Morgunblaðið - 28.03.2018, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 28.03.2018, Blaðsíða 19
19 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 2018 Stund milli stríða Það er gott að geta tyllt sér niður í dagsins önn og skoð- að símann. Bakvið bekkinn er mynd sem sýnir stæður af gallabuxum. Kristinn Magnússon Miðflokkurinn er upptekinn af því hvernig túlka skal landsfundarályktun Sjálfstæðisflokksins varðandi uppbyggingu Landspítala. Bergþór Ólason er þar á meðal, eins og fram kom í pistli hans í Morgun- blaðinu sl. laugardag 24. mars. Stefna Sjálf- stæðisflokksins er alveg skýr í upp- byggingu Landspítala við Hring- braut. „Ljúka ber þeirri framkvæmd við uppbyggingu á Landspítalalóð sem er komin á framkvæmdastig og tengist núverandi starfsemi“. Þetta er orðrétt úr ályktuninni eins og hún var samþykkt. Framkvæmdastig er í fullum gangi Sú stóra uppbyggingarfram- kvæmd sem nú er í gangi hófst með byggingu sjúkrahótels í ráðherratíð Kristjáns Þórs Júlíussonar og opnar nú loksins árið 2018 og jarðvegs- framkvæmdir við meðferðarkjarnann á fullu síðar á þessu ári. Verkefnið var samþykkt af Alþingi, m.a. af nú- verandi þingmönnum Miðflokksins, er á fjárlögum þessa árs, er í stefnu- skrá ríkisstjórnarflokkanna og er svo sannarlega á framkvæmdastigi. Landsfundarályktunin var samin af velferðarnefnd flokksins, en auk þess lagði ég til að bætt væri inn í ályktunina að hugað yrði að stað- arvali og tekið frá landsvæði fyrir byggingu annars spítala, t.d. til að bjóða fjölbreyttari rekstrarform sjúkrahúsaþjónustu. „Þannig verði horft til breyttra þarfa, nýrra valkosta fyrir starfs- menn og sjúklinga og annars konar sérhæf- ingar á næstu áratug- um“, eins og það var orð- að. Horft til framtíðar en ekki fortíðar Í ályktun landsfundar var talað um að vinna hratt og vel að staðarvali og um spítala og spítalaþjónustu í stað orðsins Landspítala. Þá stefnu áréttaði ég sem frambjóðandi í vel- ferðarnefnd flokksins. Þá horfði ég m.a. til þeirrar stefnu frambjóðenda Sjálfstæðisflokksins, sem er að byggja íbúðir á landi Keldna. Þar gæti verið ákjósanlegt að byggja einnig sjúkrahús ásamt heilsugæslu, hjúkrunar-, endurhæfingarstarfsemi og ýmsa sérfræðiþjónustu. Þarna á ekki að vera bráðasjúkrahús og há- skólasjúkrahús eins og við Hring- braut. Það er auk þess visst öryggi að vera ekki með alla sjúkrahúsþjónustu höfuðborgarsvæðisins á einum stað. Auðvitað eru skiptar skoðanir um þetta í svo breiðum og fjölbreyttum hóp sem sækir landsfund, en nið- urstaðan er skýr og landsfundur stóð sameinaður á bak við ályktunina. Það má vel vera að það hefði verið rétt árið 2002 að byggja við Foss- vogsspítala eða á allt öðrum stað, en núna eigum við að horfa til framtíðar en ekki fortíðar. Sjálfstæðisflokk- urinn og þeir sem bjóða sig fram til borgarstjórnar horfa á daginn í dag, en líka til næstu áratuga og strax verði farið í að velja öðrum spítala annan stað ekki til höfuðs því sem er núna í gangi. Einu sinni var til Borg- arspítali. Ekki er ráð nema í tíma sé tekið og Reykjavíkurborg þarf að hafa frumkvæði í þessum málum. Reynslan hefur kennt okkur það. Bergþór