Morgunblaðið - 23.03.2018, Qupperneq 33
mætu minningar sem ég á af
þér. Þú ert og verður alltaf mín
fyrirmynd.
Láttu nú ljósið þitt
loga við rúmið mitt.
Hafðu þar sess og sæti,
signaði Jesús mæti.
(Höf. ók.)
Kolbrún Íris Káradóttir.
Elsku amma.
Það eru engin orð sem lýsa
því hversu mikið við söknum þín
og hversu þakklátar við verðum
ávallt fyrir allar stundirnar sem
við fengum að njóta með þér.
Það voru forréttindi að fá að
kalla þig ömmu okkar. Minning-
ar okkar með þér munu aldrei
gleymast og þú munt alltaf eiga
stóran stað í hjarta okkar.
Við höfði lútum í sorg og harmi
og hrygg við strjúkum burt tárin af
hvarmi.
Nú stórt er skarð í líf okkar sorfið
því fegursta blómið er frá okkur
horfið.
Með ástúð og kærleik þú allt að þér
vafðir
og ætíð tíma fyrir okkur þú hafðir
þótt móðuna miklu þú farin sért yfir
þá alltaf í huga okkar myndin þín lifir.
Við kveðjum þig, amma, með söknuð í
hjarta,
en minning um faðmlag og brosið þitt
bjarta.
Allar liðnar stundir um þig okkur
dreymi
og algóður Guð á himnum þig geymi.
(Sigfríður Sigurjónsdóttir)
Þú varst okkar uppáhald, við
elskum þig amma.
Margrét, Andrea
og Dagmar.
Elsku amma, nú er komið að
kveðjustund. Um huga minn
streyma ótal margar minningar
um þig og þegar ég hugsa til
baka er ótrúlega margt sem við
höfum brallað saman.
Í huga minn kemur fljótt ferð
sem við fórum í þegar við sóttum
þig á Nesvellina og fórum í bíl-
túr um Suðurlandið, fengum
okkur kaffi og rjómapönnukökur
í Eden og skoðuðum blómin í
gróðurhúsunum. Það var alltaf
gott að vita af því að þú varst
ávallt með eitthvert gotterí í
veskinu, sem kom sér vel í bíl-
túrnum. Við fórum síðan heim til
mín og þú gistir hjá okkur alla
helgina, við grilluðum og lágum
í sólbaði. Þér fannst heldur ekki
leiðinlegt að láta stjana við þig
með plokkun og litun, ég setti
meira að segja á þig gelneglur.
Þú varst ótrúlega skemmti-
leg, með húmor og gast alveg
látið í þér heyra og var mjög
gaman að rökræða við þig um
allt milli himins og jarðar. Þú
varst sterk kona með sterkar
skoðanir.
Hvíldu í friði, elsku amma.
Kristjana Sigríður Helga-
dóttir og fjölskylda.
Elsku amma, nú hefur þú lok-
ið þessari jarðvist og fengið að
sofna svefninum væra.
Elsku amma mín var ofur-
kona og tók alltaf á móti mér
með opinn faðminn og sparaði
ekki ástina og umhyggjuna. Mér
fannst ég alltaf svo lánsöm að
eiga svona flotta og góða ömmu
sem var mér virkilega góð. Ég
gat alltaf leitað til hennar á ung-
lingsárum mínum og var ávallt
velkomin til ömmu og afa í Keiló
og þakka ég henni ævinlega fyr-
ir það.
Þegar ég fór að læra hár-
snyrtinn hafði amma ofurtrú á
mér og var alltaf tilbúin að koma
með strætó í skólann til að vera
hármódel og hjálpa elsta barna-
barninu. Ég var alltaf afar stolt
þegar amma tók mig í fangið og
minnti mig á að ég væri elsta
barnabarnið og svo eignaðist ég
fyrsta langömmubarnið hennar
og sonur minn gerði hana að
langalangömmu. Við vorum svo
heppin að amma náði að knúsa
langalangömmubarnið sitt hana
Söru Björk og minningar um
þessar stundir geymi ég í hjarta
mínu.
Amma var ávallt stolt af af-
komendum sínum, sem eru
orðnir mjög stór hópur, og
skemmtilegar minningar urðu
til í Keilufellinu þar sem amma
og afi bjuggu. Það voru ófáar
heimsóknir á sunnudögum til
þeirra, sem voru mjög skemmti-
legar og líflegar.
