Morgunblaðið - 23.03.2018, Side 13

Morgunblaðið - 23.03.2018, Side 13
Ghana, þó með hléum, og hefur hún ferðast töluvert milli Ghana og Englands og tekið þátt í ýmsum hönnunarverkefnum sem tengjast fátækrahverfum og flóðavörnum. „Þegar ég fór fyrst til Ghana sem sjálfboðaliði til að starfa með Arkitektum án landamæra, þá vann ég við hönnun skóla og barnaheimilis. Ég fór svo aftur til Ghana tveimur árum síðar og að- stoðaði við að setja upp start-up hönnunarstofu þar sem við teikn- uðum bæði íbúðar- og atvinnu- húsnæði og gerðum byggingar- fræðilegar rannsóknir. Meðfram þeirri vinnu var ég í sjálfboðavinnu í skipulagningu flóðaaðgerða í mjög þéttbýlum fátækrahverfum þar sem húsin hreinlega hrynja of- an á fólk þegar rignir mikið. Sú vinna var mjög gefandi og við leit- uðumst við að vinna náið með íbú- um til að skilja aðstæður þeirra eins vel og við gátum.“ Eftir um það bil tvö ár í Ghana þótti Steinunni Eik vera kominn tími á að vera nær fólkinu sínu á Íslandi, og tók hún því þá ákvörðun að snúa aftur til Eng- lands. Þar hóf hún störf við að hanna sveitasetur. „Í raun er nokkuð góð tenging milli sérnámsins míns í Oxford og þess sem ég fæst við í dag. Bretar eru mun minna í því að rífa gamlar byggingar heldur en Íslendingar. Það hefur færst í aukana seinustu ár að endurnýta þessar gömlu byggingar með því að breyta þeim í heimili. Ég bý t.d. sjálf í gömlu nautgripahúsi. Ég er mikið í því að hanna og endurgera það sem hér úti kallast helgarheimili fyrir fjár- sterkar Lundúna-fjölskyldur sem vilja komast út í sveit um helgar og hlaða batteríin. Ég er til dæmis núna að teikna 900 fermetra villu með sundlaug, bátaskýli, fjórföld- um bílskúr og tennisvelli fyrir fimm manna fjölskyldu.“ Snýst um að skilja þarfir fólks og lifnaðarhætti Að sögn Steinunnar Eikar voru mikil viðbrigði að flytja frá þróunarríkinu Ghana og yfir til West Sussex í London, en mikill og oft öfgafullur munur er á lifn- aðarháttum fólks í þessum tveimur ríkjum. „Ég hef unnið fyrir fólk sem á ekkert og fólk sem er mjög auð- ugt, hvort tveggja er mjög krefj- andi og áhugavert. Því þótt verk- efnin milli þessara mismunandi landa hafi verið ólík, þá snúast þau í grunninn um það sama: að skilja þarfir fólks, lifnaðarhætti og að skapa fólki betra umhverfi.“ Steinunn Eik segir þó starf sitt mun fjölbreyttara en bara að teikna og hanna byggingar. „Mikið af mínum núverandi verkefnum er staðsett innan South Downs National Park, sem er einn stærsti og nýjasti þjóðgarður Eng- lands. Einnig þarf ég að vera í góðum samskiptum við vistfræð- inga sem sérhæfa sig í að kanna mögulegt dýralíf á svæðum sem ætluð eru til bygginga. Eins og er starfa ég sem verkefnisstjóri í byggingarframkvæmdum við stækkun á fallegu friðuðu stein- hlöðnu sveitaheimili. Ég er því reglulega á verkstað við eftirlit, sé til þess að verksamningi sé fram- fylgt, tímaáætlun standist, teikn- ingum fylgt, hef eftirlit með öryggi á verkstað og er milliliður milli eigenda hússins og yfirverktaka. Ég vinn líka við gerð útboðsgagna og samninga, skrifa greinargerðir fyrir skipulagstillögur, sit fundi með fjárfestum og byggingar- félögum og fleira. Það er fjöl- breytnin sem gerir hvern dag spennandi og engir tveir dagar eru eins.“ Krefst skipulags að sam- ræma krefjandi vinnu og nám Steinunn Eik hefur þar að auki varið hluta af frítíma sínum sem ráðgjafi hjá litlum hópi breskra hugsjónakvenna sem hafa staðið í uppbyggingarstarfi í Afr- íkuríkinu Malawi og hefur ástríða hennar fyrir arkitektúr og hjálp- arstarfi komið þar að góðum not- um. „Við höfum verið að þróa hug- myndir fyrir byggingu nýs stúlknaskóla á mjög strjálbýlu og vanþróuðu svæði í Malawi og er fjármögnun vel á veg komin.“ Steinunn Eik segir það þó vissulega vera krefjandi að vera í fullri vinnu við suðurströnd lands- ins og þurfa svo að taka lest til London eftir vinnu til þess að fara á fyrirlestra en hún stundar nám í verkefnastjórnun og samninga- lögfræði við University of West- minster. „Samræming krefjandi vinnu og náms krefst mikillar skipulagn- ingar og maður þjálfast vel í tíma- stjórnun. Í mörgum löndum er nám arkitekta mestmegnis falið í hugmyndafræði og sköpun, en í Englandi hefur verið lögð áhersla á að eftir meistaragráðu í arkitekt- úr fari fólk útí atvinnulífið en svo í frekara nám sem geri fólk að betri stjórnendum. Ég hlakka til að nota þetta góða nám í mínum störfum.