Morgunblaðið - 28.03.2018, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 28.03.2018, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 2018 ✝ GuðmundurRúnar Sig- hvatsson fæddist á Húsavík 12. október 1951. Hann lést á gjörgæsludeild Landspítalans 19. mars 2018. Móðir hans er Guðrún Magnea Aðalsteinsdóttir, f. 23.12. 1927. Faðir hans var Sighvatur Bergsteinn Kjartansson, f. 14.8. 1919, d. 26.5. 1980. Guðmundur var elstur þriggja systkina, syst- ur hans eru María, f. 9.2. 1954, maki Auðunn Eiríksson, f. 17.10. 1953, og Aðalheiður Hervör, f. 21.5. 1956, maki Arnmundur Kristinn Jónasson, f. 3.6. 1955, d. 12.12. 2013. Guðmundur kvæntist Ragn- heiði Jónsdóttur 14.4. 1979, börn þeirra eru: 1) Sigríður Hrönn, f. 30.10. 1978. Dóttir hennar er Sunna, f. 5.9. 2010. 2) Atli Örn, f. 15.7. 1980, maki hans er Vigdís Lúðvíksdóttir, f. 10.7. 1982. Börn þeirra eru Sóley Nótt, f. 9.3. vík (verkamaður) áður en hann innritaðist í Kennaraskóla Ís- lands haustið 1969. Á kenn- araskólaárunum vann hann eitt sumar við skógrækt í Noregi en aðallega í Hvalstöðinni í Hval- firði. Eftir kennarapróf 1973 var Guðmundur ráðinn til kennslu í Austurbæjarskóla, þar sem hann starfaði þar til hann fór á eft- irlaun 2015. Yfirkennari varð hann 1983 og skólastjóri 1995. Mörg sumur með kennslu vann Guðmundur við hvalskurð hjá Hval hf. í Hvalfirði. Þá vann hann einnig um árabil við ættfræði- rannsóknir hjá Þjóðsögu. Eftir að Guðmundur hætti í Austur- bæjarskóla naut hann þess að vera með barnabörnunum sínum og starfa með vinum sínum í Hollvinafélagi Austurbæjar- skóla. Árið 2005-2006 fékk Guð- mundur námsleyfi og fluttu þau Gunnhildur og Soffía til Möltu þar sem Guðmundur fór í há- skólanám í kennslu og móttöku nemenda með annað móðurmál. Undir stjórn Guðmundar var Austurbæjarskóli móttökuskóli tvítyngdra barna en skólinn var þá leiðandi á því sviði við góðan orðstír. Útför Guðmundar fer fram frá Hallgrímskirkju í dag, 28. mars 2018, og hefst athöfnin kl. 13. 2003, Úlfar Alex- ander, f. 18.3. 2009, og Sindri Hrafn, f. 3.11. 2016. Guðmundur og Ragnheiður slitu samvistum. Sam- býliskona og maki Guðmundar til 18 ára er Gunnhildur Friðþjófsdóttir, f. 30.10. 1961. Hún á eina dóttur, Soffíu Tinnu, f. 25.9. 1988, sem Guð- mundur gekk í föðurstað. Soffía er í sambúð með Einari Gísla- syni, f. 14.5. 1983. Börn þeirra eru Magnea, f. 10.5. 2003, og Garðar, f. 1.4. 2014. Guðmundur ólst upp á Húsa- vík til fimm ára aldurs en þá flutti fjölskyldan suður til Reykjavíkur í Bústaðahverfið þar sem Guðmundur gekk í Breiðagerðis- og Réttarholts- skóla. Mörg sumur var hann í sveit og kaupamennsku hjá móð- ursystur sinni á Öndólfsstöðum í Reykjadal. Eftir gagnfræðapróf 1968 vann hann eitt ár í Reykja- Mig langar í örfáum orðum að minnast æskufélaga míns Guð- mundar Rúnars fyrir allar skemmtilegu stundirnar sem við áttum saman þegar hann var á sumrin hjá Toggu frænku sinni og Árna bróður mínum heima á Önd- ólfsstöðum við leik og störf. Guð- mundur var alltaf svo hress og skemmtilegur og margt kemur upp í huga minn í minningunni eins og þegar við vorum þrjú uppi á heyvagni og vildum öll moka upp á sömu hönd. Þá var hlegið og rif- ist um hver ætti að vera hvar, en Guðmundur var nú pínu prakkari og smá stríðinn. Ég man leikina okkar úti á kvöldin þegar við vor- um fimm til tíu krakkar að leika okkur saman. Það er margs að minnast og margs að sakna frá þessum gömlu árum en ég veit að Hera amma, Árni bróðir minn og pabbi þinn taka vel á móti þér og leiða þig í birtu, ljós og yl. Mig langar að senda þér tvær gamlar vísur úr Reykjadal. Breiðist yfir mýri og mó mildur