Morgunblaðið - 23.03.2018, Blaðsíða 37
Á höfuðborgarsvæðinu hefur veðurverið furðulega milt í marsmán-
uði. Fólk hefur í óskhyggju jafnvel
bitið í sig að farið sér vora hér við
nyrsta haf.
x x x
Víkverji trúir því ekki fyrr en hanntekur á því. Í raun finnst honum
hálfóþægilegt að veður sé svo gott í
mars. Það hlýtur að þýða að ofsa-
veður sé handan við hornið. Það er
ekki veðurguðunum líkt að leyfa eyja-
skeggjum að sigla í gegnum mildan
vetur.
x x x
Í gegnum tíðina hafa frasar eins ogpáskahret og skíðamót 17. júní tek-
ið sér bólfestu í þjóðarsálinni og ekki
endilega að ástæðulausu.
x x x
Kunningi Víkverja fékk bjartsýnis-kast um síðustu helgi. Ákvað að
komið væri vor og reif sig upp á milli
kl. 7 og 8 á laugardagsmorguninn til
þess að fara í golf á Hellu. Veðrið
mun hafa leikið við kylfinga um
morguninn að hans sögn.
x x x
Ekki varð sú upplifun til að draga úrbjartsýni kunningjans og hann
taldi sér trú um að hann gæti leikið
golf með góðu móti um páskana. Vík-
verji hefur takmarkaða trú á að svo
verði.
x x x
Víkverja finnst þó um að gera aðnjóta þess á meðan ágætlega
viðrar. Til dæmis er hægt að virða
fyrir sér mannlífið á meðan beðið er í
bílalestum borginni.
x x x
Sýnist Víkverja að bílalestin semáður hófst í Hlíðunum nái nú
nánast að Háskóla Íslands. Í umferð-
inni gefst nægur tími til að horfa í
kringum sig og spá í veðrið enda tek-
ur óratíma að komast á milli staða.
x x x
Víkverji finnur til með foreldrumsem þurfa að hendast hingað og
þangað til að skutla afkvæmum í tóm-
stundir. Hversu mikill tími myndi
sparast á degi hverjum með því að
búa úti á landi? vikverji@mbl.is
Víkverji
DÆGRADVÖL 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MARS 2018
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Gefðu þér tíma til að setjast niður
með öðrum og ræða sameiginlegar eignir og
ábyrgð í dag. Sýndu tillitssemi og leggðu
áherslu á samvinnu.
20. apríl - 20. maí
Naut Sum verkefni kalla á skrýtnar lausnir
svo þú skalt ekki útiloka neitt í þeim efnum.
Efasemdir sem hafa hrjáð þig að undanförnu
heyra sögunni til.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Bjartsýni þín leiðir þig langt og þeg-
ar sá gállinn er á þér njóta samstarfsmenn
þínir einnig góðs af. Láttu því reyna á sam-
starfsvilja annarra.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það kann ekki góðri lukku að stýra að
láta fjármálin reka á reiðanum. Stilltu eyrað á
niðinn sem segir þér hvers þú raunverulega
þarfnast og finndu róna sem þú hefur lengi
þráð.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Dropinn holar bergið svo þú skalt ekki
gefast upp á að berjast fyrir málstað þínum.
Afstaða þín mun gefa þér færi á að hugsa ým-
islegt til enda.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Nú er rétti tíminn til þess að gera vel
við sjálfa/n sig og næra líkama og sál. Drífðu
þig út og lyftu glasi ef þú hefur tök á.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það reynir á stjórnunarhæfileika þína og
þá ríður á að þú bregðist rétt við. Miðlaðu
góðlátlegum og einlægum orðum til einhvers
sem hefur átt í erfiðleikum.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Gefðu þér tíma til að hreinsa til í
geymslunni og losa þig við hluti sem nýtast
þér ekki lengur. Vinnuskipti og fjárfestingar
geta fært þér aukna velsæld.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það vefst fyrir þér að ganga frá
máli sem þér hefur verið falið að leiða til lykta.