saknar að sjálfsögðu gamla góða flokksins Bergþór gerði þetta mál að um- ræðuefni á Alþingi í framhaldi af landsfundinum, en forseti þingsins, Steingrímur J. Sigfússon, benti hon- um réttilega á að það stæði yfir fund- ur á Alþingi, en ekki landsfundur Sjálfstæðisflokksins. Bergþór er ennþá með hugann við Sjálfstæð- isflokkinn þótt hann hafi valið sér nýjan vettvang sem auðveldaði hon- um að komast á þing. En hann hefur eins og fleiri greinilega tapað þeim hæfileika að lesa sér til gagns eftir að hann fór í Miðflokkinn. Þar er líka notuð önnur aðferðafræði við að afla sér fylgis, – eða eins og einhver sagði: „Það er ekki til neins að heyja kosn- ingabaráttu byggða á staðreyndum, það snýst allt um tilfinningar og að höfða til þeirra.“ Eftir Þorkel Sigurlaugsson »Það má vel vera að það hefði verið rétt árið 2002 að byggja við Fossvogsspítala eða á allt öðrum stað, en núna eig- um við að horfa til fram- tíðar en ekki fortíðar. Þorkell Sigurlaugsson Höfundur er viðskiptafræðingur og formaður velferðarnefndar Sjálfstæðisflokksins. thorkellsig@gmail.com Miðflokksmenn læri að lesa sér til gagns Fólkið sem duglegast er að kenna sig við um- burðarlyndi og skreyta sig með frjálslyndi virð- ist hafa litla þolinmæði fyrir andstæðum skoð- unum, allra síst mið- aldra karla. Ég fæ ekki betur séð en að þeir sem helst af öllu vilja vængstýfa miðaldra karlmenn – ekki síst þá sem hafa unnið sér það til óhelgi að vera hægrisinnaðir – séu í andlegum tengslum við þá sem leggja hart að sér að grafa undan tiltrú á einstaklinginn og frjálst fram- tak. Í hugarheimi þeirra er flest það sem íslenskt er bæði neikvætt og hallærislegt enda þjáist Íslendingar af „menningarlegri einangrunar- hyggju“. Ísland er sagt „ónýtt“ og nafngreindir einstaklingar eiga að „éta skít“. Fyrrverandi flokks- formaður og ráðherra talar um ís- lenska „bananalýðveldið“. Þeir sem vilja draga fram hið jákvæða eru óðar sakaðir um þjóðrembu og hroka. Límmiða-pólitíkin hefur tekið yfir rökræðuna. Pólitískir andstæðingar eru „brennimerktir“. Síðastliðinn föstudag hófst þriðja umræða um frumvarp til breytinga á lögum um kosningar til sveitar- stjórna þar sem lagt er til að kosn- ingaaldur verði lækkaður í 16 ár. Eft- ir nokkra umræðu tók forseti Alþingis þá ákvörðun að fresta um- ræðunni fram yfir páska. Þar með virðist ljóst að lækkun kosningaald- urs nær ekki fram að ganga fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar í maí, líkt og margir höfðu vonast eftir. Þegar þingmenn tóku til máls við þriðju umræðu féll það ekki í kramið hjá öllum. Þingkona Samfylkingar- innar sagði á fésbók að ástandið væri „ótrúlegt“ og í þingsal færi „fram málþóf miðaldra karla úr Sjálfstæð- isflokki og Miðflokki til að koma í veg fyrir að meirihluti þings fái að greiða atkvæði með lækkun kosningaald- urs“. Eftir að ljóst varð að frumvarpið yrði ekki afgreitt fyrir páska sagði forystumaður ungra jafnaðarmanna í samtali við Morgun- blaðið það „óttalega sorglegt hvernig þetta fór; stöðvað af nokkrum miðaldra körlum“. Djúpvitur álitsgjafi hélt því fram að sérstakt málþóf hefði ver- ið stundað af miðaldra