Morgunblaðið - 28.03.2018, Síða 27

Morgunblaðið - 28.03.2018, Síða 27
stjórn Félags íslenskra myndlist- armanna (FÍM) og Sambands ís- lenskra myndlistarmanna (SÍM). Hún var formaður Textílfélagsins í fjögur ár. Kristín hlaut heiðurs- verðlaun Brunabótafélags Íslands 1990 og silfurverðlaun á Alþjóðlega textílþríæringnum í Lódz í Póllandi 1992. Hún var gestalistamaður í boði Lista- og menningarráðs Norður- Dakota í Bandaríkjunum 2003. Kristín hlaut starfslaun listamanna 1984, 1988, 1992 og 1996 og hlaut styrk úr Minningarsjóði Margrétar Björgólfsdóttur árið 2007. Helstu áhugamál Kristínar eru myndlist, tónlist, bókmenntir og um- hverfisvernd. „Svo hef ég verið að skrifa fyrir Þjóðminjasafnið, t.d. ná- kvæma lýsingu á æskuheimili mínu. Sveitin er farin að toga í mig núna á seinni árum. Ég fór ung í nám og hef meira tækifæri núna til að endur- nýja kynni mín af sveitinni. Ég kenndi víða úti á landi, náði þá að mynda tengsl við fólkið þar og bý að því núna og nota strætó til að fara út á land.“ Fjölskylda Eiginmaður Kristínar var Jón Óskar, f. 18.7. 1921, d. 20.10. 1998, rithöfundur. Foreldrar hans voru hjónin Sigurlaug Einarsdóttir, f. 18.6. 1890, d. 23.12. 1974, húsmóðir á Akranesi og síðar í Reykjavík, og Ásmundur Jónsson, f. 28.5. 1892, d. 11.10. 1945, sjómaður og rafvirkja- meistari á Akranesi og síðar í Reykjavík. Fyrri eiginmaður Krist- ínar var Þrándur Thoroddsen, f. 17.6. 1931, d. 13.1. 2010, kvikmynda- gerðarmaður. Þau skildu. Dóttir Kristínar og Jóns Óskars er Una Margrét Jónsdóttir, f. 14.6. 1966, dagskrárgerðarmaður í Reykjavík. Eiginmaður hennar er Hólmsteinn Eiður Hólmsteinsson, háskólanemi. Systkini Kristínar eru Einar Jónsson, f. 16.4. 1931, fyrrverandi verkstjóri hjá Landsvirkjun, bús. í Hólakoti, Hrunamannahreppi; Kristján Jónsson, f. 27.1. 1936, fyrr- verandi framkvæmdastjóri, bús. í Reykjavík; Eysteinn Jónsson, f. 13.9. 1941, fyrrverandi fram- kvæmdastjóri, bús. í Hafnarfirði. Foreldrar Kristínar voru hjónin Solveig Kristjánsdóttir, f. 1.5. 1905, d. 13.4. 1998, húsfreyja og kennari, lengst af á Munkaþverá í Eyjafirði, síðar á Akureyri, og Jón Marinó Júl- íusson, f. 14.9. 1882, d. 7.1. 1971, bóndi á Munkaþverá, síðar bús. á Akureyri. Kristín Jónsdóttir Guðbjörg Bjarnadóttir húsfreyja á Ísafirði Solveig Kristjánsdóttir húsfreyja og kennari á Munkaþverá Kristján Hans Jónsson prentari og ritstjóri á Ísafirði Jón Jóhannsson bóndi á Hörðubóli og í Stóra-Langadal á Skógarströnd Stefán Jónsson bóndi á Munkaþverá ón Stefánsson bóndi á Munkaþverá JStefán G. Jónsson dósent á Akureyri Margrét Valdimarsdóttir leikkona á Akureyri Fanney Valdimars- dóttir Reykdal húsfr. í Reykjavík Kristján Reykdal innkaupastj. á Borgarspítala Jón Reykdal myndlistarmaður Valdimar Hallgrímsson, bóndi á Litla- Hóli, síðar á Akureyri Soffía Ólafsdóttir húsfreyja á Hörðubóli og í Stóra-Langadal Hans Ólafsson bóndi á Gautastöðum í Hörðudal Ólafía Katrín Hansdóttir húsfr. á Hamri í Hörðudal Guðmundur Kristjánsson b. og myndskeri á Hörðubóli í Hörðudal Anna Guð- laugsdóttir úsfr. á Urðum Svarfaðardal h í Sigurhjörtur Jóhannes- son bóndi á Urðum