Morgunblaðið - 06.03.2018, Síða 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 2018
Þvotturinn verður barnaleikur.
Sápuskömmtun er sjálfvirk.
TwinDos með tveimur fösum.
Fyrir hvítan og litaðan fatnað.
Treystu Miele W1 þvottavélum með TwinDos
fyrir því sem skiptir þig mestu máli. Þú
verður sannarlega í góðum höndum.
Innbyggða og sjálfvirka skömmtunarkerfið
auk þvottaefnafasanna tveggja vinna
fullkomlega saman. Þetta tryggir að rétt
magn af réttri tegund þvottaefnis er
skammtað inn á réttum tímapunkti –
fyrir fullkominn þvottaárangur og án
þess að nota of mikið þvottaefni.
Fyrir allt sem þér þykir virkilega
vænt um.
Miele. ImmerBesser.
**þegar keypt
er Miele W1
með TwinDos
þangað til
8. mars 2019
Fríar hálfs árs birgðir
af þvottaefni**
Íslenskar
leiðbeiningar
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Útlit er fyrir langar og strangar
samningaviðræður um myndun
nýrrar ríkisstjórnar á Ítalíu eftir
mikinn kosningasigur tveggja lýð-
hyggjuflokka sem hafa deilt hart á
ráðandi öfl í landinu. Talið er að við-
ræðurnar taki margar vikur eða
mánuði og hugsanlegt er að kjósa
þurfi aftur síðar á árinu, jafnvel oftar
en einu sinni næstu misserin.
Tveir lýðhyggjuflokkar, Hreyfing-
in fimm stjörnur (Movimento 5
Stelle) og Bandalagið (Lega), fengu
um helming greiddra atkvæða
samanlagt og gerðu báðir tilkall til
embættis forsætisráðherra í gær.
Flokkarnir tveir eru að mörgu leyti
ólíkir en hafa báðir haft efasemdir
um evruna og pólitískan samruna að-
ildarríkja Evrópusambandsins.
Hreyfingin fimm stjörnur fékk
mest fylgi í kosningunum, um 32%
atkvæðanna, og mun meira en hon-
um hafði verið spáð.
Forsætisráðherraefni hreyfingar-
innar, Luigi Di Maio, sagði að hún
hefði unnið mikinn sigur í kosning-
unum og ætti því að axla þá ábyrgð
að mynda næstu ríkisstjórn. Hann
kvaðst vera tilbúinn að hefja viðræð-
ur við alla stjórnmálaflokkana um
myndun meirihlutastjórnar.
Berlusconi beið ósigur
Bandalag þriggja hægriflokka
varð stærsta fylkingin á þinginu og
fékk 37% atkvæðanna. Gert hafði
verið ráð fyrir því að bandalagið yrði
undir forystu Forza Italia, flokks
Silvios Berlusconis, fyrrverandi for-
sætisráðherra Ítalíu. Flokkurinn
fékk hins vegar mun minna fylgi en
spáð hafði verið, eða um 14% at-
kvæðanna. Bandalagið, sem var áður
nefnt Norðurbandalagið, fékk mest
fylgi hægriflokkanna þriggja, tæp
18%. Þriðji flokkurinn, Bræður Ítal-
íu, fékk rúm 4% atkvæða, en hann er
þjóðernissinnaður íhaldsflokkur og á
meðal annars rætur að rekja til
ítölsku fasistahreyfingarinnar.
Lýðræðisflokkurinn (PD), sem er
vinstrimiðflokkur, galt afhroð, fékk
tæp 19% atkvæðanna og missti rúm-
lega sex prósentustiga fylgi.
Berlusconi getur ekki farið fyrir
næstu ríkisstjórn þar sem hann má
ekki gegna opinberu embætti fyrr en
á næsta ári vegna dóms sem hann
fékk fyrir skattaundanskot. Hann
hefur verið hlynntur því að gamall
bandamaður hans í stjórnmálunum,
Antonio Tajani, forseti Evrópu-
þingsins, verði næsti forsætisráð-
herra Ítalíu.
