Morgunblaðið - 28.03.2018, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 2018
Hentar mjög vel
íslenskri veðráttu
Við höfum framleitt viðhaldsfría
glugga og hurðir í yfir 30 ár
Nánari upplýsingar á www.solskalar.is
Frábært skjól gegn vindi og regni
Sólskálar
-sælureitur innan seilingar
198
4 - 2016
ÍS
LEN
SK FRAML
EI
ÐS
LA32
Yfir 90 litir í boði!
Smiðsbúð 10 • 210 Garðabær • Sími 554 4300 • solskalar.is
BLÓMLEGIR PÁSKAR
með Ísblómum
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Forkynning stendur nú yfir á tillögu
að deiliskipulagi í austurhluta Urr-
iðaholts í Garðabæ. Deiliskipulagið
nær til 21,5 hektara svæðis þar sem
gert er ráð fyrir íbúðahverfi fyrir um
495 íbúðir í 2-5 hæða fjölbýlishúsum,
rað-, par- og einbýlishúsum. Íbúð-
irnar eru af mismunandi stærð og
geta hentað fyrir alla aldurshópa. Á
skipulagssvæðinu er gert ráð fyrir
almenningsgarði með íþrótta-
aðstöðu.
Gert er ráð fyrir gatna- og veitu-
framkvæmdum í austurhlutanum
næsta vetur og að einstaka bygging-
arlóðir geti orðið byggingarhæfar
sumarið 2019. Nú eru í Urriðaholti
fullfrágengin hús með 460 íbúðum
Yfir 500 íbúðir eru á hinum ýmsu
stigum framkvæmda og á þeim öllum
að vera lokið síðari hluta næsta árs.
Áætlað er að íbúðirnar í austurhlut-
anum verði fullbyggðar árið 2021.
Íbúafjöldi í Urriðaholti í heild gæti
orðið allt að fimm þúsund manns.
Skipulagssvæðið er í eigu Urr-
iðaholts ehf. sem er félag í meiri-
hlutaeigu Oddfellow-reglunnar á Ís-
landi. Urriðaholt ehf. hefur staðið að
gerð deiliskipulagsins, í samráði við
Garðabæ. Svæðið liggur að Flótta-
mannavegi en austan hans er upp-
land Garðabæjar og golfvöllurinn
Oddi. Vestan skipulagssvæðisins eru
vesturhluti Urriðaholts og háholtið
þar sem mikil uppbygging á sér stað
um þessar mundir.
Kynningarfundur
Forkynning stendur til 10. apríl
2018 og meðan á henni stendur er til-
lagan aðgengileg á heimasíðu Garða-
bæjar og á heimasíðu Urriðaholts.
Almennur kynningarfundur verður
haldinn þriðjudaginn 3. apríl í Urr-
iðaholtsskóla og hefst hann klukkan
17:30. Á fundinum verður tillagan
kynnt, spurningum svarað og opnað
fyrir umræður.
Kynna nýtt íbúða-
hverfi í Urriðaholti
Deiliskipulagstillaga
Nýtt hverfi í austurhluta Urriðaholts í Garðabæ
GARÐABÆR
KÓPAVOGUR
HAFNARFJÖRÐUR
Heimild: Garðabær – Deiliskipulag
Urriðaholts, austurhluti 1. áfangi, 8. mars 2018
Reiknað með 495 íbúðum Gætu verið fullbyggðar 2021
Heldur færri eru byrjaðir á grá-
sleppuveiðum nú en á sama tíma í
fyrra, eða 62 á móti 80. Afli til þessa
er nánast sá sami og í upphafi vertíð-
ar fyrir ári, en mestu hefur verið
landað á Bakkafirði.
Örn Pálsson, framkvæmdastjóri
Landssambands smábátaeigenda,
segir að ágætlega líti út með verð
fyrir afurðir. Í fyrra var meðalverð
um 195 krónur fyrir kílóið af heilli
grásleppu, en nú heyrist verðtilboð
upp í 210 krónur.
Byrjuðu á vorjafndægri
Fyrsti dagur grásleppuveiða í ár
var á vorjafndægri, 20. mars, og voru
margir mættir á veiðistað á mínút-
unni átta þegar heimilt var að leggja
netin. Samkvæmt reglugerð mátti
hefja veiðar fyrst á svæðum D, E, F
og G, þ.e. við Norðurland, Austur-
land og að Garðskagavita.
Heimilt er að hefja veiðar 1. apríl í
Faxaflóa, utanverðum Breiðafirði og
Vestfjörðum, en innanverður
Breiðafjörður verður opnaður 20.
maí. Á þeim svæðum sem opnast
fyrst lýkur veiðum 2. júní, 14. júní á
svæðum A, B1 og C og 2. ágúst í inn-
anverðum Breiðafirði, B2.
Upphafsfjöldi veiðidaga í ár er 20,
en dagafjöldinn verður endurskoð-
aður þegar ráðgjöf Hafrannsókna-
stofnunar liggur fyrir. Í fyrra var
einnig lagt af stað með 20 daga, en
fjöldinn var síðan aukinn í 36 daga.
Þegar nokkuð var liðið á vertíðina
var veiðidögum fjölgað í 46. Aukinn
dagafjöldi nýttist ekki öllum útgerð-
um því 60 af um 250 útgerðum voru
búin að taka upp netin þegar tilkynn-
ing ráðherra birtist. Meðalfjöldi báta
á grásleppuveiðum síðustu fimm ár
er 284, flest voru leyfin í notkun 2015
eða 320, en fæst 2014 þegar 223
bátar stunduðu grásleppuveiðar.
Markaðir í jafnvægi
Örn segist gera sér vonir um að í
ár verði hægt að veiða um 8.600
tunnur af hrognum án þess að það
leiði til kolsteypu í verði. Markaðir
fyrir grásleppu séu í jafnvægi þar
sem veiði undanfarin ár hefur verið á
pari við eftirspurn. Útflutningsverð
fyrir söltuð hrogn og grásleppu-
kavíar hækkaði í fyrra, en verð fyrir
frysta grásleppu á Kínamarkað gaf
örlítið eftir.
Vertíðin í fyrra skilaði um 900
milljónum í aflaverðmæti og útflutn-
ingsverðmæti nam um 1,6 milljörð-
um. aij@mbl.is
Grásleppuvertíð
að komast í gang
Mætt stundvíslega fyrsta veiðidaginn