Morgunblaðið - 06.03.2018, Side 21

Morgunblaðið - 06.03.2018, Side 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 2018 ✝ Guðríður ErnaHalldórsdóttir fæddist í Hlíð- arendakoti í Fljóts- hlíð 16. janúar 1946. Hún varð bráðkvödd á heim- ili sínu 25. febrúar 2018. Foreldrar henn- ar voru Ásdís Árna- dóttir, Hlíðarenda- koti, Fljótshlíð, f. 17.8. 1921, d. 30.8. 1949, og Hall- dór Árnason, Reyðarvatni, f. 25.2. 1909, d. 5.6. 1986. Alsystir Ernu er Ásdís Guð- rún, f. 18. júlí 1948 í Hlíðar- endakoti, Fljótshlíð, bróðir Ernu samfeðra er Ómar Þór, f. í Reykjavík 26. maí 1954. Eftirlifandi eiginmaður Ernu er Viðar Zophoníasson, f. 11.11. 1942 á Stokkseyri, og giftu þau sig hinn 28. ágúst 1965. Börn Ernu og Viðars eru: 1) Halldór Kristinn, f. á Selfossi þann 19. apríl 1965, eiginkona hans er Anna Berglind, f. 28. ágúst 1968, börn þeirra eru Júlí Heið- ar, Viktor Karl og Auður Helga. 2) Ás- dís Hrönn, f. 11. mars 1967, börn hennar eru Hólm- fríður Erna, Viðar Örn, Katrín Arna, Teitur Ari og Tóm- as Ari. 3) Atli Rafn, f. 1. júní 1981, börn hans eru Christian Blær, Emily Björt, Kári Rafn og Nína. Erna og Viðar eiga tvö langömmubörn; Ásdísi Ingu, dóttur Hólmfríðar Ernu, og Henning Thor, son Viðars Arn- ar. Erna missti móður sína ung að árum og ólst upp í Hlíðar- endakoti í Fljótshlíð hjá ömmu sinni Guðríði. Hún flutti ung að árum á Stokkseyri og bjó þar í rúm 30 ár eða þar til þau hjón fluttu á Selfoss. Hún vann ýmis störf, aðallega tengd bókhalds- og skrifstofuvinnu. Útför Ernu fer fram í Selfoss- kirkju í dag, 6. mars 2018, kl. 14. Móðir okkar Erna varð bráð- kvödd hinn 25. febrúar sl. langt fyrir aldur fram. Í dag þykja 72 ár ekki hár aldur og er þetta fjöl- skyldunni reiðarslag því mamma kenndi sér aldrei meins. Veikindi voru nokkuð sem hún hafði lítið þurft að kljást við og var henni meinilla við sjúkrahús. Kannski var það í hennar anda að kveðja á þennan hátt, með hvelli. En eftir sitjum við aðstandendur í söknuði, söknuði yfir að hafa ekki fengið að kveðja og ekki átt meiri tíma með henni. Við yljum okkur við góðar minningar og skemmtilegar því að mamma var algerlega mögnuð kona. Þegar við lítum til baka þá var mamma að mörgu leyti á undan sinni samtíð og afar fjölhæf. Hún var nýjungagjörn og til í að prófa hluti. Að keyra vikulega til Reykjavíkur á þýskunámskeið, taka meirapróf, keyra rútu um hálendið, vera kokkur á sjónum hjá pabba, sjá um fermingar- veislur, búa til kransa fyrir jarð- arfarir, postulínsmálun, semja ljóð og gamanvísur er svona brot af því sem hún tók sér fyrir hendur og gerði allt listavel. Hún var afar greiðvikin og vildi allt fyrir fólk gera og skipti þá ekki endilega máli hvort hún þekkti viðkomandi. Það var ósjaldan sem hún var að stússast í að undirbúa fermingarveislur og virtist það vera algert auka- atriði fyrir hana hvort gestirnir voru 50 eða 200, alltaf jafn lítið mál. Og brauðterturnar og hum- arsúpan voru á mörgum veislu- borðunum. En mamma var líka ansi kúnstug, hafði miklar skoðanir og stundum fannst okkur eins og hún hefði gaman af því að vera aðeins á móti annarra skoðunum. Líklegast gerði hún það til að fá fram rökræður, þótt á stundum og þá sérstaklega þegar við vor- um yngri færi þetta aðeins í taugarnar á okkur. En máltækið: „Þar sem tveir koma saman og eru sammála þá er annar óþarf- ur“ á líklega vel við þegar mamma átti í hlut. Þegar við systkinin lítum til baka er þakklæti okkur efst í huga. Þakklæti fyrir að hafa treyst okkur eins vel og hún gerði, þakklæti fyrir að hafa gert kröfur til okkar, kennt okkur að bjarga okkur, vera sjálfstæð