Morgunblaðið - 28.03.2018, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 28.03.2018, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 2018 Ísfell ehf, Óseyrarbraut 28 220 Hafnarfjörður, Sími 5200 500 www.isfell.is, isfell@isfell.is Höfum á lager mikið úrval af alskyns vinnufatnaði, hífi- og festingabúnaði, krönum og talíum, snjókeðjum, pökkunarlausnum og fallvarnarbúnaði. Í vörulistanum á www.isfell.is er að finna ítarlegar upplýsingar um allar vörur. Vinnufatnaður Hífilausnir Kranar og talíur Snjókeðjur Pökkunarlausnir Fallvarnarbúnaður Hafðu samband og kynntu þér vöruúrvalið og þjónustuna! Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á og tölvupósta eins og við gerðum fyr- ir þann tíma.“ Stór stund S. Andrea Ásgeirsdóttir, skjala- vörður á Þjóðskjalasafninu, segir skilin vera stóra stund. „Þetta átti að afhendast upphaflega árið 2015. Það er alltaf flókið að gera eitthvað í fyrsta skipti, en þetta er í fyrsta skipti sem skjalavörslukerfi er af- hent eftir nýjum reglum, svokölluð- um vörsluútgáfureglum nr. 100/ 2014,“ segir Andrea, en meginmunur á eldri reglum er að í nýju reglunum er skilað á XML formi, sem gerir auðveldara um vik að leita í gögn- unum í framtíðinni. Andrea segir að áður hafi verið tekið á móti tveimur minni skjala- vörslukerfum samkvæmt eldri reglum, úr gamla iðnaðarráðuneyt- inu og efnahags- og viðskiptaráðu- neytinu. Er þá hægt að koma niður í safnið og skoða þessi gögn? „Nei, við veitum aðgang að þess- um gögnum þegar þau eru orðin 30 ára gömul. Þangað til þarf fólk að leita til ráðuneytanna sjálfra.“ Andrea segir að áður hafi gagna- grunnum verið skilað samkvæmt nýju reglunum, en aldrei skjala- vörslukerfi. Hvernig verður með framhaldið, fara rafrænu skjalakerfin að streyma inn til ykkar núna. „Það eru margir sem bíða og ég er bjartsýn á að þetta gangi hratt héðan í frá.“ Danir langt á undan Þjóðskjalasafn Íslands notast við sömu aðferðafræði og Danir varð- andi móttöku á rafrænum gögnum. „Þeir eru komnir miklu lengra en við og tóku við fyrstu vörsluútgáfunum á áttunda áratug síðustu aldar.“ Opinberar stofnanir eru allar skilaskyldar til opinbers skjalasafns, sveitarfélög skila til héraðsskjala- safna en aðrar opinberar stofnanir til Þjóðskjalasafns. „Í raun er ekkert héraðsskjalasafn tilbúið að taka við rafrænum kerfum, en ég veit að Borgarskjalasafn er komið af stað í slíkt verkefni.“ Spurð um skjöl einkaaðila segir Andrea að tekið sé á móti einka- skjalasöfnum á pappír. „Við mynd- um taka við rafrænum afhendingum einkaaðila, en það er ekki hægt að gera þá kröfu á einkaaðila þar sem það kostar mikinn pening að gera vörsluútgáfur sem eru það form sem rafrænar afhendingar eru afhentar á. En auðvitað væri æskilegt að geta tekið á móti rafrænum afhendingum frá einkaaðilum.“ Hvað með gögn úr Facebook eða öðrum forritum? „Reglurnar segja að allt sem viðkemur máli og hefur áhrif á framgang þess eigi að fara undir málið. Varðandi símtöl, SMS, Facebook og annað, þá ættu menn að skrifa hvað þeim fór á milli í minn- isblað og vista í skjalavörslukerfinu.“ Tímamót í skjalavörslu Morgunblaðið/Ómar Aukning Rafrænum gögnum fjölgar. 2017 voru 13 afhendingar, en ein 2016.  Tekið á móti rafrænum skjölum frá heilu skjalavörslutímabili í fyrsta sinn  Fyrirtæki mega skila en er kostnaðarsamt  Má skoða eftir 30 ár Gagnavarsla » Þjóðskjalasafnið geymir raf- ræn gögn til framtíðar á TIFF, JPG 2000, WAVE, MP3, GML, MPEG 2 og MPEG 4 formi. » Menntamálaráðuneytið not- ar GoPro mála- og skjalakerfið til að halda utan um rafræn skjöl og önnur gögn. BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Fyrstu rafrænu skil á skjölum frá heilu skjalavörslutímabili fóru á dög- unum fram í Þjóðskjalasafni Íslands, þegar mennta- og menningarmála- ráðuneytið skilaði þangað fyrstu raf- rænu skjölum