Morgunblaðið - 28.03.2018, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 28.03.2018, Qupperneq 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 2018 Fyrir Íslendinga er erfittað gera sér í hugarlundhve risavaxið Grænlander. Raunar er það erfitt fyrir alla sem hafa ekki komið þangað. Undanfarin ár hafa verið gefnar út nokkrar bækur hér á landi til að auðvelda skilning á Grænlandi og þjóðinni sem þar býr. Ljósmyndabækur Rax eru sjálfstæð listaverk. Bókin Á norðurslóð – ferðasaga frá Grænlandi eftir feðgana Pétur Ásgeirsson sendiherra og Ásgeir er nýjasta framlag Íslendinga til kynningar á Grænlandi. Athyglin beinist einkum að vesturströnd Grænlands og lýsir bókin báts- ferðum þeirra þar sumurin 2015 og 2016. Í bókinni segja feðgarnir frá því sem fyrir augu þeirra bar og kynnum sínum af nátt- úru, mönnum og menn- ingu. Þeir sigldu frá Nanortalik í 60°N til Uummannaq í 71°N. Alls sigldu þeir tæplega 3.000 sjómílna (5.500 km) vegalengd þegar allt er talið. Ásgeir tók myndir og prýða margar þeirra bókina og auðvelda lesandanum að átta sig á ýmsu sem lýst er í textanum. Sá háttur er á umbroti bókarinnar að auk stórra mynda í hverjum kafla hennar eru allar myndirnar einnig prentaðar sem smámyndir með stuttum texta aftast í bókinni. Inn- an á kápum eru kort sem sýna siglingaleiðina. Allt efni er sett fram á skýran og skilmerkilegan hátt. Má segja að bókin sé góð handbók fyrir þá sem ætla að leika þetta ferðalag eftir. Almennur lesandi finnur í bókinni mikinn fróðleik um mannlíf og staðhætti á vesturströnd Græn- lands. Pétur Ásgeirsson var skipaður aðalræðis- maður Íslands á Græn- landi 1. júlí 2013 og var aðalræðisskrifstofan formlega opnuð í Nuuk 8. nóvember 2013. Í febrúar 2015 keypti Pétur lítið notaðan Nord Star Patrol 26, 8,4 m langan plastbát, smíðaðan í Finnlandi. Í stefni bátsins er lítil káeta þar sem tveir geta sofið en sex manns geta setið í stýrishús- inu. Þar er einnig aðstaða til mats- eldar. Lítill pallur á skut bátsins rúmar gúmmíbát. Vélin er Volvo Penta D4, 260 hestafla og gang- hraði að hámarki 32 hnútar (um 60 km). Hagkvæmasti hraðinn er um 27 hnútar (50 km). Um borð höfðu þeir VHF talstöð, VHF handstöð, gervihnattarsíma, tvö GPS tæki, radar, áttavita og sjókort auk björgunarvesta, flotgalla, neyðar- blysa og riffils. Þeir Pétur og Ásgeir stunduðu fjarnám í Tækniskóla Íslands og luku þaðan skemmtibátaprófi sem veitir réttindi til að stjórna allt að 24 m löngum skemmtibátum. Á Grænlandi er óheimilt að hafa VHF talstöð um borð í báti án til- skilinna réttinda. Aflaði Pétur sér þeirra með því að sækja fjar- skiptanámskeið á Grænlandi. Kom það grænlenskum vinum hans á óvart að þessi krafa væri gerð og sögðu hann nú geta orðið loft- skeytamann á grænlenskum tog- ara. Að öllu þessu fengnu og í sam- floti við vinafólk á öðrum báti, hjónin Liss Stender, listakonu og vöruhönnuð, og Peter Jensen, kvikmyndatöku- og þáttagerðar- mann, var siglt af stað frá Nuuk. Sumarið 2015 fóru þeir í 13 daga ferð suður á bóginn og sigldu alls 1.620 sjómílur fram og til baka á 65 siglingartímum. Sumarið 2016 sigldu þeir 1.350 sjómílur norður og til baka á 56 siglingartímum. Samtals eru þetta 2.970 mílur á 121 klukkustund eða 24 mílna meðalhraði. Þetta nákvæma yfirlit gefur til kynna hve vel Pétur heldur utan um allar tímasetningar og vega- lengdir í frásögn sinni. Þeir sigla almennt við góðar aðstæður en þó