aftanfriður. Upp við tjörn og út við skóg allur þagnar kliður. Öræfanna anganblær ofan í dalinn leitar. Hvílir hljóður bóndabær blítt í faðmi sveitar. (Jónas Friðriksson frá Helgastöðum) Innilegar samúðarkveðjur til ykkar allra. Sofðu rótt, kæri vinur. Fríða Jónsdóttir frá Öndólfsstöðum. Þessi góði og geðþekki maður sem var fullur af kærleika og mannúð er allur. Erfitt er að vita til þess að svona maður sem þú varst sé farinn á brott. Ég kynntist Guðmundi í Aust- urbæjarskóla þar sem hann var starfandi skólastjóri. Var hann sá sem réði mig í vinnu og var ég svo heppinn að fá að vinna undir hans stjórn og fá að blómstra svolítið sjálfur þar sem maður þurfti að vinna sjálfstætt og hugsa sjálf- stætt; hvernig ég gæti hugsað mér að vinna. Fékk ég rosalega gott rými til þess að blómstra, bæði sem skólaliði og stuðnings- fulltrúi. Vissulega var þetta ekk- ert alltaf auðvelt starf en maður fékk svo gott traust frá honum Guðmundi. Það eru ekki á hverju strái menn sem gefa fólki svona gott svigrúm og treysta því enda var hann sanngjarn og velviljaður að hjálpa fólki að verða það sem það langaði til að verða. Það er svo margt sem ég gæti sagt um þenn- an mann en það sem skipti máli er hvernig hann stjórnaði, hverju hann áorkaði og það sem hann gerði fyrir sitt fólk, sem er ógleymanlegt. Guðmundi tókst að veita það sem allt starfsfólkið þurfti á að halda, en það var ánægja, vellíðan og það sem mest er um vert starfsframi. Erfitt er að vita til þess að maður sem bjó yfir svona ríkjandi persónuleika fái ekki að lifa lengur í þessu jarð- neska lífi. Ég veit þó eitt að honum líður örugglega vel og þeir sem eru hjá honum og fá að njóta góðs af eru mjög sælir að vera í návist hans. Kæri nafni. Mig langar að þakka þér fyrir samveruna og samstarfið, sem var ógleymanlegt og munt þú vera í hjarta mínu um aldur og ævi. Að lokum vil ég votta fjölskyldu hans og hans nánustu samúð mína. Megi góður Guð styrkja ykkur og vaka yfir ykkur. Veistu ef þú vin átt þann er þú vel trúir og vilt þú af honum gott geta. Geði skaltu við þann blanda og gjöfum skipta, fara að finna oft. (Úr Hávamálum.) Guðmundur Árni Sigurðsson. Í minningunni birtist hann snemmsumars, brosmildur og freknóttur. Var hvers manns hug- ljúfi og léttur í spori. Fyrirmynd- ardrengur sem fékk ekki bara að hlaupa á eftir rollunum heldur líka að keyra dráttarvélina, þótt hann væri ekki hár í loftinu. Guðmund- ur, frændi minn, sem nú hefur lok- ið jarðvistinni allt of snemma. Við vorum systrasynir og átt- um það sameiginlegt að vera í sér- stöku uppáhaldi hjá ömmu okkar, enda var hann skírður í höfuðið á elsta syni hennar sem hafði tekið út af báti og drukknað í blóma lífs- ins, en ég hlaut nafn afa. Á æsku- heimili mínu vorum við samvistum sumar eftir sumar og samgangur mikill á milli fjölskyldna okkar. Seinna deildum við herbergi í tvo vetur eða hann lét sig hafa það að fá mig inn í sitt einkaherbergi í kjallaranum á Kleppsvegi. Það var sannarlega í takt við tímann, málað svörtum og appelsínugul- um litum. Þótti flott, en var örugg- lega eilítið drungalegt. Stemning- in var afslöppuð og við vorum út af fyrir okkur á meðan aðrir í fjöl- skyldunni bjuggu á þriðju hæð. Hann var að klára Kennó, ég að byrja í Versló. Við vorum ólíkir, hann á kafi í skemmtanalífi, um- vafinn hópi vina og glæsimeyja, ég feiminn sveitapiltur að læra á lífið í Reykjavík. En aldrei varð okkur sundurorða og sambúðin lukkað- ist vel. Guðmundur komst í eftirsótta sumarvinnu á þessum árum í Hvalstöðinni í Hvalfirði og ein- kennislykt þeirrar hráefnis- vinnslu fylgdi honum fram eftir hausti. Fötin máttu þola