Morgunblaðið - 23.03.2018, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 23.03.2018, Blaðsíða 23
keyrslurnar með góðri tónlist og mamma að benda á staði sem hún átti gamlar minningar frá. Eina páskana fórum við mörg saman þangað. Pabbi var nýbú- inn að kaupa vélsleða og þótti það skemmtilegt sport og þykir enn. Við vorum með vélsleðann og pabbi ætlaði að draga okkur upp skíðabrekkuna á reipi sem hékk aftan úr vélsleðanum. Það var mjög skemmtilegt að hanga þarna aftan í og renna sér svo niður á skíðum. Pabbi vildi endi- lega að afi prófaði vélsleðann. Afi var alveg til í það og við krakk- arnir gripum í reipið spennt að fara aftur upp. En afi var mjög varkár og gaf ekki mikið í heldur skreið upp brekkuna eins og snigill á sleðanum, sem gerði það að verkum að sleðinn fór að brenna úr sér kolsvörtum reyk. Við reyndum að hrópa á afa, en hann heyrði ekkert og neydd- umst við eitt af öðru til að sleppa reipinu, hóstandi vegna meng- unar. Afi leit við hissa þegar hann var kominn upp á topp því enginn krakki var eftir á reipinu. For- eldrunum fannst þetta mjög fyndið útsýni upp brekkuna. Afi fór ekki aftur á sleðann eftir þetta held ég. Þetta kenndi mér að afi vildi fara eins varlega og hann gat með öll barnabörnin aft- an í sleðanum. Hann ætlaði ekki að taka neina áhættu. Skiljanlega þar sem fjölskyldan er dýrmæt- ust af öllu. Hvíldu í friði með ömmu, elsku afi minn. Þín Matthildur Lind. Við sjáum að dýrð á djúpið slær, þó degi sé tekið að halla. Það er eins og festingin færist nær, og faðmi jörðina alla. Svo djúp er þögnin við þína sæng, að þar heyrast englar tala, og einn þeirra blakar bleikum væng, svo brjóst þitt fái svala. Nú strýkur hann barm þinn blítt og hljótt, svo blaktir síðasti loginn. En svo kemur dagur og sumarnótt, og svanur á bláan voginn. (Davíð Stefánsson) Takk fyrir allt, bezti afi Ís. Elísabet og Margrét. Afi Sverrir var einstaklega góður afi og við áttum góða sam- leið alla tíð. Mér þótti vænt um þegar afi sagði að ég ætti „sér- stakt hólf í hans hjarta“ eins og hann orðaði það, og það var vegna þess að þegar ég var rétt rúmlega eins árs, þá passaði hann mig einn síns liðs í um sólarhring og var það í fyrsta sinn sem hann passaði smábarn hjálparlaust, kominn vel á sex- tugsaldur. Ég grét víst ekkert allan þann tíma og þótti honum mikið til þess koma hvað ég var þægt barn. Úr bernsku man ég oftast eftir afa mínum arkandi um á vöðlum við Hrútafjarðará og á ófáar minningar af þessum reynda veiðimanni útí miðri á. En beztar þóttu mér veizlurnar sem hann framreiddi, hvort sem var heima á Einimel, í veiðihúsinu í Hrúta- firði eða í sumarhúsinu Grund vestur á Ísafirði. Afi var lista- kokkur og eldaði nánast einungis það sem ég sem krakki kallaði „þjóðlega rétti“, þ.e. lamb, hangi- kjöt, fisk og margt fleira. Í sér- stöku uppáhaldi hjá okkur barna- börnunum var plokkfiskurinn hans afa, hann notaði einungis nýja fallega ýsu, lauk, rjóma, engar kartöflur settar saman við uppstúfið, heldur voru brúnaðar kartöflur hafðar sem meðlæti og úr varð hið mesta hnossgæti. Þó að tíu manns eða fleiri sætu við kvöldverðarborðið á Grund, þá