“ Látbragðsleikur til að útskýra teikningar Að sögn Steinunnar Eikar hafa tækifærin aldrei bankað uppá hjá henni heldur hefur hún skapað þau sér sjálf, einfaldlega með því að stökkva beint ofan í djúpu laug- ina. „Þegar ég flutti út til Oxford í nám árið 2012 var ekki á stefnu- skránni að koma strax aftur heim. Ég hef lagt hart að mér við að kynnast mismunandi leiðum til að byggja mannvirki við alls konar veðurskilyrði og í ólíkum menning- arlegum skilyrðum þar sem að- gangur að efnivið hefur oft verið takmarkaður og þá reynir á að vera hugmyndaríkur. Eins og þeg- ar ég sá um verkstjórn á byggingu lítils hótels í Ghana þar sem ekki einn einasti iðnaðarmaður talaði orð í ensku og við þurftum að not- ast við látbragðsleik við útskýringu á teikningum. Eða þegar ég sá um skipulagningu hönnunarráðstefnu í Nígeríu í samstarfi við Kofi Annan. Hugmyndin var alltaf að þegar ég myndi flytja aftur heim til Íslands, kæmi ég með góða og fjölbreytta reynslu í farteskinu. Það er því farið að hvarfla að mér að nú sé farteskið orðið nokkuð þungt og kominn tími til að halda heim á leið. Ég hlakka til að sjá hvað tek- ur við á næstu misserum.“ Glæsilegt Steinunn Eik vann að þessari landareign í Vestur-Sussex. Unnið var með náttúruleg efni þar sem mikil virðing er borin fyrir umhverfinu. Afríka Steinunn Eik að störfum með verkfræðingum og iðnaðarmönnum að útskýra teikningar í Vestur-Afríku. DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MARS 2018 Ég hugsa stundum til þesshvað ég myndi gera ef öllsamtöl mín á veraldar-vefnum yrðu gerð opin- ber. Allt frá viðreynslum yfir í einka- húmor milli vina. Ég hef ekki ákveðið hver viðbrögð mín yrðu en ég held að líklegast væri mín eina von að róa af landi brott á árabát, án aðstoðar. Þeg- ar Vodefone-lekinn kom upp þá var veraldarvefurinn fljótur að gramsa í gegnum gögnin og finna faldar ger- semar. Meðal þeirra var t.d. óprútt- inn aðili sem samhliða því að sann- færa maka sinn um að hann væri ekki að halda framhjá í sms-um, var að senda öðru símanúmeri sms um að hann væri laus í hitting í kvöld, ásamt hjörtum. Ég óttast þó ekkert þvílíkt en þrátt fyrir óttann um einkasamtöl hef ég ekki sama ótta um aðrar ómerkilegri persónuuplýsingar, s.s þær upplýs- ingar sem er að finna á Facebook- prófílnum mínum. Ég hugsa um þetta nú vegna uppljóstrana um gagna- söfnun Cambridge Analytica (CA) af Facebook. Ég komst hins vegar að því í vikunni að þetta snýst alls ekki um þær upplýs- ingar sem ég gef sjálfur. Matthew Rosenberg, sem hefur fjallað um CA fyrir The New York Times, fór léttilega yfir hvaða gögn CA tók og hvað þeir gerðu með þau í hlaðvarpi Times. Hugmyndin um per- sónuleikagröf á rætur að rekja til Cambridge-háskóla. Nemandi þar vann gröf byggð á Facebook-smellum (eins og CA). Út frá 68 smellum gat forritið sagt, með 95% nákvæmni, kynþátt viðkomandi og með 85% ná- kvæmni kynhneigð. Rosenberg segir að forritið virki þannig að með 70 smellum gætu þeir þekkt þig betur en vinir þínir, 150 smellum betur en for- eldrar þínir og 300 smellum betur en maki þinn. Sem dæmi var nefnt að ef þér líkar við Hello Kitty á Facebook ertu opinn persónuleiki en ekkert of samviskusamur. Ef þú hlustar á Wu Tang Clan ertu líklegast gagn- kynhneigður karlmaður. Þetta er ógnvekjandi tilhugsun og þó að ég óttist ekki persónuleika- sniðnar kosningaauglýsingar þá ætla ég klárlega að hugsa betur um hvaða upplýs- ingar ég læt frá mér á samfélagsmiðlum héðan í frá. Nú eða bara kaupa mér árabát. Heimur Magnúsar Heimis Magnús H. Jónasson mhj@mbl.is »Með 70 smellum gætuþeir þekkt þig betur en vinir þínir, 150 smellum betur en foreldrar þínir og 300 smellum betur en maki

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.