar þangað svo snemma árs. „Þetta er ákaflega ánægjulegt,“ sagði Gunnlaugur Grettisson, rekstrarstjóri Herjólfs, í gær eftir að tilkynnt var um breytta áætlun. Skipið sigldi síðast til Land- eyjahafnar 16. desember og hefur síðan notað höfnina í Þorlákshöfn en þangað er margfalt lengri sigl- ing. Dýpkunarskip hefur verið að dýpka á rifinu utan við höfnina og dæla sandi úr innsiglingunni frá því á föstudag. Hefur dælingin gengið vel en verkinu er ekki lokið. Í gær var gott veður og ákvað Eimskip að láta Herjólf sigla tvær ferðir í Landeyjahöfn í gærkvöldi en þá var háflóð. Aðstæður voru því sérlega góðar. Gunnlaugur átti þó von á því að meiri alda yrði í dag og því yrði væntanlega siglt til Þorláks- hafnar. Hins vegar er gott útlit fyrir morgundaginn og næstu daga og því er gert ráð fyrir að skipið sigli til Landeyjahafnar næstu daga. Gunn- laugur sagði að í ljósi reynslunnar mætti búast við því að ekki yrði fært til Landeyja alla daga næstu vikur en þá yrði siglt til Þorlákshafnar. Á síðasta ári hófust siglingar í Landeyjahöfn tveimur dögum seinna en í ár, eða 7. mars, en lítið var siglt næstu vikurnar, þar til seint í apríl, vegna erfiðra að- stæðna. Árið þar á undan hófust siglingar í Landeyjahöfn 15. apríl. helgi@mbl.is Herjólfur fór tvær ferðir í gær Morgunblaðið/Sigurður Bogi Herjólfur Reynt verður að sigla sem mest í Landeyjahöfn næstu mánuði. Viðskipti

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.