eldaði afi samt yfrið af mat og þegar allir höfðu borðað fylli sína sagði hann hátt og skýrt: „Krist- ján, ég treysti á þig“, sem þýddi að nú þurfti ég að taka á honum stóra mínum og klára fiskinn af fatinu, sem nóg var eftir af, takk fyrir. Ég át það með beztu lyst enda fyrirfannst ekki betri plokk- fiskur á öllu landinu en sá sem afi lagaði. Kvöldverður hjá afa var þar að auki mikil skemmtidag- skrá, því maðurinn var einstakur sögumaður, þar sá ég hina ís- lenzku munnmælahefð varð- veitta. Við afi urðum mjög nánir á hans efri árum, fórum ósjaldan í mat eða kaffi saman, og ég þá sem bílstjóri hans. Afi var svo stundvís alla ævi að sagt var að þegar hann fór í morgungöngur vestur í bæ hafi íbúar þar getað stillt klukkuna eftir honum. Svo- leiðis var það líka þegar ég var orðinn bílstjórinn hans, þá mátti ég ekki klikka á stundvísinni og gerði heldur aldrei. Einhvern tímann var afi spurður hvort ég væri barnabarn hans. Hann svar- aði því til að ég væri „stundvís- asta barnabarnið hans“ og þótti mér vænt um það. Afi var kjarnyrtur maður og hafði mikinn áhuga á málrækt og fornmálinu. Hann sagði stundum aðspurður um ferðir okkar sein- ustu árin, að hann væri í bíltúr með „frænda“ í merkingunni „vinur“. Þetta þótti mér gaman að heyra og lýsa afa vel. Þess vegna vil ég enda þessa kveðju á orðunum: Takk fyrir samfylgd- ina, frændi. Kristján Sævald Pétursson. Í febrúar 1930 átti móðir okk- ar von á sínu sjöunda barni. Til var kölluð ljósmóðir, sem reynd- ar var hætt störfum, Soffía Bertelsen. Systir okkar Kristín Anna, sem þarna var 12 ára gömul, mundi vel eftir þessum at- burði. Hún talaði um hvað Soffía væri orðljót og tók ákaft í nefið, en þrátt fyrir það var hún viss um að fæðingin mundi ganga, en fæðingin var mjög erfið og tók langan tíma. Anna fór með barnaskarann út á tún svo þau heyrðu ekki hljóðin í móður sinni. Loks fæddist drengur 26. febrúar, mjög stór og sérstaklega höfuðstór. Hann var alinn á Sval- barði í Ögurvík í tvílyftu timb- urhúsi sem faðir okkar lét byggja. Þar bjuggu foreldrar okkar og stundaði faðir okkar trilluútgerð á báti sínum Her- móði. Einnig var hann með 20 kindur og eina belju sem hann keypti vegna ákafrar beiðni móð- ur okkar til að hafa mjólk fyrir börnin. Öflun heyja var mjög erf- ið þar sem landrými var lítið og þurfti að afla heyja vítt og breitt um Djúpið þar sem hægt var að fá slægjur. Síðan þurfti að flytja heyið heim á sexæringi sem dreginn var af Hermóði. Mamma var alla tíð mjög sjóhrædd og má líklega telja það vera afleiðingu af sjóslysi sem varð á Ögurvík og hún varð áhorfandi að. Það voru kunningjar þeirra sem voru að koma að landi er sviptivindur kom og hvolfdi bátnum. Fjórir menn voru um borð og fórust þeir allir. Allir bátar voru á sjó og ekkert hægt að gera en allir voru mennirnir ósyndir. Allir synirnir og dæturnar líka aðstoðuðu við útgerð Hermanns. Sverrir reyndist snemma mjög bókhneigður og foreldrar hans vildu koma honum til mennta þó efnahagurinn væri ekki mikill. Sverrir fór í Gagnfræðaskóla Ísa- fjarðar og var hjá Önnu systur sinni sem búsett var á Ísafirði. Skólastjórinn við gagnfræðaskól- ann