Morgunblaðið - 06.03.2018, Síða 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 2018
✝ Sigríður Jóns-dóttir fæddist
á Landspítalanum
6. apríl 1918. Hún
lést á hjúkrunar-
og dvalarheimilinu
Höfða á Akranesi
20. febrúar 2018.
Foreldrar henn-
ar voru Jón Ár-
mann Benediktsson
bóndi, ættaður frá
Eystri-Reyni í
Innri-Akraneshreppi, f. 16. des-
ember 1898, d. 2. desember
1963, og Valdís Ragnheiður
Jónsdóttir húsfreyja, ættuð frá
Leiti í Dýrafirði, f. 26. október
1892, d. 10. október 1962. Sig-
ríður var næstelst af sex systr-
um, eftirtaldar í aldursröð:
Bergþóra Baldvinsdóttir, f. 27.
desember 1913, d. 30. desember
1999, Margrét Ingunn Jónsdótt-
ir, f. 13. október 1919, d. 18.
september 1995, Matthildur
1944, fyrri maður Heinz Jensen
(látinn) og eiga þau tvo syni.
Seinni maður hennar er John
Henriksen. 4) Jón Ármann, f.
1946, kvæntur Ingibjörgu Guð-
jónsdóttur, búsett á Akranesi,
þau eiga þrjú börn, sjö barna-
börn og eitt langömmubarn. 5)
Einar Ottó, f. 1957, kvæntur
Önnu Guðfinnu Barðadóttur,
búsett á Akranesi, þau eiga
tvær dætur. Afkomendur Sig-
ríðar eru alls 52.
Sigríður ólst upp á Frakka-
stíg 6 í Reykjavík, síðar Fögru-
brekku við Langholtsveg. Hún
var mikil hannyrðakona,
saumakona og ræktaði blóm í
garðinum sínum. Á miðjum
aldri starfaði hún við afgreiðslu
í fataverslun, blómabúð og þrif
á sjúkrahúsinu. Sigríður er
fædd frostaveturinn mikla,
veiktist af spænsku veikinni og
var ekki hugað líf. Hún náði þó
þessum aldri og vantaði aðeins
44 daga í hundrað árin.
Útför Sigríðar fer fram frá
Akraneskirkju í dag, 6. mars
2018, klukkan 13.
Jónsdóttir, f. 8.
febrúar 1922, d. 13.
maí 2000, Katrín
Ruth Jónsdóttir,
f.11. maí 1927, d. 4.
október 2007 og
Guðbjörg Svanhild-
ur Jónsdóttir, f. 27.
nóvember 1930.
Sigríður giftist
25. júní 1937 Einari
Ottó Jónssyni f. 27.
október 1913, d. 11.
apríl 2002. Þau bjuggu lengst af
í Akurgerði 21 og í Akurprýði.
Börn þeirra eru 1) Sævar, f.
1937, kvæntur Ólöfu Ragnheiði
Angantýsdóttur og voru þau
búsett í Svíþjóð en þau eru lát-
in. Börn þeirra eru þrjú, eitt
látið, og eiga þau fimm barna-
börn. 2) Valdís, f. 1942, kvænt
Helga Hannessyni (látinn), bú-
sett á Akranesi, þau eiga tvo
syni, tíu barnabörn og tíu
langömmubörn. 3) Guðbjörg, f.
Elsku mamma.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfin úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Þín dóttir,
Valdís.
Mig langar að minnast Sigríð-
ar, eða Siggu eins og hún var allt-
af kölluð, með nokkrum orðum.
Ég hitti Siggu fyrst fyrir u.þ.b. 27
árum þegar ég kynntist syni
hennar, Sigga bjó þá á Akranesi
ásamt fjölskyldu sinni. Á þeim
tíma var ég óörugg og feimin að
hitta tilvonandi tengdamóður
mína , ég var með ýmsar hug-
myndir í kollinum , hélt t.d. að ég
yrði nú ekki nógu góð tengda-
dóttir. Ég þurfti ekki að hafa
áhyggjur, Sigga tók mér opnum
örmum og reyndist mér afar vel í
gegnum árin. Mér er ofarlega í
huga núna við leiðarlok , þegar ég
flutti frá Reykjavík og upp á
Akranes til að hefja sambúð með
syni hennar . Ég var þá ófrísk að
eldri dóttur okkar, ég þekkti eng-
an á Skaganum nema tengdafólk-
ið mitt. Eftir að ég flutti hafði
Sigga samband við mig á hverj-
um degi til að vita hvernig ég
hefði það, hún annað hvort kom
til mín eða hringdi, sama gerði
hún eftir að dóttir mín fæddist.
