Morgunblaðið - 06.03.2018, Side 27
Laufey var bæjarfulltrúi fyrir
Sjálfstæðisflokkinn í Garðabæ 1990-
2006, sat í bæjarráði, var forseti bæj-
arstjórnar frá 1990 og lengst af síðan
til 2006, var formaður félagsmála-
nefndar, skipulagsnefndar og sat í
ýmsum öðrum ráðum og nefndum á
vettvangi sveitarstjórnarmála.
Laufey var framkvæmdastjóri
Plúsferða frá stofnun, 1995-2008.
Hún var sveitarstjóri Hvalfjarðar-
sveitar 2008-2014, við góðan orðstír,
en sveitarfélagið varð til við samein-
ingu fjögurra hreppa 2006.
Laufey var fararstjóri á Mallorca
sumrin 2015 og 2016, hefur verið far-
arstjóri í skemmtisiglingum og hefur
sinnt leiðsögn hér á landi fyrir er-
lenda ferðamenn frá 2016.
Laufey var formaður svæðis-
skipulagsráðs höfuðborgarsvæðisins,
var í starfshópi sveitar- og bæjar-
stjóra á Vesturlandi við endurskoðun
á starfsemi SSV, stýrði stefnumótun
við lagningu ljósleiðara í Hvalfjarðar-
sveit og við hitaveituvæðingu Hval-
fjarðarsveitar, sat í stjórn Eignar-
haldsfélagsins Spalar, 2010-2014, sat í
framkvæmdastjórn Kvennahlaups í
Garðabæ 1882-2003 og lengst af for-
maður og var formaður og stjórnar-
maður Strætó bs. og Almennings-
vagna 1994-2002.
Laufey hefur starfaði í Lionshreyf-
ingunni í rúm 30 ár, sinnt þar fjölda
trúnaðarstarfa, m.a. verið umdæmis-
stjóri og fjölumdæmisstjóri fyrst
kvenna hér á landi 1996 og 1997 og
var aðalhvatamaður og bakvörður
Lionsverkefnisins Rauða fjöðrin. Á
sama tíma stýrði hún samstarfi
Lionshreyfinganna á Norðurlöndum,
hefur starfað í Kvenfélaginu í Hrísey
og Kvenfélagi Garðabæjar og verið
gjaldkeri þess, sat í stjórn, var forseti
og ritari Inner Wheel í Görðum 2004-
2017 og í sóknarnefnd Garðasóknar
2015-2017.
Fjölskylda
Eiginmaður Laufeyjar er Skúli
Gunnar Böðvarsson, f. 7.10. 1948,
sölumaður. Foreldrar hans voru
hjónin Böðvar Sigurðsson, f. 1.8.
1916, d. 1.7. 1985, trésmíðameistari í
Hafnarfirði og einn af stofnendum
Skipasmíðastöðvarinnar Drafnar, og
Marta Jónsdóttir, f. 25.6. 1915, d.
4.12. 1988, hárgreiðslumeistari.
Börn Laufeyjar og Skúla eru: 1)
Marta María, f. 12.5. 1968, tækni-
fræðingur, búsett í Garðabæ, gift
Arnóri S. Árnasyni og eru börnin
Margrét Laufey og Skúli Snær; 2)
Hjördís Ýrr, f. 22.9. 1973, kennari,
búsett í Hafnarfirði, gift Þórarni Þór-
arinssyni og eru börn þeirra Úlfur,
Breki og Rán, og 3) Jóhann Böðvar, f.
5.6. 1978, húsasmíðameistari, búsett-
ur í Garðabæ, kvæntur Guðrúnu Hin-
riksdóttur og eru börn þeirra Óskar
Már og Laufey Katrín.
Bræður Laufeyjar eru Árni for-
stöðumaður, búsettur á Seltjarnar-
nesi, og Kristján framkvæmdastjóri
búsettur í Hafnarfirði.
Foreldrar Laufeyjar voru hjónin
Sigríður Magnúsdóttir, f. 14.6. 1924,
d. 2016, verslunarmaður, og Jóhann
Kristján Árnason, f. 23.3. 1923, d.
2013, skipasmíðameistari.. Þau voru
frumbyggjar í Vogahverfinu og
bjuggu nær allan sinn búskap í
Njörvasundi í Reykjavík.
