Morgunblaðið - 23.03.2018, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 23.03.2018, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MARS 2018 LAUGAVEGI 24 - 101 REYKJAVÍK SÍMI: 552 0800 Dönsk hönnun SKIPAGÖTU 7 - 600 AKUREYRI SÍMI: 462 4646 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Það sem eftir er af botni og kili flutn- ingaskipsins Víkartinds er komið upp úr sandinum í Háfsfjöru við Þjórsá. Botninn fór í sand veturinn eftir strandið og hefur lítið sést þar til nú. Víkartindur strandaði fyrir rúmum 20 árum. Lítið hefur sést í leifar Víkartinds í tuttugu ár, eða frá því skipið var rifið og fjarlægt úr fjörunni fljótlega eftir strandið en botninn var skilinn eftir. Það sem eftir var fór fljótlega á kaf í sand. „Það hefur stundum sést örlítið í hæstu járnin í gegn um árin en það hefur sést svona vel í tvo mánuði eða svo,“ segir Karl Rúnar Ólafsson í Lyngási en hann er einn af landeig- endum í Háfsfjöru. Hann telur að breyttur straumur í vetur hljóti að hafa skolað ofan af flakinu. Kjölurinn var allur skilinn eftir og styrktarbitar í botni skipsins. Einnig skipsskrúfan því vel sést í eitt blað hennar. Umtalað strand Guðmundur Sigurðsson á Selfossi fór í fyrradag með nokkrum sunn- lenskum félögum sínum að skoða það sem eftir er af flakinu. Hann segir áhugavert að skoða flakið en telur ekki ráðlegt fyrir fólk að fara þangað nema á mjög vel útbúnum ökutækj- um. Strand flutningaskipsins Víkar- tinds 5. mars 1997 var mikið fréttamál á sínum tíma enda var skipið stórt og fullt af vörum. Þyrla Landhelgisgæsl- unnar bjargaði allri áhöfninni, 19 manns, við erfiðar veðuraðstæður. Hins vegar fórst einn skipverja á varðskipinu Ægi þegar reynt var að draga vélarvana skipið út, áður en það strandaði. Mikil mengunarhætta skapaðist við strandið en henni var af- stýrt með því að megnið af svartolí- unni var dælt í tankbíla í landi. Við tók umfangsmikið hreinsunar- starf í fjörunni. Hringrás tók að sér það erfiða verkefni að rífa skipið og koma brotajárninu upp úr fjörunni og í verð erlendis. Björgunarsveitir, íþróttafélög og ýmsir aðrir hópar söfnuðu saman lausa ruslinu og koma til urðunar. Talið er að flutt hafi verið alls 4.600 tonn af brotajárni úr fjör- unni og yfir 1.000 tonn af annarskon- ar úrgangi. Verðmæti í brotajárninu Talsvert af járni hefur orðið eftir, eins og nú er að koma í ljós. Kristinn Bergsson sem vann við að dæla olíu úr skipinu á sínum tíma fór í fjöruna með Guðmundi. Hann segir hugsan- legt að koma járninu í verð. Hann nefnir sérstaklega skrúfuna sem er úr kopar. „Það væri hægt að fá nokkrar bjórkippur fyrir hana,“ segir Krist- inn. Karl Rúnar hefur ekki trú á að mikil verðmæti séu í járninu. Bendir á að stórvirk vinnutæki þurfi til að ná skrúfunni og járninu upp úr sjónum og fjörunni. Ljósmynd/Kristinn Bergsson Víkartindur Flakið sést nú vel eftir að sandurinn hefur falið það flestar stundir í tuttugu ár. Kjölur Víkartinds kemur upp úr sandi  Hefur lítið sést í þau tuttugu ár sem liðin eru frá strandinu Morgunblaðið/RAX Háfsfjara Víkartindur fastur á strandstað og rusl úr honum um alla fjöru. Reykjavík Selfoss Hella Háfsfjara Háfsfjara Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Gera þarf betur í flokkun á sorpi í Reykjavík auk þess sem fjölga ætti sorphirðudögum í Grafarvogshverfi úr tveimur í þrjá í hverjum mánuði. Þetta kom fram í máli Eyþórs Arn- alds sem skipar efsta sætið á framboðslista Sjálfstæðis- flokksins í borg- inni á opnum fundi sem fram- bjóðendur flokks- ins héldu í Gufu- nesi í fyrrakvöld. Þar voru málefni efri byggða í Reykjavík rædd. „Við getum gert miklu betur í sorpmálum og fjölgun hreinsunar- daga snýst um að veita íbúunum eðlilega þjónustu. Að nú sé sorp hreinsað frá húsum aðeins tvisvar í mánuði er ekki nægilegt og til dæmis eftir hátíðar, safnast upp mikið magn. Þá eru tunnur yfirfull- ar. Slíkt á ekki að gerast,“ segir Ey- þór. Einnig segir að skapa verði að- stöðu til að flokka sorpið betur en nú eru tunnur af