Mikil fylgisaukning Bandalagsins
eykur hins vegar líkurnar á því að
forsætisráðherraefni þess, Matteo
Salvini, verði falið að mynda ríkis-
stjórn. Salvini sagði á blaðamanna-
fundi í gær að hægriflokkarnir þrír
hefðu fengið rétt til að mynda næstu
ríkisstjórn og þeim bæri skylda til að
stjórna landinu næstu árin. Hann
tók fram að samkvæmt samkomu-
lagi flokkanna þriggja fyrir kosning-
arnar ætti sá þeirra sem fengi mest
fylgi að velja næsta forsætisráð-
herra fengju þeir umboð til að
mynda ríkisstjórn.
Nýja þingið á að koma saman 23.
mars til að kjósa forseta þingdeild-
anna tveggja. Gert er ráð fyrir að
forseti Ítalíu, Sergio Mattarella,
hefji þá formlegar viðræður við leið-
toga flokkanna til að kanna mögu-
leikana á að mynda meirihlutstjórn.
Venja hefur verið að stjórnarmynd-
unarumboðið fari fyrst til stærsta
flokksins sem hefur yfirleitt verið í
stærstu kosningabandalaginu. Ekki
er víst að forsetinn fylgi þessari
venju núna þar sem stærsti flokk-
urinn, Fimm stjörnur, er með minna
fylgi en kosningabandalag hægri-
flokkanna.
Samkvæmt kjörtölum sem birtar
voru í gær gætu Fimm stjörnur
myndað tveggja flokka meirihluta-
stjórn með Bandalaginu, Forza
Italia eða Lýðræðisflokknum. Talið
er mjög ólíklegt að Fimm stjörnur
gangi til samstarfs við Forza Italia
eða Lýðræðisflokkinn.
Stjórnmálaskýrendur telja lík-
legra að Fimm stjörnur geti myndað
meirihlutastjórn með Bandalaginu
en taka fram að það yrði mjög erfitt
vegna þess að flokkarnir tveir eru
mjög ólíkir. Þegar Salvini var spurð-
ur í gær hvort Bandalagið kynni að
snúa baki við samstarfsflokkunum
tveimur og mynda meirihlutastjórn
með Fimm stjörnum svaraði hann að
það kæmi ekki til greina. „Nei,
undirstrikað þrisvar,“ hafði frétta-
veitan AFP eftir honum.
Grínistinn Beppe Grillo stofnaði
Fimm stjörnur árið 2009 og hreyf-
ingin hefur gagnrýnt stjórnmála-
menn landsins fyrir spillingu. Hreyf-
ingin styður aðild Ítalíu að
Evrópusambandinu en hefur boðað
ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu
um hvort Ítalía eigi að leggja niður
evruna. Forystumenn flokksins
drógu þó úr andstöðu sinni við evr-
una fyrir kosningarnar en sögðu að
til greina kæmi að Ítalía gengi úr
Atlantshafsbandalaginu. Hreyfingin
er meðal annars hlynnt borgaralaun-
um, þ.e. reglubundnum greiðslum
frá hinu opinbera til allra Ítala, og
vill nokkrir bankar landsins verði í
eigu ríkisins.
Andvígur evrunni
Eins og Fimm stjörnur er Banda-
lagið hlynnt aðild að Evrópusam-
bandinu en andvígt pólitískum sam-
runa aðildarríkjanna og vill að völd
þjóðþinganna verði aukin. Salvini
hefur sagt að hann sé andvígur evr-
unni.
Fylgi Bandalagsins jókst í kosn-
ingabaráttunni eftir að Salvini lofaði
að loka tjaldbúðum rómafólks, eða
sígauna, flytja hundruð þúsunda
flótta- og farandmanna úr landi og
takast á við hættuna sem hann telur
að Ítalíu stafi af íslam.