þvott eft- ir þvott. En uppgripin voru ein- stök, mikil vinna og gott kaup, og ekki veitti af því það kostaði sitt að lifa lífinu og það gerði frændi minn af áfergju. Mér fannst hann öf- undsverður. Ég man vetrarmorgna í rauðri Cortinu, sem hann átti og var stundum erfið í gang. Iðulega fékk ég far með honum í skólann. Við sátum í ískaldri Cortinunni, fram- rúðan að mestu hrímuð. Ekki tími til að skafa nema lítinn hluta hennar og svo var lagt af stað. Hann í bílstjórasætinu, en vildi nota tímann til að reykja eina eða tvær rettur og þá kom í minn hlut að stýra og skipta um gír. Hann sá um kúplingu og bremsu. Þannig gátum við ekið endilangan Kleppsveginn, langleiðina niður í bæ. Ég leit upp til hans. Hann var smart, töff, fylgdi tískunni og hafði efni á að vera sá sem hann vildi vera. Var gamansamur, átti hressa vini og stelpurnar eltu hann á röndum. Eða var það öf- ugt? Svo fann hann þá réttu og hún fylgdi honum heim í herberg- ið okkar, sem varð þá fljótlega of lítið. Frændi minn var vaxinn úr grasi, orðinn kennari og stúdent að auki og fyrir honum lá að gift- ast, eignast börn og bú og lifa líf- inu eins og það lagði sig. Við hitt- umst af og til, en svo oftar þegar börnin mín voru í Austurbæjar- skóla og nutu þess að eiga hann að, þegar á þurfti að halda. Síð- ustu misserin sáumst við mun sjaldnar. Ég kveð Guðmund frænda minn með þakklæti fyrir sam- fylgdina og bið ástvinum hans blessunar. Og rétt í svip, áður en ég sleppi taki af pennanum, bregður fyrir rauðri Cortinu og ég teygi mig ósjálfrátt í huganum til að halda um stýrið, þótt það sé löngu orðið um seinan. Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson. Við kynntumst Guðmundi þeg- ar við hófum störf í Austurbæj- arskóla haustið 1992. Það voru gæfuspor og forréttindi að hafa kynnst og unnið með Guðmundi sem gegndi þá starfi yfirkennara en varð fljótlega skólastjóri. Með tímanum varð Guðmundur góður vinur okkar beggja. Austurbæjarskóli er sá vinnu- staður sem okkur hefur liðið best á. Okkur hefur raunar reynst ómögulegt að yfirgefa vinnustað- inn og þar á Guðmundur stóran hlut að máli. Í hjarta hans var Austurbæjarskólinn, með manni og mús, og grunnstefið vellíðan allra sem þar starfa, jafnt nem- enda sem starfsfólks. Hann talaði stundum um það hvað hann væri lánsamur í ráðningum. Leyndar- málið lá hins vegar í lífsleikni hans, að hafa trú á fólki. Það laðar fram það besta í hverjum og ein- um. Það fengu allir að vera eins og þeir voru. Stundum var heitt í kol- unum, t.d. á kennarafundum. Guð- mundur hafði hins vegar mikið jafnaðargeð og fólk gat sagt sínar skoðanir án þess að það drægi dilk á eftir sér. Hann vann þannig úr málum að allir gengu sáttir frá borði. Guðmundur var einn sá allra vænsti maður sem við höfum kynnst. Hann hafði allt það sem góðan mann prýðir, var skemmti- legur, eldklár, hlýr, hógvær og hafði góða nærveru og ótrúlega samskiptahæfileika. Hann stjórn- aði skólanum eins og listgrein og talaði máli allra, nemenda, for- ráðamanna þeirra og starfsfólks. Hann leit aldrei stórt á sig, var einn af hópnum og bar virðingu fyrir störfum allra. Síðustu ár sín í starfi sem skólastjóri ákvað hann til dæmis að fara út dag hvern í frímínútnagæslu. Ekki er þau störf að finna í starfslýsingu skólastjóra. Hann var afbragðs ræðumaður sem unun var að hlusta á og ávallt mikið hlegið undir ræðunum hans. Sérstaklega munum við eftir hlátrasköllum yf- ir jólamatnum áður en við héldum í jólafríið langþráða hverju sinni. Guðmundur var líka orðheppinn í meira lagi. Í síma kynnti hann sig gjarnan seinni árin, eftir að hann var hættur störfum, með því að segja kankvís: „Sæl, þetta er Guð- mundur, „fyrrverandi“.