Jóhanna Laufey
Jóhannsdóttir
Ingibjörg Steinun Eyjólfsdóttir
húsfr. í Sandgerði
Jóhann Kristján Árnason
sjóm. í Sandgerði
Árni Jóhannsson
skipasmíðam. í Rvík
Jóhanna Laufey Guðmundsdóttir
húsfr. í Rvík
Jóhann Kristján Árnason
skipasmíðameistari í Rvík
Guðrún Jónsdóttir
húsfr. í Hrísey
Guðmundur Erlendsson
útvegsm. í Hrísey
Birgir Blöndal fyrrverandi
sviðsstjóri hjá Samtökum
sveitarfélaga
Svava Árnadóttir
húsfr. í Rvík
igríður Johnson
gjaldkeri í Rvík
SÁgústa Karlotta Sigrún Johnson
deildarstjóri í Seðlabanka
Sigríður Jóhannsdóttir
húsfr. í Rvík
Guðjón Valur Sigurðsson
handboltakappi
Jóhannes
Sigurðsson
húsasmiður
Sigurður Helgi
Jóhannesson
kjötiðnaðarm.
Sigurður Helgi
Jóhannsson
sjóm. og
vaktm. í Rvík
Sigurjón Sigurðsson
skrifstofum. í Rvík
Kristján Sigurjónsson
fréttam. á RÚV
Árni Jóhannsson fyrrv.
formaður Útivistar
Kristján Jóhannsson
framkvæmdastj. LS Retail
Elías Þórarinn
Magnússon form.
í Bolungarvík
Guðmunda Elíasdóttir
söngkona
Jóna Magnúsdóttir
húsfr. í Bolungarvík
Sumarliði Magnússon
sjóm. í Bolungarvík
Guðbjörg Sumarliðadóttir
húsfr. á Ísafirði og í Rvík
Ragna Magnúsdóttir lengi
bókhaldari við Morgunblaðið
Magnús Skaftason Guðjónsson
sjóm. á Ísafirði og í Rvík
Sigríður Halldórsdóttir
húsfr. á Ísafiði
Guðjón Magnússon
verkam. á Ísafirði
Úr frændgarði Jóhönnu Laufeyjar Jóhannsdóttur
Sigríður Magnúsdóttir
verslunarm. í Rvík
Afmælisbarnið Jóhanna Laufey.
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 2018
Vertu viðbúinn vetrinum
LÉTTAR – STERKAR – TRAUSTAR
SNJÓKEÐJUR
Hafðu samband og kynntu þér
vöruúrvalið og þjónustuna
Agnar Guðmundson fæddist íKaupmannahöfn 6.3. 1914.Foreldrar hans voru Júlíus
Guðmundsson stórkaupmaður og
k.h., Elín Stephensen húsfreyja.
Júlíus var sonur Stefáns Guð-
mundssonar verslunarstjóra og
Andreu Nielsdóttur Weywadt, en
Elín var dóttir Magnúsar Stephen-
sens landshöfðingja og Elínar Jón-
asardóttur Thorstensen.
Eiginkona Agnars var Birna Pet-
ersen húsfreyja sem lést 1969, dóttir
Hans Petersen stórkaupmanns og
Guðrúnar Jónsdóttur húsfreyju.
Börn Agnars og Birnu: Guðrún,
læknir og fyrrv. alþm. og forstjóri
Krabbameinsfélags Íslands; Hans,
fyrrv. framkvæmdastjóri; Elín,
fyrrv. sölustjóri, og Júlíus fram-
kvæmdastjóri sem lést 2013.
Agnar lauk gagnfræðaprófi í
Reykjavík 1929, verslunarskólaprófi
í Englandi 1933 og stýrimannaprófi í
Reykjavík 1939.
Agnar fór ungur til sjós, var á
síldveiðibátum, varðskipinu Óðni og
norskum og dönskum skipum, háseti
og stýrimaður á togurum 1939-44,
sigldi þá margar ferðir með fisk til
Bretlands á skipum er lentu í svað-
ilförum, var t.d. stýrimaður á Arin-
birni hersi er skipið varð fyrir vél-
byssu- og sprengjuárás þýskrar
flugvélar við Englandsstrendur.
Agnar var verkstjóri í Bretavinn-
unni, vann hjá Fiskimálanefnd,
Jarðborunum ríkisins, kynnti sér
bortækni í Bandaríkjunum og var
bormeistari ríkisins 1947-51 og vann
með Gunnari Böðvarssyni verkfræð-
ingi að jarðborunum eftir heitu
vatni, gufu og neysluvatni víðs vegar
um landið.
Hann var stýrimaður, skipstjóri
og fyrsta íslenska hvalskyttan, á
hvalbátum Hvals, hafði umsjón með
viðhaldi og viðgerðum skipanna og
sinnti jafnhliða öðrum störfum 1954-
70, var skoðunarmaður sjótjóna hjá
Sjóvá 1956-68, skoðunarmaður hjá
Könnun ehf., Lloyds umboðinu á Ís-
landi 1968-71 og framkvæmdastjóri
þess 1971-79.
