Morgunblaðið - 06.03.2018, Side 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 2018
Stríðsglæpamaður fer hulduhöfði í stórborg. Hann ereftirlýstur, en nýturverndar og skjóls í heima-
landi sínu. Hann á erfitt með að
láta lítið fyrir sér fara, finnst að
gamall herforingi, sem hefur staðið
vaktina fyrir málstaðinn, eigi ekki
að vera hafður í felum eins og
menn skammist sín fyrir hann.
Það er ekkert langsótt við sögu-
þráðinn í myndinni Venjulegur
maður. Stríðsglæpadómstóllinn í
Haag, sem stofnaður var til að
fjalla um stríðsglæpi í gömlu Júgó-
slavíu var leystur upp í desember
eftir að hafa starfað í 24 ár. 161
kæra var lögð fram í réttinum.
Meðal hinna ákærðu voru kunn-
ugleg nöfn á borð við Slobodan
Milosevic, Radovan Karadic og
Ratko Mladic. Tveir þeir síðast-
nefndu fóru einmitt lengi vel huldu
höfði í Serbíu. Karadzic starfaði við
einhvers konar náttúrulækningar í
klínik í Serbíu undir fölsku nafni
allt til 2008 að hann var handtek-
inn. Því var haldið fram að hann
hefði ferðast til Feneyja og sótt
leiki í ítölsku knattspyrnunni á
meðan hann var eftirlýstur.
Mladic naut verndar serbneskra
stuðningsmanna allt frá 1997 þegar
aðgerðir voru hertar til að hafa
uppi á stríðsglæpamönnum. Hann
sást á fótboltaleikjum og veit-
ingastöðum í Belgrað. Það var ekki
fyrr en 2011 að serbnesk stjórn-
völd lýstu yfir því að hann hefði
verið handtekinn, að sögn eftir að
hafa fengið nafnlausa ábendingu.
Þá var utanaðkomandi þrýstingur
um að hafa hendur í hári hans orð-
inn mikill.
Herforinginn í myndinni er í
svipaðri stöðu. Það er ljóst þegar
hann fer um borgina að hann er
þekktur. Vegfarendur ýmist fölna
upp eða fyllast lotningu þegar þeir
verða á vegi hans. Í eitt skipti blas-
ir við mynd af honum eftir veggja-
krotara þegar hann er á ferð um
borgina, sem væntanlega er Belgr-
að þar sem myndin var tekin.
Myndin hefst þar sem herforing-
inn hefur enn einu sinni óhlýðnast
og látið sjá sig á almannafæri
þannig að flytja þarf hann á nýjan
felustað. Hann hefur vart komið
sér fyrir í íverustað þegar lykli er
snúið í skránni og inn kemur kona,
sem segist heita Tanja og vera
ráðskona fyrri íbúa.
Myndin hverfist um samband
herforingjans og Tönju. Fyrsta at-
riðið í samskiptum þeirra vekur
reyndar furðu. Hann lætur hana
afklæðast með öllu, væntanlega til
þess að fullvissa sig um að hún sé
sú sem hún segist vera, en erfitt er
að sjá hvers hann eigi að verða vís-
ari með því að sjá hana án klæða
og kannski óhætt að taka fram án
þess að gefa of mikið upp að þetta
er ekki forsmekkur að ástar- eða
ofbeldissambandi. Nær væri að
segja að myndin fjallaði um stríðs-
glæpamann og barnapíuna hans.
Hera Hilmarsdóttir leikur Tönju
og gerir það af mikilli list. Sam-
leikur hennar og Kingsleys í hlut-
verki herforingjans er á köflum
magnaður. Hún er hikandi og var-
kár, furðu áhugalaus um afdrif
fyrrverandi vinnuveitanda síns, en
fellst þó á að gerast ráðskona her-
foringjans, sem er augljóst að hún
veit hver er.
Hann er agaður að hermanna
sið, en er það vanur að gefa skip-
anir að hann á erfitt með að hlýða.
Honum finnst Tanja hafa ein-
angrað sig í skel sinni og á erfitt
með að skilja að unga kynslóðin í
landinu kæri sig kollótta um verk
hans kynslóðar.