og kennt okkur góð gildi. Þakklæti fyrir að sjá ekki hindranir heldur tækifæri og vera eins og hún var fjölhæf og nýjungagjörn sem sannarlega hefur skilað sér til okkar og barna okkar. Mamma var ekki mikið fyrir athygli og hefði ekki viljað langa lofræðu frá okkur börnunum. Eins og hún sagði eitt sinn sjálf: Þeir sem þekkja mig vita hvern- ig ég er, hinum kemur það bara ekki við! Minningin um stóran persónu- leika, víðsýna og hlýja konu lifir í hjörtum okkar og afkomenda. Hvíl í friði elsku mamma, þín verður sárt saknað. Halldór, Ásdís og fjölskyldur. Elsku mamma mín. Skyndi- legt fráfall þitt er bæði ótrúlegt og sárt. Á örskotsstundu er ég kominn í hóp þeirra fjölmörgu sem hefðu svo gjarnan viljað fá að hitta látinn ástvin bara einu sinni, faðma hann innilega og segja honum hvað þeir elskuðu hann mikið. Ég hefði líka bætt því við hvað ég væri þér þakk- látur fyrir handleiðslu þína alla tíð. Þú vafðir okkur systkinin svo sem aldrei í bómull en kannski var galdurinn þinn einmitt fólg- inn í því að treysta okkur og um- vefja í senn. Vera til staðar án forsjárhyggju og prédikana. Leiðbeina okkur án þess að skipa. Blandan af húmornum og hjartahlýjunni var bæði gefandi og notaleg. Mamma mátti ekkert aumt sjá og var ekki einasta ávallt reiðubúin til þess að að- stoða fjölskyldu sína og vini heldur að því er virtist vanda- lausa hvenær sem þeir bönkuðu upp á. Ég var síðbúin hugmynd í stækkunarferli fjölskyldunnar hjá mömmu og pabba og fékk það eftirsóknarverða hlutverk að vera örverpið í systkinahópnum. Þegar systkini mín fluttu úr for- eldrahúsum var ég aðeins þriggja ára gamall og því mynd- aðist náið samband milli mín og mömmu á sama tíma og pabbi sótti sjóinn sem skipstjóri á upp- vaxtarárum mínum. Samband ykkar pabba og lífs- mynstur var í senn einfalt og heilbrigt. Þegar hann var í landi var hann hjá þér. Vildi hvergi annars staðar vera. Og vill ekki enn. Ykkur leið vel saman og þurftuð ekki meir. Skyndilegt fráfall þitt er því mikið reiðars- lag og verkefni okkar systkin- anna fyrst og síðast að hjálpa föður okkar yfir þann mikla hjall sem við honum blasir. Það er líka verkefni okkar að styðja ömmubörnin þín í gegnum sorgina. Þú varst vakin og sofin yfir velferð þeirra og sú ást var óháð þeim tímabundu fjarlægð- um og landamærum sem skildu dagleg samskipti að. Takk, elsku mamma mín, fyrir að vera best af öllum en takk mest fyrir að vera eins og þú varst – góðmennskan í gegn en aldrei með glassúr. Ég elska þig. Þinn sonur Atli Rafn. Elsku amma mín. Ég á erfitt með að trúa því að þú sért farin frá okkur. Ég vildi óska þess að ég gæti fengið eitt tækifæri enn til þess að heimsækja ykkur afa í Seftjörnina og borða með ykkur góðu kjötsúpuna þína og spjalla við eldhúsborðið eins og við gerðum svo oft. Amma Lú var litríkur og skemmtilegur karakter með æð- islegan húmor. Ég á ótal margar minningar sem ég mun aldrei gleyma: Ferðirnar til Fuerte- ventura og Tenerife þar sem við hittum Sólmund að ógleymdum veiðiferðunum með ykkur afa þar sem við hittum „Gogglar- ann“. Ég mun minnast þín svo lengi sem ég lifi elsku amma mín. Ég elska þig og sakna þín. Þín Katrín Arna Kjartansdóttir. Amma Lú, eins og hún var alltaf kölluð af okkur barnabörn- unum, kvaddi okkur óvænt fyrir viku. Amma sem alltaf var svo hraust og kvartaði aldrei. Amma, þessi mikla kjarnakona. Amma sem ég sagði svo oft sögur af, oftar en ég gerði mér grein fyrir, svo oft að vinnufélagi minn hafði orð á því um daginn að hafa aldr- ei heyrt jafn margar sögur af ömmu einhvers. En hún var ein- stök, litríkur karakter og skemmtileg. Ég