Sigrún Sigur- hjartardóttir húsfr. á Tjörn Kristján Eldjárn forseti Þórey Guðlaugsdóttir húsfreyja á Munkaþverá Jón Jónsson bóndi og söðlasmiður á Munkaþverá Kristín Sigurbjörg Jónsdóttir húsfreyja á Munkaþverá Einar Júlíus Hallgrímsson bóndi á Munkaþverá Úr frændgarði Kristínar Jónsdóttur Jón Marinó Júlíusson bóndi á Munkaþverá í Eyjafirði Kristín Tómasdóttir húsfreyja í Mikla-Garði og Saurbæ Ólafur Thorlacius læknir og alþingismaður Margrét Einarsdóttir Thorlacius húsfreyja á Grund og Litla-Hóli Jóns Stefánsson listmálari Ólöf Hallgrímsdóttirhúsfr. á Akureyri Ólöf Thorlacius húsfr. á Akureyri Jón Thorlacius prestur í Mikla- Garði og Saurbæ, Eyjafirði Jóna Jónsdóttir vinnukona á Birningsstöðum Hjörtur Páls- son rithöf- undur Páll Ólafsson b. á Sörla- stöðum í Fnjóskadal Guðný Jónsdóttir húsfr. á örlastöðumS Guðrún Ólafsdóttir húsfreyja á Sörlastöðum Hallgrímur Tómasson b. og hreppstj. á Grund og Litla-Hóli í Eyjafirði, systursonur Jónasar Hallgrímssonar skálds Jón Gauti Péturs- son b. og oddviti á Gautlöndum Solveig Jónsdóttir úsfr. á Gautlöndum í Mývatnssveit h Pétur Jónsson bóndi og alþingism. á Gautlöndum Bjarni Jónsson bóndi á Birningsstöðum í Fnjóskadal ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 2018 Jón Pétur Sigurðsson fæddist28. mars 1868 á Auðólfsstöðumí Langadal. Foreldrar hans voru Sigurður Helgason, f. 1825, d. 1979, frá Gröf í Víðidal, trésmiður að atvinnu, og Guðrún Jónsdóttir, f. 1835, d. 1901, úr Vatnsdal, Eiríks- sonar prests á Undirfelli. Jón átti tvö systkini, Björgu Jósefínu, sem var móðir dr. Sigurðar Nordal og Jóns Eyþórssonar veðurfræðings, og Sig- urð Helga. Jón P. og Jón Þorláksson forsætisráðherra voru systrasynir. Fjórtán ára fór Jón til sjós á jakt- inni Palma. Hann var síðan í sigl- ingum víða erlendis en fluttist svo til Danmerkur og fór í Stýrimannaskól- ann í Fanö, tók próf 1891 og skip- stjórapróf árið eftir. Honum var boðin skipstjórastaða á stóru seglskipi árið 1896 og var það upphaf skipstjórnar hans á Fanö- skipunum. Þar var hann m.a. í Afr- íku- og Brasilíuferðum. Þurfti hann að taka skipstjórnarpróf í Brasilíu, sem var á portúgölsku, og stóðst það. Eftir að stóru gufuskipin komu til urðu margar hafnir of grunnar fyrir þau skip. Jón fann upp dýptarmæli og ákvað að snúa til Danmerkur og hefja framleiðslu á honum. Jón nefndi líka í blaðamannaviðtali að eftir að gufuskipin komu til sögunnar hefðu skipstjórar misst sjálfstæði sitt og vildi hann því snúa sér að öðru. Sigurdssons-dýptarmælirinn, eins og hann var kallaður, var notaður á Norðurlöndunum, í Þýskalandi, Hol- landi, Englandi og víðar. Síðan tóku aðrir við framleiðslunni og þá fluttist Jón til Esbjerg, gerðist þar kennari við sjómannaskóla, var síðan um nokkurra ára skeið for- stjóri sjómannaskóla og sjómanna- heimilis í Svendborg á Fjóni, en hvarf þá aftur til Esbjerg og var þar enn skólastjóri sjómannaskóla fram yfir áttrætt. Árið 1896 kvæntist Jón Pétur ungri stúlku, Petreu, sem fædd var í Nordby á Fanö. Þau eignuðust átta börn. Jón P. Sigurðsson lést 7.3. 