Ég hugsaði ekki mikið út í það á
þeim tíma , en ég sé það núna
hvað þetta var mér í raun mikils
virði, hún sýndi mér mikla um-
hyggju með þessu. Síðar eftir að
yngri dóttir mín fæddist fann ég
það að Sigga vildi vera til staðar
fyrir okkur ef á þyrfti að halda.
Hún var dætrum okkar góð
amma og fylgdist grannt með
þeim og hvað þær tóku sér fyrir
hendur. Sigga var mjög ákveðin
og stundum dálítið föst fyrir en
hún var réttsýn kona og ákaflega
hjálpsöm, það var gott að biðja
hana um aðstoð ef á þurfti að
halda. Ég held að Sigga hafi verið
heimakær, samt ferðaðist hún
mikið með manni sínum eftir að
árin færðust yfir. Þau fóru t.d. í
langa siglingu með skemmti-
ferðaskipinu Baltica um Miðjarð-
arhaf. Hún fór ófáar ferðirnar til
Svíþjóðar og Danmerkur að
heimsækja börnin sín og kom þá
brún og sælleg til baka. Sigga var
mikið fyrir fjölskylduna sína og
sinnti henni af kostgæfni meðan
krafta hennar naut við. Hún var
ákaflega gestrisin og ég held að
hún hafi notið þess að gera vel við
sína gesti. Hún var listræn og eft-
ir hana liggja falleg handverk.
Sigga hafði gaman af að búa til
góðan mat og hún var dugleg að
prófa hina ýmsu rétti í eldhúsinu.
Sigga og Einar maður hennar
komu sér upp sumarhúsi inn við
Miðvogslæk rétt utan við Akra-
nes. Þar dvöldu þau frá því
snemma að vori og til hausts. Ár-
ið 1989 fóru þau út í að byggja sér
einbýlishús á landareigninni, þar
voru þau með mikla trjárækt og
blómarækt, Sigga var aðallega í
blómaræktinni og var með gróð-
urhús, þar döfnuðu blómin vel í
hennar umsjá. Árið 1987 fengu
þau hjónin svo viðurkenningu
fyrir vel snyrtan og fallegan garð.
Sigga dvaldi á Dvalarheimilinu
Höfða á Akranesi þegar hún dó,
hún var þá búin að vera þar í 22
ár. Það var afar vel hugsað um
Siggu á dvalarheimilinu og á
starfsfólkið þar bestu þakkir
skildar fyrir hlýju og góða
umönnun. Það verða margir sem
sakna Siggu og hennar skarð
verður ekki fyllt, en við skulum
ylja okkur við ljúfar minningar
um góða konu. Ég vil að leiðar-
lokum þakka Siggu samfylgdina
og votta börnum hennar, tengda-
börnum og öðrum ástvinum sam-
úð mína. Blessuð sé minning
góðrar konu.
Anna G. Barðadóttir
Elsku amma mín, mikið er erf-
itt að kveðja þig. Þó að þú hafir
verið orðin 99 ára, alveg að verða
100 bara eftir einn mánuð, þetta
er búið að vera langt og gott
ferðalag hjá þér. Ég lít upp til
þín, flotta kona. Glæsileg, góð og
með góðan húmor. Ég man svo
vel eftir því þegar ég kom til þín
og afa upp á Stykki í fallega garð-
inn ykkar og heita pottinn. Þegar
þið fluttuð inn í nýja húsið sem
var byggt rétt fyrir ofan gamla
húsið, það var sem draumi líkast
að koma í sveitina þar sem þú og
afi voruð að sýslast í garðinum
ykkar og gleymi ég aldrei fallegu
sólstofunni sem var stútfull af
blómum og fallegum plöntum.
Mikið var um veislur og við
krakkarnir sátum í kássu inní
sjónvarpsherbergi að horfa á
VHS-spólur sem þú hafðir tekið
upp barnaefni á fyrir okkur, þú
hugsaðir fyrir öllu. Skemmtileg-
asta og eftirminnilegasta barna-
efnið var Klaufabárðarnir. Leið
þín lá frekar snemma uppá Dval-
arheimilið Höfða en þú fylgdir
þínum manni sem var orðinn
veikur og þurfti góða umönnun.
