Morgunblaðið - 06.03.2018, Blaðsíða 36
ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 65. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1. Sunna lömuð fyrir lífstíð
2. Ari fékk 5.000 fleiri atkvæði
3. Sjö handteknir eftir …
4. Mætti með 75 ára gömlu …
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Kvartett portúgalska gítarleik-
arans Filipes Duartes kemur fram á
djasskvöldi Kex hostels í kvöld kl.
20.30 en auk Duartes skipa hann
Sigmar Þór Matthíasson á kontra-
bassa, Jóel Pálsson á tenórsaxófón
og Scott McLemore á trommur.
Kvartettinn mun að mestu flytja
frumsamda tónlist eftir Duarte og
Sigmar.
Kvartett Filipes
Duartes á djasskvöldi
Ásta Friðriks-
dóttir listfræð-
ingur heldur fyr-
irlesturinn
Menning í Múla-
koti – gróðr-
arstöð lista á
fyrri hluta 20.
aldar, í Safnahús-
inu við Hverfis-
götu á morgun, 7. mars, milli kl. 12 og
13. Ásta mun fjalla um bæinn og
gistiheimilið Múlakot í Fljótshlíð sem
var mikil menningarmiðstöð á fyrri
hluta 20. aldar og tengist íslenskri
listasögu því þangað lögðu margir af
fremstu listamönnum þjóðarinnar
leið sína og dvöldu um lengri eða
skemmri tíma.
Fjallar um Múlakot
Svartmálmshátíðin Oration
verður haldin í þriðja sinn
7.-9. mars á skemmti-
staðnum Húrra og í
Listasafni Reykjavík-
ur, Hafnarhúsi. 19
svartmálms-
hljómsveitir koma
fram að þessu
sinni, innlendar
sem erlendar.
Svartmálmshátíð
haldin í þriðja sinn
Á miðvikudag Norðaustan 8-13 og dálítil él, en yfirleitt léttskýjað
sunnan heiða. Frost 1 til 7 stig.
Á fimmtudag Áfram kalt í veðri.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Dregur úr vindi, norðaustan 5-13 m/s síð-
degis. Lítilsháttar él fyrir norðan og austan, en bjart syðra.
Frost 0 til 7 stig, minnst syðst.
VEÐUR
,,Við getum ekki verið ann-
að en ánægðar með þessi
úrslit. Við lögðum upp fyrir
leikinn að einblína á varnar-
leikinn og þetta er allt að
koma hjá okkur. Ég er stolt
af liðinu og hvernig við spil-
uðum þennan leik,“ sagði
Sif Atladóttir í samtali við
Morgunblaðið eftir marka-
laust jafntefli Íslands gegn
Evrópumeisturum Hollands
í Algarve-bikarnum í knatt-
spyrnu. »1 og 4
Stolt af hvernig
við spiluðum
„Þetta tækifæri kom skyndilega upp
eftir að Aron tilkynnti að hann myndi
hætta. Ég þurfi auðvitað aðeins að
hugsa mig um en fann fljótlega að
þetta væri eitthvað sem ég væri al-
gjörlega til í. Ég er búinn að fá mitt út
úr ferlinum sem leikmaður og er
rosalega ánægður með hann,“ segir
Arnór Atlason, lands-
liðsmaður í hand-
knattleik, sem leggur
skóna á hilluna í vor
og gerist aðstoð-
arþjálfari Aalborg í
Danmörku. »1
Búinn að fá mitt út úr
ferlinum sem leikmaður
„Núna rúmri viku eftir leikina fæ ég ennþá
gæsahúð þegar ég hugsa um frammi-
stöðu Martins Hermannssonar. Fyrir mér
er Martin klárlega orðinn besti leikmað-
urinn sem við eigum í dag. Ég get lofað
ykkur því að strákurinn er að fara í eitt-
hvert enn betra lið á næsta tímabili,“ seg-
ir Benedikt Guðmundsson, körfubolta-
sérfræðingur Morgunblaðsins, í ítarlegri
umfjöllun í opnu íþróttablaðsins. » 2-3
Fæ enn gæsahúð
viku eftir leikina
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Ég man svo ótrúlega vel eftir
þeim mikla gleðidegi þegar það
kom til mín fær talmeinafræðingur
og færði mér röddina mína aftur
þótt hún hefði engan hljóm og ég
ætti engan vöðvakraft til að mynda
öll orðin sem höfðu bara búið innra
með mér síðustu sex vikurnar,“
skrifar Katrín Björk Guðjónsdóttir,
24 ára Flateyringur, sem heldur úti
bloggsíðu um bataferli eftir að hún
lamaðist við heilablóðfall. Færsluna
setur hún inn á síðu sína, katr-
inbjorkgudjons.com, í dag í tilefni
af Evrópudegi talþjálfunar.
