Morgunblaðið - 23.03.2018, Qupperneq 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MARS 2018
Katrín Lilja Kolbeinsdóttir
katrinlilja1988@gmail.com
Ínáminu sérmenntaði ég migí endurnýtingu gamallastrúktúra og borgarhluta.Ég hef alltaf haft brennandi
áhuga á hönnun, byggingum og
skipulagi, en aðallega hef ég áhuga
á að vinna með fólki og upplifa
hvernig góðar byggingar geta
breytt lífi fólks, bókstaflega,“ segir
Steinunn Eik Egilsdóttir sem
stundar nám í arkitektúr í Oxford.
Í lok ársins 2013 fór Steinunn
Eik út til Palestínu ásamt tveimur
prófessorum og nokkrum sam-
nemendum sínum, en þar vann
hún lokaverkefni sitt í náminu.
Verkefnið vann hún með samnem-
endum sínum í litlum bæ sem ber
heitið Beit Iksa, en með byggingu
fyrirhugaðs múrs munu íbúarnir
þar hafa takmarkaðan aðgang að
ræktarlandi sínu og vatnsbólum.
„Markmiðið með ferðinni
okkar út var að vinna með bæjar-
búum við að setja upp einfaldar
vatnshreinsistöðvar þar sem vatn
frá heimilum væri hreinsað og svo
notað til vökvunar á ræktarlandi.
Þetta tókst vel og náðum við að
miðla þekkingu til fólks á svæðinu
svo verkefnið yrði sjálfbært og
þau gætu haldið áfram þessari
vinnu.“
Steinunn vann einnig verk-
efni með konum í bænum og
hennar persónulega lokaverkefni
var að hanna staði þar sem konur
gætu komið saman og gert sér
dagamun, dansað, eldað, styrkt
hvor aðra og glaðst. „Palestínskar
konur eru mjög sterkar konur og
hefur barátta Palestínumanna
gegn landráni og kúgun frá Ísrael
eflt sjálfstæði kvenna.“
Starfaði í Ghana með
Arkitektum án landamæra
Frá árinu 2013 hefur Steinunn
Eik búið og unnið í Afríkuríkinu
Fjölbreytnin gerir
hvern dag spennandi
Steinunn Eik Egilsdóttir er Skagastelpa í húð og hár, sem hefur ferðast vítt og
breitt um heiminn. Eftir að hafa lokið grunnnámi í arkitektúr við LHÍ, uppgerð
gamalla húsa í Reykjavík og skrásetningu eyðibýla í íslenskum sveitum, lá leið
hennar í framhaldsnám í arkitektúr í Oxford í Englandi. Hún hefur unnið og bú-
ið í Ghana og segist vilja koma heim með góða og fjölbreytta reynslu í farteskinu.
Arkitekt Steinunn Eik býr í fyrrverandi nautgripahúsi í Englandi.
Borgarbókasafnið hefur undanfarið
boðið upp á tækniverkstæði í sam-
starfi við Kóder, samtök sem vilja
kynna forritun fyrir ungmennum á
aldrinum 6-16 ára í sínu hverfi. Ein-
kunnarorð Kóders er forritun fyrir
alla, og hjálpast er að við að gera for-
ritun aðgengilega fyrir börn og ung-
linga úr öllum þjóðfélagsstigum. Á
morgun, laugardag 24. mars kl. 12-
14, verður Kóder með tækni- og
tilraunaverkstæði í Borgarbókasafn-
inu Sólheimum í Reykjavík sem er
ætlað fjölskyldum með börn á aldr-
inum 6-12 ára, til að kynnast forritun,
skapandi tækni og leikjum. Þar munu
börnin m.a. kynnast Rasperry Pi og
Scratch. Aðgangur er ókeypis en
skráning fer fram í síma 411-6161 eða
í tölvupósti, sigrun.jona.kristjans-
dottir@reykjavik.is.
Vefsíðan www.borgarbokasafn.is
Thinkstock
Tækni nútímans Forritun er skemmtileg og hentar krökkum á öllum aldri.
Forritun er fyrir börn og ung-
linga úr öllum þjóðfélagsstigum
Tónleikar Karlakórsins
Hreims, Ég veit þú kemur,
verða haldnir í Eldborg í
Hörpu kl. 16 á morgun,
laugardaginn 24. mars.
Dagsetning tónleikanna var
röng í Morgunblaðinu í gær.
Beðist er velvirðingar á
mistökunum.
Leiðrétting
Hreimur í
Hörpu á
morgun
Ljósmynd/Atli Vigfússon
Hreimur Kórfélagar eru á öllum aldri.
Nú þegar birtir æ meira með hverjum
deginum og vorilmur liggur í loftinu
skreyttur fuglasöng, fara aðrir vor-
fuglar á kreik, karlakórar landsins
fagna ævinlega vorkomunni með
söng sínum. Karlakór Kjalnesinga er
þar engin undantekning og voru fyrri
vortónleikar þeirra í gær en þeir
seinni verða á morgun, laugardag, í
Langholtskirkju kl. 16. Þeir skarta
þetta vorið einsöngvara í úrvals-
flokki, Þóra Einarsdóttir sópran syng-
ur með þeim inn vorið. Á efniskránni
er blanda af dægurlagaperlum og
klassískum lögum sem verða flutt
bæði með og án undirleiks hljóðfæra-
leikara. Hljómsveitina skipa Agnar
Már Magnússon á píanó, Benedikt
Brynleifsson á trommum, Jón Elvar
Hafsteinsson á gítar og Jón Rafnsson
á bassa. Einnig er strengjakvartett
með kórnum þar sem Zbignew Dubik
og Bryndís Pálsdóttir leika á fiðlu,
Herdís Anna Jónsdóttir á víólu og
Sigurður Halldórsson á selló. Þetta
verður því mikil tónaveisla sem eng-
inn ætti að láta framhjá sér fara, en
stjórnandi kórsins er Marton Wirth.
Vor í lofti hjá Karlakór Kjalnesinga
Þóra ætlar að syngja inn vorið
með körlunum frá Kjalarnesi
Morgunblaðið/Eggert
Söngkona Þóra Einarsdóttir sópransöngkona er þekkt fyrir rödd og túlkun.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is
Þýsk gæða felliborð frá A2S
Tilboð
Hægt að velja um 4 liti á plötu. RAL litir á stelli og laserlímdir kantar.
140 x 80 cm – Tilboðsverð: 51.400 kr.
160 x 80 cm – Tilboðsverð: 72.500 kr.
Vagnar - Tilboðsverð: 69.000 kr.
5 ára ábyrg
ð