Morgunblaðið - 23.03.2018, Síða 18

Morgunblaðið - 23.03.2018, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MARS 2018 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ RíkharðurKrist-jánsson verkfræðingur, þrautreyndur matsmaður og með- dómari, skrifar eft- irtektarverða grein í blaðið í gær, sem varðar ríka hagsmuni margra. Ekki skal tekin afstaða nú til sjónarmiða Ríkharðs né til til- lagna sem fylgja. En augljóst er að þarna er á ferð mál sem nauðsynlegt er að taka til um- ræðu. Það mættu félög dómara og lögmanna gera og einnig þingmenn og handhafar fram- kvæmdavaldsins. Ríkharður bendir á að sér- hæfðir meðdómendur hafi áður haft nokkurt svigrúm til að hafa áhrif á matsgerðir hafi þeim þótt vera rík nauðsyn þess, en því hafi verið breytt: „Í dag er oftast dæmt út frá fyrirliggj- andi matsgerð, hversu vitlaus sem hún kann að vera. Vitnað er gjarnan í dómum til þess laga- ákvæðis að matsþolar geti ósk- að eftir yfirmati, telji þeir fyrsta matið ekki sanngjarnt. Þetta táknar að dómurinn leggur í því tilfelli ekki faglegt mat á viðfangsefnið heldur segir einfaldlega: „undirmati hefur ekki verið hrundið með yfirmati og gildir það því óbreytt í máli þessu“. Það táknar að úrlausn dómsins hvað gallana áhrærir, viðgerð þeirra og kostnað og raunar bótafjárhæð færist að mestu leyti yfir til matsmann- anna. Menn myndu því álykta að sérstakar kröfur væru gerðar til matsmanna hvað menntun, reynslu, þekkingu, innsýn í lagaumhverfi og réttsýni varð- ar. Í raun er það hins vegar svo að nær engar formlegar kröfur eru gerðar til matsmannanna. Höfundur hefur í áranna rás séð ótrúlega margar illa unnar matsgerðir, byggðar á vanþekk- ingu á viðfangsefninu og greini- legri hlutdrægni. Aleiga fólks er oft undir og miklar kröfur eru gerðar til dómaranna en engar til þeirra sem í raun ráða oft niðurstöðum dómsins að minnsta kosti peningalegri en það er hún sem skiptir aðila mestu máli. Þegar lögmaður í umboði skjólstæðinga sinna óskar eftir tilnefningu matsmanns hjá dómstólum fer fram þinghald þar sem málið er tekið fyrir. Lögmönnum er yfirleitt gefinn kostur á að koma sér saman um matsmann eða matsmenn en takist það ekki skipar dómari matsmann. Það munu vera til listar hjá dómstólum yfir mats- menn en hvernig þeir listar hafa orðið til eða líta út veit höfundur ekki. En það eru fleiri sem hafa lista. Sumar lögfræðistofurnar hafa komið sér upp lista þar sem matsmenn hafa verið greindir og skipt í flokka. Þar má finna mats- menn sem að mati lögmannanna eru „hliðhollir mats- beiðendunum sem borga þeim, vinna mikið fyrir trygg- ingafélög, telja verktaka glæpamenn, hlusta ekki á kerlingavæl, kosta lítið, eru okkar menn“, o.s.frv. Verra er að það eru komnir fram matsmenn sem ýmist þjóna lögfræðistofunum beint í forvinnu í gallamálum eða vinna fyrir dómskerfið sem mats- menn. Þetta eru aðilar sem lög- fræðingarnir kalla gjarnan „sína menn“ og reyna að fá skip- aða sem matsmenn. Það þarf sterkan vilja til að bíta höndina sem fóðrar. Önnur áhætta er fólgin í því að flestir matsmenn eru starf- andi tæknimenn. Mikil hætta er á því að slíkir matsmenn meti ekki kerfisbundin atriði í hönn- un eða framkvæmd sem galla hafi þeir sjálfir beitt slíkum að- ferðum í fortíðinni. Þessi skortur á formlegum kröfum til matsmanna verður til þess að sami matsmaðurinn fæst við sprungur í steyptu húsi, myglu í þaki, svignun gólfa, einangrun þaka, bætur í bruna, alkalískemmdir í steypu, áhrif jarðskjálfta á grundun húsa, glerveggi, fasteignamöt, bílslys o.fl. o.fl. Enginn er sér- fræðingur í öllum þessum mál- um og matsgerðirnar bera keim af því. Almenningur sem á oft allt sitt undir í ágreinings- málum um galla á heimtingu á meiri fagmennsku. Höfundur telur að matsmenn eigi að undirgangast próf og fá formlega viðurkenningu sem matsmenn á vissum sviðum og undirgangast faggildingu á því sviði og færast á þann hátt á lista hjá dómstólum. Þeir ættu að hafa menntun á sviðinu og langa starfsreynslu. Þeir ættu að fara á sérstök námskeið þar sem m.a. ætti að kenna siðfræði og