Fréttablaðið - 06.06.2018, Blaðsíða 46
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Elmar Hallgríms Hallgrímsson elmar@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401:
Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Valdimar Birgisson valdimar@frettabladid.is
Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ólafur H.
Hákonarson olafurh@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is og Ragnheiður Tryggvadóttir heida@frettabladid.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI
512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is, Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
HÁGÆÐA IÐNAÐARHURÐIR
Járnháls 2-4 | 414-8600 | velaborg@velaborg.is
VIÐ SÉRHÆFUM
OKKUR Í
ASÍSKRI
MATARGERÐ.
HOLLUR OG
LJÚFFENGUR
MATUR.
Vietnamese restaurant
Laugavegi 27 og
Suðurlandsbraut 8
sími: 588 6868
pho.is
Nýjar vörur frá geoSilica
Kísill Íslenskt kísilsteinefni
Recover Fyrir vöðva og taugar
Renew Fyrir húð, hár og neglur
Repair Fyrir bein og liði
Fæst í öllum helstu apótekum, heilsuvöruverslunum,
Hagkaupum, Nettó, Fjarðarkaupum og vefverslun geoSilica.
Nánari upplýsingar má fi nna á www.geosilica.is
Ég er bara „ p u t t i n g my money where my mouth is“ svarar Dóri
spurður að því út í hvað
hann sé eiginlega búinn
að koma sér – en hann
gerði sér lítið fyrir síðasta
mánudagskvöld og lagði
800 evrur, um 100 þúsund íslenskar
krónur, á leik Íslands á móti Arg-
entínu á heimsmeistaramótinu í
knattspyrnu. Stuðullinn er 11,50
og ef Ísland vinnur eignast Halldór
heilar 9.200 evrur – tæplega 1,2
milljónir króna. Það eru nokkrar
náttúruvínsflöskur.
„Mér er sagt að þetta sé okkar
tækifæri – líkunum samkvæmt er
ólíklegt að svona lítil þjóð komist
aftur á heimsmeistaramótið og ég
ætla bara að fá premium pakkann á
þessu öllu saman,“ segir Halldór en
hann er á leiðinni til Moskvu til að
verða vitni að ávöxtun aleigunnar,
eða þá því þegar hann fer gjörsam-
lega á kúpuna.
„Ég er að leita að fólki sem getur
haldið á mér inn á völlinn og út af
honum aftur.
„Nota bene, ég vil vitna í nám
mitt sem dramatúrg – ég veit að
sama hvar við endum á þessu móti
erum við alltaf að fara að vinna
Argentínu, sem töpuðu í framleng-
ingu í úrslitum fyrir fjórum árum.
Öll teiknin eru á lofti sem gera
þetta að klassísku ævintýri. Þegar
Gylfi slasaðist hugsaði ég „þetta
er búið“ en þegar Aron slasaðist
líka – þá varð alveg kýrskýrt að við
værum að fara að vinna þennan
fyrsta leik. Núna til að kóróna
þetta, ef við förum í sögu aðalhetj-
unnar, Vogler, þá erum við búin að
fara á fund lærimeistarans, Lars, og
læra þar dýrmæta lexíu,“ segir Dóri
og vitnar þar í reglur handritahöf-
undarins og fyrirlesarans Chri-
stophers Vogler um hvernig saga
skuli byggð en hann vann þær upp
úr verkum goðsagnafræðingsins
Josephs Campbell. Sá sagði goð-
sagnir og ævintýri byggð upp á
svipaðan máta, hinum svokallaða
„hero’s journey“ söguþræði, sem
flestar stórar bíómyndir byggja á.
Þar koma áföll alltaf við sögu og
lærimeistari eða aðstoðarmaður
hjálpar hetjunni að finna styrk
sinn – í þessu tilviki Lars Lagerbäck.
„Samkvæmt minni menntun og
þekkingu erum við að fara að eiga
annað svona „shaky móment“ í
markinu. Þetta er algjörlega hero’s
journey. Ég get ekkert sagt um
hvort við komumst upp úr riðlin-
um eða neitt þannig en þennan leik
erum við alltaf að fara að vinna.
Þetta verður alveg svart – Messi er
þarna en þessir strákar, Raggi og
Kári slökkva alveg í þessu dæmi. Á
mínútu sjötíu þá segi ég að Gylfi og
Aron muni eiga hlut að máli út af
þessum meiðslum. Þetta er skrifað
í stjörnurnar.
Síðan fæ ég þessar eina komma
tvær millur lagðar inn á mig og svo
trítla ég á Rauða torgið og kaupi
mér veski til að geyma alla þessa
peninga í,“ segir Dóri, gríðarlega
stressaður.
Hvernig var augnablikið, Dóri,
þegar þú ákvaðst að leggja aleiguna
á þennan fótboltaleik?
„Sko, þetta var pínu erfitt
móment, því ég fór inn á Betsson,
sem ég hef aldrei notað áður og
þurfti því að stofna reikning og eitt-
hvað. Svo fann ég ekki leikinn í smá
stund en fann hann svo og smellti
á upphæð og „make bet“ og þá var
það bara komið! Þá var ég alveg
bara „shit!“ en fjölskyldan hefur
skilning á þessu. Hún veit að það
er ekkert nema rib eyes eftir þetta,
þau elska dramatúrginn.“ Það er
gott að eiga góða að.
stefanthor@frettabladid.is
Dramatúrgur veðjar
aleigunni á ævintýrið
Halldór Halldórsson, betur þekktur sem Dóri DNA, veðjaði tæplega
100 þúsund krónum á sigur Íslendinga gegn Argentínu í HM í fót-
bolta. Hann byggir ákvörðunina á menntun sinni sem dramatúrg.
Halldór Halldórsson, kenndur við DNA, mun þurfa að eiga við taugarnar í bardagahring hugans á næstu dögum en hann
lagði nánast aleiguna undir að íslenska landsliðið sigraði það argentínska á HM í knattspyrnu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Hér sjáum við þetta svart á hvítu,
búið og gert, veðmálsseðil Dóra.
Héðan verður ekki aftur snúið.
6 . j ú n í 2 0 1 8 M I Ð V I K U D A G U R26 l í f I Ð ∙ f R É T T A B l A Ð I Ð
0
6
-0
6
-2
0
1
8
0
4
:5
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
0
3
-1
A
3
8
2
0
0
3
-1
8
F
C
2
0
0
3
-1
7
C
0
2
0
0
3
-1
6
8
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
5
_
6
_
2
0
1
8
C
M
Y
K