1959. Merkir Íslendingar Jón P. Sigurðsson 90 ára Brynhildur J. Bjarnarson Einar Valmundsson Eiríka Kristín Þórðardóttir Gunnar M. Steinsen Heiður Jóhannesdóttir 85 ára Ásbjörg Jónsdóttir Guðleif K. Jóhannesdóttir Hreiðar Jósteinsson Jóna Valgerður Höskuldsd. Kristín Jónsdóttir 80 ára Fjóla Filippía Jónsdóttir Guðmunda M. Þorleifsd. Helga Þórdís Tryggvadóttir Sigurbjörg Guðmundsdóttir Sigurður H. Hreiðarsson 75 ára Ágústa Baldvinsdóttir Baldvin S. Gíslason Jónas Helgi Guðjónsson Lilja Ólafsdóttir 70 ára Ceslovas Urnikis Guðmundur Hannesson Halldór Jónasson Reynir Hólm 60 ára Antonio Fernando G. Inacio Árni Finnsson Ásta Margrét Jóhannsd. Barbara Puszko Birgir Thorlacius Guðrún Ingólfsdóttir Guðrún S. Thorsteinsson Heimir Ingvason Konstanty Celinski Marteinn Gunnarsson Regína Berndsen Sigríður Ragna Þorvaldsd. Zsuzsanna Bitay 50 ára Angelique Kelley Eggert Ólafur Jónsson Ellert Kristinn Jósefsson Guðbjörg B. Sigurðardóttir Guðni Einarsson Hannes Lárus Jónsson Janeth Kristín Soleminio Jódís Sigurðardóttir Jóhann Gunnar Jónsson Karl Pálsson Klara Geirsdóttir Kristján Þór Bernótusson Monica Elisa C. Martinez Þorsteinn Ólafsson 40 ára Arnaldur Máni Finnsson Bryndís Jónsdóttir Edda Björk Agnarsdóttir Elmar Örn Guðmundsson Friðgeir Kemp Halla Eyberg Þorgeirsdóttir Hörður Bjarnason Lukka Berglind Brynjarsd. Ólafur Hlynur Guðmarsson Þorsteinn Einarsson 30 ára Arna Benný Harðardóttir Benóný Harðarson Davíð Gunnarsson Edit Ómarsdóttir Guðný Anna Árnadóttir Haukur Gunnarsson Hávarður Jónsson Kamilla Dögg Guðmundsdóttir Kristján Vilhjálmsson Ólöf Guðrún Guðmundsdóttir Pálmi Jónsson Sigurlaug Helga Birgisd. Sonja Ólafsdóttir Sunna Örlygsdóttir Valborg Sturludóttir Þröstur Þór Ágústsson Til hamingju með daginn 30 ára Davíð er Hornfirð- ingur en býr í Breiðholti. Hann er menntaður í vél- fræði og er vélstjóri á Vig- ur SF-80 hjá Útgerðar- félaginu Vigur. Systkini: Helga, f. 1977, Gunnar, f. 1980, Bragi, f. 1982, og Andri, f. 1994. Foreldrar: Gunnar Dav- íðsson, f. 1957, sjómaður hjá Skinney-Þinganesi, og Ólafía Þóra Bragadóttir, f. 1957, heimavinnandi. Þau eru bús. á Akureyri. Davíð Gunnarsson 30 ára Edit er Skaga- maður, fædd og uppalin á Akranesi, og er nemi í tölvunarfræði við HR. Maki: Davíð Reynir Stein- grímsson, f. 1984, rafvirki hjá GT tækni. Börn: Saga Dís, f. 2008, og Hekla María, f. 2011. Foreldrar: Ómar Örn Ragnarsson, f. 1959, og Lilja Kristófersdóttir, f. 1960. Stjúpfaðir: Skúli Bergmann Garðarsson, f. 1951. Edit Ómarsdóttir 30 ára Valborg er Reyk- víkingur og er í þverfag- legu meistaranámi í tölv- unarfræði við HÍ. Maki: Baldur Þór Em- ilsson, f. 1987, tölvunar- fræðingur hjá Tempo. Börn: Rökkvi Þór, f. 2013, og Katrín Sólveig, f. 2017. Foreldrar: Sturla Sigfús- son, f. 1958, d. 1991, og Anna Soffía Guðmunds- dóttir, f. 1960. Stjúpfaðir: Ásgrímur Guðmundsson, f. 1957. Valborg Sturludóttir Skútuvogi 1c 104 Reykjavík Sími 550 8500 Fax 550 8510 www.vv.is ÖFLUGUR VINNUFÉLAGI Auðveldaðu þér vinnuna með góðum græjum Hleðsluborvél EY 74A2 PN2G32 Patróna: 13 mm Rafhlaða: 18V, 2 x 3,0 Ah Li-Ion KOLALAUS 1,8 kg ToughTool IP Verð: 39.200 kr.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.