var þá Hannibal Valdimars- son. Þaðan fór hann svo í Menntaskólann á Akureyri og síðan í Háskóla Íslands í við- skiptafræði. Sverrir var þing- maður Austfirðinga í mörg ár fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Sverrir var menntamálaráðherra fyrir Sjálfstæðisflokkinn og þá vann hann það þarfa verk að vinna að stofnun Háskólans á Akureyri. Síðar skildu leiðir Sverris og Sjálfstæðisflokksins vegna kvótalaganna sem sett voru 1990. Sverrir taldi eins og ég og fleiri að þessi kvótalög myndu sundra þjóðinni eins og síðar hefur kom- ið á daginn. Eftir að hann yfirgaf Sjálfstæðisflokkinn stofnaði hann nýjan flokk, Frjálslynda flokkinn, og gekk ég til liðs við þann flokk og fór í framboð í Norðausturkjördæmi, mér líkaði vel við Akureyringa þó ég fengi ekki mörg atkvæði eins og vænta mátti. Sverrir sat á þingi fyrir Frjálslynda flokkinn eitt kjör- tímabil. Sverrir var hygginn og hrein- skiptinn maður. Eiginkona hans var Greta Lind Kristjánsdóttir og eignuðust þau fimm mann- vænleg börn og ólu einnig upp sonardóttur sína. Halldór Hermannsson. Það fækkar í röðum norðan- stúdenta sem útskrifuðust frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1951. Sverrir Hermannsson var einn þeirra. Hann kom að vestan, fæddur á Svalbarði í Ögurvík við Ísafjarðardjúp. Hann var í stærðfræðideildinni en hún var til húsa í Beitarhúsunum við Hrafnagilsstræti, nokkrum skrefum frá skólanum. Hann vakti ungur athygli vegna skoð- ana sinna og málflutnings. Hann talaði tæpitungulaust og var skoðanafastur. Málfar hans var kjarnyrt og vestfirskt þar sem áhersla er á granna sérhljóða fremur en breiða sérhljóða í framburði, en þessi framburður er að mestu lið- in tíð. Þá má einnig nefna að hann barðist fyrir því að viðhalda bók- stafnum z í tungumálinu, en eins og allir vita var sá bókstafur felldur burt. Við bekkjarsystkinin höfum komið saman nokkrum sinnum á Akureyri til að fagna stúdents- afmælum, síðast þegar við áttum 60 ára stúdentsafmæli fyrir nokkrum árum. Þessir endur- fundir hafa styrkt og viðhaldið vináttu okkar frá skólaárunum. Þar að auki koma þau oftar sam- an sem búsett eru í Reykjavík. Þegar farið var að ræða um stofnun háskóla á Akureyri var við ramman reip að draga. Mörgum þótti það fjarstæða, það væri nóg að hafa einn háskóla í landinu og hann í Reykjavík. Nú eru 30 ár liðin frá stofnun háskólans á Akureyri. Það var í ráðherratíð Sverris sem það gerðist. Starfsemi skólans hefur eflst og dafnað og haft mikil áhrif til góðs á menningar- og atvinnu- líf í landinu og stutt við uppbygg- ingu Akureyrar sem skólabæjar. Hugheilar samúðarkveðjur til fjölskyldunnar frá bekkjarsyst- kinum í MA. Þórunn Sigurbjörnsdóttir. Sverrir Hermannsson fékk mörgu áorkað um ævina. Eitt af því besta sem hann gerði sem menntamálaráðherra var að viðurkenna stofnun Tölvuskóla Verslunarskóla Íslands og þátt- töku ríkissjóðs í greiðslu rekstrarkostnaðar hans. Hann lét ekki nægja að senda skólastjóra bréf þar um heldur fylgdi því eftir með símtali svo ekki færi á milli mála hvernig málið stæði og hvað þyrfti að gera til þess að ljúka því. Skólanefnd ákvað á næsta