Matteo Salvini er 44 ára að aldri,
fyrrverandi blaðamaður og átti um
tíma sæti á Evrópuþinginu. Hann
varð leiðtogi Norðurbandalagsins í
desember 2013. Flokkurinn var áður
undir forystu Umbertos Bossi sem
sagði af sér í ágúst 2012.
Bandalagið hefur notið mikils
stuðnings á Norður-Ítalíu og barðist
lengi fyrir aðskilnaði norðurhlutans
frá Ítalíu. Forystumenn flokksins
áttu það til að móðga Suður-Ítali
með því að lýsa þeim sem letingjum
og „afætum“ en Salvini hefur lagt
áherslu á að auka fylgi flokksins í
suðurhéruðunum. Í stað þess að
gagnrýna Suður-Ítali hefur hann
beint spjótum sínum að hælisleitend-
um og frekar en að krefjast aðskiln-
aðar norðurhéraðanna frá Ítalíu hef-
ur hann lagt áherslu á að gagnrýna
Evrópusambandið.
Fimm stjörnur fengu mikið fylgi í
suðurhéruðunum og margir kjós-
enda hreyfingarinnar studdu áður
vinstriflokka. Talið er að þá hrylli við
tilhugsuninni um stjórnarsamstarf
við flokk Salvinis.
Ráðandi öflum refsað á Ítalíu
Langar og strangar samningaviðræður framundan eftir að tveir lýðhyggjuflokkar juku mjög fylgi
sitt í þingkosningum Gera báðir tilkall til embættis forsætisráðherra Eru mjög ólíkir flokkar
32,2%
23%
37,3%
3,4%
13,9
17,8
4,4
18,9
4,1
Heimild: Innanríkisráðuneyti Ítalíu
Úrslitin skv. síðustu kjörtölum í gær
Kosningarnar á Ítalíu
Vinstrimiðflokkar
Frjáls
og
jöfn
Bræður Ítalíu
(Fratelli d'Italia)
Hreyfingin
fimm
stjörnur
Lýðræðis-
flokkurinn
(PD)
Aðrir
Aðrir
Forza Italia
(hægrimiðfl.)
Bandalagið
(Liga)
Vinstrifl. Lýðhyggjufl. Hægriflokkar
AFP
Ungur leiðtogi Luigi Di Maio, leiðtogi Fimm stjarna, á kjörstað í Napólí. Di
Maio er 31 árs og þykir mjög ólíkur stofnanda flokksins, Beppe Grillo.
AFP
Gamall leiðtogi Silvio Berlusconi, leiðtogi Forza Italia, í bifreið sinni í Míl-
anó eftir að hafa kosið á sunnudaginn var. Berlusconi er orðinn 81 árs.
AFP
Nýr Bossi Matteo Salvini, leiðtogi
Bandalagsins, á kjörstað í Mílanó.
„Óstýranleg“ var fyrirsögnin á for-
síðu dagblaðs á Ítalíu eftir þing-
kosningar þar í febrúar 2013 og
það orð á ekki síður við um landið
núna eftir kosningarnar á sunnu-
daginn var. Óstöðugleiki hefur ein-
kennt stjórnmál landsins frá því að
ítalska lýðveldið var stofnað árið
1946. Fyrir kosningarnar árið 2013
hafði 61 ríkisstjórn verið mynduð á
67 árum og að meðaltali var hver
þeirra við völd í rúmt ár.
Einnig er mjög algengt að þing-
menn skipti um flokk eftir að hafa
verið kjörnir. Á síðasta kjörtímabili
skipti rúmur þriðjungur þingsins
um flokk að minnsta kosti einu
sinni og einn þingmannanna gerði
það alls níu sinnum. Til að mynda
misstu Fimm stjörnur 39 þingmenn
á kjörtímabilinu.
Það tók rúma tvo mánuði að
mynda fráfarandi ríkisstjórn árið
2013.
Stöðugur óstöðugleiki