Morgunblaðið - 28.03.2018, Síða 17

Morgunblaðið - 28.03.2018, Síða 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 2018 Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Stjórnvöld í Rússlandi sökuðu í gær stjórnina í Washington um að hafa beitt samstarfslönd Bandaríkjanna „gríðarlegum þrýstingi“ til að vísa rússneskum sendimönnum úr landi og sögðust ætla að svara með gagn- aðgerðum. „Þetta er afleiðing gríðarlegs þrýstings, gríðarlegrar kúgunar sem hefur verið helsta tæki stjórnarinnar í Washington á alþjóðavettvangi,“ sagði Sergej Lavrov, utanríkisráð- herra Rússlands. „Við ætlum að svara, velkist ekki í vafa um það! Enginn vill sætta sig við svo durts- lega hegðun og við gerum það ekki.“ Stjórnvöld í 23 ríkjum ákváðu í fyrradag að vísa alls a.m.k. 116 rúss- neskum sendimönnum úr landi vegna ásakana Breta um að stjórnvöld í Rússlandi hefðu staðið fyrir morðtil- ræði við fyrrverandi njósnara með rússnesku taugaeitri, novítsjok, fyrstu árásinni með efnavopni í Evr- ópu frá síðari heimsstyrjöldinni. Stjórn Írlands bættist við í gær og sagðist ætla að vísa einum Rússa úr landi. Framkvæmdastjóri Atlants- hafsbandalagsins ákvað að vísa á brott sjö mönnum í sendinefnd Rússa og hafna beiðni um að leyfa þremur öðrum Rússum að hefja störf fyrir hana. Talsmaður Donalds Trumps Bandaríkjaforseta sagði í fyrradag að brottvísanirnar væru „svar við notk- un Rússa á efnavopni á bresku land- svæði“. Stjórn Trumps vísaði 60 meintum njósnurum Rússa úr landi vegna málsins, fleiri en nokkru sinni fyrr frá lokum kalda stríðsins. Þetta eru mestu brottvísanir meintra njósnara frá Bandaríkjunum frá árinu 1986 þegar stjórn Ronalds Reagans vísaði 80 Sovétmönnum úr landi. Gætu eflt Pútín heima fyrir Boris Johnson, utanríkisráðherra Bretlands, fagnaði stuðningi banda- manna Breta við þá í deilunni við Rússa. „Aldrei áður hafa jafnmörg lönd tekið höndum saman um að vísa rússneskum stjórnarerindrekum úr landi,“ sagði Johnson í grein sem birt var í dagblaðinu The Times. Hann bætti við að brottvísanirnar væru áfall fyrir leyniþjónustu Rússlands og kvaðst telja þær geta markað þáttaskil í afstöðu vestrænna ríkja til „glannalegra“ aðgerða Rússa. Til- raunir þeirra til að sá fræjum efa- semda um að þeir hefðu staðið fyrir árásinni bæru ekki lengur tilætlaðan árangur. Rússneskir fjölmiðlar sögðu að brottvísanirnir leiddu til „nýs kalds stríðs“ milli Vesturlanda og Rúss- lands. „Brottvísanirnar verða sérlega skaðlegar fyrir samskipti Rússlands og Bandaríkjanna,“ skrifaði stjórn- málaskýrandinn Fedor Lúkjanov í viðskiptadagblaðið Vedomosti. Hann spáði því að deilan héldi áfram að stigmagnast og vestrænu ríkin gripu til „enn alvarlegri efnahagslegra að- gerða“ gegn Rússlandi síðar. Nokkrir fréttaskýrendur hafa sagt að deilan geti styrkt stöðu Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta heima fyrir því að deilur við erlend ríki þjappi þjóðinni saman á bak við ráðamenn- ina í Kreml. „Því verri sem tengslin milli Rússlands og Vesturlanda eru því betra er það fyrir forsetann,“ skrifaði stjórnmálaskýrandinn Stan- islav Belkovskí á vef rússneska út- varpsins Ekho Moskví. Nokkrir stjórnmálaskýrendur í Bandaríkjunum hafa látið í ljós efa- semdir um gagnsemi brottvísananna og sagt að efnahagslegar refsiaðgerð- ir séu miklu líklegri til að bera tilætl- aðan árangur. Misvísandi skilaboð frá Trump Donald Trump hefur sent misvís- andi skilaboð um afstöðu sína til stjórnvalda í Rússlandi og Pútín hef- ur verið einn af örfáum sem hann hef- ur veigrað