Honum finnst að hún eigi að
hafa meiri metnað, en áttar sig
kannski ekki á að kynslóð hennar
er undir fargi þeirrar kynslóðar,
sem splundraði gömlu Júgóslavíu
og ber ábyrgð á óhæfuverkum
borgarastyrjaldarinnar á Balk-
anskaga.
Magnað tvíeyki
Kingsley er orðinn 73 ára gamall
og leikferill hans spannar hálfa öld
og rúmlega það. Hann er fjölhæfur
leikari og hefur aldrei fest í
ákveðnum rullum, hvorki sem
skúrkur né hetja, og þjóðerni
þvælast ekki fyrir honum. Hann
fékk Óskarsverðlaun fyrir túlkun
sína á Gandhi, frelsishetju Ind-
verja, og lék gyðinginn Itzhak
Stern í Lista Schindlers eftir Ste-
ven Spielberg.
Leikaraferill Heru er öllu
styttri, en hún stendur fyllilega
jafnfætis Kingsley á hvíta tjaldinu.
Hera hefur oft sýnt hvers hún er
megnuð og má þar nefna frammi-
stöðu hennar í kvikmyndinni Von-
arstræti og leikritinu Andaðu, sem
sýnt var í Iðnó fyrir tveimur árum,
og staðfestir hér hversu góður leik-
ari hún er. Það segir líka sitt að
Kingsley, sem skráður er framleið-
andi myndarinnar, vildi fá Heru til
að leika á móti sér í myndinni eftir
að hafa leikið með henni í mynd-
inni The Ottoman Lieutenant.
Heimspekingurinn Hannah
Arendt skrifaði á sínum tíma um
hversdagsleika illskunnar þegar
hún fjallaði um réttarhöldin yfir
Adolf Eichmann í Jerúsalem. Það
er þægilegast fyrir okkur að ill-
menni séu ómannleg, handan ein-
hverra marka, sem útilokað sé að
venjulegt fólk geti stigið yfir.
Venjulegur maður vekur margar
spurningar. Er herforinginn
skrímsli? Illskan holdi klædd?
Hvernig á að umgangast slíkan
mann? Getur slíkur maður kennt
öðrum að meta gildi hlutanna? Er
réttlætanlegt að elda mat ofan í
slíkan mann? Og hvað á maður að
gera ef hann réttir manni flug-
beittan rakhníf og biður um hjálp
við raksturinn? Er hægt að gleyma
ódæðisverkum hans eða horfa
framhjá þeim?
Í Serbíu er sú tilfinning sterk að
Serbar hafi verið fórnarlömb, en
ekki gerendur, og hinir eftirlýstu
hafi ekki verið stríðsglæpamenn,
heldur frelsishetjur. Í Belgrað
voru rústir stjórnarbygginga, sem
bandamenn vörpuðu á sprengjum
til að stöðva þjóðernishreins-
anirnar í Kosovo, látnar standa
óhreyfðar til að undirstrika að
Serbar hefðu verið órétti beittir.
Serbía er ekkert einsdæmi í
þessum efnum. Í Rúanda hafa
ódæðismenn starfað áfram í emb-
ættismannakerfinu og sömu sögu
var að segja í Vestur-Þýskalandi
eftir fall nasismans og Rússlandi
eftir hrun kommúnismans. Í Búda-
pest í Ungverjalandi er hryllings-
safn um fasismann og komm-
únismann. Þar er kvikmynd af
gjörningi þar sem ódæðismenn
koma inn, skipta um búning og
arka síðan út tilbúnir til að halda
áfram undir nýjum merkjum.
Í Bosníu Hersegóvínu búa and-
stæðingar úr borgarastríðinu hlið
við hlið. Það er hversdagslegur at-
burður að rekast á banamenn
bræðra og sona, vina og ættingja.
Skilin á milli fylkinga skerpast,
frekar en hitt og sumir telja að
enda muni með ósköpum takist
ekki að snúa þróuninni við.
Hér er rætt um hvenær menn
hafi afplánað refsingu fyrir glæpi
sína og hvort sumir glæpir séu
þess eðlis að það muni aldrei ger-
ast.
Venjulegur maður er ekki galla-
laus mynd, en góður leikur heldur
henni uppi og hún vekur ágengar
og þarfar spurningar.