“ Guðmundur var vakinn og sof- inn yfir störfum sínum. Hann var mikið í vinnunni og þekkti starf- semi Austurbæjarskólans öðrum fremur. Guðmundur þekkti líka nemendur með nafni og mundi af- mælisdaga starfsfólksins. Hann þekkti fjölskyldur okkar. Austur- bæjarskólafjölskyldan er fjöl- menn. Hún telur núverandi nem- endur og starfsmenn, fyrrverandi félaga, nemendur og fjölskyldur þeirra. Í hópnum ríkir fjölbreytni og kærleikur. Á 80 ára afmæli skólans árið 2010 sýndu nemend- ur honum þann heiður að hanna boli með mynd af skólastjóranum sínum og klæddust nemendur og starfsfólk bolunum á vorhátíð skólans. Það var hugmynd nem- enda að gera Guðmund skóla- stjóra að sameiningartákni síns góða skóla. Það er mikil gæfa að hafa feng- ið að verða samferða manni eins og Guðmundi. Í dag kveðjum við góðan vin. Hans verður sárt sakn- að en um leið gleðjumst við yfir því að hafa átt hann að. Við sendum innilegar samúðar- kveðjur til Gunnhildar, Atla, Siggu, Soffíu og ástvina hans. Inga Lára Birgisdóttir og Hildur Kristjánsdóttir, kenn- arar í Austurbæjarskóla. Með svipuðum hætti og hún Sigríður Tómasdóttir, amma mín sem dó snögglega, hefur hann Guðmundur Rúnar Sighvatsson nú kvatt þetta jarðlíf án þess að nokkur hafi búist við því, en hann var eiginmaður móðursystur minnar og faðir tveggja frænd- systkina minna. Það var oft glatt á hjalla hjá ömmu og afa, þar sem ég ólst upp, og þaðan minnist ég hans fyrst. Rétt eins og amma er hann mörgum harmdauði. Hann hafði þennan dýrmæta hæfileika að láta fólki finnast það mikilvægt, þar sem hann var fjölfróður og ræddi við aðra af þekkingu, en gat þó einnig beitt kímnigáfunni þeg- ar það átti við. Sem barni fór mér strax að líka vel við hann þegar ég fann að hann gat talað við börn sem jafningja, en einnig var hann almennt skapgóður og gaman- samur. Allir þessir eiginleikar munu hafa gert hann að einstak- lega hæfum kennara og skóla- stjóra síðar, enda var hann farsæll í því starfi. Myndarleg voru fjöl- skylduboðin hjá þeim hjónum og oft kom ég til þeirra þar sem þau bjuggu við Kópavogsbrautina. Á þeim tíma eða á unglingsárunum og fram yfir tvítugt var ég að þroskast sem listamaður, í tónlist, ritlist og myndasögum. Þá gaf hann mér mörg góð ráð, benti mér á rithöfunda eins og Gest Pálsson og fleiri. Hann gat haldið uppi samræðum um málefni Nýals dr. Helga Pjeturss, og var það mér hvatning þegar ég fór að kynna mér þau fræði. Ég vil rifja hér upp atvik sem lýsir því hversu hjálp- samur hann var. Árið 1992 var ég í kórnum í Menntaskólanum í Kópavogi. Þá varð ég þess heiðurs aðnjótandi að Jón Ólafsson kór- stjóri, úr Nýdanskri, vildi fá mig í hljóðverið sitt, hugsanlega með plötuútgáfu í huga, eftir að hafa heyrt mig syngja á Myrkramess- unni árið áður. Jón úr Nýdanskri bað mig að senda sér kassettu með nokkrum lögum, en þegar ég sagði Guðmundi þetta fékk hann lánaða myndbandsupptökuvél í nokkra daga. Tók ég upp um það bil 20 lög á tveimur dögum með aðstoð Atla frænda míns, sem er sonur hans. Hann gaf sér jafnvel tíma til að lesa yfir smásögurnar mínar á sínum tíma. Við getum vonað að okkur auðnist aftur að hitta framliðna á nýrri jörð, en þó á meðan við erum á þessari jörð heiðrum við minningu þeirra með því að leggja sjálf rækt við það besta sem við minnumst í þeirra fari. Börnum, barnabörnum, öðr- um ættingjum og vinum sendi ég innilegar samúðarkveðjur. Ingólfur Sigurðsson. Margir góðir skólamenn starfa nær allan sinn starfsaldur við sama skóla, eru þar gjarnan fyrst kennarar, svo aðstoðarskólastjór- ar og jafnvel