Fréttablaðið - 06.06.2018, Page 2

Fréttablaðið - 06.06.2018, Page 2
Garðtraktorar fyrir þá kröfuhörðu Gerir sláttinn auðveldari ÞÓR FH Akureyri: Baldursnes 8 603 Akureyri Sími 568-1555 Opnunartími: Opið alla virka daga Lokað um helgar Reykjavík: Krókháls 16 110 Reykjavík Sími 568-1500 Vefsíða og netverslun: www.thor.is Veður Hæg suðlæg eða breytileg átt í dag, skýjað að mestu og sums staðar þokuloft. Bjart með köflum á Norður- og Austurlandi, en líkur á þokumóðu við sjóinn. sjá síðu 18 Skrifað undir í sólinni samfélag Innan Seðlabanka Íslands er nú til skoðunar með hvaða hætti skuli bregðast við kvörtun starfs- manns um að nektarmálverk sem prýða veggi bankans séu ósæmileg og beri að fjarlægja. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hefur málið vakið nokkurn usla innan bankans þar sem skiptar skoðanir eru á réttmæti kvörtunarinnar. Í Seðlabanka Íslands er að finna nokkuð safn klassískra myndlistar- verka eftir, meðal annars, marga af meisturum íslenskrar málaralistar. Á einhverjum þeirra, nánar tiltekið myndum eftir Gunnlaug Blöndal, er að finna nekt. Samkvæmt heimild- um Fréttablaðsins gerði starfsmaður bankans alvarlega athugasemd við nektarmyndirnar á vinnustaðnum, taldi þær ósæmilegar og fór fram á að þær yrðu fjarlægðar. Kvörtunin, sem kom í kjöl- far #metoo-byltingarinnar og þeirrar miklu umræðu sem skap- aðist í kringum hana, var tekin alvarlega og endaði inni á borði stjórnenda þar sem ákveðið var að setja málið í ákveðið ferli. Sú vinna s t e n d u r enn og liggja örlög nektarverka hinna gömlu meistara innan veggja Seðla- banka Íslands ekki fyrir. „Það er til umræðu innan bank- ans hvar málverkum af þessu tagi eftir gömlu meistarana á borð við Gunnlaug Blöndal verður best fyrir komið,“ segir Stefán Jóhann Stefánsson, ritstjóri Seðlabanka Íslands, aðspurður um málið en kvaðst ekki geta tjáð sig frekar um það þar sem um starfsmannamál væri að ræða. Einn helsti list- spekúlant landsins, Hilmar Einarsson í Morkinskinnu, segir aðspurður að sér hugnist þessi vegferð Seðla- bankans illa. Vissulega geti fólk haft skoðun á því hvað sé góð og slæm myndlist en þegar umræðan, í þessu tilfelli #metoo, snúist um að ritskoða listina sé farið yfir strikið. „Nei, þetta kemur ekki til mála að mínu mati. Mér finnst þetta út úr kortinu, því hvar á þetta að enda? Hvar eigum við þá að draga mörkin? Við yrðum þá bara að elta uppi alla listasöguna eins og hún leggur sig ef þú ætlar inn á þessi svæði,“ segir Hilmar í samtali við Fréttablaðið. Hann bendir á að myndir Gunnlaugs, sérstaklega þær sem skilgreindar eru frá Par- ísartímabili listamannsins, séu afar eftirsóttar og flottar. mikael@frettabladid.is Nektarlist veldur usla innan Seðlabankans Málverk Gunnlaugs Blöndal sem prýða veggi Seðlabanka Íslands fóru fyrir brjóstið á starfsmanni sem kvartaði. Kvörtunin er nú til skoðunar hjá stjórn- endum og óvíst hvort verkin fái að vera uppi eða úr augsýn. Sérfræðingur hissa. Hilmar Einars- son. Frétta- blaðið/GVa titringur er vegna myndlistar sem inniheldur nekt. Fréttablaðið/anton brink Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn og óháðir skrifuðu undir málefnasamning, en framboðin hafa myndað meirihluta í Hafnarfirði. Í samningnum er kveðið á um gerð stjórnsýsluúttektar með það að markmiði að auka skilvirkni í þjónustu og byggingu hjúkrunarheimilis. Fréttablaðið/Ernir lögreglumál Fulltrúar embættis héraðssaksóknara gerðu húsleit á heimili hjónanna Guðmundar Arnar Þórðarsonar og Svanhildar Nönnu Vigfúsdóttur í síðustu viku og lögðu hald á gögn sem tengjast rannsókn embættisins á kaupum þeirra á hlutum í Skeljungi 2008 og í færeyska olíufélaginu P/F Magn 2009, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Hjónin eru í dag meðal stærstu hluthafa í VÍS og Kviku banka. Þá herma heimildir blaðsins að að minnsta kosti þrír einstaklingar til viðbótar séu til rannsóknar hjá embættinu vegna viðskiptanna, Halla Sigrún Hjartardóttir, Einar Örn Ólafsson og Kári Þór Guðjóns- son, en þau störfuðu öll samtímis í fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka sem hafði umsjón með sölu á Skelj- ungi til Svanhildar og Guðmundar. Fyrst var greint frá rannsókn embættisins á kaupum hjónanna á hlutum í olíufélögunum tveimur á frettabladid.is í gær. Rannsóknin er til komin vegna kæru sem Íslands- banki lagði fram árið 2016. Í yfirlýsingu sem hjónin sendu Fréttablaðinu í gær sögðu þau kaupin í umræddum félögum hafa borið að með eðlilegum hætti og einsýnt að opinber rannsókn á við- skiptunum muni eyða öllum vafa um réttmæti þeirra. – ósk, hae Húsleit vegna Skeljungssölu Svanhildur nanna Vigfúsdóttir. Fréttablaðið/anton DÓmsmál Karlmaður á sjötugsaldri var í Héraðsdómi Austurlands í síðasta mánuði dæmdur til greiðslu 110 þúsund króna sektar vegna ölvunaraksturs. Maðurinn hafði ekið bifreið sinni utan í kyrrstæða bifreið í Fjarðabyggð. Þegar lögreglu bar að garði var maðurinn látinn blása í vínandamæli og mældist áfengismagn í útblæstri 2 prómill. Maðurinn sagði að hann hefði drukkið einn bjór og krafðist sýknu á þeim grundvelli að hann hefði neytt áfengis eftir að akstri lauk. Slysið hefði mátt rekja til þess að hann missti bita af hákarli frá sér sem hann var að snæða undir stýri. Blóð- sýni sem tekin voru úr manninum leiddu í ljós að áfengismagn í blóði mældist yfir 1,6 prómill. Maðurinn var sviptur ökurétt- indum í tíu mánuði og dæmdur til greiðslu rúmlega 640 þúsund króna sakarkostnaðar. – jóe Sakarkostnaður sexföld sektin 6 . j ú n í 2 0 1 8 m I ð V I K u D a g u r2 f r é t t I r ∙ f r é t t a B l a ð I ð 0 6 -0 6 -2 0 1 8 0 4 :5 6 F B 0 4 8 s _ P 0 4 7 K _ N Ý. p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 0 3 -0 B 6 8 2 0 0 3 -0 A 2 C 2 0 0 3 -0 8 F 0 2 0 0 3 -0 7 B 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 8 s _ 5 _ 6 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.