Elsku amma, söknuðurinn er
mikill en ég er þakklát fyrir
yndislega vináttu og ástúð sem
þú gafst mér alltaf og ég geymi
allar fallegu minningarnar í
hjarta mínu.
Þín alltaf,
Ingibjörg Þóra.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MARS 2018
Raðauglýsingar
Raðauglýsingar
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir
Bakkastaðir 101, Reykjavík, fnr. 224-3421, þingl. eig. Laufey Björns-
dóttir og Rúnar Þór Guðjónsson, gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf.,
þriðjudaginn 27. mars nk. kl. 10:00.
Bogahlíð 26, Reykjavík, fnr. 203-1360, þingl. eig. Sigrún Jónsdóttir,
gerðarbeiðendur Lífeyrissj.starfsm.rík. B-deild, Vátryggingafélag
Íslands hf., Lífeyrissjóður verslunarmanna, Bogahlíð 24-26,húsfélag
og Tollstjóri, þriðjudaginn 27. mars nk. kl. 14:00.
Fossaleynir 16, Reykjavík, fnr. 226-6191, þingl. eig. Smápartar ehf.,
gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf., þriðjudaginn 27. mars nk. kl. 11:00.
Gnoðarvogur 44, Reykjavík, fnr. 202-2896, þingl. eig. Vörur ehf.,
gerðarbeiðendur Reykjavíkurborg og Söfnunarsjóður lífeyrisrétt-
inda, þriðjudaginn 27. mars nk. kl. 15:00.
Lækjarvað 5, Reykjavík, fnr. 227-0512, þingl. eig. Guðmundur Páll
Ólafsson, gerðarbeiðendur Íslandsbanki hf. og Tollstjóri, þriðjudag-
inn 27. mars nk. kl. 10:30.
Smárarimi 68, Reykjavík, 40% ehl., fnr. 203-9600, þingl. eig. Arnar
Arinbjarnar, gerðarbeiðandi Arion banki hf., þriðjudaginn 27. mars
nk. kl. 11:30.
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
22. mars 2018
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni
sjálfri, sem hér segir:
Reykjabraut 11, Reykhólahreppur, fnr. 212-2771, þingl. eig. Eygló
Kristjánsdóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn 28.
mars nk. kl. 13:00.
Sýslumaðurinn á Vestfjörðum
21. mars 2018
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9 og bingóið vinsæla kl. 13.30,
verið velkomin!
Árskógar Smíðastofan er lokuð. Páskabingó kl. 13. Opið hús kl. 13-
16. Bókabíllinn kemur við Árskóga 6-8 kl. 16.15-17. Opið fyrir innipútt.
Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni,
Allir velkomnir. S. 535-2700.
Boðinn Vatnsleikfimi í sundlaug Boðans kl. 9.10. Vöfflukaffi kl. 14.30.
Línudans fyrir byrjendur og og lengra komna kl. 15.15.
Bòlstaðarhlìð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16. Heimsókn frá ungl-
ingum í Háteigsskóla kl. 10-11. Leikfimi kl. 12.50-13.30.
Dalbraut 18-20 Stólaleikfimi hjá Rósu kl. 10.15.
Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Leikfimi kl. 13.45. Kaffiveitingar kl.
14.30. Allir velkomnir!
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Aðstoð við notkun á æfingatækjum kl.
9.30-10.30, föstudagshópurinn kl. 10-11.30, gönguhópur kl. 10.30,
handaband, vinnustofa með leiðbeinendum kl. 13-16, páska-bingó í
sal kl. 13.30, 300 kr. spjaldið, vöfflukaffi kl. 14.30. Verið velkomin á
Vitatorg, síminn er 411-9450.
Furugerði 1 Fjöliðja opin frá kl. 10-16. Sitjandi leikfimi og öndunar-
æfingar kl. 11. Ganga með virkniþjálfa kl. 13. Föstudagsfjör, sýning
heimildamyndar um Álftagerðisbræður kl. 14. Páskabingó kl. 19.
Garðabær Jónshúsi / félags- og íþróttastarf sími 512-1501. Opið í
Jónshúsi og heitt á könnunni alla virka daga frá kl. 9.30-16. Göngu-
hópur frá Jónshúsi kl. 10. Páskabingó á vegum FEBG í Jónshúsi kl.