er svo heppin að vera elsta barnabarnið í hópnum og fékk því að upplifa alls kyns ævintýra- ferðir með ömmu sem ég mun ætíð minnast með þakklæti. Það var ekkert sem hét „kyn- hlutverk“ þegar hún var annars vegar. Hún var með meirapróf, keyrði rútu og það var hún sem fór með okkur systkinin að veiða. Nokkuð sem öðrum fannst vera karlmannssport. Hún tók okkur systkinin með í hjólhýsið þeirra afa við Gluggafoss í Fljótshlíð þar sem henni datt í hug einn morguninn að hún skyldi ná mynd af okkur við fossinn. Hún stillti okkur upp við fossinn, óþarflega glannalega að mínu mati og ég tjáði fólki við heim- komu að amma hefði reynt að drepa okkur. Þetta þótti ömmu fyndið og sagði reglulega frá misheppnaðri „morðtilrauninni“. Amma hafði áhuga á bókum og íslenskri náttúru, hún fór með okkur í gönguferðir í Þrasta- skógi, við Ingólfsfjall og fleiri staði, þar sagði hún gjarnan sög- ur af skemmtilegum furðuverum og gæddi gönguferðirnar þannig lífi. Hún var góð í gegn. Það skipti ekki máli hvern vantaði aðstoð, hún var alltaf boðin og búin að aðstoða, hvort sem var ættingja, vini eða ókunnuga og aldrei vildi hún neitt í staðinn. Á síðasta ári hlotnaðist mér sá heiður að taka ömmu ásamt fríðu föruneyti í ævintýraferð til Ísr- aels í heimsókn til Viðars bróður míns. Við heimsóttum Eiffelt- urninn í París og Dauðahafið í Ísrael, fyrir þennan tíma er ég ótrúlega þakklát. Amma gaf mér nýverið fyr- irfram brúðkaupsgjöf, þrátt fyrir engin áform um brúðkaup. Það var púsl með mörg þúsund púslum sem hún hafði dundað sér við í þrjár vikur með flísa- töng, ljós og stækkunargler að vopni. Ég á engin orð yfir það hvað mér þykir vænt um það í dag. Þrátt fyrir að hún hafi ekki alltaf sýnt væntumþykju í koss- um og faðmlögum vissi maður alltaf að hjarta hennar var fullt af væntumþykju til okkar. Ég veit að ég er ekki sú eina sem væri til í að hitta hana einu sinni enn, gefa henni gott knús, sem hún varð meira fyrir seinni árin, eftir að við barnabörnin höfðum verið með hana í stífum æfinga- búðum. Ég þakka fyrir allar góðu stundirnar og það sem amma kenndi mér: Að vera samkvæm sjálfri mér og hafa engar áhyggj- ur af því hvað öðrum finnst um mig. Ég lofa að passa upp á afa fyr- ir þig. Takk fyrir allt. Þín nafna, Hólmfríður Erna. Elsku amma Lú, takk fyrir allt sem þú gerðir með mér. Fórst með mig í bústað og í veiði. Þú skoðaðir með mér áhuga- verða steina. Þér fannst ég sniðug og mér fannst þú vera sniðug. Ég held að við höfum sett heimsmet í fyrra, þegar ég fór í Eiffelturninn með tveimur lang- ömmum og tveimur langöfum. Ég elska þig amma mín. Þín langömmustelpa, Ásdís Inga. Fyrrverandi tengdamóðir, Guðríður Erna Halldórsdóttir, er látin langt um aldur fram og ótímabært. Ég kynntist Ernu, eins og hún var gjarnan kölluð, sumarið 1984 og tókst með okk- ur góð vinátta sem stóð allar göt- ur síðan. Þótt Erna væri kannski ekki mikið fyrir að sýna tilfinn- ingar sínar þá sýndi hún á sinn hátt væntumþykju sína og ást. Erna var með sínum hætti hrjúf á yfirborðinu og sagði sínar skoðanir umbúðalaust ef svo bar undir og tókumst við stundum á um þjóðmálin. Við Ásdís dóttir hennar slitum samvistir árið 2002 en þó bar engan skugga á okkar vináttu og áfram kom ég til þeirra Ernu og Viðars að fá fyrst rótsterkan gulan Braga og eitthvað mildara seinni árin og létt spjall. Ég minnist þess eitt sinn er Erna skipulagði rútuferð inn á hálendið, sem mig minnir að hún hafi gert nokkrum sinn- um, er hún kom inn til okkar Ás- dísar og spurði hvort við kæmum ekki með Fjallabaksleið syðri, hún vissi að ég væri ekki mikið fyrir