grundvallaratriði réttarkerf- isins auk matsfræða og Mats- mannafélag Íslands hefur hald- ið úti námskeiðum um matsfræði. Þeir ættu helst ein- göngu að fást við matsmál á sínu sviði eftir að þeir öðlast faggild- ingu til að varast hagsmuna- árekstra en það getur þó orðið bæði erfitt og raunar tvíeggjað. Matsmenn mættu ekki vinna á víxl fyrir lögfræðistofur og dómskerfið og yrðu að velja á milli og ættu að eiga á hættu að missa réttindin við brot á þessu atriði. Alltaf ætti að skipa a.m.k. tvo matsmenn. Það hefur jákvæð áhrif á matsstörfin og dregur úr líkum á spillingu. Dómari ætti alltaf að skipa matsmenn sjálfur eftir að hafa fengið staðfestingu lögmanna á því að ekki liggi fyrir vanhæfi.“ Ríkharður Krist- jánsson verkfræð- ingur hreyfir máli sem kallar á við- brögð} Þörf umræða opnuð M enntun þjóðarinnar varðar okk- ur öll. Hún varðar framtíð okkar, hagsæld og hamingju. Skólakerfið okkar annast svo þessa menntun, ásamt sam- félaginu, en í skólakerfinu koma einnig fjöl- margir aðrir þættir inn sem verður að hugsa um. Þar vil ég fyrst og síðast nefna líðan barna og ungmenna en einnig líðan starfsfólks sem í skólakerfinu starfar. Ég fjallaði í pistli hér í Morgunblaðinu fyrir skömmu um þá hugmynd mína að kalla til þjóð- fundar um menntun. Ég tel að sú mikla um- ræða sem skapaðist í liðinni viku í kjölfar mis- taka er urðu við framkvæmd samræmdra prófa grunnskólanema sýni að almenningi stendur ekki á sama um hvernig við högum málum. Ég er ekki að segja að okkur hafi staðið á sama áð- ur en ég tel ákveðin tímamót vera í samfélaginu. Það virð- ist vera meiri meðvitund um mikilvægi góðrar menntunar og afbragðs skólastarfs meðal almennings en einnig meiri krafa um að þeim sem í skólunum starfa, nemendum og starfsfólki, líði vel í því umhverfi. Þeir sem tekið hafa þátt í þessari umræðu að undanförnu eru vissulega kennarar og skólastjórnendur sem og sérfræðingar í hinum ýmsu fræðigreinum en einnig ungir og eldri nemendur sem og foreldrar þeirra. Ég tel mikilvægt að við nýtum okkur þessa vitundarvakningu sem ég tel mig finna í samfélag- inu. Þennan áhuga á að gera breytingar til batnaðar á skólakerfinu. Árið 2004 fóru grunnskólakennarar í níu vikna verkfall án þess að samfélagið færi á hliðina en ég er ekki viss um að slíkt yrði raunin í dag. Nú, tæplega fjórtán árum síðar hefur fjölmargt verið gert til bóta, en sumt einnig til tjóns að nokkurra mati og enn virðumst við vera í tölu- verðum vanda á öllum skólastigum. Það er okkur nauðsynlegt að taka ákvörðun um hvert við viljum stefna. Ekki bara varðandi grunn- skólastigið heldur einnig leik-, framhalds- og háskólastigið. Iðnnám og tæknibylting, allt er undir. Af þeim sökum vil ég aftur bera fram hug- myndina um að við köllum til þjóðfundar og jafnframt hvetja Lilju Alfreðsdóttur mennta- málaráðherra sem hefur sýnt að undanförnu að henni virðist raunverulega umhugað um þennan málaflokk, að hugleiða hvort það komi til álita. Þjóðfund mætti halda með svipuðu sniði og síðast er kallað var til þjóðfundar, með nokkurs konar slembiúrtaki meðal þjóðarinnar. Einnig mætti hafa slembiúrtak að hluta og að hluta fagfólk úr skólasamfélag- inu og sérfræðinga í hvers kyns iðn, tækni og menning- argreinum svo dæmi sé tekið, foreldra, ungt fólk, börn og eldri borgara og loks tryggja fulltrúa minnihlutahópa sem eins og aðrir búa yfir nauðsynlegri reynslu sem þarf að komast til umræðu. Ég held að úr slíku samtali gæti komið verulega áhugaverður gagnagrunnur af hugmyndum að bættu skólakerfi okkur öllum til hagsbóta. helgavala@althingi.is Helga Vala Helgadóttir Pistill Meira um menntun Höfundur er þingman Samfylkingarinnar. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen lega 1% í janúar og 0,7% í febrúar, sem er töluvert. Það er í samræmi við hækkunartakt upp á 8-10% á ári,“ segir Ari sem telur fátt benda til að eignir séu að koma á mark- aðinn á höfuðborgarsvæðinu sem muni hafa veruleg áhrif á verð- myndun niður á við. Hækkar fermetraverðið „Það sem er að koma á mark- aðinn mun ekki þrýsta verðinu niður. Þegar nýjum íbúðum, til dæmis í Bríetartúni og á RÚV- reitnum, verður þinglýst mun það hafa áhrif til hækkunar. Fermetra- verðið er svo hátt og hærra en á eldri íbúðum,“ segir Ari og útskýrir svo að hlutfallsleg fjölgun dýrari eigna hækki meðalverð á fermetra. „Svo gerist það væntanlega ein- hvern tímann að mælingin fer sjálf að toga. Fólk verðleggur íbúðir út frá þeirri þróun sem það heldur að sé í gangi,“ segir Ari. Hann telur aðspurður að sú áhersla í aðalskipulagi Reykjavíkur að byggja fyrst og fremst á þétting- arreitum muni að óbreyttu þrýsta fasteignaverði í borginni upp. „Miðað við að byggja eitt stykki Breiðholt einhvers staðar fyrir utan bæinn hefur þetta áhrif til hækk- unar. Það liggur í augum uppi. Síðan er reynt að segja sem svo að þetta sé ódýrara af því að þetta spari ferða- lög. Ég hef hins vegar aldrei séð áþreifanleg dæmi um hvernig sú niðurstaða er fengin,“ segir Ari. Morgunblaðið/Hari Við Höfðatorg Sérfræðingur hjá Landsbankanum segir hátt meðalverð á fermetra í nýjum íbúðum, t.d. í Bríetartúni og Jaðarleiti, smita út frá sér. Þétting byggðar sögð toga upp íbúðaverðið BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Áfram er útlit fyrir skort álitlum og ódýrum íbúðumá höfuðborgarsvæðinu. Þáeru vísbendingar um að fasteignamarkaðurinn sé orðinn tví- skiptur hvað kaupgetu snertir. Þetta segir Ari Skúlason, sér- fræðingur hjá Landsbankanum, sem telur að framboð af litlum og ódýr- um eignum muni ekki aukast mark- vert næstu tvö ár. Vandinn sé ekki bundinn við höfuðborgarsvæðið. „Ég hef heyrt um staði úti á landi þar sem erfitt var að koma blokkum eingöngu með litlum íbúð- um í gegnum skipulag. Ástæðan var krafa um að samhliða yrðu byggðar stærri íbúðir. Ef haldið er áfram á þessari braut er hætt við offramboði af stærri íbúðum. Hins vegar er þessi markaður skrýtinn. Hann er greinilega orðinn svolítið tvískiptur. Margir einstaklingar og félög geta keypt dýrt og þurfa ekki að hafa mikið fyrir því. Aðrir hópar eiga hins vegar erfitt með að komast inn á markaðinn,“ segir Ari. Milljón á fermetrann Verktaki sem ræddi við Morgunblaðið í trausti nafnleyndar reiknar með að fermetraverð nýrra smáíbúða í miðborginni verði í kringum milljón. Nýjar kynslóðir sætti sig við færri fermetra ef íbúð- irnar eru vel staðsettar. Hann benti á að smærri íbúðir séu hlutfallslega dýrari vegna krafna um eldhús og bað. Spáð er frekari verðhækkunum. Hagfræðideild Landsbankans spáði því í nóvember að íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu mundi hækka um 8,5% í ár. Hækkunin yrði þó töluvert minni en framan af ári í fyrra. Þá fór árshækkunin á tímabili vel yfir 20% og hækkunin milli ára 2016 og 2017 var 19%. Ari Skúlason bendir á að síð- ustu 20 ár hafi nafnverð fasteigna á höfuðborgarsvæðinu hækkað um rúmlega 9% á ári að meðaltali. „Þróunin virðist vera að nálgast það aftur. Árshækkunin fór langt yfir 20% á tímabili en er að koma niður undir 10% núna. Síðustu tvo mánuði hefur verð á fjölbýli hækkað tölu- vert. Hækkunin í fjölbýli var rúm- Ásgeir Jónsson, dósent í hag- fræði við Háskóla Íslands, segir fasteignamarkaðinn hafa tekið grundvallarbreytingum. Hærri laun og lægri vextir hafi knúið áfram hækkanir en skuldsetn- ing hafi minnkað. Vegna þessa sé orðið erf- iðara að komast inn á mark- aðinn. „Áður fyrr var verðið miklu lægra en vextir miklu hærri og veðkröfur rýmri. Þá var hægt að komast inn á markaðinn með lítið eigið fé en greiðslubyrðin var hlutfallslega meiri. Þá keypti ungt fólk kjallaraíbúð og stækkaði smátt og smátt við sig. Nú vantar lægstu þrepin í verðstigann og það eigið fé sem þarf að lágmarki til að kaupa er mun hærra,“ segir Ásgeir. Hann telur ekki merki um bólu á markaðnum. Fyrir hrun hafi mikið verið um ný hverfi. Nú sé byggðin þétt. „Sú stefna í nýju aðalskipulagi Reykjavíkur að byggja fyrst og fremst innan núverandi borgarmarka er að þrýsta verðinu upp og hefur að einhverju leyti tafið fyrir nýju framboði “ segir Ásgeir. Þrep vantar VERÐSTIGI FASTEIGNA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.