þremur gerðum við hús; það er fyrir almennt sorp, pappír og plast. Vill Eyþór að al- menna sorpið verði flokkað betur og það lífræna sett í aðra tunnu, svo það geti nýst til dæmis við jarð- efnagerð. „Kostnaður við sorphirðu í Reykjavík er mjög hár og aukin endurvinnsla getur skilað sparnaði svo kostnaður íbúa við bætta þjón- ustu verði ekki meiri,“ segir Eyþór sem með frambjóðendum Sjálfstæð- isflokksins lagði áherslu á umhverf- ismálin á fundinum í Grafarvogi, svo sem að auka þrif á götum og gera græn svæði aðgengilegri. Síðast en ekki síst styrkja Grafarvog í sessi sem sjálfstæða byggð með því með- al annars að valið verði í hverfisráð með beinni kosningu íbúa, en ekki handvali í Ráðhúsinu. Hverfisráðin hafi í dag lítið vægi í borgarkerfinu þegar kemur að ákvarðanatöku. Því vilji sjálfstæðismenn breyta. Niðurgreiðsla óheimil „Sjálfstæðisflokkurinn er að boða 50% hækkun sorphirðugjalda með því að fjölga hirðudögum um 50%, því það er lögbundið að ekki má nið- urgreiða sorphirðu,“ segir Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri og leiðtogi Samfylkingar. „Tillagan er óþarfa forræðishyggja því þær fjölbreyttu lausnir með mismunandi tunnum sem boðið er upp á hafa reynst vel.“ Flokkað sorp verði oftar hirt  Bætt þjónusta, segir Eyþór  Bjóð- um fjölbreyttar lausnir, segir Dagur Morgunblaðið/Eggert Sorp Sjálfstæðismenn vilja fleiri hreinsunardaga í Reykjavík. Eyþór Arnalds Lagafrumvarp um að lækka kosn- ingaaldur í sveitarstjórnarkosn- ingum úr 18 árum í 16 var samþykkt eftir aðra umræðu á Alþingi í gær og vísað til þriðju og síðustu umræðu. Samþykkt var jafnframt að stjórn- skipunar- og eftirlitsnefnd þingsins fjallaði á ný um málið áður en það kemur til lokaafgreiðslu á þinginu, sem verður hugsanlega í dag. Fjöldi þingmanna tók til máls um atkvæðagreiðsluna og voru skoðanir um málið nokkuð skiptar og fóru ekki eftir flokkslínum. Lilja Alfreðsdóttir, mennta- málaráðherra, sem studdi frum- varpið, sagði m.a. við atkvæða- greiðsluna að hún treysti ungu fólki fyllilega til að taka upplýsta ákvörð- un og menntamálayfirvöld myndu vinna að því að auka fræðslu varð- andi þennan þátt lýðræðisins. Ýmsir þingmenn sögðust styðja markmið frumvarpsins en gagn- rýndu misræmi sem í því fælist á milli mismunandi réttinda og skyldna sem ungt fólk tækist á hendur. M.a. væri kjörgengisaldur ekki lækkaður samhliða í 16 ár. Aðr- ir gagnrýndu að breyta ætti kosn- ingalögum rétt fyrir kosningar. Frumvarpið var síðan samþykkt með 29 samhljóða atkvæðum en 24 greiddu ekki atkvæði og 10 voru fjarverandi. Meðal þeirra sem studdu frumvarpið voru allir við- staddir þingmenn VG, Samfylking- arinnar, Pírata og Viðreisnar, þrír þingmenn Sjálfstæðisflokks og tveir þingmenn Framsóknarflokks. Allir þingmenn Miðflokksins og Flokks fólksins sátu hjá, 10 þingmenn Sjálf- stæðisflokks og þrír þingmenn Framsóknarflokks. Í augsýn að 16 ára fái að kjósa í sveitarstjórnarkosningum Morgunblaðið/Kristinn Í þingsal Frumvarp um kosninga- rétt er komið til þriðju umræðu.  Frumvarpið til þriðju umræðu Nýbirtar tölur Þjóðskrár sýna að vísitala leigu- verðs á höfuð- borgarsvæðinu hækkaði um 1,9% í febrúar. Árs- hækkun leigu samkvæmt þing- lýstum leigu- samningum nemur nú um 10,4% og er áþekk árshækkun fasteignaverðs á höfuðborgarsvæðinu sem mælist nú 10,6%. Þetta er í fyrsta skipti í tæp þrjú ár sem fasteignaverð og leiguverð á höfuðborgarsvæðinu hækkar jafn hratt á einu ári. Frá miðju ári 2015 tók fasteignaverð að hækka hraðar en leiguverð en nú virðist stærðirnar fylgjast í auknum mæli að, þar sem fasteignaverð hef- ur tekið að róast. Til samanburðar hafa laun nú hækkað um 7,2% á árs- grundvelli samkvæmt nýbirtum töl- um Hagstofunnar. Árshækkun fast- eignaverðs og leigu er því ofar hækkun launa, en slík hefur verið þróunin frá því í janúar 2017 þegar bæði leiga og fasteignaverð fóru að hækka hraðar en laun. Leiga hækkar meira en laun Leiga Hækkunin í febrúar 1,9%.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.