Þegar afi fór varstu mjög sorg-
mædd en svo sterk, þú elskaðir
hann svo mikið og hefur alltaf
haldið áfram að tala um hann og
haldið minningunni hans lifandi
með því að segja mér sögur um
ykkur. Hvernig þið kynntust á
ballinu sem þú og systir þín fóru á
og margt fleira sem þú sagðir
mér frá. Mér fannst gaman að
hlusta á þig og fræðast um ykkur.
Alltaf varstu svo fín, fallegu lökk-
uðu neglurnar þínar og þú með
mikið glingur, man svo vel að ég
ætlaði alltaf að vera svona fín eins
og þú. Við vorum vinkonur, þú
hringdir oft í mig stökum sinnum
rukkaðir þú mig um heimsókn ef
ég var ekki búin að láta sjá mig
lengi. Við fórum margoft rúnt
saman og einkenndist oft sá rúnt-
ur af því að koma við í sjoppu og
fá okkur pylsu og appelsín í gleri.
Svo fékkstu þér nesti með þér í
leiðinni, samloku með hangikjöti
og baunasalati. 27. október 2009,
sem er einnig afmælisdagurinn
hans afa, eignaðist ég drenginn
minn, hann Daníel, sem lifði að-
eins í klukkustund, eftir fulla
meðgöngu. Þú vildir að hann yrði
jarðaður hjá afa Einari sem
myndi passa hann fyrir mig og
svo þegar þinn tími kæmi færir
þú þá til þeirra beggja. Ég er
ótrúlega þakklát fyrir að þú takir
þetta hlutverk að þér þangað til
minn tími kemur. Ég á ekki orð
sem lýsa því hversu þakklát ég er
að hafa þekkt þig og þú hefur allt-
af hugsað svo vel um mig. Þú
hjálpaðir mér í gegnum mína
sorg og spurðir oft þegar ég kom
til þín hvort ég væri ekki búin að
heimsækja þá upp í kirkjugarð,
þú lést þá skipta máli og þeir voru
okkar. Það hlýjar mér svo þegar
ég og mamma komum til þín um
daginn og þú ljómaðir öll við að
sjá okkur og hlóst með okkur
mæðgum þrátt fyrir að hafa verið
mikið veik. Þér þótti vænt um
okkur báðar, við fundum það og
þú fékkst alltaf stjörnur í augun
þegar mamma mín kom til þín.
Þér fannst svo gaman að tala við
hana og hún skipti þig máli og
mér þykir mjög vænt um hvað þú
sýndir okkur mikla athygli. Ég
veit þú hefur það gott hjá öllu frá-
bæra fólkinu okkar og nóg að
gera með lítið barn í fangi núna,
mér þykir vænt um þig.
Þín
Bryndís.
Elsku amma.
Það er erfitt að hugsa til þess
að þú sért farin. Það var eins og
þú yrðir alltaf hjá okkur. Þrátt
fyrir háan aldur hristir þú af þér
flest veikindi og náðir alltaf heilsu
á ný. Enda varstu lífsglöð og
hlakkaðir mikið til aldarafmælis-
ins. Það er ekki sjálfgefið að eiga
ömmu sem nær þessum aldri og
fyrir það er ég mjög þakklát.
Við áttum ótal margar góðar
stundir. Jólin sem við eyddum
saman í Akurprýði, fjöldinn allur
af föstudagskvöldum þar sem við
pabbi komum til þín og horfðum á
Idolið, stundirnar sem við eydd-
um í garðinum á góðviðrisdögum
og í heita pottinum og þegar við
ræddum naglalakk hvor annarrar
svo fátt eitt sé nefnt. Þú varst
alltaf með naglalakk og vel til
fara, með skartið þitt og gjarnan
nýkomin úr lagningu. Ég hef það
frá þér að vilja alltaf vera með
naglalakk og þú bentir mér
gjarnan á að naglalakkið mitt
væri fallegt, ef þér fannst svo og
líka ef þér fannst það ekkert sér-
stakt, en það var nú oftar á hinn
veginn.
Eitt sumarið þegar ég var í
unglingavinnunni fékk ég það
verkefni ásamt fleirum að fara
upp á Höfða og fara í gönguferð
með gamla fólkinu. Þú varst ekki
vön að fara með í þessar göngu-
ferðir en komst með af því að ég
var þarna og ég keyrði þig í hjóla-
stólnum meðfram Langasandi á
meðan við spjölluðum og nutum
útsýnisins.