13. Bíll fer frá Litlakoti kl. 12.20, Hleinum kl. 12.30 og frá Garðatorgi 7
kl. 12.40 og til baka að lokinni félagsvist ef óskað er. Smiðjan í Kirkju-
hvoli er opin kl. 13-16. Allir velkomnir.
Gerðuberg Opin handavinnustofa kl. 8.30-16. Glervinnustofa með
leiðbeinanda kl. 9-12. Prjónakaffi kl. 10-12. Leikfimi gönguhóps kl. 10-
10.20. Gönguhópur um hverfið kl. 10.30. Bókband með leiðbeinanda.
kl. 13-16. Kóræfing kl. 13-15.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9.10 botsía, kl. 9.30 postulínsmálun, kl.
13 tréskurður, kl. 13 gönguhópur, frjáls mæting. Ath.: Félagsmiðstöð-
inni lokað kl. 14 í dag.
Gullsmári Handavinna kl. 9. Leikfimi kl. 10. Félagsmiðstöðinni lokað
kl. 14 vegna fræðslu-/ starfsdags starfsmanna.
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Opin handavinna kl. 9-12. Útskurður kl. 9, verkfæri á staðnum og
nýliðar velkomnir. Hádegismatur kl. 11.30. Páskabingó kl. 13.15. Kaffi
kl. 14.30.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8-16, morgunkaffi og
spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi, morgunleikfimi kl.
9.45, jóga kl. 10 hjá Carynu, hádegismatur kl. 11.30. Spilað brids kl. 13,
páskabingó kl. 13.15, kaffisala í hléi. Fótaaðgerðir 588-2320, hársnyrt-
ing 517-3005, kemur heim ef þess er óskað.
Hveragerði Aðalsafnaðarfundur Hveragerðissóknar verður haldinn í
safnaðarheimili kirkjunnar miðvikudaginn 28. mars nk. kl. 20.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Sóknarnefnd.
Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnuð kl. 8.50. Við hringborðið kl.
8.50, boðið upp á kaffi. Frjáls tími í Listasmiðju, thai chi með Guðnýju
kl. 9-10, botsía kl. 10.15-11.20, hádegismatur kl. 11.30 (panta þarf fyrir
kl. 9 samdægurs). Zumbadansleikfimi með Auði Hörpu kl. 13-13.50,
eftirmiðdagskaffi kl. 14.30, Hæðargarðsbíó kl. 14:30. Allir velkomnir,
óháð aldri. Nánari uppl. í s. 411-2790.
Korpúlfar Hugleiðsla og létt jóga kl. 9 í Borgum. Brids hópur Korp-
úlfa kl. 12.30 í Borgum. Hannyrðahópur Korpúlfa kl. 12.30 í Borgum.
Tréútskurður kl. 13 á Korpúlfsstöðum og sundleikfimi í Grafarvogs-
sundlaug kl. 15 í dag. Vöfflukaffi í Borgum frá kl. 14.30 til 15.30, allir
velkomnir og minnum á spennandi félagsfund Korpúlfa miðvikudag-
inn 28. mars í Borgum.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja kl. 9-12, listasmiðja
með leiðbeinanda kl. 9-12, morgunleikfimi kl. 9.45, upplestur kl. 11,
bingó kl. 14, ganga með starfsmanni kl. 14. Uppl. í s. 4112760.
Selið, Sléttuvegi 11-13 Selið er opið frá kl. 10-14. Upp úr kl. 10 er
boðið upp á kaffi og gaman að koma í spjall og kíkja í blöðin. Ganga
kl. 10. Hádegisverður kl. 11.30-12.15. Framhaldssaga kl. 13. Allir eru
hjartanlega velkomnir í Selið. Nánari upplýsingar hjá Maríu í síma
568-2586.
Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Jóga / hláturjóga saln-
um Skólabraut kl. 11. Syngjum saman í salnum á Skólabraut kl. 13.
Spilað í króknum kl. 13.30 og brids í Eiðismýri kl. 13.30. Munið páska-
eggjabingóið í safnaðarheimili kirkjunnar mánudaginn 26. mars kl.
