Morgunblaðið - 06.03.2018, Síða 14

Morgunblaðið - 06.03.2018, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 2018 TANGARHÖFÐA 13 VÉLAVERKSTÆÐIÐ kistufell.com Það er um 80% ódýrara að skipta um tímareim miðað við þann kostnað og óþægindi sem verða ef hún slitnar Hver er staðan á tíma- reiminni í bílnum þínum? Hringdu og pantaðu tíma í síma 577 1313 N Ý F O R M H Ú S G A G N A V E R S L U N Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Komið og skoðið úrvalið Opið virka daga 11-18 laugardaga 11-15 Richmmond frá Bellus Mikið úrval af áklæðum Böðvar Pálsson, bóndi og fyrrverandi oddviti á Búrfelli í Grímsnesi, lést á Heilbrigð- isstofnun Suðurlands á Selfossi síðastliðinn laugardag, 81 árs að aldri. Böðvar starfaði mikið að félagsmálum sveitar sinnar og stéttar. Böðvar var fæddur á Búrfelli 11. janúar 1937, sonur hjónanna Páls Diðrikssonar, bú- fræðings og bónda þar, og Laufeyjar Böðvarsdóttur húsfreyju. Hann stundaði nám í Íþrótta- skólanum í Haukadal og lauk landsprófi frá Héraðsskólanum að Laugarvatni árið 1955. Eftir það vann hann sem skurðgröfustjóri á sumrin og við gripahirðingu að vetrum. Stofnaði nýbýlið Búrfell 3 úr hálfri jörðinni Búrfelli 2 árið 1964 og hóf þar búskap. Hann bjó á Búrfelli alla sína ævi. Böðvar var virkur í fé- lagsmálum. Hann var formaður Ungmennafélagsins Hvatar og framkvæmdastjóri fé- lagsheimilisins Borg- ar. Hann var kjörinn í hreppsnefnd Gríms- neshrepps á árinu 1972 og átti þar sæti í 32 ár, þar af 14 ár sem oddviti. Hann var jafnframt sýslu- nefndarmaður og átti sæti í héraðsnefnd. Þá var hann lengi hreppstjóri. Böðvar var formaður bún- aðarfélagsins í sinni sveit og fulltrúi á að- alfundum Stétt- arsambands bænda. Hann sat í stjórn Stéttarsambandsins og sat fyrir hönd þess í ýmsum nefndum og ráðum, meðal annars í Öldr- unarráði Íslands og stjórn sjúkra- stofnunarinnar Skjóls þar sem hann var formaður. Eftirlifandi eiginkona Böðvars er Lísa Thomsen, sem starfaði lengst af sem hjúkrunarritari á Heilbrigðisstofnun Suðurlands. Þau eignuðust fimm börn, Sigurð, Laufeyju, Bryndísi Ástu, Önnu Ýri og Láru. Andlát Böðvar Pálsson Ævar Jóhannesson, vísindamaður og frumkvöðull, lést laugardaginn 3. mars, 87 ára að aldri. Ævar fæddist í Fagranesi í Hörg- árdal 3. mars 1931, sonur Jóhannesar Jónssonar, fræði- manns og bónda, frá Árnesi í Tungusveit í Skagafirði og Sigríð- ar Ágústsdóttir hús- freyju frá Kjós í Reykjarfirði á Ströndum. Ævar nam við farskóla en ekki varð af fyrirhuguðu mennta- skólanámi sökum þess að hann veiktist af berklum árið 1948 þá á 18. aldursári. Hann dvaldi ára- langt á Kristneshæli og Reykja- lundi. Þar las hann allan þann fróðleik sem hann komst yfir, sérstaklega það sem snéri að flóknum tæknimálum og kenndi sjálfum sér ensku, þýsku og Norðurlandamálin. Ævar rak ásamt Leifi Þor- steinssyni fyrirtækið Myndiðn á sjöunda áratug síðustu aldar. Ævar fann upp nýja aðferð við litmyndaframköllun og fékk einkaleyfi fyrir þessari tækni. Um leið og einkaleyfið rann út tóku Kodak og Agfa upp þessa tæki og er hún nýtt enn í dag. Ævar var einn af- kastamesti ljósmynd- ari síns tíma og liggja eftir hann fjölmargar af þekktustu nátt- úrulífs- og eldgos- amyndum síðustu ald- ar. Árið 1974 var Ævari boðið starf hjá Raun- vísindastofnun Há- skóla Íslands, en þar sem hann var ekki með