sínum. Guðrún I. Svansdóttir, skjalastjóri hjá ráðu- neytinu, segir í samtali við Morgun- blaðið að um sé að ræða mjög um- fangsmikið skjalasafn frá skjalavistunartímabilinu 2011-2014. „Þetta var stórt verkefni sem unnið var í nánu samstarfi við Hugvit, Rekstrarfélag Stjórnarráðsins og Þjóðskjalasafnið,“ segir Guðrún. Hún segir að skjalamagn á pappír hjá ráðuneytinu fari stöðugt minnk- andi. Rafrænt skjalastjórnarkerfi hefur verið við lýði í næstum 25 ár hjá mennta- og menningarmálaráðu- neytinu. Guðrún segir að þó svo að gögn hafi verið geymd frá þeim tíma með rafrænum hætti, þá þurfti fram til ársins 2011 að prenta öll skjöl út á pappír og skila þeim þannig til Þjóð- skjalasafnsins, þar á meðal tölvu- pósta og viðhengi. „Umfang vinn- unnar minnkar þó ekki þó pappírsmagnið minnki. Skjala- stjórnun er að breytast í gagna- stjórnun.“ Mennta- og menningarmálaráðu- neyti er fyrsta ráðuneytið sem fær samþykkt rafræn skil á heilu skjala- vörslutímabili. „Frá áramótum 2010- 2011 höfum við ekki prentað út skjöl aðar fyrir ári komi í ljós að megin- skýring á aukinni verðbólgu nú sé að olíuverð lækki ekki eins og í fyrra, auk þess sem gengisstyrking krónunnar sé heldur minni nú. Verðmæling Hagstofunnar ætti, að sögn SA, að hafa lítil áhrif á vaxtastefnu Seðlabankans því hún hefur engin áhrif á heimsmarkaðs- verð á olíu. Vaxtahækkun væri frek- ar til þess fallin að auka framboðs- vanda á húsnæði og ýta undir enn frekari hækkun húsnæðisverðs. Samtök atvinnulífsins segja að verð- bólga sé komin yfir verðbólgumark- mið Seðlabankans vegna framboðs- skorts á húsnæði. Ástæðuna megi ekki rekja til aukinnar þenslu í þjóð- arbúskapnum. Þetta kemur fram á vef samtakanna. Fram kom í Morgunblaðinu í gær að verðbólga mældist 2,8% í mars og er í fyrsta skipti í fjögur ár komin yfir verðbólgumarkmið Seðlabank- ans, sem er 2,5%. SA segja að sé litið til sama mán- Húsnæðisskortur knýr verðbólgu  SA búast ekki við vaxtahækkun Morgunblaðið/Árni Sæberg Húsnæðismarkaður Skortur á húsnæði ýtir undir verðbólgu að mati SA. ● Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,7% í gær og hefur hækkað um 8,3% frá ára- mótum. Veltan á hlutabréfamarkaði nam 1,8 milljörðum króna. Sjóvá hækkaði um 1,8% í 224 milljón króna veltu, Icelandair Group hækkaði um 1,4% í 193 milljón króna veltu og Marel um 1,1% í 334 milljón króna veltu. Einungis tvö félög lækkuðu í gær. Skeljungur lækkaði um 1,7% í 129 millj- ón króna veltu og Reginn um 0,2% í 276 milljón króna veltu. Aðalvísitala skuldabréfa hækkaði um 0,06% í gær. Úrvalsvísitalan hækkaði um 8% frá áramótum 28. mars 2018 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 98.08 98.54 98.31 Sterlingspund 139.5 140.18 139.84 Kanadadalur 76.15 76.59 76.37 Dönsk króna 16.318 16.414 16.366 Norsk króna 12.728 12.802 12.765 Sænsk króna 11.953 12.023 11.988 Svissn. franki 103.6 104.18 103.89 Japanskt jen 0.9326 0.938 0.9353 SDR 143.05 143.91 143.48 Evra 121.56 122.24 121.9 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 148.639 Hrávöruverð Gull 1350.65 ($/únsa) Ál 2021.5 ($/tonn) LME Hráolía 70.43 ($/fatið) Brent ● Þorsteinn Már Baldvinsson, for- stjóri Samherja, segir að ársfundur Seðlabankans eftir páska verði vænt- anlega sá síðasti undir stjórn núver- andi stjórnenda bankans og því síð- asta tilefnið fyrir seðlabankastjóra og bankaráðsformann að biðja starfs- menn Samherja, Aserta-menn og aðra þá sem hann hefur í nafni Seðlabank- ans ásakað ranglega í gegnum árin af- sökunar. „Eftir það mun málið vera í höndum lögmanna,“ segir Þorsteinn Már í pistli á vef útgerðarinnar. Sex ár voru liðin í gær frá húsleit Seðlabanka hjá Samherja vegna ásakana um brot á gjaldeyrislögum. Síðasta tilefni til afsök- unarbeiðni á ársfundi Þorsteinn Már Baldvinsson STUTT

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.