körlum úr Sjálfstæðisflokki, Miðflokki og Flokki fólksins – knúnum áfram af ótta við ungt fólk. Límmiða-pólitíkin krefst þess ekki að reynt sé að varpa ljósi á málefnið, hvað þá að röksemdum andstæðra sjónarmiða sé mætt með mótrökum. Kosningaréttur og ábyrgð Fæstir þeirra þingmanna sem lögðust gegn samþykkt frumvarpsins eru andvígir því að lækka kosninga- aldurinn. Gagnrýnin er margþætt, ekki síst að í besta falli sé óeðlilegt að ósjálfráða einstaklingur hafi kosn- ingarétt. Brynjar Níelsson, þingmað- ur Sjálfstæðisflokksins, gerði ágæt- lega grein fyrir þessu þegar hann sagði í atkvæðaskýringu við aðra um- ræðu: „Ég hef alltaf litið þannig á að kosningaréttinum fylgi mikil ábyrgð. Ef menn eru sammála mér um það verður það auðvitað að vera þannig að þeir sem eru 16 ára og eiga að fá kosningarétt geti tekið ábyrgð á öðru í lífi sínu. Ég er alveg tilbúinn að fall- ast á að menn geti kosið 16 ára. En ég vil þá að fólk sé lögráða 16 ára. Það er langeðlilegast, þ.e. ef við teljum að kosningaréttinum fylgi einhver ábyrgð.“ Rauði þráðurinn í málflutningi þeirra sem sakaðir voru um málþóf er að samhliða lækkun kosningaaldurs sé nauðsynlegt að horfa til víðtækari samræmingar á réttindum og skyld- um ungs fólks. Í nefndaráliti Brynj- ars Níelssonar og undirritaðs er því haldið fram að mörg rök hnígi að því „að því að lækka kosningaaldur í 16 ár“, en það sé í besta falli sérkenni- legt að kosningaaldur sé misjafn eftir því um hvaða kosningar er að ræða. Við félagar teljum einnig nauðsynlegt að lækka kjörgengisaldur til sam- ræmis við kosningaaldur: „Hið sama á við um sjálfræðisaldur, enda er for- senda þess að einstaklingur setjist á Alþingi eða í sveitarstjórn að hann sé sjálfráða.“ Það er umhugsunarvert að heit- ustu talsmenn þess að lækka kosn- ingaaldurinn í komandi sveitar- stjórnarkosningum eru lítt hrifnir af því að lækka einnig sjálfræðisald- urinn. Eru því ekki fylgjandi að ung- menni geti gert skuldbindandi lög- gjörninga og tekið aukna ábyrgð á eigin lífi. Bjarni Benediktsson, for- maður Sjálfstæðisflokksins, telur hins vegar nauðsynlegt að ræða „hvort ástæða sé til að taka öll hin ólíku réttindi sem varða börn sam- kvæmt lögum til skoðunar um leið og við veltum fyrir okkur hvernig við getum fengið þau til frekari þátttöku um nærumhverfi þeirra“. Ráð sérfræðinga hundsuð Þeir sem gengu harðast fram gegn dómsmálaráðherra og höfðu stóryrði um að ráðherra hefði átt að fara eftir ráðleggingum sérfræðinga ráðuneyt- isins sneru blaðinu við í umræðum um lækkun kosningaaldurs. Nú skyldi hafa ábendingar og ráðleggingar sér- fræðinga í sama ráðuneyti að engu. Viðvaranir væru léttvægar og skiptu engu. Með sama hætti átti að virða óskir Sambands íslenskra sveitarfé- laga að vettugi. Í umsögn sérfræðinga dómsmála- ráðuneytisins um frumvarpið sagði meðal annars: „Framkvæmd sveitarstjórnar- kosninga er fyrst og fremst á sveit- arstjórnarstiginu þannig að hitinn og þunginn af framkvæmd kosninganna lendir þar. Grundvallarbreytingar á lögum svo skömmu fyrir kosningar skapa hættu á að mistök verði í fram- kvæmd og mistök geta haft afdrifa- ríkar afleiðingar á gildi kosninga.