Morgunblaðið - 23.03.2018, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 23.03.2018, Qupperneq 41
MENNING 41 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MARS 2018 Velkomin í okkar hóp! Innritun og nánari upplýsingar í síma 581 3730 og á jsb.is Markviss, fjölbreytileg og öflug líkamsrækt fyrir konur og stelpur sem tekur mið af þörfum ólíkra hópa og skilar auknum krafti, hreysti og vellíðan. E F L IR / H N O T S K Ó G U R Rétta þjálfunin sem veitir vellíðan! Vorafsláttur í ræktina! Kynntu þér málið á jsb.is ICQC 2018-20 AF TILRAUNUM Ragnheiður Eiríksdóttir heidatrubador@gmail.com Þegar maður er búinn að sitja ásama bekk útí sal, fjögurkvöld í röð, og rýna gaum- gæfilega í átta hljómsveitir á kvöldi flytja tónlist sína eins vel og þær geta, mætti segja að maður sé tekinn að þreytast aðeins í eyrunum. Það er þó alls ekki sú tilfinning sem er ríkjandi í lok fjórða undanúrslita- kvölds Músíktilrauna, heldur smá depurð yfir því að nú séu bara úrslit- in eftir. Fjölbreytnin í undanúrslit- unum er alltaf jafn mikil. Maður veit hreinlega aldrei hverju maður má eiga von á. Þess vegna elskar maður þessa keppni svona mikið. Síðasta undanúrslitakvöldið einkenndist af lágstemmdu poppi og einlægni og þannig hljómaði Vox, sem fyrst var á sviðið. Þrjár stúlkur sem sömdu prýðileg lög og höfðu unnið í útsetningum en áttu eftir að æfa þar til þær kynnu lögin afturá- bak og áfram. Það er næsta skref, því efnið ykkar er prýðilegt. Enn meiri einlægni tók við hjá Grey Hil Mars, tríói úr Reykjanesbæ sem lék þjóðlagarokk. Grétar Hilm- arsson, stór og mikill rumur með hár og skegg í allar áttir, söng með afskaplega hrjúfri röddu lög um erf- iðar tilfinningar og móðurást. Þetta hljóta að vera einlægustu rokkarar á Íslandi og bræða köldustu íshjörtu. Dúettinn Trapísa söng líka um ást og um það að gera sitt besta og fyrra lag þeirra var mjög flott með frábæru gítarsándi. Taugarnar voru þó eitthvað að stríða liðsmönnum, enda nýbyrjaðir að koma fram, og seinna lagið fór forgörðum. Þetta er efnilegt en ekki tilbúið. Síðust á svið fyrir hlé var hljóm- sveit úr Reykjavík sem kallaði sig Sif, og inniheldur fimm grunnskóla- nemendur úr Norðlingaskóla á aldr- inum 14-16 ára. Eydís Ýr Jóhanns- dóttir söngkona stóð sig með eindæmum vel, en sveitin þarf að þétta sig og æfa upp svolítið meiri kraft. Eftir hefðbundna kaffi- og pissupásu steig á svið undarleg hljómsveit sem kallaði sig Odd- weird. Fyrra lagið þeirra var mjög góður geim-djass, en seinna lagið væri hugsanlega hægt að kalla sirk- us-hugleiðslutónlist fyrir píanó og blokkflautu. Guðmundur Elí Jó- hannsson á heiður skilinn fyrir frumlegheit og það verður gaman að fylgjast með þróuninni hjá honum í framtíðinni. Þá erum við komin að Morra, sem eins og Oddweird, léku ill- skilgreinanlega tónlist. Eina hljóð- færið var einn rafmagnsgítar sem var lúppaður og bjó þannig til undir- leik fyrir blúsrokkaðan söng. Þetta mætti alveg kalla lo-fi blús, en það er tvímælalaust pláss fyrir trommur og bassa í þessum hljóðheimi, sem var full-brothættur og nakinn svona. Bjartr tók einnig þátt í fyrra og þá var hann með kraftmeira sett. Seinna lag hans var áberandi betra núna, en ég saknaði myrka bassa- drifna hljómsins hans. Lokasveit kvöldsins, og jafn- framt síðasta band til að leika í und- anúrslitum Músíktilrauna árið 2018, var Academic, sem er viðeigandi nafn á fimm tónlistarskólanem- endum. Þau spiluðu fágað og slípað popp sem rann greiðlega í gegn á út- pældan hátt. Þegar atkvæði höfðu öll verið talin úr sal var það Academic sem kosin var áfram, en dómnefnd valdi síðan Grey Hil Mars í úrslitin. Einnig bætti dómnefnd við tveimur hljóm- sveitum til viðbótar sem líka spila í úrslitum í ár, en það eru Hugarró frá fyrsta kvöldinu, og Mókrókar frá öðru kvöldinu. Þessi bönd eru þá öll komin í úrslit og leika aftur á laug- ardagskvöldið 24. mars í Hörpu. Sjáumst þá! Alls kyns tilfinningar Morgunblaðið/Hari Hárprúður Grétar Hilmarsson, söngvari Grey Hil Mars sem komst áfram. » Fyrra lagið þeirravar mjög góður geim-jass, en seinna lagið væri hugsanlega hægt að kalla sirkus- hugleiðslutónlist fyrir píanó og blokkflautu. Einlægni Síðasta undanúrslitakvöldið einkenndist af lágstemmdu poppi og einlægni og þannig hljómaði hljómsveitin Vox sem var fyrst á svið. Akademísk? Kristín Sesselja Einarsdóttir, söngvari og gítarleikari Academic. Víti í Vestmannaeyjum Kvikmynd eftir leikstjórann Braga Þór Hinriksson sem byggð er á samnefndri skáldsögu Gunnars Helgasonar og segir af átökum nokkurra krakka á fótboltamóti, innan vallar sem utan. Með helstu hlutverk fara Lúkas Emil Johan- sen, Róbert Luu, Ísey Heiðars- dóttir, Viktor Benóný Benedikts- son, Jóhann G. Jóhannsson, Óli Gunnar Gunnarsson, Ilmur Krist- jánsdóttir, Gunnar Hansson og Sig- urður Sigurjónsson. Pacific Rim Uprising Framhald kvikmyndarinnar Pacific Rim frá árinu 2013. Nokkur ár eru liðin frá því Stacker Pentecost og mönnum hans tókst að ráða niður- lögum síðasta Kaiju-skrímslisins og loka fyrir gátt þeirra á botni Kyrra- hafs. Einhver hefur nú opnað gátt- ina á ný og árás yfirvofandi. Leik- stjóri er Steven S. DeKnight og með aðalhlutverk fara John Bo- yega, Scott Eastwood og Cailee Spaeny. Metacritic: 46/100 Pétur kanína Blanda leikinnar myndar og tölvu- teiknimyndar sem forsýningar hefj- ast á um helgina. Myndin er byggð á sögum enska barnabókahöfund- arins Beatrix Potter um uppreisn- argjörnu kanínuna Pétur sem á í útistöðum við skapvondan bónda. Leikstjóri myndarinnar er Will Gluck og meðal leikara í íslenskri talsetningu eru Sigurður Þór Ósk- arsson, Hannes Óli Ágústsson, Vala Kristín Eiríksdóttir og Þuríður Blær Jóhannsdóttir. Metacritic: 52/100 Bíófrumsýningar Fótboltafjör, skrímsli og uppreisnargjörn kanína Átök Úr kvikmyndinni Pacific Rim Uprising sem segir af baráttu manna við risastór skrímsli.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.