sér við að gagnrýna á blaðamannafundum eða á Twitter. Forsetinn sætti t.a.m. gagnrýni þing- manna úr röðum repúblikana fyrir viku þegar hann virti ráð sérfræðinga sinna í utanríkis- og öryggismálum að vettugi og óskaði Pútín til hamingju með endurkjörið í nýlegum forseta- kosningum og kvaðst vilja eiga fund með honum. Misvísandi skilaboð for- setans gætu grafið undan aðgerðum stjórnar hans gegn Rússlandi, að því er fréttaveitan Reuters hefur eftir stjórnmálaskýrendum. Aðstoðarmenn Trumps hafa þó lagt áherslu á að forsetinn styðji brottvísanirnar, fengið upplýsingar um undirbúning þeirra á nokkrum fundum og „tekið þátt í ákvörðuninni frá upphafi“. Ennfremur hefur verið bent á að þrátt fyrir vinsamleg um- mæli Trumps um Pútín hafa embættismenn í utanríkisráðuneyt- inu, varnarmálaráðuneytinu og Hvíta húsinu gripið til aðgerða sem þykja til marks um harða afstöðu gegn stjórn- völdum í Rússlandi. Utanríkis- ráðuneytið í Washington skýrði t.a.m. frá því fyrr í mánuðinum að stjórnin hefði ákveðið að sjá Úkraínuher fyrir flugskeytum sem gera honum kleift að granda skriðdrekum uppreisnar- manna sem njóta stuðnings stjórn- valda í Kreml. Forveri Trumps, Bar- ack Obama, hafði neitað að útvega Úkraínumönnum flugskeytin af ótta við að það myndi reita Rússa til reiði. Skella skuldinni á Bandaríkin  Rússar saka stjórnina í Washington um að hafa beitt samstarfsríki gífurlegum þrýstingi til að vísa rússneskum sendimönnum úr landi  Boða gagnaðgerðir og segja að nýtt kalt stríð sé hafið Stjórnvöld í 23 ríkjum vísuðu alls 116 Rússum úr landi í fyrradag vegna ásakana Breta um að stjórnvöld í Rússlandi hefðu staðið fyrir taugaeiturárás á fyrrverandi rússneskan njósnara í Bretlandi Alls hefur a.m.k. 139 Rússum verið vísað úr landi vegna málsins, að meðtöldum 23 sem vísað var frá Bretlandi 14. mars Stjórnvöld í Rússlandi sögðust í gær ætla að svara þessum brottvísunum með gagnaðgerðum Rússneskum sendimönnum vísað úr landi Bandaríkin Bretland Kanada Rússum vísað úr landi 60 ÞýskalandFrakkland Pólland Litháen Danmörk Ítalía SpánnHolland Albanía Eistland Finnland Noregur RúmeníaUngverjal. Lettl. Makedónía Svíþjóð Ástralía Úkraína 1323 Króatía Tékkland Fjölmiðlar í Suður-Kóreu, Japan og fleiri löndum voru í gær með vangaveltur um að Kim Jong-un, leiðtogi einræðisstjórnar Norður- Kóreu, hefði verið í grænni járn- brautarlest sem kom til Peking fyrr í vikunni og fór þaðan í gær. Mikill öryggisviðbúnaður var og hermenn stóðu heiðursvörð við lestina. Talsmaður kínverska utanríkis- neytisins vék sér hjá því að svara spurningum fréttamanna um hvort Kim hefði verið í lestinni. Reynist vangavelturnar réttar var þetta fyrsta utanlandsferð hans frá því að hann tók við völdunum í Norður- Kóreu árið 2011 og talið var líklegt að hann hefði rætt við Xi Jinping, forseta Kína. Lestin er mjög lík brynvörðum lestum sem faðir Kims, Kim Jong-il, notaði í sjö ferðum sínum til Kína og þremur til Rússlands á árunum 1994-2011. Hermt er að Kim hafi ferðast með lestum vegna flug- hræðslu. AFP Dularfulla lestin Suður-Kóreumaður fylgist með sjónvarpsfrétt um járn- brautarlest í Peking sem talið var að leiðtogi Norður-Kóreu hefði verið í. Var Kim Jong-un í lestinni í Peking? HEYRNARSTÖ‹INKringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is exton™ heyrnartækin opna nýjar leiðir í samskiptum g auka lífsgæðin. Komdu í ókeypis heyrnarmælingu g fáðu heyrnartæki lánuð til reynslu. Við hjálpum þér að bæta lífsgæðin R o o

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.