Morgunblaðið - 28.03.2018, Side 4

Morgunblaðið - 28.03.2018, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 2018 Ljósmyndir Rutar og Silju Skipholti 31 | 105 Reykjavík | Sími 568 0150 | www.rut.is | Ljósmyndir Rutar og Silju MYND ER MINNING Fermingarmyndir „Bókanir hafa farið mjög vel af stað, en einungis standa u.þ.b. 600 stæði eftir sem farþegar geta tryggt sér,“ segir Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia, en nýverið var þeim tilmælum beint til fólks sem hyggst leggja land undir fót um páskana og ferðast til og frá Keflavíkurflugvelli á eigin ökutæki að bóka bílastæði við flugstöðina fyrirfram. Er það gert til að forðast það að fólk fái ekki stæði fyrir bíla sína þegar á flugvöllinn er komið, en í fyrra fylltust stæðin og olli það flug- farþegum töluverðum óþægindum. Guðjón segir allt útlit vera fyrir að stæðin fyllist einnig í ár. Þá segir hann mikilvægt að fólk leggi ekki bílum sínum við innganginn að brottfararsalnum. Mikilvægt sé að hafa svæðið óhindrað þegar mikil umferð fólks er um flugvöllinn. Þeir ökumenn sem ekki fara eftir þess- um tilmælum mega búast við sekt. Hægt er að panta bílastæði á bókunarkerfi sem finna má á heima- síðu Isavia, en forpöntun fylgja einnig betri kjör á þjónustunni. Bílastæðin við Leifsstöð fyllast á næstu dögum Morgunblaðið/Hari Leifsstöð Búast má við margmenni á flugvellinum um páskana.  Um 600 laus stæði yfir páska Bílastæðavandi » Hægt er að panta bílastæði við Keflavíkurflugvöll í bók- unarkerfi á heimasíðu Isavia. » Stæðin fylltust í fyrra og stefnir í sama ástand nú. » Þeir sem leggja bílum sínum við innganginn að brottfararsal flugvallarins verða sektaðir. Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Eldsneytisverð hefur haldist svo gott sem óbreytt hér á landi frá áramótum. En það er þó einn aðili á markaði sem hefur verið að lækka sig að undanförnu og það er Costco,“ segir Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB), í samtali við Morgunblaðið, en eldsneytisverð á bensínstöð Costco lækkaði seinast um fimm krónur fyrir um viku. Algengt verð olíufélaganna á bensíni í gær var 212,80 krónur og á dísilolíu 206,60 til 206,90 krónur. Verð á bensíni hjá Dælunni og Orkunni X var á bilinu 203,10 til 203,40 krónur og á dísilolíu var verðið 195,70 til 195,80 krónur. Á bensínstöð Costco í Garðabæ var hins vegar hægt að kaupa bensín á 183,90 krónur og dísilolíu á 180,90 krónur. Fólk njóti gengisbreytinga „Næstlægsta verð á bensíni sem fólk finnur í almennri sölu er hjá Dælunni á 203,10 krónur. Það mun- ar því tæplega 20 krónum á lítra- verðinu hjá þeim og Costco,“ segir Runólfur og bætir við að almennt sé fylgni á milli lækkunar eldsneytisverðs og styrkingar ís- lensku krónunnar gagnvart Banda- ríkjadal, en frá því í janúar síðast- liðnum hefur dollarinn fallið og stendur nú í um 98 krónum. „Costco eru einir um að láta neyt- endur njóta þessarar þróunar,“ seg- ir Runólfur. Þá segir Runólfur það áhuga- verða þróun að á bensínstöðvum í námunda við Costco megi gjarnan finna lægra eldsneytisverð en á öðr- um stöðvum. „Lægsta verðið er yf- irleitt næst Urriðaholti, en svo hef- ur reyndar eitthvað bólað á lægra eldsneytisverði á Egilsstöðum og Akureyri,“ segir hann. Hækkanir samhliða söfnun Eggert Þór Kristófersson er for- stjóri N1. Hann segir ýmislegt geta haft áhrif á ákvörðun eldsneytis- verðs, s.s. heimsmarkaðsverð á olíu og ástand alþjóðastjórnmála. „Verð á heimsmarkaðsverði get- ur breyst hratt og oft er hækkun á mörkuðum núna því margir eru að birgja sig upp fyrir sumarið. Þessi hækkun á það oft til að ganga til baka, það er mjög algengt,“ segir hann og bætir við að sumarhækk- anir nái oft hámarki í lok apríl. „Svo má ekki horfa framhjá ólgu í stjórnmálum á heimsvísu. Öll um- ræða um aukinn pólitískan þrýsting á Rússa hefur t.a.m. alltaf neikvæð áhrif á olíuverð með þeim afleið- ingum að það hækkar.