Venjulegur maður? Stríðsglæpamaðurinn réttir ráðskonunni rakhníf. Ben Kingsley og Hera Hilmarsdóttir í hlut-
verkum sínum í kvikmyndinni Venjulegur maður sem sýnd er á kvikmyndahátíðinni Stockfish.
Barnapía stríðs-
glæpamanns óskast
Kvikmyndahátíðin Stockfish –
Bíóparadís
Venjulegur maður (An Ordinary Man)
bbbmn
Leikstjóri: Brad Silberling. Leikarar: Ben
Kingsley, Hera Hilmarsdóttir, Peter Se-
rafinowicz. Bandaríkin. Enska. 90 mín.
2017.
KARL BLÖNDAL
KVIKMYNDIR
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
Rocky Horror (Stóra sviðið)
Fös 16/3 kl. 20:00 Frums. Sun 8/4 kl. 20:00 7. s Lau 28/4 kl. 20:00 25. s
Sun 18/3 kl. 20:00 2. sýn Mið 11/4 kl. 20:00 aukas. Mið 2/5 kl. 20:00 26. s
Mið 21/3 kl. 20:00 aukas. Fim 12/4 kl. 20:00 aukas. Fim 3/5 kl. 20:00 27. s
Fim 22/3 kl. 20:00 aukas. Fös 13/4 kl. 20:00 aukas. Fös 4/5 kl. 20:00 28. s
Fös 23/3 kl. 20:00 3. s Lau 14/4 kl. 20:00 8. s Lau 5/5 kl. 20:00 29. s
Lau 24/3 kl. 20:00 4. s Sun 15/4 kl. 20:00 9. s Sun 6/5 kl. 20:00 30. s
Sun 25/3 kl. 20:00 5. s Mið 18/4 kl. 20:00 aukas. Þri 8/5 kl. 20:00 31. s
Þri 27/3 kl. 20:00 aukas. Fim 19/4 kl. 20:00 10. s Mið 9/5 kl. 20:00 32. s
Mið 4/4 kl. 20:00 aukas. Fös 20/4 kl. 20:00 11. s Fös 11/5 kl. 20:00 33. s
Fim 5/4 kl. 20:00 aukas. Lau 21/4 kl. 20:00 aukas. Lau 12/5 kl. 16:00 34. s
Fös 6/4 kl. 20:00 6. s Sun 22/4 kl. 20:00 12. s Fim 17/5 kl. 20:00 35. s
Lau 7/4 kl. 20:00 aukas. Fim 26/4 kl. 20:00 13. s Fös 18/5 kl. 20:00 36. s
Besta partý sem þú munt nokkurn tímann upplifa.
Elly (Stóra sviðið)
Fös 9/3 kl. 20:00 135. s Sun 11/3 kl. 20:00 137. s
Lau 10/3 kl. 20:00 136. s Lau 17/3 kl. 20:00 138. s
Sýningar haustið 2018 komnar í sölu.
Brot úr hjónabandi (Litla sviðið)
Fim 8/3 kl. 20:00 58. s Lau 10/3 kl. 20:00 60. s
Fös 9/3 kl. 20:00 59. s Sun 11/3 kl. 20:00 Lokas.
Allra síðustu aukasýningar komnar í sölu.
Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið)
Fös 13/4 kl. 20:00 Frums. Lau 21/4 kl. 20:00 aukas. Sun 29/4 kl. 20:00 10. s
Lau 14/4 kl. 20:00 2. s Sun 22/4 kl. 20:00 6. s Mið 2/5 kl. 20:00 11. s
Sun 15/4 kl. 20:00 3. s Mið 25/4 kl. 20:00 7. s Fim 3/5 kl. 20:00 aukas.
Mið 18/4 kl. 20:00 aukas. Fim 26/4 kl. 20:00 8. s Fös 4/5 kl. 20:00 12. s
Fim 19/4 kl. 20:00 4. s Fös 27/4 kl. 20:00 aukas. Lau 5/5 kl. 20:00 13. s
Fös 20/4 kl. 20:00 5. s Lau 28/4 kl. 20:00 9. s Sun 6/5 kl. 20:00 14. s
Komumst við vímulaus af í geggjuðum heimi?