Það var alltaf gott að koma til
þín. Lengi vel bauðstu okkur
gjarnan upp á namm og kókó. Þér
fannst mikilvægt að eiga eitthvað
til þegar gesti bar að garði og
minntir okkur á að fara í ísskáp-
inn og jafnvel að fá okkur ábót
eða taka með í nesti. Það var af-
skaplega notalegt að sitja hjá þér,
umvafinn myndum af stórfjöl-
skyldunni sem var þér mjög kær
og tala um daginn og veginn. Þú
talaðir þó ekki um sjálfa þig en
Sigríður Jónsdóttir
Elskulegur eiginmaður, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
JÓN ÞÓR KARLSSON
skipstjóri,
Breiðuvík 16,
verður jarðsunginn frá Langholtskirkju
föstudaginn 9. mars klukkan 13.
Helga Ólafsdóttir
Karl Þorvaldur Jónsson
Lilja Jónsdóttir
Þórdís María Jónsdóttir
Ólafur Páll Jónsson Birna Sigurðardóttir
Ágúst Sturla Jónsson Oddný Hróbjartsdóttir
barnabörn og barnabarnabarn
Móðir okkar,
RAGNHEIÐUR ESTER
GUÐMUNDSDÓTTIR,
Þröm,
Laugarvatni,
er látin.
Útför verður frá Skálholtskirkju laugardaginn
17. mars klukkan 14.
Börnin
Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir og
amma,
ALDA MARKÚSDÓTTIR,
lést laugardaginn 3. mars
á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund.
Margrét Eggertsdóttir Guðbjörn Sigurmundsson
Hildur Guðbjörnsdóttir
Árni Guðbjörnsson
Alda Kristín Guðbjörnsdóttir
Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir, afi
og langafi,
MAGNÚS Á. GUÐMUNDSSON,
dvalarheimilinu Höfða,
áður Grundartúni 8, Akranesi,
lést 24. febrúar.
Útförin fer fram frá Akraneskirkju fimmtudaginn 8. mars,
klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim
sem vilja minnast hans er bent á hjúkrunar- og dvalarheimilið
Höfða.
Sigríður H. Magnúsdóttir Jón Magni Ólafsson
Skúli Magnússon Sigríður O. Jónsdóttir
barnabörn og langafabörn
Okkar ástkæri
BÖÐVAR PÁLSSON,
Búrfelli, Grímsnesi,
lést laugardaginn 3. mars. Útförin fer fram í
Skálholtsdómkirkju laugardaginn 10. mars
klukkan 14.
Lísa Thomsen
Sigurður Böðvarsson Guðrún Bragadóttir
Laufey Böðvarsdóttir
Bryndís Á. Böðvarsdóttir Pétur Ingi Haraldsson
Anna Ýr Böðvarsdóttir Sigurður Benediktsson
Lára Böðvarsdóttir Sturla Jónsson
barnabörn og barnabarnabarn
Ástkær móðir okkar,
AUÐUR GUÐJÓNSDÓTTIR,
Strandgötu 41,
Akureyri,
lést á Landspítalanum fimmtudaginn
1. mars. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju
föstudaginn 9. mars klukkan 15.
Blóm og kransar afþakkað en þeim sem vilja minnast hennar er
bent á að styðja starfsemi Hjálparstofnunar kirkjunnar.
Kristín Kristjánsdóttir
Helga Kristjánsdóttir
Marteinn Kristjánsson
Elskuleg eiginkonan mín, móðir,
tengdamóðir, amma og langamma
BETA EINARSDÓTTIR
hjúkrunarkona, Langholtsvegi 39
lést föstudaginn 2. mars á Skjóli.
Útför fer fram þriðjudaginn 13. mars
klukkan 15. í Áskirkju. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir.
Fjalarr Sigurjónsson
Anna Fjalarsdóttir Gísli Skúlason
Máni Fjalarsson Anna Einarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Okkar ástkæri
HJÖRLEIFUR BERGSTEINSSON,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Eir,
Hlíðarhúsum 7, Reykjavík, þriðjudaginn
20. febrúar.
Útför hans verður í kyrrþey að ósk hins
látna.
Aðstandendur vilja sérstaklega þakka starfsfólki á Eiri fyrir
frábæra umönnun.
Aðalheiður Bergsteinsdóttir
Guðný Bergsteinsdóttir
Ísleifur Marz Bergsteinsson