Mun aldrei gleyma deginum
Hún rifar upp fyrstu kynni sín af
talmeinafræðingi sem kenndi henni
að nota stafaspjald til að tjá sig.
„Ég mun aldrei gleyma þessum
degi. Þarna gat ég bara hreyft aug-
un og látið fólk skilja jáin og neiin
mín með því að ég blikka einu sinni
fyrir já og tvisvar fyrir nei, en
seinna gat ég líka hrist höfuðið ef
ég vildi segja nei og kinkað kolli
fyrir já. Lungun voru alveg að fara
að vakna og ég gat andað með að-
stoð súrefnis.
Það getur enginn ímyndað sér
hvaða frelsisgjöf þetta var. Ég gat
stafað með augunum fyrir hvern
þann sem hafði áhuga á því að lesa
af spjaldinu,“ skrifar Katrín Björk.
Hún stafaði með augunum í
marga mánuði. Svo vaknaði vinstri
höndin og nú tveimur árum seinna
stafar hún með því að benda á staf-
inn. „Ég lendi samt reglulega í
fólki sem kann ekki að eiga sam-
skipti við mig og þá forðar það sér
fljótt og leyfir mér ekki að tala,“
skrifar hún.
Katrín Björk lamaðist þegar hún
fékk þrisvar heilablóðfall, það al-
varlegasta fyrir tveimur og hálfu
ári. Allir vöðvar líkama hennar
misstu kraft og af þeim sökum nær
hún ekki að mynda skiljanleg orð.
Spjaldið uppi á vegg
Katrín er í talþjálfum hjá tal-
meinafræðingi tvisvar í viku. „Það
er svo stórkostlegt að finna vöðv-
ana vakna og fylgjast með þeim
styrkjast,“ skrifar Katrín og nefnir
einnig fjarþjálfun sem gerir henni
mögulegt að búa með fjölskyldu
sinni á Flateyri og vera þó í viku-
legum samskiptum við talmeina-
fræðing.
„Í framtíðinni sé ég fyrir mér að
þetta spjald verði bara uppi á vegg
í ramma og ég labbandi og talandi
svo allir geti skilið mig og allt hafi
það verið þessum dásamlegu þjálf-
urum að þakka!“ bloggar hún.
Stafaspjaldið var frelsisgjöf
Katrín Björk
bloggar um bata-
ferli sitt og líf
Heima Katrín Björk Guðjónsdóttir styrkist smám saman og gengur um þorpið með stafinn sér til stuðnings.
Fram hefur komið í bloggfærslum
Katrínar Bjarkar Guðjónsdóttur og
viðtölum við hana hvað hún hefur
jákvæða afstöðu til lífsins, þrátt
fyrir veikindi sín. Hún lítur á veik-
indin sem flækju sem hún ætlar að
leysa, sama hvað það tekur langan
tíma.
Spurð að því nú hvernig henni
finnist ganga svarar hún: „Mér
finnst ganga ótrúlega vel og er
rosalega ánægð með lífið í dag.“
Ánægð með lífið í dag
ÆTLAR SÉR AÐ KOMAST Í GEGNUM VEIKINDIN