Agnar lést 31.1. 2002.
Merkir Íslendingar
Agnar Guðmundsson
95 ára
Málfríður A. Sigurðardóttir
90 ára
Elín Eggerz Stefánsson
Elvira Christel Einvarðsson
Guðný Gunnlaugsdóttir
85 ára
Hörður Gíslason
80 ára
Aðalsteinn Hallsson
Gíslína Erla Eyþórsdóttir
Jóhannes G. Haraldsson
Jóhann H. Haraldsson
Sigurður Kristinsson
Steinunn Sigurmundsdóttir
75 ára
Kristján Jón Guðnason
Lúðvík Lúðvíksson
Ragnhildur Antonsdóttir
70 ára
Árni Hjaltason
Ester Hansen
Gunnar Kjartansson
Herdís J. Skarphéðinsdóttir
Ingi Þór Reyndal
Laufey Jóhannsdóttir
Lára J. Einarsdóttir
Sigríður Guðbj.
Guðmundsdóttir
Sigrún Guðnadóttir
Sævar Stefánsson
60 ára
Andris Grietens
Erling Guðnason
Fannar Eyfjörð Skjaldarson
Guðmundur Magnússon
Gunnar Valur Gíslason
Halldór Lárus Pétursson
Helga Hallbjörg
Vigfúsdóttir
Ragnar Guðni Axelsson
Sigurveig Björk Árnadóttir
Sigurvin Jónsson
Þorleifur Óskarsson
Þórir Ingvarsson
50 ára
Andrés Erlingsson
Ásta S. Benediktsdóttir
Ívar Hlíðdal Sveinsson
Jakob Pálsson
Jóhanna M. Kristjánsdóttir
Kolbrún Björk Snorradóttir
Linda Sörensen
Malgorzata Kozlowska
Sigríður V. Jóhannesdóttir
Virgilijus Arulis
Ægir Örn Sveinsson
40 ára
Alina Dorota Gmur
Árni Már Kjartansson
Björgvin Björgvinsson
Jón Freyr Benediktsson
Jón Sigtryggsson
Kristjana B. Arnbjörnsdóttir
Michael Höffding Dyrhauge
Ragnheiður Ásgeirsdóttir
Sárka Bartusková
Theodóra S. Sigurðardóttir
Tómas Guðmundsson
Vilhelmína Vilhjálmsdóttir
30 ára
Aðalbjörg Þ. Hjartardóttir
Auður Rakel Georgsdóttir
Baohui Li
Berglind Björk Bjarkadóttir
Guðmundur Kjartansson
Helga Sif Grétarsdóttir
Jenný Lind S. Herlufsen
Lukasz Tekien
Maria Natale E. Alvarez
Pétur Þór Elíasson
Rúnar Már Þráinsson
Sigurgeir Snævar Árnason
Sveinn Ævar Sveinsson
Til hamingju með daginn
30 ára Sveinn ólst upp í
Garðabæ, býr í Kópavogi,
lauk sveinsprófi í múr-
verki, er með BA-próf í
lögfræði, er að ljúka ML-
ritgerðinni frá HR, og er
lögfræðingur hjá Lög-
mönnum Sundagörðum.
Maki: Eydís María Ólafs-
dóttir, f. 1994, nemi.
Foreldrar: Dagný Helga-
dóttir, f. 1948, búsett í
Reykjavík, og Sveinn
Kristóson, f. 1944, d.
2000, bakarameistari.
Sveinn Ævar
Sveinsson
30 ára Berglind ólst upp
á Drangsnesi, býr í Kópa-
vogi, lauk MSc-prófi í
markaðsfræði og alþjóða
viðskiptum frá HÍ og er
flugfreyja hjá Icelandair.
Maki: Ari Már Arason, f.
1981, sjómaður.
Börn: Kolbrún Lilja, f.
2009, og Almar Ari, f.
2016.
Foreldrar: Linda Guð-
brandsdóttir, f. 1959, d.
2013, og Bjarki Péturs-
son, f. 1959.
Berglind Björk
Bjarkadóttir
30 ára Auður ólst upp í
Lúxemborg, er nýflutt í
Mosfellsbæ og stundar
nám í sálfræði við HA.
Maki: Agnar Friðrik Agn-
arsson, f. 1985, krana-
maður og kennari.
Börn: Alma Hlökk, f.
2011, og Myrkvi Hrafn, f.
2013.
Foreldrar: Elísabet Iðunn
Einarsdóttir, f. 1968, mat-
ráður, og Georg Þorkels-
son, f. 1965, flugvirki. Þau
eru búsett í Mosfellsbæ.
Auður Rakel
Georgsdóttir