“ Sama dag og þriðja umræða um frumvarpið hófst samþykkti stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga sér- staka bókun sem var send formanni og varaformanni stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar. Var þess farið á leit að bókuninni yrði komið á framfæri við alla alþingismenn, fyrir atkvæða- greiðslu um breytingar á kosn- ingalögum. Í bókuninni var ekki tekin efnisleg afstaða til þess að lækka kosningaaldurinn en sagt „var- hugavert að samþykkja breytingar á lögum um kosningar til sveitarstjórna nú þegar rúmlega tveir mánuðir eru til kosninga“: „Stjórnin bendir á leiðbeiningar frá Evrópuráðinu þar sem fram kemur að stöðugleiki er mikilvægur varðandi kosningalöggjöf og telur að stjórnvöld og Alþingi eigi að starfa út frá þeirri meginreglu að ekki séu gerðar meiri- háttar breytingar á kosningalögum þegar minna en eitt ár er til kosn- inga.“ Ekki einu sinni umsögn umboðs- manns barna náði að hafa áhrif en þar sagði meðal annars: „Frá 16 til 18 ára aldri eru ein- staklingar börn og því í forsjá foreldra eða annarra forsjáraðila. Mikilvægt er að löggjafinn meti hvort forsjáraðili geti með einhverjum hætti haft áhrif á kosningarétt barna við núverandi að- stæður, til dæmis um aðgengi að upp- lýsingum fyrir kosningar. Má í þessu sambandi nefna sendingu markpósta, aðgang stjórnmálaflokka að skólum eða nemendafélögum, til dæmis grunnskólum, en lækkun kosninga- aldurs mun hafa í för með sér að hluti 10. bekkinga öðlast kosningarétt. Mikilvægt er að tryggt sé að for- eldrar geti ekki með einhverjum hætti haft áhrif á kosningarétt barna verði kosningaréttur lækkaður.“ Límmiða-pólitík Kosningaréttur er órjúfanlegur hluti lýðræðisins og þess vegna verð- ur að undirbúa allar breytingar á kosningalögum af kostgæfni og með góðum fyrirvara. Það eru ekki aðeins miðaldra karlar á þingi sem þurfa að vera sannfærðir um að breytingarnar verði ekki til þess að kosningarnar nái ekki fram að ganga með eðlileg- um hætti. Og varla getur það talist til eftirbreytni að gera róttækar breyt- ingar á kosningalögum án umræðu eða án þess að gera tilraun til að tryggja að sæmilegt samræmi sé í hlutunum. En límmiða-pólitíkin hefur ekki áhuga á umræðunni eða gæta þess að samræmi sé í löggjöf til að koma í veg fyrir vandamál og þversagnir. Pró- fessor, sem leggur að því er virðist meiri áherslu á merkimiða en fræði- mennsku, blandaði sér í umræðuna um lækkun kosningaaldurs. Um smekklegheit manns sem hefur látið sig dreyma í áratugi um að njóta virð- ingar sem fræðimaður dæma aðrir en sá er hér heldur um penna: „Sjálfstæðismenn sem tala um lýð- ræði orka nú orðið á mig eins og nas- istar að auglýsa gasgrill.“ Með andstæðinga af þessu tagi er það nokkuð ánægjulegt að vera mið- aldra hægrisinnaður karl. Eftir Óla Björn Kárason »Heitustu talsmenn þess að lækka kosn- ingaaldurinn í komandi sveitarstjórnarkosn- ingum virðast lítt hrifnir af því að lækka einnig sjálfræðisaldurinn. Óli Björn Kárason Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Miðaldra hægrisinnaður karl

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.