formlega mennt- un, var búin til staðan tækjafræð- ingur og var hann titlaður sem slíkur upp frá því. Þar starfaði hann við tækjasmíð, uppfinningar, viðhald og viðgerðir. Þekktasta uppfinning hans er íssjáin en með hjálp hennar var loks hægt að mæla þykkt jökla af nákvæmni. Ævar hóf á níunda áratug ald- arinnar að sjóða lúpínuseyði úr ís- lenskum jurtum en það þótti vinna á hinum ýmsu kvillum og var sent um allan heim. Hann fékk heið- ursviðurkenningu Kópavogsbæjar árið 2010 fyrir framlag sitt til um- hverfis og samfélags. Eiginkona Ævars var Krist- björg Þórarinsdóttir en hún lést 2011. Þau eignuðust fjögur börn, Jóhannes Örn, Sigríði, Þórarin Hjört og Ólöfu. Ævar Jóhannesson Sigurgeir Guðjónsson sagnfræð- ingur flytur erindi í geðvernd- armiðstöðinni Grófinni í Hafn- arstræti 95 á Akureyri í dag frá klukkan 14.30 til 16.00. Titill erindisins er „Aðbúnaður geðveikra á fyrri tíð á Íslandi en þó einkum á Akureyri“. Meðal þess sem um verður fjallað er hlutverk gamla spítalans á Akureyri í þessu samhengi. Viðburðurinn er opinn öllum og aðgangur ókeypis. Fjallar um aðbúnað geðveikra á fyrri tíð Baldur Arnarson baldura@mbl.is Umboðsmaður Alþingis telur tilefni til að rannsaka frekar framgöngu ríkisins fyrir dómstólum. M.a. gæti þeirrar tilhneigingar að víkja frá kröfum stjórn- sýsluréttarins. Tryggvi Gunn- arsson, umboðs- maður Alþingis, fjallar um þetta í bréfi til stjórn- skipunar- og eftirlitsnefndar vegna Landsrétt- armálsins. Meginefni bréfs- ins er að umboðs- maður telur ekki tilefni til frum- kvæðisathugunar vegna skipunar dómsmálaráðherra á 15 dómurum í Landsrétt. Umboðsmaður baðst undan viðtali vegna málsins. Fram kemur í samantekt bréfsins að umboðsmaður hefur hins vegar hugað að því að hefja frumkvæð- isathugun á stigagjöf við mat á um- sækjendum um opinber störf. Fram kom í Morgunblaðinu 17. febrúar að dómnefnd vegna umsagn- ar um umsækjendur um stöðu dóm- ara við Héraðsdóm Reykjavíkur not- aði ekki „boxamerkingar“, svo vitnað sé til formanns nefndarinnar. Slíkar merkingar voru hins vegar notaðar við niðurröðun dómnefndar á 15 hæf- ustu umsækjendunum um embætti dómara við Landsrétt. Óskaði skýringa ráðherra Umboðsmaður rekur í bréfinu samskipti sín við Sigríði Á. Andersen dómsmálaráðherra. Fyrirspurnir hans hafi m.a. lotið að því „hvenær og með hvaða hætti ráðherra eða ráðu- neyti hans hefði farið yfir og tekið af- stöðu til kröfugerðar, málsástæðna og lagaraka sem sett voru fram af hálfu lögmanns ríkisins í áðurnefnd- um dómsmálum sem leidd voru til lykta í tveimur dómum Hæstaréttar 19. desember sl.“. Vísar hann þar til mála Ástráðs Haraldssonar og Jóhannesar Rúnars Jóhannssonar, tveggja umsækjenda um embætti dómara við Landsrétt, sem dæmdar voru bætur í Hæsta- rétti í málum 591 og 592/2017. Var það niðurstaða Hæstaréttar að ráð- herra hefði ekki sinnt rannsókn- arskyldu. Varðandi þennan þátt málsins skrifar umboðsmaður að hann hafi óskað gagna frá dómsmálaráðherra um hverjir hefðu veitt ráðherra ráð- gjöf við skipan dómara. Í svari ráð- herra hefði komið fram hvaða starfs- menn ráðuneytisins hefðu aðstoðað hann. Þá hefði ráðherra og settur ráðuneytisstjóri leitað til dósents við lagadeild Íslands. Telur umboðs- maður að ekki verði betur séð en að starfsmenn ráðuneytisins hafi veitt ráðgjöf „í samræmi við lagaskyldu