Sýningin sem klikkar (Nýja sviðið)
Lau 24/3 kl. 20:00 Frums. Sun 8/4 kl. 20:00 7. s Mið 18/4 kl. 20:00 14. s
Sun 25/3 kl. 20:00 2. s Þri 10/4 kl. 20:00 8 .s Fim 19/4 kl. 20:00 15. s
Þri 27/3 kl. 20:00 3. s Mið 11/4 kl. 20:00 9. s Fös 20/4 kl. 20:00 16. s
Mið 4/4 kl. 20:00 4. s Fim 12/4 kl. 20:00 10. s Lau 21/4 kl. 20:00 18. s
Fim 5/4 kl. 20:00 aukas. Fös 13/4 kl. 20:00 11. s Sun 22/4 kl. 20:00 19. s
Fös 6/4 kl. 20:00 5. s Lau 14/4 kl. 20:00 12. s Fim 26/4 kl. 20:00 20. s
Lau 7/4 kl. 20:00 6. s Sun 15/4 kl. 20:00 13. s Fös 27/4 kl. 20:00 21. s
Það er alveg öruggt að þetta fer úrskeiðis!
Slá í gegn (Stóra sviðið)
Fim 8/3 kl. 19:30 Auka Lau 24/3 kl. 19:30 11.sýn Lau 14/4 kl. 19:30 16.sýn
Fös 9/3 kl. 19:30 6.sýn Sun 25/3 kl. 19:30 12.sýn Sun 15/4 kl. 19:30 Auka
Lau 10/3 kl. 16:00 5.sýn Fös 6/4 kl. 19:30 Auka Fös 20/4 kl. 19:30 17.sýn
Lau 10/3 kl. 19:30 7.sýn Lau 7/4 kl. 19:30 13.sýn Lau 21/4 kl. 16:00 18.sýn
Lau 17/3 kl. 19:30 8.sýn Sun 8/4 kl. 19:30 14.sýn Sun 22/4 kl. 19:30 19.sýn
Sun 18/3 kl. 19:30 9.sýn Fim 12/4 kl. 19:30 Auka Sun 29/4 kl. 20:00 25.sýn
Fös 23/3 kl. 19:30 10.sýn Fös 13/4 kl. 19:30 15.sýn
Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna!
Risaeðlurnar (Stóra sviðið)
Fim 15/3 kl. 19:30 Auka Fös 16/3 kl. 19:30 Síðustu
Síðustu sýningar komnar í sölu
Fjarskaland (Stóra sviðið)
Sun 11/3 kl. 13:00 Síðustu
Síðustu sýningar komnar í sölu
Faðirinn (Kassinn)
Mið 7/3 kl. 19:30 25.sýn Fös 16/3 kl. 19:30 27.sýn Sun 25/3 kl. 19:30 29.sýn
Fim 15/3 kl. 19:30 26.sýn Lau 24/3 kl. 19:30 28.sýn
Áhrifamikið nýtt verðlaunaverk.
Efi (Kassinn)
Þri 6/3 kl. 19:30 13.sýn Sun 11/3 kl. 19:30 Auka Sun 18/3 kl. 19:30 19.sýn
Fös 9/3 kl. 19:30 16.sýn Lau 17/3 kl. 19:30 18.sýn
Margverðlaunað og spennandi verk !
Ég get (Kúlan)
Sun 11/3 kl. 13:00 14.sýn Sun 18/3 kl. 13:00 15.sýn Sun 25/3 kl. 13:00 Síðasta
Ljóðræn leiksýning fyrir yngstu börnin, um það sem er mitt og þitt og okkar
Oddur og Siggi (Stóra sviðið)
Þri 6/3 kl. 11:00 Mið 7/3 kl. 11:00
Skemmtileg, sorgleg og hjartnæm sýning
Mið-Ísland - Á tæpasta vaði! (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fim 8/3 kl. 20:00 Fös 9/3 kl. 22:30 Lau 10/3 kl. 22:30
Fös 9/3 kl. 20:00 Lau 10/3 kl. 20:00
Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika!
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 7/3 kl. 20:00 Fim 22/3 kl. 20:00 Fesival Mið 18/4 kl. 20:00
Mið 14/3 kl. 20:00 Mið 4/4 kl. 20:00 Mið 25/4 kl. 20:00
Mið 21/3 kl. 20:00 Mið 11/4 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
ÞARFTU AÐ LÁTA GERA VIÐ?