skólastjórar. Guð- mundur R. Sighvatsson var einn þeirra. Hjarta hans sló til Austur- bæjarskóla, honum þótti vænt um skólann sinn og samband hans við samstarfsmenn, sem flestir urðu samferðafólk til áratuga, nemend- ur og foreldra var einstakt. Í skól- anum tókst honum að þjappa fólki saman á þann hátt að menn fundu sig tilheyra samfélagi, stóðu sam- an að mikilvægum verkefnum og vildu vinna skóla sínum gagn. Guðmundur var einstakur mað- ur og hafði mikla persónutöfra. Viðmót hans einkenndist af hlýju og manngæsku auk þess sem hann kunni þá list að laða fólk til samstarfs og skapa frjótt og nota- legt andrúmsloft þar sem gleðin var höfð að leiðarljósi; vissi sem er að annars verður enginn árangur. Guðmundur átti gott með að sjá broslegu hliðina á málum, var orð- heppinn og stóð traustan vörð um rétt þeirra sem minna máttu sín. Eftir að hann lét af störfum við Austurbæjarskóla var hann virk- ur þátttakandi í starfi Hollvina- félags skólans en tilgangur félags- ins er m.a. að styrkja menn- ingarstarfsemi innan skólans, skrásetja sögu hans og starfrækja skólamunastofu í Austurbæjar- skóla. Þetta átti vel við Guðmund enda hafði hann vakandi auga og áhuga fyrir sögunni og var í mun að varðveita hið gamla og hlúa að rótum skólastarfsins. Samferðamenn í Austurbæjar- skóla sjá á bak góðum samstarfs- manni og félaga og kveðja hann með söknuði og þakklæti. Ástvin- um hans öllum sendi ég hugheilar samúðarkveðjur. Kristín Jóhannesdóttir skólastjóri. Haustið 1973 hóf ungur maður úr Smáíbúðahverfinu störf við Austurbæjarskólann. Hafði hann kynnst Hjalta Jónassyni skóla- stjóra við sumarvinnu í Hvalstöð- inni. Þetta var Guðmundur Sig- hvatsson og lét fljótt til sín taka á nýjum vinnustað. Hluta dags var hann starfsmaður skóla- athvarfsins sem stofnað var um líkt leyti. En einkum kvað að hon- um í elstu bekkjunum. Vegna ungs aldurs varð hann strax vel liðinn meðal unglinganna. Ekki drógu hæfileikar hans og augljósir mannkostir úr vinsældum hans. Þegar hér var komið sögu starfaði enn fólk við skólann sem hafði ver- ið þar allt frá dögum Sigurðar Thorlaciusar og Arnfinns Jóns- sonar, öndvegis fólk sem talaði fal- legt mál, sagði vel frá og lét sér annt um lítilmagnann. Af vörum þess kynntist Guðmundur sögu skólans, hefðum, gildum en ekki síst mennskunni, sem sveif yfir vötnunum frá fyrstu tíð. Einnig nam hann frásagnir af kynlegum kvistum sem þar höfðu átt mis- langa dvöl. Hér verður farið hratt yfir sögu. Fljótlega varð Guðmundur yfirkennari við hlið Alfreðs Eyj- ólfssonar og varð sjálfur skóla- stjóri í ársbyrjun 1995. Um líkt leyti tóku sveitarfélögin við rekstri grunnskólanna af ríkinu. Sigrún Magnúsdóttir var þá orðin formaður fræðsluráðs og farið var í umfangsmiklar endurbætur á húsnæðinu í takt við nýja tíma. Arkitekt skólans var Vilhjálmur Hjálmarsson. Áslaug Brynjólfs- dóttir var fræðslustjóri og bar Guðmundur þessu fólki ávallt vel söguna. Austurbæjarskólinn varð árið 2001 móðurskóli fjölmenning- ar og vann merkt starf á því sviði, starf sem eftir var tekið. Þá sem endranær hélt Guðmundur góðu sambandi við starfsfólk sitt, þekkti sterkar hliðar hvers og eins Guðmundur Rúnar Sighvatsson HINSTA KVEÐJA Kæri vinur og frændi. Ég hugsa til þín með söknuði og þakka þér fyrir áratugina sem við höfum unnið saman. Blessuð sé minning þín. Þegar æviröðull rennur rökkvar fyrir sjónum þér, hræðstu eigi, hel er fortjald, hinum megin birtan er. Höndin, sem þig hingað leiddi, himins til þig aftur ber. Drottinn elskar, – Drottinn vakir daga og nætur yfir þér. (S. Kr. Pétursson) Sigrún Lilja.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.