getur gefið á fyrir opnu hafi og í niðaþoku er betra að fara varlega bæði vegna hættu af ís og grynn- ingum þegar siglt er innan skerja. Allt er svo stórt í sniðum í grænlenskri náttúru að undrin eru mörg sem við augum blasa. Þá er lesandinn hvað eftir annað minnt- ur á hve miklu skiptir fyrir Græn- lendinga að eiga góða báta til að fara á milli staða. Vegir teygja sig lítt út fyrir litla bæi og bannað er að reyna að ferðast um landið á mótorhjólum. Bátar, þyrlur og flugvélar eru almennt farartæki þeirra sem vilja komast á milli lit- skrúðugra bæjanna við ströndina. Sleðahundar eru bannaðir fyrir sunnan heimskautsbaug á vest- urströnd Grænlands og aðrir hundar en sleðahundar eru bann- aðir norðan baugsins. „Þetta er gert til að koma í veg fyrir blönd- un og að fólk haldi sleðahunda sem húsdýr fyrir sunnan. Sleða- hundar eru vinnudýr og þeir geta verið grimmir og jafnvel hættu- legir. Ókunnugir ættu því ekki að nálgast sleðahunda í Grænlandi eins og um gæludýr væri að ræða,“ segir Pétur. Fróðleikurinn sem hann miðlar til lesandans er margbreytilegur. Til dæmis segir hann að líklegt sé að stóru flugvellirnir tveir sem Bandaríkjaher lagði annars vegar í Kangerlussuaq, Syðri-Straum- firði, árið 1941, og hins vegar í Narsarsuaq, innst í Eiríksfirði, verði brátt aflagðir. Sífreri undir flugbrautinni í Kangerlussuaq er tekinn að þiðna vegna hlýnandi loftslags og ákveðið hefur verið að leggja flugbraut við Qaqortoq í mynni Eiríksfjarðar. Til að tryggja betur flugsamgöngur við höfuðborgina Nuuk verður flug- brautin þar lengd í 2.200 metra. Þegar Íslendingar ferðast með vesturströnd Grænlands staldra þeir við hjá Íslendingum þar og segja frá því sem Íslandi tengist, fyrr og síðar. Öllu er því vel til skila haldið af aðalræðismanninum sem nú er orðinn sendiherra Ís- lands í Kanada. Ljósmyndir Ásgeirs bregða ljósi á mannlíf og náttúru Grænlands og er mikill fengur að þeim í þess- ari vel gerðu bók. Á skemmtibáti við vesturströnd Grænlands Ljósmynd/Ásgeir Pétursson Ísröst Frá siglingu feðganna Ásgeirs Péturssonar og Péturs Ásgeirssonar við Grænlandsstrendur. Ferðasaga Á norðurslóð bbbmn Eftir Pétur Ásgeirsson og Ásgeir Pétursson. Opna, 2017. Innb., 249 bls. BJÖRN BJARNASON BÆKUR Sýning Önnu Fríðu Jónsdóttur, Tónn, verður opnuð í D-sal Lista- safns Reykjavíkur - Hafnarhúsi í dag, miðvikudag, klukkan 17. Anna Fríða er 33. listamaðurinn sem sýn- ir í D-salarröð safnsins. Í tilkynningu segir að Anna Fríða skoði veröldina í kringum sig eins og úrval af hljóðfærum þar sem ým- islegt er í boði: pákur, píanó, bjöllur og strengir. Hún fangar hljóðbylgj- urnar og býr þeim form í verkum sínum. Hún gerist hljómsveitar- stjóri náttúrunnar þegar hún stend- ur upp á trjábol og stjórnar skógar- sinfóníu, býr til tónlist úr heila- bylgjum og reynir að hafa áhrif á þær með rödd sinni, smíðar tónverk úr vindhviðum og undirtónum öld- unnar. Á sýningunni eru vídeóverk og skúlptúrar. Sýningarstjóri er Klara Þórhallsdóttir. Anna Fríða útskrifaðist frá LHÍ árið 2010 og lauk MA-námi í Vín- arborg. Hún hefur sýnt verk sín og gjörninga víða, hér og erlendis. Morgunblaðið/Eggert Listakonan Anna Fríða Jónsdóttir við uppsetningu sýningar sinnar í D-sal. Fangar hljóðbylgjur og býr þeim form  Anna Fríða Jónsdóttir sýnir í D-sal Ármúla 24 s. 585 2800 TÍMALAUS HÖNNUN FRÁ BY RYDÉNS ICQC 2018-20

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.