Hvettu alla til þess að taka höndum saman til
að ná markmiði eða skipuleggja uppákomu.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Í tilraunum þínum til að gera alla
ánægða gætirðu gleymt meginatriðinu: líf þitt
skiptir líka miklu máli. Vertu sátt/ur við
sjálfa/n þig og ákvarðanir sem þú tókst á sín-
um tíma.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Varastu öll gylliboð, sem eiga að
færa þér hamingju og auðæfi í einu vetfangi.
Vertu staðföst/fastur og forðastu að falla í
freistni.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú hefur svo margt á þinni könnu að
hætta er á því að hlutirnir fari úr böndunum.
Ekki vera of fljót/ur á þér að segja já við verk-
efnum og við fólk.
Lofaður sé Drottinn er ber byrðar vor-
ar dag eftir dag, Guð er hjálpráð vort.
(Sálm: 68.20)
OCEAN MIST
Modus Hár og Snyrtistofa
Smáralind | harvorur.is
REF Stockholm er 12 ára gamalt
Professional haircare merki
Ocean Mist er 100 % Vegan ,
sulfate, Paraben, glúten
og Cruelity free
Verð 2.560 kr.
Sjá nánar á harvorur.is
Veðrabrigði“ eru klassískt yrkis-efni eins og sannast á Helga R.
Einarssyni:
Búkur kætist, örvast lífsins losti
er loksins kemur þíða’ á eftir frosti.
„Ég þakka það
og þennan stað,“
sagði karl við kellu sína’ og brosti.
Síðan yrkir Helgi um „leiðindi“:
Á Stínu með freknurnar starð ’ann,
svo strákurinn hennar loks varð ’ann.
En allt er nú breytt
hún ei þráir neitt
nema eins og t.d. að jarð ’ann.
Ég veit ekki hvort rétt er að
segja að Pétur Stefánsson kvarti
undan svartþröstum þegar hann
segir á Leir að þeir séu farnir að
kyrja ástarsöngva sína um miðjar
nætur og halda fyrir manni vöku:
Vorið nálgast, vaknar þrá,
vetur senn að baki.
Ýmislegt vill andann hrjá,
einn um nótt ég vaki.
Enda lítinn frið að fá
fyrir þrastakvaki.
Og Ingólfur Ómar segir að allt
bendi til þess að vorið sé í nánd, –
„en það mun þó kannski kólna eitt-
hvað, allavega er ekki langt í það.
Þrestirnir eru ansi kvikir og það er
ekki amalegt að vakna upp við
fallegan söng í bítið“:
Blístrar fugl á birkigrein,
blíðan söng mér færir.
Syngur burtu sorg og mein,
sinnið endurnærir.
Og hann lætur „þessa fylgja þó
snemmt sé“:
Gleði borið getur art,
greikkar spor til muna.
Eykur vorið yndisbjart,
orku þor og funa.
Ármann Þorgrímsson og Sig-
mundur Benediktsson hafa gaman
af því að kveðast á. Ármann byrjar
með athugasemdinni „þannig var
það“:
Þegar lífið lék mig verst
og lánið blakti á skari
hjálpaði þá montið mest
mínu heilsufari
Og Sigmundur svaraði, – „Rétt er
það Ármann. Minnimáttarkennd er
niðurdrepandi“:
Böguglingur bærir holt,
braginn hringar slyngur.
Glaður syngur sitt með stolt
sannur Þingeyingur.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af veðrabrigðum, svart-
þröstum og vorkomu
Í klípu
„TIL AÐ LESA NÆSTA SETT AF
BOÐORÐUM, SKROLLAÐU NIÐUR EÐA
RENNDU FINGRINUM TIL VINSTRI?“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÉG HELD AÐ VIÐ FÖRUM ÁÐUR EN
KÚREKAMYNDIN HEFST.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... það eina sem
virkilega skiptir máli.
Ó NEI!
ÉG MISSTI
SÍMANN MINN Í
VATNIÐ!
ÞAÐ ÚTSKÝRIR FÚLA
TÍSTIÐ FRÁ KARFANUM
ÞÚ STALST ÖLLU Í SÍÐUSTU VIKU SEM VAR
EKKI SKRÚFAÐ NIÐUR!
HVERS VEGNA
ERTU KOMINN
AFTUR?
VIÐ KEYPTUM
SKRÚFJÁRN!