slíkt þar sem enski boltinn væri á laugardögum og ég vildi ekki missa af honum. Hún plat- aði okkur til þess að koma með í ferðina með því loforði að við kæmum heim sama dag en í ferðalaginu kom í ljós að gist var á leiðinni og ekki stóð til að koma heim fyrr en síðdegis á sunnudegi. Henni fannst þetta mjög fyndið og hló sig máttlausa og hafði þetta ferðalag lengi í minnum, en þess má geta að ég fór ekki í margar hálendisferðir eftir þetta. Ekki er hægt að minnast Ernu án þess að geta hennar einstöku hæfni í gerð brauðtertna, bæði skonsutertur og hennar einstöku humarbrauð- tertur, hún var líka einstaklega hjálpsöm við margt fólk þegar gera þurfti kökur og tertur við ýmis tilefni. Erna og Viðar fengu sérstök uppnefni hjá barnabörnunum, amma Lú og afi Safi, og fólk var nú margt mjög hissa á þessum nöfnum en þau festust algjörlega við þau. Erna og Viðar sýndu börnum okkar Ingunnar væntumþykju með gjöfum bæði á afmælum og jólum og fyrir þetta erum við þakklát. Ég fór viku fyrir andlát frú Guðríðar, eins og ég gjarnan kallaði hana, með Rannveigu dóttur mína og afabörnin mín, Ásdísi Ingu og Henning Thor, og langömmu- börn ömmu Lú í heimsókn í Sef- tjörnina og dreif Erna fram ís og meðlæti og Viðar myndaði í bak og fyrir, þetta var dýrmæt heim- sókn. Elsku Viðar vinur minn, Hall- dór, Ásdís, Atli og fjölskyldur og elsku börnin mín, Hólmfríður Erna, Viðar Örn og Katrín Arna, við Ingunn, Guðrún Birna og Rannveig Helga vottum innilega samúð við fráfall elsku Ernu. Kjartan Björnsson. G. Erna Halldórsdóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, HÖRN SIGURÐARDÓTTIR, lést að morgni sunnudagsins 4. mars á hjúkrunarheimilinu Mörk við Suðurlands- braut. Fyrir hönd aðstandenda, Ragnar A. Finnsson Jóhanna Ragnarsdóttir Sigurður Kr. Finnsson Stefán Agnar Finnsson Ingibjörg M. Pálsdóttir Guðmundur Eggert Finnsson Guðrún Þorvaldsdóttir Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HRAFN ÞÓRHALLSSON, Víkurbakka 18, lést á heimili sínu 17. febrúar. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Jóna Guðlaugsdóttir Þórhallur I. Hrafnsson Heba Bogadóttir María G. Hrafnsdóttir Hrafnhildur J. Hrafnsdóttir barnabörn og langafabörn Okkar kæri bróðir, mágur og frændi, JÓN STEINAR TRAUSTASON frá Vestmannaeyjum, lést á hjúkrunarheimilinu Árskógum í Reykjavík laugardaginn 24. febrúar. Útförin verður auglýst síðar. Ágústa Traustadóttir Guðmundur B. Sigurgeirsson Brynja Traustadóttir Sigurður Hafsteinsson Óli Ísfeld Traustason Bonny Harvey Steinunn Traustadóttir Ásta Traustadóttir Sigurður Stefánsson og systkinabörnin Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGURLAUG VILMUNDARDÓTTIR, Sólhlíð 19, Vestmannaeyjum, lést föstudaginn 2. mars. Marta Bergþórsdóttir Ásgeir Sverrisson Böðvar Vignir Bergþórsson Bryndís Guðjónsdóttir Ólafía Bergþórsdóttir Vildís Bergþórsdóttir Birgir Tómas Arnar barnabörn og langömmubörn Ástkær faðir, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR SNORRASON, Gnoðarvogi 76, 104 Reykjavík, lést miðvikudaginn 28. febrúar. Jarðarför auglýst síðar. Aðstandendur hins látna Ástkær sambýlismaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, HAUKUR JÓHANNSSON húsasmíðameistari, lést á Landspítalanum 18. febrúar. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Guðbjörg Helgadóttir Helga Hauksdóttir Þorkell Jónsson Sólveig Hauksdóttir Guðmundur Halldórsson Jóhann Hauksson Sigrún Magnúsdóttir Kristján Hauksson Kristrún Hauksdóttir Hjalti Þór Ragnarsson Guðrún Hauksdóttir Steingrímur Ásgrímsson og barnabörn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.