þeirra“. Með hliðsjón af áðurnefnd- um dómum Hæstaréttar og þessarar upplýsingagjafar telur umboðs- maður ekki tilefni til sérstakrar at- hugunar hvað þetta varðar. Ríkið gæti ekki að hlutlægni Umboðsmaður Alþingis gagnrýnir málatilbúnað ríkisins. Landsrétt- armálið sé þó ekki einsdæmi. „Tilefni þessarar spurningar af minni hálfu var tilhneiging sem ég hef orðið var við í eftirliti mínu með starfsháttum í stjórnsýslunni þegar stjórnvöld bregðast við í dómsmálum sem borgararnir höfða gegn ríki og sveitarfélögum. Ég hef að vissu marki einnig séð áþekka tilhneigingu í viðbrögðum stjórnvalda vegna mála sem borgararnir bera undir sjálf- stæðar úrskurðarnefndir. Sú til- hneiging sem ég vísa hér til er að stjórnvöld gæti ekki nægjanlega að sérstöðu sinni í þessu efni og skyldu til hlutlægni.“ Umboðsmaður rifjar svo upp að stjórnvöld séu í störfum sínum og at- höfnum bundin af lögmætisreglunni. „Í stjórnsýsluréttinum hefur verið byggt á því að lögmætisreglan geti skipt máli við framgöngu stjórnvalds sem er í stöðu aðila í dómsmáli við mótun og framsetningu á kröfum og málsástæðum. Stjórnvald hafi með öðrum orðum ekki sama frelsi og einkaaðili til að setja fram kröfur og málsástæður heldur verði það að gæta þess við mótun þeirra að virða gildandi rétt … Á það hefur líka verið bent að stjórnvald þurfi sem aðili að dómsmáli að gæta að hlut- lægni í málatilbúnaði sínum og sé þar í áþekkri stöðu og ákæruvald í saka- málum,“ skrifar hann m.a. Um lögmætisregluna segir í skýrslu umboðsmanns Alþingis 1995: „Reglan er í meginatriðum tvíþætt. Annars vegar verða ákvarðanir stjórnvalda að vera í samræmi við lög. Hins vegar verða ákvarðanir stjórnvalda að eiga sér viðhlítandi stoð í lögum.“ Dómnefnd krafin skýringa Umboðsmaður skrifar að vegna þeirrar tilhneigingar að víkja frá kröfum stjórnsýsluréttar í málsvörn stjórnvalda fyrir dómstólum hafi hann „gert [sér] far um að safna sam- an upplýsingum um mál sem kunna að vera til marks um þessa starfs- hætti stjórnvalda“. Umboðsmaður kunni að skoða málið síðar: „Ég tek fram að komi til þess að ég muni … fjallar frekar um þau atriði í málsvörn lögmanns rík- isins sem vöktu athygli mína að þessu leyti verður það ekki afmarkað við þau ein og sér … Ákvörðun um hvort og þá hvenær ráðist verður í slíka athugun ræðst af upplýsinga- öflun sem ég vinn að og þar hefur líka áhrif í hvaða farveg athugun á tiltekinni kvörtun sem ég hef til með- ferðar verður lögð.“ Umboðsmaður vildi ekki tjá sig um hver bar upp þessa kvörtun. Á öðrum stað í bréfinu upplýsir hann að sér hafi borist kvörtun vegna starfa dómnefndar um um- sækjendur um stöðu dómara. Málið varði ekki Landsrétt. Hann bíði skýringa dómnefndar og muni í framhaldinu taka ákvörðun um hvort tilefni sé til frumkvæðisathugunar. Umboðsmaður boðar frekari rannsóknir  Gagnrýnir málsvörn lögmanns ríkis í Landsréttarmálinu Morgunblaðið/Hanna Landsréttur Nýtt millidómstig á Íslandi tók til starfa í byrjun ársins. Tryggvi Gunnarsson Félag nýrnasjúkra verður með opið hús í dag í Hátúni 10, Setrinu, kl. 17 til 19. Gestur fundarins er Silja Dögg Gunnarsdóttir alþing- ismaður og mun hún ræða um frumvarp til laga sem liggur fyrir Alþingi núna og fjallar um ætlað samþykki til líffæragjafar. Rætt um líffæragjöf

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.