19.30. Fólk hvatt til að fjölmenna og taka með sér gesti.
Stangarhylur 4 Zumba kl. 10.30, umsjón Tanya. Bókmenntahópur
FEB kl. 14–16: Þríleikur Vilborgar Davíðsdóttur um Auði djúpúðgu;
Auður, Vígroði og Blóðug jörð. Jónína fjallar um bækurnar og stýrir
umræðum
Vesturgata 7 Enska, leiðb. frá kl. 10-12 Peter R.K.Vosicky. Sungið við
flygilinn kl. 13-14, Gylfi Gunnarsson. Kaffiveitingar kl. 14-14.30.
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Til sölu
HITAVEITU-
SKELJAR
HEITIRPOTTAR.IS
HÖFÐABAKKA 1
SÍMI 777 2000
Video upptökuvél
Glæný og ónotuð Canon EOS
C100 Mark II. Framl: Japan. Upphaf-
legt verð (479.900). Selst á 280.000.
Vídeó upptökuvél Canon XA 35.
Stór rafhlaða. Upphaflegt verð
(319.900). Selst á 180.000. Keyptar í
Nýherja / Origo í Borgartúni 37.
Eru með 2 ára ábyrgð. Uppl. í síma:
833-6255 og 899 8325
Þjónusta
Faglærðir málarar
Tökum að okkur öll almenn
málningarstörf. Tilboð eða
tímavinna. Sími 696 2749 -
loggildurmalari@gmail.com
Ýmislegt
Herraskór úr leðri
í stærðum 39-47 á aðeins
kr. 9.990
- Allt á að seljast!
Laugavegi 178, sími 551 2070.
Opið mán. - fös. kl. 10–18,
Laugardaga kl. 10 - 14
Húsviðhald
FLÍSALAGNIR - MÚRVERK
FLOTUN - SANDSPARSL
MÁLUN - TRÉVERK
Ásamt öllu almennu viðhaldi
fasteigna
Áratuga reynsla og þekking
skilar fagmennsku og gæðum
Tímavinna eða tilboð
Strúctor
byggingaþjónusta ehf.
S. 893 6994
Atvinnublað alla laugardaga
ER ATVINNUAUGLÝSINGIN ÞÍN Á BESTA STAÐ?
Sendu pöntun á augl@mbl.is eða hafðu samband í síma 569-1100
Allar auglýsingar birtast bæði í Mogganum og á mbl.is
mbl.is
Til Sumarlandsins
sveifstu burt einn
kaldan vetrardag
södd af þessum sjúkdómi sem kom
sem reiðarslag
og eftir standa allir þeir sem elskuðu
þig heitt
sorgmæddir og máttvana og geta
engu breytt.
Þú alltaf varst svo blíð og góð og hlý
og yndisleg
umvafðir og gættir þess að greiða
allra veg
þín jákvæðni og gleði gaf svo mikið
allra til
með hlátrinum og glettninni þú veittir
birtu og yl.
Þú elskaðir að hitta fólk og vera
vinum með
gleðjast yfir góðum mat og létta
allra geð
Þreyttist seint að safna saman fólki
kringum þig
Erla
Vilhjálmsdóttir
✝ Erla Vilhjálms-dóttir fæddist
23. mars 1958. Hún
lést 11. janúar
2018.
Útför Erlu fór
fram 23. janúar
2018.
þeytast yfir höf og lönd
að kanna ókunn stig.
Og við sem eftir sitjum
erum enn að venjast
því
að elsku Erla lifi ekki
okkar heimi í.
Að glettna brosið birt-
ist ekki lengur óvænt
hér
og faðmlagið sem gaf
hún öllum
Í dag hún hefði örugglega hóað okkur í
heljarinnar teiti til að gleðjast yfir því
að sex nú séu tugirnir frá hennar
fyrstu stund
er fæddist þetta litla ljúfa dásamlega
sprund.
Með tregablöndnum söknuði til hennar
hugsum nú
á nýjum stað hún njóti sín við höfum
fulla trú
hún hlæi dátt og deili sínum kærleika
og ást
og minningarnar um hana úr hjörtum
aldrei mást.
(Bergljót Hreinsdóttir 2018)
Til hamingju með daginn þinn
elsku hjartablóm ... sakna þín.
Þín vinkona,
Bryndís.