fundi sínum að skólinn skyldi heita Tölvuháskóli VÍ „til þess að skólastjóri gleymdi ekki hvert hann ætti að stefna“ eins og for- maður skólanefndar orðaði það. Það var ekki aðeins að þessi viðurkenning ráðherrans væri meðal seinustu bréfa sem út úr hans ráðuneyti fóru heldur varð sjálf fjárveitingin meðal síðustu færslna sem fóru inn á fjárlög rétt fyrir áramót sama ár. Þar að komu mætir alþingismenn og minnist ég sérstaklega þeirra Jóns Sigurðssonar og Sighvats Björgvinssonar í því sambandi. Sverrir Hermannsson á miklar þakkir skildar fyrir sinn þátt í til- urð Tölvuháskólans. Það var ekki ofmælt sem framkvæmdastjóri Verslunarráðs sagði eitt sinn að Tölvuháskólinn hefði bjargað ís- lensku atvinnulífi með því að út- vega því menntað tölvufólk um mörg fyrstu ár tölvuvæðingar fyrirtækjanna heldur er ljóst að ef Tölvuháskólinn hefði ekki orðið til þá væri Háskólinn í Reykjavík heldur ekki til því Tölvuháskólinn er forveri HR. Það má því segja að Sverrir hafi reist sér veglegan bautastein og hljóti að eiga inni þakklæti margra nemenda sem þar hafa hlotið menntun sína. Blessuð sé minning hans. Þorvarður Elíasson. Þau bjuggu í næsta nágrenni við foreldra mína og mig á barns- og unglingsárum mínum – Ögur- víkingurinn Hermann Her- mannsson og eiginkona hans, Salome, ásamt barnahópnum. Þar eru mér minnisstæðastir og næstir í aldri þeir Halldór og Birgir auk eldri systur þeirra, móður Hermanns Ásgeirssonar, leikfélaga míns. Eldri börnin, þ. á m. Sverrir, voru farin burt úr heimahúsum til náms og starfa. Var þeirra þó oft getið á Ísafirði, ekki síst Sverris, sem haslaði sér völl í verkalýðsmálum og síðan í stjórnmálum. Mætti ég honum þar á fyrsta vetri mínum sem al- þingismaður, vorið 1974. Strax tókst með okkur Sverri góður kunningsskapur. Við ræddum oft saman og höfðum líkar skoðanir á mörgu þó ekki stæðum við sam- an í stjórnmálaflokki. Sverrir var manna orðsnjallastur, lét oft að sér kveða í ræðustóli og var ávallt vel á hann hlustað. Meinhæðinn gat hann verið þó ég minnist þess aldrei að Sverrir hafi með orðum sínum sært nokkurn mann. Hann var af þessum gamla skóla sjálf- stæðismanna þar sem saman fóru stuðningur við einkarekstur og ábyrgð þeirra, sem fyrir slík- um rekstri fóru, ásamt djúpri samúð með þeim, sem voru minni máttar. Það var því í fyllsta sam- ræmi við skoðanir hans, sem hann tjáði sig vera algerlega and- vígan þeim meginstraumi, sem fyrst gætti í „leiftursóknartillög- um“ Sjálfstæðisflokksins í kosn- ingunum 1979 og kom honum og fleirum gersamlega á óvart – tók svo völdin og var kenndur við ný- frjálshyggju. Það kom því þeim, sem vel þekktu skaplyndi Sverris ekki á óvart, þegar hann tók þá ákvörðun að kveðja flokkinn, sem hann hafði stutt nánast allt frá unglingsárum og stofnaði til nýrra samtaka. Þann flokk nefndi Sverrir „Frjálslynda flokkinn“ og segir sú nafngift allt um í hvaða áttir hugur hans hafði beinst allt frá unglingsárum eins og sú ákvörðun hans bar vitni um að gerast ungur meðal öflugustu forystumanna íslenskrar verka- lýðshreyfingar sem félagsmaður VR, stofnandi Landssambands verslunarmanna og forystu- maður þar á