Morgunblaðið - 28.03.2018, Síða 14

Morgunblaðið - 28.03.2018, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 2018 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Landsmót UMFÍ sem haldið verður á Sauðárkróki í sumar verður með gjörbreyttu sniði frá því sem áður hefur þekkst. Mótið verður opið öll- um landsmönnum, 18 ára og eldri, og reynt að höfða til fólks sem gert hefur hreyfingu að lífsstíl í stað hinna hefð- bundnu keppnisíþrótta landsmóts. Landsmót Ungmennafélags Ís- lands (UMFÍ) hafa verið haldin á 3-4 ára fresti í bráðum 70 ár. Síðustu ára- tugina hefur frjálsíþróttakeppnin verið vinsælust en einnig keppt í sundi, boltaíþróttum og ýmsum starfsíþróttum. Vægi mótsins hefur minnkað fyrir keppnisíþróttir og fáir af bestu íþróttamönnum hafa tekið þátt. Síðasta mót var haldið á Selfossi fyrir fimm árum. Eftir það ákvað UMFÍ að staldra við og endurskoða mótið, markmið þess og tilgang. Meðal annars var farið á danska landsmótið til að sækja hugmyndir. Niðurstaðan var að gjör- breyta mótinu. Opna það og gera að- gengilegra. Þannig þurfa keppendur ekki að vera í ungmenna- eða íþrótta- félagi. Í þessu felst að stigakeppni héraðssambandanna leggst af. Íþróttaveisla fyrir alla Í stað frjálsíþróttakeppninnar held- ur Frjálsíþróttasamband Íslands Meistaramót Íslands í frjálsum íþrótt- um á mótssvæðinu og UMFÍ heldur landsmót 50+ samhliða landsmótinu. „Markmiðið er að gera þetta skemmtilegt, halda íþróttaveislu fyr- ir alla. Við verðum með mikið af nýj- um greinum, sem ekkert eða lítið hafa verið stundaðar hér á landi. Fólk getur komið og tekið þátt á sín- um eigin forsendum,“ segir Thelma Knútsdóttir, framkvæmdastjóri Ungmennasambands Skagafjarðar og verkefnastjóri landsmóts. Um 40 mismunandi íþróttagreinar verða í boði, auk skemmtiatriða, sýn- inga og fyrirlestra. Þátttakendur geta búið til sína eigin dagskrá og farið á milli greina. Nauðsynlegt er að skipuleggja þátt- tökuna vel því hver grein fær aðeins ákveðinn tíma í dagskránni og að honum loknum verður þátttakandinn að snúa sér að næstu grein. Eða „láta vaða“ eða leika sér í öðrum greinum. Mótið hefst á fimmtudegi sem fyrr en ekki verður hefðbundin setning- arathöfn með skrúðgöngu og ræðu- höldum. Thelma segir að verið sé að móta það hvernig staðið verður að upphafi mótsins. Hreyfing í stað keppni á landsmóti  Landsmót UMFÍ haldið með gjörbreyttu sniði á Sauðárkróki í sumar  Danska landsmótið er fyr- irmyndin  Boðið upp á 40 keppnisgreinar, fræðslu og skemmtun  Nýjar greinar kynntar til leiks Ljósmynd/UMFÍ Verkefnastjóri Thelma Knútsdóttir vinnur með góðu fólki að undirbúningi nýs landsmóts UMFÍ á Sauðárkróki í sumar. Í mörg horn er að líta. Landsmótið 2018 » Landsmót UMFÍ verður haldið á Sauðárkróki 12. til 15. júlí í sumar. » Það verður með breyttu sniði. » Fjöldi nýrra íþróttaviðburða auk skemmtunar og fróðleiks verður á dagskránni. » Amerískur fótbolti, bandí, stígvélakast og Pallaball meðal atriða. Eyesland . Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð . sími 510 0110 . www.eyesland.is Frábært verð á glerjum Einfókus gler Verð frá kr. 16.900,- Margskipt gler Verð frá kr. 41.900,- Gleraugnaverslunin Eyesland býður mikið úrval af gæðagleraugum á góðu verði – og þú færð frábæra þjónustu. Verið velkomin! Jensen JN8020 umgjörð kr. 18.900,- Bankastræti 6 – sími 551 8588 – gullbudin.is Úrval af íslenskri hönnun Unicorn hálsmen frá 5.400,- SEB köttur - gylltur frá 18.600,- Alda hálsmen frá 9.600,- Birki armbands spöng frá 22.400,- Borgarráð hefur samþykkt tillögu borgarstjóra um að Reykjavíkur- borg kaupi listaverkið Íslandsvörð- una eftir Jóhann Eyfells, sem stend- ur við Sæbraut. Kaupverðið er 27,5 milljónir króna. Kaupin voru samþykkt með at- kvæðum meirihlutaflokkanna gegn atkvæðum sjálfstæðismanna, sem vildu að peningunum yrði varið til að kaupa verk eftir aðra listamenn. Þar sem ekki var samstaða um kaupin fer málið til endanlegrar afgreiðslu í borgarstjórn. Listaverkinu var komið fyrir við Sæbrautina í kjölfar lánssamnings sem gerður var við listamanninn 8. september 2010 en samningurinn rann út í september á síðasta ári. Íslandsvarða (2006) eftir Jóhann Eyfells er eitt af kennileitum borg- arinnar en verkinu var komið fyrir við Sæbraut í kjölfar þess að Ing- ólfur Eyfells bauð borginni að sýna bronsskúlptúr eftir föður sinn Jó- hanns Eyfells án endurgjalds, að því er fram kemur í greinargerð Ólafar Kristínar Sigurðardóttur, safnstjóra Listasafns Reykjavíkur. Verkið sé metnaðarfullt og mikilvægt í ferli Jó- hanns. Það hafi tvímælalaust gildi sem vandað og gott listaverk í opin- beru rými borgarinnar og það hafi unnið sér sess á meðal borgarbúa. Jóhann Eyfells (f. 1923) stundaði nám í Bandaríkjunum í byggingar- list, skúlptúr, málaralist og keramík á árunum 1945-53. Hann hefur starf- að bæði á Íslandi og í Bandaríkjun- um. Frá 1969 til 1999 var hann pró- fessor í höggmyndalist við Uni- versity of Central Florida. Verk hans hafa verið sýnd á fjölda sýninga í Bandaríkjunum og á Ís- landi. sisi@mbl.is Borgin eignast Íslandsvörðuna  Kaupverðið 27,5 milljónir króna Morgunblaðið/Kristinn Íslandsvarðan Verk Jóhanns Ey- fells við Sæbraut í Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.