“ Eldsneytisverð nær óbreytt frá áramótum  Verð á bensíni og olíu hjá Costco í Garðabæ lækkaði nýverið um fimm krónur Þróun eldsneytisverðs og gengi dollars 220 215 210 205 200 105 100 95 kr./lítra 1$= Eldsneytisverð Gengi dollars, kr. 1. janúar 2018 27. mars 2018 Verð hjá Costco 27. mars: Bensín: 183,90 kr., dísel: 175,90 kr. Sjálfsafgreiðsluverð á þjónustustöð: Bensín Dísilolía Gengi bandaríkjadals Runólfur Ólafsson Eggert Þór Kristófersson Sigurður Bogi Sævarsson Arnar Þór Ingólfsson Sá möguleiki er nú ræddur að hluti af Hamraneslínu, sem liggur í gegnum hið nýja Skarðshlíðarhverfi í Hafn- arfirði, verði settur í jörð. Sem kunn- ugt er felldi úrskurðarnefnd um- hverfis- og auðlindamála á mánudag úr gildi framkvæmdaleyfi vegna svo- nefndrar Lyklafellslínu sem koma átti í stað háspennulínunnar sem kennd er við Hamranes. Einnig er til umræðu að færa línurnar úr Skarðs- hlíðarhverfi til bráðabirgða uns önn- ur lausn finnst. Að Hamraneslína, sem er milli Geitháls og Straumsvíkur, skuli liggja í gegnum Skarðshlíð er fyrir- staða uppbyggingar í hverfi þar sem gert er ráð fyrir á sjötta hundrað íbúðum og margvíslegri starfsemi þar sem Hafnarfjarðarbær leggur mikið undir. Lyklafellslína myndi hins vegar liggja af Sandskeiði vest- an Bláfjalla suður að Helgafelli og þaðan í Straumsvík. Frestun óhjákvæmileg „Úrskurðurinn þýðir frestun, það er óhjákvæmilegt. Hversu lengi er ekki hægt að segja á þessu stigi. Við munum ræða við Skipulagsstofnun og sjá hvaða leiðir eru færar,“ segir Steinunn Þorsteinsdóttir, upplýs- ingafulltrúi Landsnets, í samtali við Morgunblaðið. Fulltrúar fyrirtækisins og Hafnar- fjarðarbæjar funduðu um úrskurðinn í gær og möguleg næstu skref. Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála telur að í gögnum Landsnets hafi ekki verið sýnt nægj- anlega fram á að jarðstrengskostir væru ekki raunhæfir. Þá hafi sam- anburður á umhverfisáhrifum þeirra og loftlínu, eins og Landsnet vill reisa, verið með þeim hætti sem lög gera ráð fyrir. Hjá Landsneti hefur hins vegar komið fram að lagning jarðstrengja í vegstæði Bláfjallaveg- ar væri tæknilega framkvæmanlegur kostur en rúmum fimm milljörðum króna dýrari en loftlína. Miður ef uppbygging tefst Ógn við vatnsból var einnig meðal atriða sem felldu framkvæmdaleyfið, en úrskurðurinn um Lyklafellslínu er svar við kæru sem Náttúru- verndarsamtök Suðvesturlands og Hraunavinir lögðu fram. Ragnhildur Jónsdóttir, formaður Hraunavina, segir að sér þyki miður ef uppbygging í Skarðshlíðarhverfi tefjist vegna þessa, en að setja loft- línu yfir grannsvæði vatnsbólanna hafi verið afleit hugmynd. Vissulega vanti íbúðarhúsnæði en sé hreint drykkjarvatn ekki í boði bresti allt annað. Eydís Franzdóttir, formaður Nátt- úruverndarsamtaka Suðvesturlands, fagnar úrskurðinum og því að nú sé hægt að skoða aðra möguleika við til- færslu Hamraneslínu. „Auðvitað má vera ljóst að það þarf að færa Hamra- neslínu frá byggðinni. Réttara sagt: það er búið að skipuleggja byggð of- an í háspennulínu sem er algjör óvissa um hvert er að fara. Mér finnst að Hafnarfjarðarbær hafi gengið of hratt fram í skipulagningu á þessu svæði miðað við framgang mála hjá Landsneti,“ segir Eydís. Ljósmynd/Efla Rafmagn Hamraneslína við Elliðavatn, þar sem hún liggur frá Geithálsi, þaðan um Heiðmörk suður í Straumsvík. Línurnar í jörð eða bráðabirgðaflutningur  Tafir eru fyrirséðar vegna úrskurðar um Lyklafellslínu Lyklafellslína Grunnkort/Loftmyndir ehf. Straumsvík Reykjavík Hamraneslínur 1 og 2 Ísallínur 1 og 2 Lyklafellslína Búrfellslína 3

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.