bæ. Þessir gömlu sjálfstæðismenn voru margir eins og Sverrir, ásamt stuðningi við sjálfstæðisstefnuna eins og hún var þá túlkuð, jafnframt öfl- ugir liðsmenn í baráttu verka- lýðshreyfingarinnar og forystu- menn þar. Alþingismenn eins og Pétur Sigurðsson, Guðmundur H. Garðarsson – og Sverrir Her- mannsson. Slíkir menn sjást þar nú ekki lengur. Þeir hurfu með nýjum áherslum flokksins, áherslum, sem Sverrir var ekki sáttur við. Við Sverrir Hermannsson vor- um lengi samferða á Alþingi. Ræddum þar oft saman þótt skoðanir gætu verið skiptar. Þeg- ar ég, flestum á óvart, datt út af Alþingi í kosningunum 1983 og átti í fá hús að venda hvað at- vinnu og afkomu snerti kom Sverrir Hermannsson mér til að- stoðar og veitti mér sitt liðsinni í nokkra mánuði uns úr rættist. Það gerði hann þótt um svokall- aðan „pólitískan andstæðing“ væri að ræða. Og án þess að vera beðinn. Þannig maður var Sverrir. Ég kveð hann með eftirsjá og votta börnum hans og öðrum af- komendum innilega samúð mína. Sighvatur Björgvinsson, fyrrv. alþm. og formaður Alþýðuflokksins. Með Sverri Hermannssyni er fallinn frá eftirminnilegur sam- ferðamaður. Þótt fimm ár skildu okkur að og við værum hvor frá sínu landshorni áttu leiðir okkar eftir að liggja saman um langt skeið. Við vorum samtímis í Menntaskólanum á Akureyri fyrrihluta árs 1951, ég nýkominn að austan í landsprófsdeild en hann að útskrifast stúdent þá um vorið. Fyrstu karlnemendur fluttu inn á neðsta gang í nýrri heimavist MA þá í ársbyrjun og við Gunnar, tvíburar nýkomnir að austan, fengum þar inni ásamt með sjöttubekkingum sem urðu okkur eðlilega eftirminnilegir. Sverrir var einn í þeim hópi, deildi þar herbergi með Haraldi Bessasyni sem hann löngu seinna átti eftir að kalla í frá Vestur- heimi til að taka við forstöðu ný- stofnaðs háskóla á Akureyri. Næst áttum við Sverrir sam- fylgd í framboðsleiðangri til Al- þingis vorið 1967, en hann var þá um skeið varaþingmaður Sjálf- stæðisflokksins í Austurlands- kjördæmi. Þetta var kalt vor og gekk á ýmsu um farkosti þar sem keppinautar um fylgi deildu plássi í snjóbílum og varðskipum. Mælskumaðurinn Sverrir vakti eðlilega athygli á fundum, vest- firskt tungutak hans um margt ólíkt austfirskunni. Vorið 1971 erfði síðan Sverrir þingsætið eft- ir Jónas Pétursson, en þeir voru ólíkir menn um margt til orðs og æðis. Sverrir sat samfellt á Alþingi 1971-1987 og eftir að ég kom inn á þann vettvang 1978 lágu leiðir okkar saman jafnt í fundarsölum og á vettvangi þingmanna Aust- urlandskjördæmis. Auk þingset- unnar gegndi hann í tvö kjör- tímabil forstjórastarfi hjá Framkvæmdastofnun ríkisins, sem að vonum var umdeilt. Í tíð ríkisstjórnar Gunnars Thorodd- sens var Sverrir sem stjórnar- andstæðingur í hlutverki forseta neðri deildar sem ekki var auð- Morgunblaðið/Bjarni Eiríksson Sverrir Hermannsson leggur lokahönd á lengsta trefil í heimi á Álafossdögum árið 1985 þegar hann var iðnaðarráðherra. Um 300 manns prjónuðu trefilinn og var hann tæpir 30 m á lengd. SJÁ SÍÐU 24 MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MARS 2018

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.